Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Page 22
26 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 Menning DV Ríflega 300 bækur gefnar út fyrir komandi jólabókavertíð: Fjórðungsfækkun á þremur árum - forlögin farin að dreifa útgáfunni meira yfir árið Jólabókaflóöiö árlega er fram undan. Bækur eru þegar komnar á markaö og þeim mun fjölga jafnt og þétt næstu vikurnar. Flóðiö verður minna en í fyrra, titlum hefur fækk- að um tíu prósent milli ára og á þremur árum hefum þeim fækkaö um nær fjórðung, samkvæmt upp- lýsingum frá Félagi íslenskra bóka- útgefenda. Titlarnir í ár verða rúm- lega 300 en fyrir þremur árum voru þeir yfir 400 talsins. í samtölum við forráðamenn bókaforlaga kemur fram að bókaútgáfa er farin að dreif- Halldór Guómundsson, fram- kvæmdastjóri Máls og menningar: Meira um íslenskan skáldskap en áður og vandað til verka hvað þýdd- an skáldskap varðar. Böminí meðíslenskutali Kvikmyndagerðin Verksmiöjan hefur sett kvikmyndina Bömin í Ólátagarði, eftir sögu Astrid Lindgren, á myndband með ís- lensku tali. Leikstjóri íslensku talsetningarinnar er Guðrún Þórðardóttir, þýðingu gerði Vet- urliði Óskarsson. Hljóð & mynd hf. sá um talsetningu. Aðalhlutverk myndarinnar eru í höndum baraa og þau sem ljá sænsku persónunum raddir sín- ar á íslensku eru: Margrét Sig- urðardóttir, Þorvaldur Krisljáns- son, Ámi Egill Örnólfsson, Arnar Sigmundsson, Theodóra Sigurð- ardóttír, Birna Pálmadóttir og Halla Björg Randversdóttir. Nokkrir af þekktustu leikurum þjóöarinnar ljá fullorðnu persón- unum raddir sínar, þ. á m. Bessi Bjarnason og Lilja Þórisdóttir. Myndin segir frá börnum á þremur bóndabæjum í Óláta- garði, sem er lítil húsaþyrping langt inni í sænsku Smálöndun- um. Segir af ævintýrum þessara krakka á mjög skemmtilegan hátt. -bjb ast meira yfir árið og menn ekki leng- ur að miða afkomuna eingöngu við jólavertíðina. Hér verður ekki farið í að telja upp áhugaverðustu titlana í ár heldur rætt um markaðinn al- mennt. Spáð verður í efnilegar „vin- sældalistabækur" síðar á menning- arsíðum DV. Forlögum hefur fækkað Virðisaukaskattur kom á bækur um mitt árið 1993 og hefur hann haft mikil áhrif á bókaútgáfu. Forlögum hefur fækkað eöa þau dregið starf- semi sína verulega saman. Nægir þar að nefna fornfræg forlög eins og Örn & Örlyg og Almenna bókafélagið. Þau forlög sem helst kveður aö núna eru Mái & menning, Vaka-Helgafell, Forlagið, Skjaldborg og Fróði. Er þá átt við fjölda titla en síðan eru mörg forlög sem gefa út fáar en mjög vand- aðar bækur. Eitt stærsta forlagið er Mál og menning sem gefur út um 80 titla fyrir þessi jól. Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri, sem jafnframt er varaformaður Félags íslenskra bóka- útgefenda, sagði að Mál og menning væri á þessu ári að gefa út hátt í 150 bækur. Hann sagði það einkenna útgáfuna þetta árið að meira væri um íslenskan skáldskap en áður og sömuleiðis væri vandað til verka hvaö þýddan skáldskap varðaöi. „Það er fráleitt annað en að segja fyrir vertíðina að hún leggist vel í mig. Við höfum gefiö út mikið af bókum frá áramótum þannig að út- gáfan fyrir þessi jól verður minni en oft áður. Útgefendur hafa ofhlaðið jólamarkaðinn, það er engin spurn- Minnkandi jólabókaflóð - útgefnir titlar 1991-1995*- í Viröisaukaskattur settur á \ 388 377 335 Um 310 '93 BH '94 m '95 * Samkvæmt bókatíöindum Fél. ísl. bókaútg. ing. Það er fráleit stefna að ætla út- gáfuna þrífast á einhverjum þremur vikum á ári. Niðurskurðurinn á sín- ar eðlilegu skýringar, s.s verðbólgu og minnkandi kaupmátt fólks, en getur einnig reynst varasamur. Ef hann er of mikill getur verið erfitt fyrir nýja höfunda að komast að. Fyrir fram get ég þó sagt að það verð- ur meira líf á markaðnum en í fyrra,“ sagði Halldór, aðspurður hvernig sér litist á komandi vertíð. Samdráttur vegna „vasksins" Halldór sagði það ekkert vafamál að tilkoma virðisaukaskattsins hefði haft í för með sér „svakalegan sam- drátt“ á markaðnum. Útgefendur hafa verið að láta Hagfræðistofnun gera úttekt fyrir sig á þessu og sagði Halldór niðurstöðurnar allar sýna það sama. Þetta sést vel í meðfylgj- andi grafi um fjölda útgefinna titla hjá bókaútgefendum frá árinu 1991. „Afstaöa stjómvalda til prentmáls ber ótrúlegri þröngsýni vitni. Um það er ekkert annað hægt að segja," sagði Halldór. -bjb Góð aðsókn að Þjóðleikhúsinu: Uppselt á 20 sýn- ingar á stóra sviðinu - Þrek og tár og Kardemommubærinn trekkja mest I tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu segir að miðasala leikhússins hafi varla undan þessa dagana vegna gíf- urlegrar aðsóknar á leikrítin Þrek og tár og Kardemommubæinn. Upp- selt er á næstu 10 sýningar á Kar- demommubænum og svipaða sögu er að segja um Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson. Svo til uppselt er á 10 sýningar á Þreki og tárum í nóvember nema hvað örfá sæti eru laus á sýningar í lok mánaðarins. Forráðamenn leik- hússins benda á að stundum sé unnt að fá ósóttar pantanir þegar nær dragi sýningum. Þá er einnig mikil aðsókn aö leik- riti Jim Cartwrights, Taktu lagið, Lóa!, á Smíðaverkstæðinu en sýning- ar nálgast nú 80. Þeim fer senn að fækka þar sem rýma verður fyrir næsta verkefni, sem er breska leik- ritiö Leigjandinn eftir Simon Burke. Stakkaskipti verða sýnd á stóra sviðinu fram í miðjan nóvember en munu þá víkja fyrir næstu frumsýn- ingu sem er nýjasta leikrit Arthurs Millers, Glerbrot. Leikstjóri á því verki er Þórhildur Þorleifsdóttir en með helstu hlutverk fara Guörún Úr leikritinu Þreki og tárum sem nær uppselt er á næstu 10 sýningar. Edda Heiðrún Backman og Anna Kristin Arngrímsdóttir í hlutverkum sinum. Gísladóttir, Siguröur Sigurjónsson og Arnar Jónsson. Á Litla sviðinu standa yfir sýning- ar á Sönnum karlmanni og verða þær út nóvember. Æfingar eru hafn- ar á næsta verkefni sem er banda- ríski gamanleikurinn Kirkjugarðs- klúbburinn eftir Ivan Manchell. Það leikrit verður frumsýnt um áramót. Þá er barnaleikritið Lofthræddi örninn hann Örvar sýnt um þessar mundir á barnaheimilum og í grunn- skólum en unnt er að panta sýningu á skrifstofu Þjóðleikhússins. -bjb íKeffavík Nú standa yfir æfingar hjá Leikfélagi Keflavikur á leikritinu Stræti eftir Jim Cartwright. Leik- stjóri er Þröstur Guöbjartsson. Leikrit þetta var sýnt fyrir nokkrum árum í Þjóðleikhúsinu, vakti mikið umtal og komust færri að en vildu. SamstiUtur hópur gamalla og nýrra leikara hefur verið þrotlaust við ælxngar undanfarnar vikur. Frumsýning verður í Félagsbíóí í Reykja- nesbæ föstudaginn 3. nóvember nk. Þámunenginn skuggiveratil sýntáfram Leikþáttur- inn „Þá mun enginn skuggi vera til" er enn í fullum gangi víða um land cn verkið var frumsýnt fyrir__________ ári. Leikþátturinn er eftir þær Björgu Gísladóttur og Kolbrúnu Ernu Pétursdóttur og íjallar um sifjaspell og afleiðingar þess. Kol- brún er eini leikarínn í verkinu. Heilbrigðisráðuneytið hefur styrkt sýninguna til áframhald- andi kynningar en í fyrra var um samstarfsverkefhi Stígamóta, Menningar- og fræðslusambands alþýðu og höfunda að ræða. Leikstjóri er Hlin Agnarsdóttir en hún sá jafnframt um leiknxynd ogbúningaásamt þeim Kolbrúnu og Björgu. Leikþátturinn, sem tekur 30 mínútur í flutningi, hef- ur verið sýndur 70 sinnum á vinnstöðum og hjá félagasamtök- um víða um land. Kolbrún Erna Pétursdóttir. Bókavarðan Bókavarðan, sem selur gamlar bækur og muni, hefur flutt starf- semina I nýtt og endurbætt hús- næöi að Vesturgötu 17 þar sem eitt sinn var fataverslunin And- ersen & Lauth. í tilefni af hinu nýja húsnæði hefur Bókavarðan sett upp litla sögusýningu um forseta Islands, heimildir og gögn úr fy rri forseta- kosningum og af ferli forsetaxxixa og frambjóðenda. Listaverka- dagatal Kjar- valsstaða Kjarvalsstaðir hafa gefið út myndarlegt listaverkadagatal Listasafns Reykjavíkur fyrir næsta ár, 1996. Dagatalið er prýtí myndum af verkum eftir nokkra af helstu listanxönnum þjóðar- ínnar. Það er liannað sem askja til að geta staðið á borði en það er í sérhannaöri öskju úr plexí- gleri sem svipar til askja utan um geislaplötur. Dagatalið fæst á Kjarvalsstöð- um og í Ásmundarsafni. Skiptiáfrí- merkjum í nýlegu fréttabréfi Félags frí- merkjasafnara er birtur lísti nokkurra safixara víða um heim sem vilja skipta á frímerkjum við íslenska safiiara. Safhararnir eru frá Brasilíu, Kúbu, Pakistan, Búlgaríu, Noregi, Belgíu, Ítalíu og Kanada. Auk áhuga á frí- merkjum vill t.d. einn þeirra umslög frá lýðveldisstofnun og nokkrir vilja komast í bréfasam- band. Nánari upplýsingar fást hjá Félagi frímerkjasafixai-a. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.