Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
31
Fréttir
Fiskvinnsla haíin á ný hjá Kambi hf. á Flateyri:
Vildum koma þessu
sem fyrst af stað
- segir Ingibjörg Kristjánsdóttir, verkstjóri og einn eigenda
Vetrarvörumar eru komnar!
Við höfum yfirstærðirnar
Kuldaúlpur, st. frá S-XXXL
Gallabuxur - Terylenebuxur - Flauelsbuxur
Vinnufatnaöur, st. 30-52
Vinnuskyrtur, st. 38-50
Muniö 10% staðgreiðsluafsláttinn
EL
búðin, Bíldshöfða 18
Opið: manud.-föstud. kl. 10-18
Reynir Traustason, DV, Flateyri;
„Mér þykir vænt um þessa eyri og
við viljum að atvinnulífið geti verið
hér með blóma. Við ætlum ekki að
gefast upp. Við ákváðum að koma
þessu sem fyrst af stað aftur og telj-
um það vera fyrir bestu. Við ræddum
við áfallahjálparfólk um máhð og það
var sammála okkur um það atriði,"
segir Ingibjörg Kristjánsdóttir, verk-
stjóri og einn aöaleigenda Kambs hf.
á Flateyri sem í gær hóf vinnslu eftir
hlé síðan snjóflóðið féll aðfaranótt
fimmtudags.
Um 30 manns mættu til vinnu í
Kambi í gær til að vinna þau 35 tonn
sem í húsinu voru frá því fyrir snjó-
flóðið. Bátar Kambs hf. eru enn í
höfn en áformað er að þeir fari á sjó
á næstu dögum. Ingibjörg segir að
hvatning hafi komið frá starfsfólkinu
um að fara að vinna sem fyrst.
„í miðju þessu áfalli kom starfsfólk
til mín og vildi fara að vinna sem
fyrst. Ég finn samstöðu meðal fólks
um að koma lífmu í fastar skorður.
Ég hef fullan skilning á því að fólk
fari um stundarsakir vegna atburð-
anna og þurfi tíma til að átta sig. Ég
veit þó að margir munu snúa til
baka,“ segir Ingibjörg.
Á fimmtudag er áformað að nýr
Snjóflóðiö á Flateyri:
Norrænu félögin
bjóða hjálp
Öll Norrænu félögin á Norðurlönd-
um hafa gefið 100 þúsund íslenskar
krónur í fjársöfnunina vegna snjó-
flóðsins á Flateyri. Jafnframt eru
Norðurlandabúar, ríkisstjórnir og
Norðurlandaráð hvött til að leggja
sitt af mörkum til að styðja fólk og
sveitarfélagið á Flateyri.
Formenn félaganna voru á fundi í
Kaupmannahöfn á mánudaginn. Þar
voru hörmungarnar á Flateyri rædd-
ar og samúð vottuð þeim sem eiga
umsártaðbinda. -GK
Kviknaði í út frá kyndli
Eldur frá kyndli komst í net á
vinnupöllum við verslun í Austur-
stræti í gærkvöldi. Að sögn slökkvi-
liðsmanna virðist sem kyndli hafi
verið kastað undir pallana en þar var
rusl og náði nokkur eldur að magn-
ast.
Lögreglumenn náðu að halda eld-
inum í skeflum þar til slökkviliðið
komst að en erfitt var um vik vegna
mannmergðar. Eftir brunann var
slökkt í kyndlum á nokkrum stöðum
í miðbænum en hvergi hlaust tjón af.
-GK
Áfallahjálparhópurinn sem kom til Hvammstanga. Magnús Þórsson bíl-
stjóri, Kristján Friðgeirsson og Árni Birgisson frá SVFÍ, Sólveig Smidt og
Björgvin Richardsson frá Landsbjörg. Hluti þessa hóps starfaði einnig að
áfallahjálp kringum hörmungarnar í Súðavík á síðasta vetri.
DV-myndir Sesselja
Hvammstangi:
Afallahjálp fyrir
björgunarfólk
Sesselja Traustadóttir, DV, Hvammstanga:
Þeim, sem unnu á slysstað þegar
rúta frá Norðurleið valt í Hrútaflrði
með þeim afleiðingum að 2 létust og
30 slösuðust, var nýverið boðið til
áfallahjálparfundar í félagsheimil-
inu á Hvammstanga. Þetta voru fé-
lagar úr björgunarsveit SVFÍ, Kára-
borg, Flugbjörgunarsveitinni í Vest-
ur-Húnavatnssýslu og frá Almanna-
vörnum, auk Hrútflrðinga, starfs-
fólks Végagerðarinnar, lögreglu og
slökkviliðs.
Til fundarins kom fjögurra manna
sveit menntaðra áfallahjálparmanna
úr röðum SVFÍ og Landsbjargar auk
lækna og hjúkrunarfólks frá heilsu-
gæslu á Hvammstanga. Óvíst er hve
margir komu að hjálparstarfinu en
frá Hvammstanga voru kallaðir út
34 björgunarmenn auk slökkviliðs,
lækna og hjúkrunarfólks.
Vel var látið af fundinum sem
byggðist á því að fólk deildi með sér
upplifun sem og hugleiðingum er
vörðuðu slysið.
bátur komi til Flateyrar þegar
Styrmir ÍS, sem er útbúinn með beit-
ingavél, kemur til heimahafnar í
fyrsta sinn. Fyrir á Kambur Gylli ÍS,
Jónínu ÍS og Jóhannes ívar ÍS.
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA A
VALOA ÞÉR SKAÐA!
• I I h I ln
YÁ
Leitin að
fAv DV efnir til teiknisamkeppni
Jí/4 meðal krakka á grunnskólaaldri.
Viðfangsefnið er jólakort DV og
þurfa innsendar myndir því að vera í lit
og tengjast jólunum. Viniiingsmyndin
verður notuð sem jólakort DV1995.
Glæsileg verðlaun
í boði fyrir jólakort DV:
Fyrstu verðlaun: Sharp QT-CD 45H ferðatæki með
geislaspilara, segulbandstæki og útvarpi frá Hljómbæ
að verðmæti kr. 19.900
Önnur vcrðldun: Sharp WQ-T 205 ferðatæki með
tvöföldu segulbandstæki frá Hljómbæ að
verðmæti kr. 9.870
Þriðju verðlaun: Luxor 9018 útvarpsvekjaraklukka
frá Hljómbæ að verðmæti kr. 6.100
=Wr
Skilafrestur er til
föstudagsins 10. nóvember nk.
Utanáskrift er: DV-jólakort, Þverholti 11,105 Reykjavík
rsÆÉ
viustuuLtiiiiitu