Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Qupperneq 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
Sviðsljós
Stonevillfá
FM út á spólu
Leikstjórinn Oliver Stone rær
nú aö því öllum árum að fá kvik-
mynd sína, Fædda morðingja,
gefna út á myndbandi. Warner-
bræður frestuðu útgáfunni vegna
árása öldungadeildarþingmanns-
ins Doles á myndina fyrir ofbeld-
ið sem þar tröllríður öllu. Stone
vill að Warner annaðhvort gefi
myndina út eða leyfi öðru fyrir-
tæki að gera það.
Karl og Díana öskureið vegna framferðis breskra flölmiðla:
Fyrsta partí Villa
prins forsíðumatur
„Það er alveg nógu skelfilegt fyrir
ungling að fara í svona partí með
hinu kyninu í fyrsta sinn án þess að
hann sé að pæla í því hvort sagt verði
frá því á forsíðum blaðanna," sagði
talsmaður bresku konungsfjölskyld-
unnar vegna umfjöllunar breskra
blaða um dansleik sem Vilhjálmur
prins, sonur þeirra Kaijs og Díönu,
sótti í Hammersmith Palais í London
fyrir skömmu. Dansleikurinn var
hal’dinn fyrir krakka sem ganga í
einhvem hinna finu einkaskóla Bret-
lands, þar sem börn aðalsmanna og
ríkisbubba læra að verða fínt fólk.
Foreldrar litla prinsins eru æva-
reiðir vegna blaðaskrifanna. Karl og
Díana vilja að synir þeirra alist upp
eins og önnur börn, að svo miklu
leyti sem það er hægt. Þau telja að
svona skrif auðveldi það ekki beint.
Eitt útbreiddasta unglingablað
Bretlands birti mynd af prinsinum á
ballinu og dagblað hvatti aliar stúlk-
ur sem hafði tekist að smella kossi á
prinsinn til að hringja og segja frá.
„Með því að segja frá þessu á for-
síðu er verið að hvetja unglinga sem
Vilhjálmur prins brá sér á ball og
allt varð vitlaust.
vilja komast í blöðin til að hringja
og segja: „Ég kyssti Vilhjálm, eða
eitthvað." Þetta er nokkuð sem ekk-
ert foreldri viU,“ sagði talsmaður
drottningar.
Vilhjálmur prins var einn tvö þús-
und unghnga á dansleiknum og að
sögn skipuleggjandans var prinsinn
bara eins og allir hinir.
„Það var enginn sægur af stelpum
á eftir honum. Hann var eins og allir
aðrir,“ sagði hann. Og hafði eftir
prinsinum að hann hefði skemmt sér
takk bærilega.
Vantar
Þig
ódýran
kæliskáp
7
■
! til söiu buslóö
'sHkerfi Ui söla
- . gftir kl. 19.
mlarúm, ^5x60,
)skastkeypt
■a'A: 3, styttur,
-jólazkeiðar og
rriublur. Stað-
r.. e.kl.
58s
síí'
áa'-
iattt&ZZT
Hvftl barnarimlarúm tii söiu, vcrö ki. 6.500, einnig keira aern h*gt ei a>j leggí’a aaman, verÖ kr. 7.000. Uppl. i 8Íma - r'i?.’. eftir kl. 17. ma
Kk»íum oa FrarcleióuiT;. : urn verótiiK. Visa/'Suro. H J Gbæ, s. : • •• w".
Heimilistæki
Aktoliúrvafiöer hja leÓur og leöurjjkj. þj'ónusta eftir ótai Efnaco-Goddi, Smi?
Bauknecht kæliskápur i góÖu ásig- komulagi, 25 þús. kr. Uppl. i sírria :•
Amerfskur fsskápur nVísvél og rennandi vatni til sölu. Upplýsingar í síma. 6*>.’ é.
Stór amerfskur tvfskiptur Whirl Pool, til sölu, fltf kosta nýjir á þri2>j'ali«áwfcö^5ppl- Uíma.r, í^^tTíc. ITusg. + msiv. get i >> verÖsamanbui kaup. Munir Mi. 'Æeihn-ne-MM "
AmerfskyóíWlpíir m'fsvól ííoIu. UpþWfiÍi
auglýsingar
Tískuhönnuðurinn Donna Karan sýndi vorlínuna sína í New York um helg-
ina og þar mátti meðal annars sjá þetta svarta pils sem er hluti svokailaðr-
ar DKNY-línu. Toppstykkið virðist þó alveg hafa gleymst. Simamynd Reuter
Nicholson tekinn í bólinu
Tuttugu og einu ári eftir tökur á
myndinni Chinatown tóku leikstjór-
inn Roman Polanski og framleiðand-
inn Robert Evans stjörnuna sína,
Jack Nicholson, í bólinu. Það gerðist
reyndar í París og Nicholson kom þvi
ekki einu sinni við að renna greiðu
í gegnum hárstrýið.
Endurfundirnir voru vegna þess
að Jack Nicholson hafði verið á kvik-
myndahátíð í Deauville og Robert
Evans á kvikmyndahátíð í Feneyj-
um. Báðir lögðu þeir leið sína í gegn-
um París til að heilsa upp á gamlan
vin, Roman Polanski.
Það er nefnilega ekki auðvelt aö
hitta þann síðastnefnda í Hollywood.
Ef Polanski stígur fæti sínum á
bandaríska gnmd verður hann
handtekinn því hann. hefur aldrei
tekið út refsingu fyrir að hafa for-
fært 13 ára stúlkubam. Þaö gerðist
reyndar í baðherbergi Nicholsons.
Roman Polanski og Robert Evans
höfðu með sér rúnnstykki, horn og
vinarbrauð en enga greiðu er þeir
heimsóttu Jack Nicholson.