Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 JjV fréttir Stálsmiöjan fær ekki innskatt greiddan á meöan á greiöslustöövun stendur: Hæstiréttur fann aö galla í lagasetningu - skuldajöfnun heimil en óheimilt að beita þvingunarúrræöum Ágalli á lagasetningu Alþingis leiðir tO þess að fyrirtæki í greiðslu: stöövun fær ekki endurgreiddan viröisaukaskatt ef það skuldar önn- ur opinber gjöld sem nemur inn- skattsupphæð. Ríkissjóði er því heimilt að skuldajafna virðisauka- skattsinneign og opinber gjöld þrátt fyrir að greiðslustöðvun standi yfir. Þetta er niðurstaða meirihluta fimm manna klofins dóms Hæstaréttar í máli Stálsmiðjunnar hf. á hendur Tollstjóranum í Reykjavík. Við innheimtu opinberra gjalda var Stálsmiðjan látin greiða inneign vegna viröisaukaskatts til skulda- jöfnunar við önnur gjöld. Það sem tekist var á um í dómsmálinu var því hvort réttur skattaðila til endur- greiðslu yrði „ríkari við það að hann hafi fengið heimild til greiðslustöðvunar“. Samkvæmt lög- um um gjaldþrotaskipti er sfjórn- völdum óheimilt að grípa til þving- unaraðgerða í garð skuldarans vegna vanefnda hans á meðan greiðslustöðvun stendur. Hins vegar er ekki vikið skýrt að lögmæltri skuldajafnaðarskyldu ríkissjóðs í lagasetningunni. Hæstiréttur lítur svo á að tilgang- ur löggjafans í gjaldþrotaskiptalög- um sé ekki sá að skapa skuldurum rétt til greiðslu úr ríkissjóði sem hann átti ekki áður lögvarða kröfu til. Hins vegar sé staöa hans gagn- vart greiðslustöðvunartímabilinu varin með þeim hætti að ekki megi beita fyrrgreindum þvingunarúr- ræðum. Þar sem löggjafinn tók ekki skýr- lega fram að skuldajöfnunarreglan ætti ekki að gilda um þegar greiðslustöðvun er annars vegar var skuldajöfnuðurinn talinn heimill. Tollstjórinn var því sýknaður af kröfum Stálsmiðjunnar. Minnihluti dómsins, tveir dómar- ar, vildu dæma Stálsmiðjunni þær 4,5 milljónir króna sem dómur hér- aðsdóms kvað á um. -Ótt Ófyrirleitinn þjófur: Stal tveimur kojum frá börnum einstæðrar móður - móðirin hefur verið atvinnulaus og var að selja innbú sitt „Ég hafði auglýst búslóð okkar til sölu vegna þess að ég er að flytja með börnin til Danmerkur. Svo gerðist það að til mín hringdi kona utan af landi og spurði um barna- kojur sem ég hafði auglýst. Henni leist vel á þær eftir lýsingu minni og sagðist ætla að biðja bróður sinn, sem byggi í Kópavogi, að fara og skoða þær. Síðan kom maður, sem sagðist vera bróðir þessarar konu, að skoða kojurnar. Hann sagði að sér litist vel á þær og myndi systir hans eflaust kaupa þær eftir að hann hefði talað við hana. Hann sagðist myndu koma aftur síðar og sækja þær. Síðan gerðist það að ég þurfti að bregða mér frá stutta stund og bömin mín, 10 og 11 ára gömul, voru hér heima. Á meðan ég var í burtu kom maðurinn og sagði við börnin að hann ætlaði að kaupa kojurnar. Hann bað þau að finna skrúfurnar sem kojumar eru settar saman með. Á meðan þau leituðu bar hann kojurnar út og ók í burtu. Ég hafði hins vegar límt skrúfumar við kojurnar og það hefur hann séð,“ sagði Guðrún Þorláksdóttir, einstæð móðir með tvö böm, í sam- tali við DV. Hún sagðist hafa sett 6000 krónur á kojurnar og fylgdu dýnumar með. Þetta væri svo sem ekki há upphæð en sig munaði um peningana, enda hefði hún verið atvinnulaus um nokkurn tíma og því haft lítið handa á milli. Guðrún var að selja búslóð sína og safna þannig peningum því hún er aö flytja til Danmerkur. „Ég hef vonir um að fá vinnu við þrif í Danmörku. Ég Vann við það hér heima en missti vinnuna. Ég hef orðið að lifa á atvinnuleysisbótum og fæ 16 þúsund krónur aðra hverja viku til að lifa á. Það bara gengur ekki upp og ég er búin að gefast upp. í Danmörku er greitt sem nemur eitt þúsund krónum íslenskum á tímann fyrir þrif,“ sagði Guðrún Þorláksdóttir. -S.dór Bullandi sam- keppni milli eggja- framleiðenda - segir Geir Gunnar Geirsson eggjabóndi „Það er bullandi samkeppni milli eggjaframleiðenda þótt það sé hægt að kalla okkur einokunar- púka. Ríkisspítalamir hafa undir þessu svokallaða einokunarkerfi verið að kaupa egg á verði sem þeir hafa fengið eftir tOboðum sem þeir hafa leitað eftir. Þetta sannar að það er samkeppni. Það er greinilegt aö menn eru að selja með mismunandi miklum af- slætti," segir Geir Gunnar Geirs- son, eggjabóndi á Kjalarnesi. Vinnuveitendasamband íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem lagt er til að eggjaframleiösla heyri undir samkeppnislög en ekki bú- vörulög. Bendir Vinnuveitenda- sambandið á aö framleiðsla og sala á eggjum sé í öllum aðalatriðum sambærileg við aðra iðnaðarfram- leiðslu í landinu en svipi hins Veg- ar lítt til hefðbundins landbúnað- ar. Framkvæmdastjóm Verslunar- ráðs íslands hefur lýst yfir stuðn- ingi við ályktunina. Geir Gunnar segir að það hafi verið starfsmaður Félags eggja- framleiðenda sem hafi farið út í það að rukka eftir því að farið yröi aö lögum í sambandi við kaup Rík- isspítala á eggjum, eins og hann orðaði það. „Það var af rælni eða stríðni eða ég veit ekki hveiju. Það var engin félagssamþykkt fjrir því að krefja Ríkisspítala um að borga verð samkvæmt veröskráningu. Ég held aö Ríkisspítalamir hafi viljaö borga skráð verð eftir hvatn- ingu frá Vinnuveitendasamband- inu svo að það væri hægt aö búa til einhverja bombu úr þessu. Ég held líka að þeim hafi staðið til boöa eftir sem áður að fara í lægra verðið,“ segir Geir Gunnar sem jafnframt bendir á að í öllum lönd- um sé eggjaframleiðsla álitin vera landbúnaður, óháð stærð og magni. -IBS Guðrún Þorláksdóttir og dóttir hennar á heimili sínu í gær. DV-mynd BG f’i m Lögbrjótar verða senn myndaðir Settur hefur verið upp_búnaður fyrir myndavél við gatnamót Hring- brautar, Bústaðavegar og Miklu- brautar er taka á myndir af þeim er aka yfir á rauðu ljósi. Myndavélam- ar verða þó ekki teknar í notkun fyrr en dómsmálaráðuneytið hefur gefið út leiðbeinandi reglur um notkun þeirra. Búast má við að reglumar verði tilbúnar í desember og að þá verði vélamar teknar í notkun. „Þettá er þekkt víða erlendis og hefur leitt til fækkunar slysa. Það liggur í eðli hlutarins að þegar færri aka á rauðu ljósi minnka líkumar á að menn keyri saman,“ segir Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn. Ætlunin er að setja upp kassa fyr- ir myndavélar á fleiri stöðum þar sem mikið er ekið yfir á rauðu ljósi. Að sögn Baldvins Baldvinssonar hjá umferðardeild Reykjavíkurborgar verða myndavélar færðar milli kassa að ncéturlagi. -IBS stuttar fréttir Vaxtalækkun í dag Vaxtabreytingadagur er i dag. íslandsbanki einn banka ■ lækkar útlánsvexti um 0,15 til 0,25 prósentustig auk þess sem sparisjóðirnir eru með lítils háttar vaxtabreytingar á af- urðalánum og gjaldeyrisreikn- ingum. IFerðamaður fer í mál ísraelskur ferðamaður hefur krafist þess við Ferðamálaráð að opinber rannsókn fari fram á því hvað fór úrskeiðis þegar hópur útlendinga lenti í hrakn- ingum i Kverkfjöllum í sumar. Samkvæmt frétt RÚV ætlar ferðamaðurinn í mál við Sam- vinnuferðir-Landsýn. ■ Ofanflóðasjóður kaupir Ofanflóðasjóður ætlar að kaupa hús á snjóflóðahættu- j svæöum í Hnífsdal og Súðavík fyrir um 800 milljónir króna. RÚV greindi frá þessu. Útgerð á Falklandseyjum Fyrirtækið Sæblóm hefur stofnað útgerðarfélag á Falk- landseyjum. Samkvæmt Fiski- fréttum munu 3 íslenskir togar- ar stunda þar veiðar á smokk- . fiski, lýsingi og hokinhala allan ársins hring. Fjallað um fíkniefni Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur beint þeim tilmælum til sveitarstjóma um land allt að taka til sérstakrar umfjöllunar fikniefnanotkun unglinga. Hundar í reiðhöll Hundaræktarfélag íslands stendur fyrir sýningu í reiðhöll Gusts í Kópavogi á morgun. j Sýndar verða þrjár tegundir; enskir „setterar“, springer- spaniel og yorkshire-terrier hundar. Vildi ekki tengdó! Konunglega jórdanska flugfé- lagið varð fyrir tugmilljóna króna tjóni vegna sprengjuhót- unarinnar í fyrrakvöld og taf- anna sem hún olli. Kona í Chicago stóð fyrir gabbinu en hún vildi ekki fá tengdamóður sína, sem var í vélinni, í heim- sókn og var grunuð um græsku. Gigtveikir safna Gigtarfélag íslands stendur um helgina fýrir landssöfnun til styrktar starfsemi sinni en þess má geta að rúmlega 50 þús- und íslendingar þjást af gigt á einn eða annan hátt. Halldór fordæmir Halldór Ásgrímsson utanrík- Sisráðherra hefur fyrir hönd ís- lands komið á framfæri for- dæmingu á dauðadómum yfir nígerískum rithöfundi og átta félögum hans. m ... Landgræðsluverðlaun Landgræðsluverðlaunin 1995 Iverða afhent með viðhöfn í Gunnarsholti í dag. Fjórir aðil- ar munu fá verðlaunin úr hendi landbúnaðarráðherra. Stórstúkan mótmælir Stórstúka íslands mótmælir harðlega tillögu nokkurra þing- manna um lækkun aldurstak- marks niður í 18 ár við kaup á áfengi. Heimsókn frá Eistlandi IOpinberri heimsókn Tiit Váhi, forsætisráðherra Eist- lands, lýkur í dag en hann hef- ur verið hér síðan á miðviku- dag. í gær skoðaöi hann m.a. Gullfoss og Geysi og tók sund- sprett í Árbæjarsundlauginni í Reykjavík. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.