Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Side 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 Afmæli Hjörleifur Guttormsson Hjörleifur Guttormsson, alþm. og fyrrv. ráðherra, Mýrargötu 37, Neskaupstað, er sextugur í dag. Starfsferill Hjörleifur fæddist á Hallorms- stað og ólst þar upp. Hann lauk diplomgráðu í líffræði við háskól- ann í Leipzig 1963. Hjörleifur kenndi við Gagn- fræðaskólann í Neskaupstað 1964- 73, vann að náttúrurann- sóknum, einkum á Austurlandi, 1968-78, undirbjó stofnun Náttúru- gripasafnsins í Neskaupstað 1965- 71 og var forstöðumaður þess 1971r1978, var frumkvöðull að Safnastofnun-Austurlands og stjómarformaður hennar 1972-78, var formaður byggingamefndar Menntaskólans á Egilsstöðum 1973-78, hefúr verið alþm. Austur- landskjördæmis frá 1978 og var iðnaðarráðherra 1978-1983. Hjörleifur var forgöngumaður að stofhun Náttúravemdarsam- taKa Austurlands 1970, formaður þeirra 1970-1979 og kynnti sér náttúruvemdarmál í Bandaríkj- unum 1971, var fulltrúi í sendi- nefnd íslands á Stokkhólmsráð- stefnu SÞ um umhverfi mannsins 1972 og á Ríó-ráðstefnunni um umhverfí og þróun 1992, var fyrsti formaður Alþýðubandalagsfélags- ins í Neskaupstað 1965-67 og aftur 1976-78, fyrsti formaður kjördæm- isráðs Alþýðubandalagsins á Austurlandi 1966-68, var í Nátt- úruvemdarráði 1972-78 og sat í Þingvallanefnd 1980-92, sat í Norðurlandaráði 1988-95 og í for- sætisnefnd ráðsins frá 1993. Hjörleifur er höfundur eftirtal- inna rita: Vistkreppa eða náttúm- vemd, 1974; Austfjarðafjöll, 1974; Norð- Austurland, hálendi og eyðibyggðir, 1987; Við rætur Vatnajökuls, 1993. Fjölskylda Hjörleifur kvæntist 18.12. 1957 Kristínu Guttormsson, f. 12.10. 1935, lækni á Fjórðungssjúkrahús- inu í Neskaupstað. Hún er dóttir Willy Bartl, starfsmanns verka- lýðfélags í Halle í Þýskalandi, og k.h., Önnu Klöru Bartl, f. Schust- er. Sonur Hjörleifs og Kristinar er Einar, f. 24.12. 1958, doktor í sjáv- arlíffræði, kvæntur Hildigunni Erlingsdóttur og eiga þau fjögur böm. Systkini Hjörleifs samfeðra: Bergljót, f. 5.4.1912, húsmóðir í Reykjavík; Páll, f. 26.5. 1913, skóg- fræðingur á Egilsstöðum; Sigurð- ur, f. 27.7. 1917, d. 1968, b. á Hall- ormsstað; Þórhallur, f. 17.2.1925, fyrrv. kennari við VÍ. Alsystkini Hjörleifs: Margrét, f. 28.9. 1932, kennari í Reykjavík; Gunnar, tvíburabróðir Hjörleifs, forstjóri Einkaleyfastofunnar í Reykjavík; Loftur, f. 5.4. 1938, pró- fessor við KHÍ; Elísabet, f. 22.5. 1943, félagsráðgjafl í Reykjavík. Foreldrar Hjörleifs vom Gutt- ormur Pálsson, f. 12.7. 1884, d. 5.6. 1964, skógarvörður á Hallorms- stað, og s.k.h., Guðrún Margrét Pálsdóttir, f. 24.9. 1904, d. 19.11. 1968, húsfreyja. Ætt Föðursystir Hjörleifs er Sigrún, móðir Sigurðar Blöndals, fyrrv. skógræktarstjóra. Guttormur var sonur Páls, ritstjóra á Hallorms- stað Vigfússonar, prests í Ási Guttormssonar. Móðir Vigfúsar var Margrét, systir Ingunnar, langömmu Þor- steins Gíslasonar, ritstjóra og skálds, föður Gylfa, fyrrv. ráð- herra, föður Vilmundar ráðherra. Margrét var dóttir Vigfúsar, prests á Valþjófsstað Ormssonar, og Bergljótar Þorsteinsdóttur, systur Hjörleifs, langafa Einars Kvarans, langafa Ragnars Arn- alds. Annar bróðir Bergljótar var Guttormur, langafi Þórarins á Tjöm, föður Kristjáns Eldjáms forseta. Móðir Guttorms skógar- varðar var Elísabet Sigurðardótt- ir, prófasts og alþm. á Hallorms- stað Gunnarssonar, bróður Gunn- ars yngri, afa Gunnars Gunnars- sonar skálds. Annar bróðir Sig- urðar var Stefán, langafí Vil- hjálms Hjálmarssonar, fyrrv. ráö- herra. Móðir Elisabetar var Berg- ljót, systir Vigfúsar í Ásum. Meðal móðursystkina Hjörleifs er Gyðríður, móðir Jóns Helga- sonar, fyrrv. ráðherra. Guðrún var dóttir Páls, b. í Þykkvabæ í Landbroti Sigurðssonar. Móðir Hjörleifur Guttormsson. Páls var Guðríður Bjamadóttir, b. í Ytri-Tungu Jónssonar og Sigríð- ar Jónsdóttur á Kirkjubæjar- klaustri Magnússonar, langafa Karítasar, móður Jóhannesar Kjarvals. Móðir Guðrúnar var Margrét Elíasdóttir, b. á Syðri-Steinsmýri Gissurarsonar og Gyðríðar Þór- halladóttur, b. í Mörk, Runólfs- sonar, bróður Halldóru, langömmu Guðmundar, föður Al- berts ráðherra. Hjörleifur og Kristín halda sameiginlega upp á sextugsafmæli sín með móttöku í Átthagasal Hótel Sögu í dag kl. 17.00-19.00. Gunnar Guttormsson Gunnar Guttormsson forstjóri, Tómasarhaga 47, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Gunnar fæddist á Hallormsstað og ólst þar upp. Hann lauk lands- prófi frá MA 1951, stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík 1953-56, nám í vélvirkjun í Lands- smiðjunni 1953-57, lauk vélstjóra- prófi frá Vélskóla Islands 1960 og prófl frá rafmagnsdeild skólans 1961 og stundaði nám í hagræð- ingartækni við Statens Teknolog- isk Institutt í Osló og við IMSÍ 1966-67. Gunnar starfaði i Landssmiðj- unni 1962-65, í Kóral 1965-66, var blaðamaður á Þjóðviljanum 1971-72, var ráðunautur á hagræð- ingardeild ASÍ 1967-71, forstöðu- maður námskeiða fyrir stjórnend- ur vinnuvéla á vegum iðnaðar- ráðuneytis 1973-81, skipaður full- trúi í iönaðarráðuneyti 1974 og deildarstjóri þar 1978, var deildar- stjóri einkaleyfa- og vömmerkja- deildar ráðuneytisins frá 1977 og skipaður forstjóri Einkaleyfastof- unnar frá 1991. Gunnar sat í ýmsum nefndum á vegum iðnaðar- og menntamála- ráðuneytis 1971-85, starfaði á vett- vangi norrænnar samvinnu, var formaður Iðnnemasambands ís- lands 1956-57, formaöur Æsku- lýðsfylkingarinnar 1962-64, í stjóm Félags jámiðnaðarmanna 1965-66, í miðstjóm Sósíali- staflokksins og siðar Alþýðu- bandalagsins, stjórnarformaður Tónskóla Sigursveins frá 1984, í stjóm íslensku óperunnar 1980-88, hefrn- sungið í ýmsum kórum frá 1956, þ. á m. í Söngfélagi verka- lýðssamtakanna, Alþýðukómum, Karlakór Reykjavíkur og Eddukórnum og er félagi í Kór is- lensku óperunnar frá stofnun hennar. Fjölskylda Gunnar kvæntist 31.10. 1961 Sigrúnu Jóhannesdóttur, f. 14.2. 1936, nú fulltrúa hjá Námsgagna- stofnun. Hún er dóttir Jóhannesar Sveinbjömssonar, b. á Heiðarbæ í Þingvallasveit, sem lést 1992, og Margrétar Þórðardóttur húsmóð- ur sem lést 1974. Böm Gunnars og Sigrúnar eru Margrét, f. 12.8. 1960, gift Sigurði Davíðssyni kennara og era böm þeirra Gunnar og Sigrún; Gerður, f. 24.5. 1964, fiðluleikari í Köln í Þýskalandi. Gunnar er tvíburabróðir Hjör- leifs alþm. sem grein er um hér á síðunni. Gunnar er að heiman á afmæl- isdaginn. Gunnar Guttormsson. Til hamingju með afmælið 31. október 90 ára Þóroddur Sæmundsson, Lyngholti 4, Akureyri. 85 ára Þórunn Guðmundsdóttir, Nónvörðu 12A, Keflavík. Sigríður Jónsdóttir, Löndum 1, Stöðvarfirði. Rakel Jóhannsdóttir, Hrafnistu við Skjólvang, Hafnar- firði. 80 ára______________________ Óskar Georg Jónsson, Ballará, Dalahyggð. Pétur Bjöm Ólason, Miðhúsum, Sveinsstaðahreppi. Vilborg Bjamadóttir, Skallagrimsgötu 5, Borgamesi. Yngvi Ólason, Lönguhlíð 5 C, Akureyri. Helgi Þorláksson, Sléttuvegi 11, Reykjavík. Hann er að heiman. 75 ára Þurfður Guðmundsdóttir, Austurbrún 6, Reykjavík. Jón Guðmundur Bergmann, Ljósvallagötu 24, Reykjavík. 70 ára Emil Bergmann Emilsson, Múlavegi 19, Seyðisfirði. 60 ára Friðrika Kristjana Bjamadóttir, Heiðarbraut 34, Akranesi. Rannvá Kjeld, Tjamarbóli 12, Seltjamamesi. María Óskarsdóttir, Ásgarði 30, Reykjavík. Hraöihildur Tryggvadóttir, starfsmaður Landsbankans, Flatasíöu 4, Akureyri. Maður hennar er Þorgrímur Þor- steinsson trésmiður. Hún er að heiman. 50 ára Guðmundur Jónsson skipstjóri, Vesturvangi 13, Hafnarfirði. Kona hans er Rut Árnadóttir. Þau taka á móti gestum í Sjálf- stæðishúsinu í Hafnarfirði í kvöld kl. 19.00-22.00. Finnur Jónsson, Kirkjubraut 42, Höfn í Homafirði. 40 ára Eyvindur Þórarinsson, Spóarima 6, Selfossi. örn ísfeld Ólason, Bæjargili 46, Garðabæ. Öm Pálsson, Veghúsum 13, Reykjavík. Guðrún Jónasdóttir, Mel, Borgarbyggð. Oddný Sigurborg Gxmnarsdóttir, Laugarásvegi 60, Reykjavík. Kristján S. Stefánsson, Stigahlíð 48, Reykjavík. Guðmundur Árni Stefánsson Guðmundur Árni Stefánsson, alþingismaöur og varaformaður Alþýðuflokksins, Stekkjarhvammi 62, Hafharfirði, er fertugur í dag. Starfsferill Guðmundur Árni fæddist í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Flensborg 1975 og stundaði nám í stjóm- málafræði við HÍ 1978-80. Guðmundur Ámi var blaða- maður við Alþýðublaðið 1975-76, lögreglumaður í Reykjavík 1976-79, blaðamaður við Helgar- póstinn 1979-81, ritstjórnarfulltrúi á Alþýðublaðinu 1981-82, ritstjóri þar 1982-85, stundaði fjölmiðlaráð- gjöf 1985-86, stundaði þáttagerð í útvarp frá 1974, ritstjóri blaðs fangahjálparinnar Verndar 1980-85, bæjarstjóri í Hafnarfirði 1986-93, heilbrigðis- og trygginga- ráðherra 1993-94, félagsmálaráð- herra 1994, var varaþingmaður 1991-95, er alþingismaður í Reykjaneskjördæmi frá 1995 og er varaformaður Alþýðuflokksins frá 1993. Fjölskylda Kona Guðmundar Áma er Jóna Dóra Karlsdóttir, f. 1.1.1956, hús- móðir. Hún er dóttir Karls Finn- bogasonar, plötu- og ketilsmiðs, og k.h., Ragnhildar Jónsdóttur verslunarmanns. Börn Guðmundar Árna og Jónu Dóru eru Fannar Karl, f. 14.12. 1976, d. 16.2.1985; Brynjar Freyr, f. 14.3. 1980, d. 16.2. 1985; Margrét Hildur, f. 12.11.1981; Heimir Snær, f. 13.6.1984; Fannar Freyr, f. 24.5. 1986; Brynjar Ásgeir, f. 22.6. 1992. Systkini Guðmundar Áma: Snjólaug Guðrún, f. 25.5. 1951, uppeldisfulltrúi, búsett í Hafnar- firði; Gunnlaugur, f. 17.5.1952, fyrrv. alþm. og prestur i Heydöl- um; Ásgeir Gunnar, f. 11.11. 1969, flugmaður og kerfisfræðingur i Reykjavík. Hálfbróðir Guðmundar Árna, samfeðra, er Finnur Torfi, f. 20.3. 1947, tónskáld og lögmaður. Foreldrar Guðmundar Áma era Stefán Gunnlaugsson, f. 16.12. 1925, fyrrv. alþm. og bæjarstjóri í Hafnarfirði, og k.h„ Margrét Guð- mundsdóttir, f. 18.7. 1927, dómrit- ari. Ætt Stefán er bróðir Áma, fyrrv. bæjarfulltrúa í Hafnarfirði. Stefán er sonur Gunnlaugs, kaupmanns í Hafnarfirði, bróður Ásgeirs, fram- kvæmdastjóra BÚH. Gunnlaugur var sonur Stefáns, trésmiðs í Hafnarfirði, Sigurðssonar, bróður Sigurðar, afa Salóme Þörkelsdótt- ur, fyrrv. alþingisforseta. Móðir Stefáns var Þorbjörg Jóelsdóttir, b. í Saurbæ, bróður Sigurlaugar, langömmu Kristínar, ömmu Frið- riks Sophussonar fjármálaráð- herra. Móðir Gunnlaugs var Sól- veig Gunnlaugsdóttir. Móðir Stefáns var Snjólaug Árnadóttir, prófasts í Görðum, Bjömssonar, bróður Sigurðar brunamálastjóra, föður Sigurjóns, fyrrv. lögreglustjóra, og afa Magn- úsar Magnússonar hjá BBC. Móð- ir Snjólaugar var Líney, systir Jó- hanns skálds. Líney var dóttir Sigurjóns, b. á Laxamýri, Jóhann- essonar, ættföður Laxamýrarætt- arinnar, Kristjánssonar. Margrét er dóttir Guðmundar, Guðmundur Árni Stefánsson. útgerðarmanns í Reykjavík, Magnússonar, b. í Kálfavík, Bárð- arsonar. Móðir Guðmundar út- gerðarmanns var Margrét, systir Halldóm, móður Jóns Baldvins- sonar, formanns Alþýðuflokksins. Bróðir Margrétar var Gunnar á Eyri, afi Sverris Hermannssonar. Margrét var dóttir Sigurðar, b. í Hörgshlíð, bróður Rósinkrans, langafa Sólveigar, móður Jóns Baldvins, formanns Alþýðuflokks- ins. Sigurður var sonur Hafliða, b. á Skarði, bróður Jóhannesar, langafa Hannibals Valdimarsson- ar, formanns Alþýðuflokksins. Móðir Margrétar var Kristín Hall- dórsdóttir frá Hvítanesi, af Arnar- dalsætt, systir Jóns, föður Magn- úsar, bæjarfógeta í Hafnarfirði. Móðir Margrétar var Guðrún, dóttir Guðmundar, b. á Eyri, Am- grímssonar. Guðmundur og Jóna Dóra taka á móti gestum í veitingahúsinu Fjörunni við Strandgötu í Hafnar- firði kvöld kl. 18.00-20.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.