Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
33
Menning
„Svo erfiö sem þögnin er einni hnipinni sál þá er hún sem græðandi
smyrsl þegar þúsundirnar þegja saman.“
í þykkri
þögn
Það er sérkennileg reynsla að lifa þjóðarsorg og breytir hugsun manns
um lengri eða skemmri tíma. Harmur er vandmeðfarinn. Oftar en ekki
vinnur sígild tónlist, óræð myndlist eða hlýtt augnaráð betur á sorginni
en orð því þeim hættir til að verða of dýr og yfirdrífa harminn og af-
skræma. Þannig getur það líka orðið með athafnir.
Þaö var því með nokkrum kvíða að ég hélt í gönguna sem í gærkveldi
var farin niður Laugaveginn til þess að votta Flateyringum samúð vegna
þeirra ógnarlegu atburða sem þar gerðust í vikunni sem leið. En það
verður að segja æskulýðnum sem gekkst fyrir þessum atburði, göngu-
fólki öllu, kyndilberum, söngfólki og þeim sem ávörpuðu mannfjöldann
til hróss að þar var allt með virðingu gert. Loks ávarpaði forsetinn
manngrúann af reisn þjóðhöfðingjans og bað um þögn í virðingarskyni
við sorg þeirra sem lifðu. Svo erfið
sem þögnin er einni hnípinni sál
þá er hún sem græðandi smyrsl
þegar þúsundirnar þegja saman.
Og þögnin í miðbænum varð algjör
og þykk og líkt og fóðruð af samhug
og upplýst af flöktandi kyndillog-
um.
Eftir þessa sérkennilegu reynslu bar ég nokkurn kvíðboga fyrir þvj að
fara í Leikhúskjallarann að hlýða á dagskrá sem bar yfirskriftina Uppi-
stand og örleikrit því ég bjóst við því að hún yrði of ærslafull eftir upplif-
un mína á hinni þykku þögn miðbæjarins. En kvíði minn reyndist ástæðu-
laus. Höfundur og flytjendur kunnu sér hóf í harmi dagsins og fóru í
skemmtan sína með þeim hætti sem hæfði og einungis er á færi góðra
listamanna.
Efnið á þessu kvöldi Listaklúbbsins var að mestu eftir Karl Ágúst Úlfs-
son; lög, söngtextar, örleikrit og samlestur úr stærra leikverki og kynnti
höfundur verkin með sínu lagi.
Áður en lengra er haldið vil ég skýra frá því að ég hitti á göngu minni
í dag einn þeirra sem ég hef heyrt flytja mál sitt á mannamóti nú í haust.
Ég hafði skrifað snotra umsögn um þá samkomu eins og mér er lagið.
Maðurinn kvartaði við mig undan því að ég hefði ekki haft rétt eftir hon-
um. Við því er það eitt að segja að það er sitthvað það sem sagt er og það
sem heyrt er. Þetta veit ég vegna þess að sjálfur hef ég talað og vitað
hvað ég hef sagt og síðan fengiö útlistun á því hvað aðrir heyrðu og líka
vegna þess að ég er vanur áheyrandi og stöðugt að hlusta á tal og tóna.
Þess vegna fer sem fer og enginn fær gert við því.
En það voru flutt örleikrit í Leikhúskjallaranum. Slík leikrit hef ég
ekki heyrt fyrr og er því óvanur örleikritahlustandi ef undan er skilin
hlustun á misgóðan flutning ýmissa manna á útþvældum skrýtlum og
svonefnd gamanmál á starfsmannaskemmtunum og innansveitarþorra-
blótum. Örleikirnir hans Karls Ágústs eru hins vegar af öðrum toga og
þrátt fyrir allt og allt treysti ég mér til þess að segja þetta um þá: Þeir
nálgast það að geta orðið sígildir vegna orðfæris, viðfangsefnis og hins
óvænta sem jafnan sprettur fram þegar síst skyldi eins og eðli þess býður.
Ég get líka hiklaust sagt að upplestur, samlestur, úr leikritinu í hvítu
myrkri sem flutt verður hjá Þjóðleikhúsinu í vetur og augljóslega fjallar
um það hvernig manneskjunum tekst að halda sálu sinni í kaffenntri
byggð í þröngum firði vakti forvitni mína og það er fullkomin ástæða til
þess aö láta sig hlakka til þeirrar sýningar.
Loks læt ég mér detta það í hug, og ætlaði af fara með það sem kvöld-
bæn, að síra Heimir eöa kannski Þjóðleikhúsið láti taka upp örleikin og
söngvana Réttarkvæði, Gróa frænka og Ég er sjarmör og flytji þetta efni
í sjónvarpinu okkar Heimis þegar lát verður á dagskránni í staðinn fyrir
þann aragrúa ófullburða söngmyndbanda sem spiluð eru fyrir augunum
á mér þegar dagskráin hefur mislengst af óviðráðanlegum orsökum. Ég
hygg að þetta sé ekkert verri kvöldbæn en hver önnur. Það kemur svo
síðar í ljós hversu bænheitur ég er.
Atburöir
Úlfar Þormóðsson
ÞJÓÐLEIKHCSID
Sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00.
ÞREK OGTÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fld. 2/11, nokkur sæti laus, Id. 4/11, uppselt,
sud. 5/11, nokkur sæti laus, sud. 12/11, upp-
selt, fid. 16/11, uppselt, Id. 18/11, uppselt, Id.
25/11, nokkur sæti laus, sud. 26/11, nokkur
sæti laus, fid. 30/11, nokkur sæti laus.
STAKKASKIPTI
eftir Guðmund Steinsson
Föd. 3/11, næstsiðasta sýning, Id. 11/11, sið-
asta sýning. Ath. aðeins þessar 2 sýningar
eftir.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Ld. 4/11 kl. 14.00, uppselt, sud. 5/11 kl. 14.00,
uppselt, Id. 11/11 kl. 14.00, uppselt, sud. 12/11
kl. 14.00, uppselt, Id. 18/11 kl. 14.00, öríá
sæti laus, sud. 19/11, kl. 14.00, örfá sæti laus,
Id. 25/11 kl. 14.00, nokkur sæti laus, sud.
26/11 kl. 14.00, uppselt. Ósóttar pantanir
seldar daglega.
Litla sviöið kl. 20.30.
SANNURKARLMAÐUR -
eftir Tankred Dorst
Fid. 2/11, lod. 3/11, löd. 10/11, Id. 11 /11.
Smiðaverkstæöið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Á morgun mvd. 1/11, laus sæti, Id. 4/11, upp-
selt, sud. 5/11, uppsei, sud. 12/11, fid. 16/11,
örlá sæti laus, Id. 18/11, uppselt, mvd. 22/11,
Id. 25/11. ATH! Sýningum fer fækkandi.
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLARANS
i kvöld mán. 30/10 kl. 21.00.
„Uppistand og örleikrit". Gaman-
mál og örverk eftir Karl Ágúst Úlfs-
son, höfund leikritsins i hvitu
myrkri sem frumsýnt veröur á
LLitla sviði Þjóðleikhússins eftir
áramót.
Miðasalan er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýn-
ingardaga. Einnig simaþjónusta frá kl. 10
virka daga.
Grciðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
Sími miöasölu: 551 1200
Simi skrifstofu: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Tilkyimingar
Félagsstarf aldraðra
Gerðubergi
Á morgun, miövikudag, aö afloknum
kaffitíma kl. 15, kemur í heimsókn barna-
kór frá Breiðholtsskóla undir stjórn Kára
Friörikssonar.
Basar á Sólvangi
Hinn árlegi basar Sólvangs veröur hald-
inn nk. laugardag, 4. nóvember. Eins og
áöur eru til sölu ýmsir munir vistmanna
sem þeir hafa unnið. Mikið af fallegum
vörum. Basarinn hefst kl. 14.
Gresika - leiðrétting
Athygli skal vakin á aö breytingar hafa
orðið á Hárgreiöslu- og Snyrtistofunni
Gresiku, Suðurgötu 7. Snædís Anna Haf-
steinsdóttir hefur tekiö við rekstri snyrti-
stofunnar en Erna Guðmundsdóttir og
Þorgerður Pálsdóttir eru áfram eigendur
hárgreiðslustofunnar. Frá 1.-15. nóvemb-
er verður boðinn 20% afsláttur af allri
þjónustu mánudaga, þriðjudaga og miö-
vikudaga.
Leiðrétting:
HlynurerHelgason
í gagnrýni um sýninguna Einskon-
ar hversdagsrómantík á Kjarvals-
stööum í DV föstudaginn 27. október
var rangt farið með nafn eins lista-
mannanna sextán. Þar var talað um
Hlyn Hallsson en heitir réttu nafni
Hlynur Helgason. Er beðist velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Leiðrétting:
Niðurlag leiðara
Vegna mistaka viö vinnslu DV í
gær féllu síöustu línur í leiðara
blaðsins niður. Þær hljóöuðu svo:
„DV hvetur landsmenn alla, ein-
staklinga, stofnanir, félög og fyrir-
tæki, til aö sýna hluttekningu sína
með Flateyringum í verki. Það verð-
ur best gert með því að leggja fjár-
söfnuninni Samhugur í verki öflugt
lið. Elías Snæland Jónsson"
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
Stóra sviðkl. 20.30.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lioyd Webber
Á morgun, miövd. 1/11, fáein sæti laus,
laud. 11/11 kl. 23.30, flm. 16/11, fáeln sæti
laus, fáar sýningar eftir.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Lau. 4/11 kl. 14, sun. 5/11 kl. 14, laud. 11/11,
sun. 12/11.
Litla svið kl. 20:
HVAÐ DREYMDI ÞIG,
VALENTÍNA?
eftir Ljúdmílu Razumovskaju
Fös. 3/11, uppselt, laud. 4/11, fáein sæti
laus, fös. 10/11, uppselt, laud. 11/11.
Stóra sviðkl.20:
TVÍSKINNUNGSÓPERAN
Gamanleikrit með söngvum eftir
Ágúst Guðmundsson
8. sýn. flm. 2/11, brún kort gilda, 9. sýn.
iau. 4/11, bleik kort gilda.
Stóra svið kl. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Fös. 3/11, fös. 10/11. ATH. TVEIR MIÐAR
FYRIREINN.
Ath. Takmarkaður sýningarfjöldi.
HAMINGJUPAKKIÐ
á Litla sviði kl. 20.30.
DAGUR SÖNG- DANS- og
LEIKVERK
eftir Helenu Jónsdóttur
Frumsýning fim. 2/11, sýn. sun. 5/11, þri.
7/11.
Samstarfsverkefni:
Barflugurnar sýna á Leynibarn-
um kl. 20.30.
BAR PAR
efftir Jim Cartwright
Fös. 3/11, uppselt, lau. 4/11, uppselt, fös.
10/11, laud. 11/11.
Tónleikaröð LR:
Alltaf á þriaiudögum kl. 20.30.
Þri. 31/10. Tónleikar
- Kristinn Sigmundsson.
Miðaverð 1.400 kr.
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17,
auk þess er tekið á móti miðapöntun-
um í sima 568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
!J| felLJENSKA ÓPERAN
Simi 551-1475
Laud.4/11 kl.21.00.
íslenska operan kynnir eina
ástsælustu óperu Puccinis,
MADAMA BUTTERFLY
Frumsýnlng 10. nóv. kl. 20.
Hátiðarsýning 12. nóv. kl. 20.
3. sýn. 17. nóv. kl. 20.
Forkaupsréttur styrktarfélaga islensku
óperunnar er til 29. október.
Almenn mióasala hefst 30. október.
Miðasalan er opin kl. 15-19
daglega nema mánudaga,
sýningardag til kl. 21.
SÍMI551-1475,
bréfasimi 552-7384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
904-1700
Verð aöeins 39,90 mín.
JLj Fótbolti
2 [ Handbolti
3 [ Körfubolti
. 4 [ Enski boltinn
5 [ ítalski boltinn
61 Þýski boltinn
7 [ Önnur úrslit
8 [ NBA-deildin
1[ Vikutilboð
stórmarkaöanna
2 [ Uppskriftir
1 Læknavaktin
2 | Apótek
3 [ Gengi
lj Dagskrá Sjónvarps
2 [ Dagskrá Stöðvar 2
31 Dagskrá rásar 1
4 [ Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5[ Myndbandagagnrýni
6 [ ísi. listinn
-topp 40
7 [ Tónlistargagnrýni
_8J Nýjustu myndböndin
'SmmmmtÉ
JJ Krár
2 1 Dansstaðir
3[ Leikhús
j4j Leikhúsgagnrýni
5; Bíó
_6J Kvikmyndagagnrýni
1} Lottó
21 Víkingalottó
3 [ Getraunir
aimih.
DV
904-1700
Verö aðeins 39,90 mín.