Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 33 Menning „Svo erfiö sem þögnin er einni hnipinni sál þá er hún sem græðandi smyrsl þegar þúsundirnar þegja saman.“ í þykkri þögn Það er sérkennileg reynsla að lifa þjóðarsorg og breytir hugsun manns um lengri eða skemmri tíma. Harmur er vandmeðfarinn. Oftar en ekki vinnur sígild tónlist, óræð myndlist eða hlýtt augnaráð betur á sorginni en orð því þeim hættir til að verða of dýr og yfirdrífa harminn og af- skræma. Þannig getur það líka orðið með athafnir. Þaö var því með nokkrum kvíða að ég hélt í gönguna sem í gærkveldi var farin niður Laugaveginn til þess að votta Flateyringum samúð vegna þeirra ógnarlegu atburða sem þar gerðust í vikunni sem leið. En það verður að segja æskulýðnum sem gekkst fyrir þessum atburði, göngu- fólki öllu, kyndilberum, söngfólki og þeim sem ávörpuðu mannfjöldann til hróss að þar var allt með virðingu gert. Loks ávarpaði forsetinn manngrúann af reisn þjóðhöfðingjans og bað um þögn í virðingarskyni við sorg þeirra sem lifðu. Svo erfið sem þögnin er einni hnípinni sál þá er hún sem græðandi smyrsl þegar þúsundirnar þegja saman. Og þögnin í miðbænum varð algjör og þykk og líkt og fóðruð af samhug og upplýst af flöktandi kyndillog- um. Eftir þessa sérkennilegu reynslu bar ég nokkurn kvíðboga fyrir þvj að fara í Leikhúskjallarann að hlýða á dagskrá sem bar yfirskriftina Uppi- stand og örleikrit því ég bjóst við því að hún yrði of ærslafull eftir upplif- un mína á hinni þykku þögn miðbæjarins. En kvíði minn reyndist ástæðu- laus. Höfundur og flytjendur kunnu sér hóf í harmi dagsins og fóru í skemmtan sína með þeim hætti sem hæfði og einungis er á færi góðra listamanna. Efnið á þessu kvöldi Listaklúbbsins var að mestu eftir Karl Ágúst Úlfs- son; lög, söngtextar, örleikrit og samlestur úr stærra leikverki og kynnti höfundur verkin með sínu lagi. Áður en lengra er haldið vil ég skýra frá því að ég hitti á göngu minni í dag einn þeirra sem ég hef heyrt flytja mál sitt á mannamóti nú í haust. Ég hafði skrifað snotra umsögn um þá samkomu eins og mér er lagið. Maðurinn kvartaði við mig undan því að ég hefði ekki haft rétt eftir hon- um. Við því er það eitt að segja að það er sitthvað það sem sagt er og það sem heyrt er. Þetta veit ég vegna þess að sjálfur hef ég talað og vitað hvað ég hef sagt og síðan fengiö útlistun á því hvað aðrir heyrðu og líka vegna þess að ég er vanur áheyrandi og stöðugt að hlusta á tal og tóna. Þess vegna fer sem fer og enginn fær gert við því. En það voru flutt örleikrit í Leikhúskjallaranum. Slík leikrit hef ég ekki heyrt fyrr og er því óvanur örleikritahlustandi ef undan er skilin hlustun á misgóðan flutning ýmissa manna á útþvældum skrýtlum og svonefnd gamanmál á starfsmannaskemmtunum og innansveitarþorra- blótum. Örleikirnir hans Karls Ágústs eru hins vegar af öðrum toga og þrátt fyrir allt og allt treysti ég mér til þess að segja þetta um þá: Þeir nálgast það að geta orðið sígildir vegna orðfæris, viðfangsefnis og hins óvænta sem jafnan sprettur fram þegar síst skyldi eins og eðli þess býður. Ég get líka hiklaust sagt að upplestur, samlestur, úr leikritinu í hvítu myrkri sem flutt verður hjá Þjóðleikhúsinu í vetur og augljóslega fjallar um það hvernig manneskjunum tekst að halda sálu sinni í kaffenntri byggð í þröngum firði vakti forvitni mína og það er fullkomin ástæða til þess aö láta sig hlakka til þeirrar sýningar. Loks læt ég mér detta það í hug, og ætlaði af fara með það sem kvöld- bæn, að síra Heimir eöa kannski Þjóðleikhúsið láti taka upp örleikin og söngvana Réttarkvæði, Gróa frænka og Ég er sjarmör og flytji þetta efni í sjónvarpinu okkar Heimis þegar lát verður á dagskránni í staðinn fyrir þann aragrúa ófullburða söngmyndbanda sem spiluð eru fyrir augunum á mér þegar dagskráin hefur mislengst af óviðráðanlegum orsökum. Ég hygg að þetta sé ekkert verri kvöldbæn en hver önnur. Það kemur svo síðar í ljós hversu bænheitur ég er. Atburöir Úlfar Þormóðsson ÞJÓÐLEIKHCSID Sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00. ÞREK OGTÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Fld. 2/11, nokkur sæti laus, Id. 4/11, uppselt, sud. 5/11, nokkur sæti laus, sud. 12/11, upp- selt, fid. 16/11, uppselt, Id. 18/11, uppselt, Id. 25/11, nokkur sæti laus, sud. 26/11, nokkur sæti laus, fid. 30/11, nokkur sæti laus. STAKKASKIPTI eftir Guðmund Steinsson Föd. 3/11, næstsiðasta sýning, Id. 11/11, sið- asta sýning. Ath. aðeins þessar 2 sýningar eftir. KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner Ld. 4/11 kl. 14.00, uppselt, sud. 5/11 kl. 14.00, uppselt, Id. 11/11 kl. 14.00, uppselt, sud. 12/11 kl. 14.00, uppselt, Id. 18/11 kl. 14.00, öríá sæti laus, sud. 19/11, kl. 14.00, örfá sæti laus, Id. 25/11 kl. 14.00, nokkur sæti laus, sud. 26/11 kl. 14.00, uppselt. Ósóttar pantanir seldar daglega. Litla sviöið kl. 20.30. SANNURKARLMAÐUR - eftir Tankred Dorst Fid. 2/11, lod. 3/11, löd. 10/11, Id. 11 /11. Smiðaverkstæöið kl. 20.00 TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright Á morgun mvd. 1/11, laus sæti, Id. 4/11, upp- selt, sud. 5/11, uppsei, sud. 12/11, fid. 16/11, örlá sæti laus, Id. 18/11, uppselt, mvd. 22/11, Id. 25/11. ATH! Sýningum fer fækkandi. LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS i kvöld mán. 30/10 kl. 21.00. „Uppistand og örleikrit". Gaman- mál og örverk eftir Karl Ágúst Úlfs- son, höfund leikritsins i hvitu myrkri sem frumsýnt veröur á LLitla sviði Þjóðleikhússins eftir áramót. Miðasalan er opin alla daga nema mánu- daga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýn- ingardaga. Einnig simaþjónusta frá kl. 10 virka daga. Grciðslukortaþjónusta. Fax: 561 1200 Sími miöasölu: 551 1200 Simi skrifstofu: 551 1204 VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ! Tilkyimingar Félagsstarf aldraðra Gerðubergi Á morgun, miövikudag, aö afloknum kaffitíma kl. 15, kemur í heimsókn barna- kór frá Breiðholtsskóla undir stjórn Kára Friörikssonar. Basar á Sólvangi Hinn árlegi basar Sólvangs veröur hald- inn nk. laugardag, 4. nóvember. Eins og áöur eru til sölu ýmsir munir vistmanna sem þeir hafa unnið. Mikið af fallegum vörum. Basarinn hefst kl. 14. Gresika - leiðrétting Athygli skal vakin á aö breytingar hafa orðið á Hárgreiöslu- og Snyrtistofunni Gresiku, Suðurgötu 7. Snædís Anna Haf- steinsdóttir hefur tekiö við rekstri snyrti- stofunnar en Erna Guðmundsdóttir og Þorgerður Pálsdóttir eru áfram eigendur hárgreiðslustofunnar. Frá 1.-15. nóvemb- er verður boðinn 20% afsláttur af allri þjónustu mánudaga, þriðjudaga og miö- vikudaga. Leiðrétting: HlynurerHelgason í gagnrýni um sýninguna Einskon- ar hversdagsrómantík á Kjarvals- stööum í DV föstudaginn 27. október var rangt farið með nafn eins lista- mannanna sextán. Þar var talað um Hlyn Hallsson en heitir réttu nafni Hlynur Helgason. Er beðist velvirð- ingar á þessum mistökum. Leiðrétting: Niðurlag leiðara Vegna mistaka viö vinnslu DV í gær féllu síöustu línur í leiðara blaðsins niður. Þær hljóöuðu svo: „DV hvetur landsmenn alla, ein- staklinga, stofnanir, félög og fyrir- tæki, til aö sýna hluttekningu sína með Flateyringum í verki. Það verð- ur best gert með því að leggja fjár- söfnuninni Samhugur í verki öflugt lið. Elías Snæland Jónsson" Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR SÍMI 568-8000 Stóra sviðkl. 20.30. Rokkóperan Jesús Kristur SUPERSTAR eftir Tim Rice og Andrew Lioyd Webber Á morgun, miövd. 1/11, fáein sæti laus, laud. 11/11 kl. 23.30, flm. 16/11, fáeln sæti laus, fáar sýningar eftir. LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren Lau. 4/11 kl. 14, sun. 5/11 kl. 14, laud. 11/11, sun. 12/11. Litla svið kl. 20: HVAÐ DREYMDI ÞIG, VALENTÍNA? eftir Ljúdmílu Razumovskaju Fös. 3/11, uppselt, laud. 4/11, fáein sæti laus, fös. 10/11, uppselt, laud. 11/11. Stóra sviðkl.20: TVÍSKINNUNGSÓPERAN Gamanleikrit með söngvum eftir Ágúst Guðmundsson 8. sýn. flm. 2/11, brún kort gilda, 9. sýn. iau. 4/11, bleik kort gilda. Stóra svið kl. 20: VIÐ BORGUM EKKI, VIÐ BORGUM EKKI eftir Dario Fo Fös. 3/11, fös. 10/11. ATH. TVEIR MIÐAR FYRIREINN. Ath. Takmarkaður sýningarfjöldi. HAMINGJUPAKKIÐ á Litla sviði kl. 20.30. DAGUR SÖNG- DANS- og LEIKVERK eftir Helenu Jónsdóttur Frumsýning fim. 2/11, sýn. sun. 5/11, þri. 7/11. Samstarfsverkefni: Barflugurnar sýna á Leynibarn- um kl. 20.30. BAR PAR efftir Jim Cartwright Fös. 3/11, uppselt, lau. 4/11, uppselt, fös. 10/11, laud. 11/11. Tónleikaröð LR: Alltaf á þriaiudögum kl. 20.30. Þri. 31/10. Tónleikar - Kristinn Sigmundsson. Miðaverð 1.400 kr. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17, auk þess er tekið á móti miðapöntun- um í sima 568-8000 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar, frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur- Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. !J| felLJENSKA ÓPERAN Simi 551-1475 Laud.4/11 kl.21.00. íslenska operan kynnir eina ástsælustu óperu Puccinis, MADAMA BUTTERFLY Frumsýnlng 10. nóv. kl. 20. Hátiðarsýning 12. nóv. kl. 20. 3. sýn. 17. nóv. kl. 20. Forkaupsréttur styrktarfélaga islensku óperunnar er til 29. október. Almenn mióasala hefst 30. október. Miðasalan er opin kl. 15-19 daglega nema mánudaga, sýningardag til kl. 21. SÍMI551-1475, bréfasimi 552-7384. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA 904-1700 Verð aöeins 39,90 mín. JLj Fótbolti 2 [ Handbolti 3 [ Körfubolti . 4 [ Enski boltinn 5 [ ítalski boltinn 61 Þýski boltinn 7 [ Önnur úrslit 8 [ NBA-deildin 1[ Vikutilboð stórmarkaöanna 2 [ Uppskriftir 1 Læknavaktin 2 | Apótek 3 [ Gengi lj Dagskrá Sjónvarps 2 [ Dagskrá Stöðvar 2 31 Dagskrá rásar 1 4 [ Myndbandalisti vikunnar - topp 20 5[ Myndbandagagnrýni 6 [ ísi. listinn -topp 40 7 [ Tónlistargagnrýni _8J Nýjustu myndböndin 'SmmmmtÉ JJ Krár 2 1 Dansstaðir 3[ Leikhús j4j Leikhúsgagnrýni 5; Bíó _6J Kvikmyndagagnrýni 1} Lottó 21 Víkingalottó 3 [ Getraunir aimih. DV 904-1700 Verö aðeins 39,90 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.