Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 Jj'V sælkerínn Hótel Loftleiðir: Rjúpa „Það er vel hægt að borða rjúpu oftar en á jólunum," segir Sigurður Ólafsson, matreiðslumaður á Hótel Loftleiðum og meðlimur í mat- reiðsluklúbbnum Freisting. Hann sagði að undanfarið hefðu staðið ytir villibráðarkvöld í Blómasal hót- elsins sem væru mjög vinsæl. „Við bjóðum upp á m.a. rjúpu, gæs, önd, súlu, skarf, svartfugl, lunda og hreindýr ásamt miklu úrvali for- rétta fyrir 3.950 krónur." Sigurður sagði að hann ætlaði að bjóða lesendum upp á uppskrift að rjúpu sem væri ekki jólarjúpa. Þetta er rjúpa með brennivínssósu og ró- smarínkartöflum sem hentar vel þegar gesti ber aö garði. Sigurður úrbeinar rjúpuna en segir að fólk megi ráða hvort það hafi skipið með eða ekki. Hann mælir með einni rjúpu á mann eða tveimur til þremur bringum. Soð úr beinum „Ég bý til soð úr beinum, lærum, hjarta og fóarni en nota má lifrina með rjúpunni með því að léttsteikja hana. Beinin eru brúnuð ásamt tveimur niðurskornum laukum, hálfum blaðlauk, fjórum steinsel- justilkum og einum sellerístöngli, í potti eða ofni og kryddað með 10 piparkornum, 8 einiberjum, 1/2 msk. timian, 1/2 af salvíu, 2-3 lár- -ekki viöarlaufum og ör- litlu af salti. Soðið við vægan hita í 3-4 tíma og fleytt vel, sigtið þá og sjóðið niður um helm- ing.“ baraá Brennivínssósa jólunum Rósmarín- Svitið í potti chalottelauk og kúmen með smjöri. Hellið 2-3 dl af brennivíni út í og sjóðið nið- ur, setjið þá soðið, sem búið var tO, út í. Þegar suðan hefur kom- ið upp er sósan þykkt með sósu- jafnara. Áður en sósan er borin fram er mjög gott að bæta hana með smjöri. kartöflur Svitið lauk og rósmarín í potti, hellið 3 dl af rjóma út í og látið suð- una koma upp. Skrælið tiu meöal- stórar kartöflur og skerið í þunnar skífur, raðið í eldfast mót og hellið rjómanum út í, kryddið með salti og pipar og stráið rifnum osti yfir. Bak- ið í ofni við 180 gráður í 30-40 mín- útur. Sigurður Ólafsson mat- reiðslumaður með „hvers- dags“-rjúpuna. DV-mynd S Rjúpur og meðlæti Bringurnar (með eða án skips) eru steiktar í ólífuolíu og smjöri á vel heitri pönnu og síðan bakaðar í 160 gráða heitum ofni í 8-12 mínút- ur eftir smekk. Meðlæti með rjúpunni er gulræt- ur, steinseljurót og sellerirót, steikt í smjöri og síðan soðið aðeins í kjúklingasoði með örlitlu timian og smávegis gráðosti. Mælt er með franska rauðvíninu Chateau Batailley 1985 með þessum rétti. „Það er ekki mjög aflmikið en í góðu jafnvægi og gefur mjúkt og fint eftirbragð. Flaskan af því kostar 2.910 krónur úr ÁTVR.“ -ELA Fylltar svínalundir Svínakjöt er sannkallaður veislumatur og hér kemur uppskrift að fylltum svína- lundum með pastalengjum. Þetta er einfaldur réttur sem allir ættu að geta gert og ætti ekki heldur að vera dýr þar sem svínakjöt er á góðu verði. Uppskriftin er miðuð við sex manns: 2 svínalundir (u.þ.b. 1 kg) steinseljusmjör 50 g valhnetur smávegis af steinselju 300 g ferskir sveppir 2 hvitlauksrif 2 dl sýrður rjómi sojasósa Hreinsið lundirnar með því að fjarlægja sinar og himnu. Skerið rauf ofan í kjötið iangsum og setjið steinseljusmjörið ofan í (geymið smávegis af smjöri fyrir sveppina), grófhakk- aðar valhnetur og smávegis af hakkaðri aukasteinselju. Auðvelt er að búa til stein- seljusmjör með því að hræra saman fint hakkaöa stein- selju og smjör. Lokið síðan rifunni með tannstönglum. Leggið lundimar í eldfast mót og kryddið með salti og pipar. Leggið sveppi, sem skomir hafa verið i tvennt, í kringum kjötið og afganginn af steinseljusmjörinu. Press- ið síðan hvítlauksrifin ofan á. Setjið i 175 stiga heitan ofn í 30-40 mínútur en það fer svolítið eftir þykkt kjöts- ins. Hrærið ööru hverju í sveppunum meöan á eldun- inni stendur. Þegar kjötið er steikt er það lagt á skurðarbretti og látið jafna sig meðan sósan er útbúin. Hellið sveppunum og soðinu frá kíötinu yfir í pott, bætið sýrðum rjóma og sojasósu í og sjóðið upp. Bragðbætið með kryddi eða meiri sojasósu ef þarf. Sker- ið lundirnar í þykkar sneið- ar, leggið á diska með græn- um pastastrimlum og setjið sósuna með. -ELA matgæðingur vikunnar Fjórir góðir réttir „Mig langar að bjóða lesendum upp á heita brauðtertu, öðruvísi salat með jólasteikinni, grillaðan humar og grafna ýsu. Þetta eru allt réttir sem auðvelt er að gera og hægt að búa til kvöldið áður,“ seg- ir Margrét Lilja Einarsdóttir sjúkraliði, matgæðingur vikunnar. Hún segist ekki vera mikið fyrir að finna upp nýja rétti. „Ég er ein af þessum uppskriftakonum," segir hún. „En ég hef gaman af að elda þegar ég er í stuði til þess. Þessar uppskriftir, sem ég gef hér, hafa alltaf verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Jólasalatið passar t.d. vel með gæs og nýju eða reyktu svínakjöti." Heit brauðterta með tvenns konar fyllingu Skorpulaust formbrauð, skorið eftir endilöngu (fimm lög) eða rúllutertubrauð Fylling 1: 1 bréf skinka 1/2 dós grænn aspas 3 msk. remúlaði 1 1/2 msk. majónes Fylling 2: 500 g rækjur 1 lítill laukur 2 msk. tómatsósa 2 msk. sinnep 1 1/2 msk. majónes 2 tsk. milt karrí Fyllingunum smurt á brauðlögin til skiptis. Þeyttar qggjahvítur smurðar yfir efsta lagið og paprikudufti stráð yfir. Bakað í ofni í 20-30 mínútur á blæstri við 150 gráða hita. Jólaávaxtasalat 1-2 egg 1-2 msk. sykur hálf sitróna 1 1/2 bolli smátt skornar gráflkjur 11/2 bolli smátt brytjaðar rúsínur 5-6 epli, afhýdd og skorin í bita þeyttur rjómi Eggin og sykurinn þeytt saman yfir gufu. Sítrónusafa blandað sam- an við þegar eggjahræran er orðin létt og dálítið þykk. Tekið af hitan- um og þeytt við og við meðan hræran er að kólna. Gráflkjunum, rúsínunum og eplunum blandað saman við. Geymist í lokuðu íláti í ískáp í nokkra daga en þá er þeytta rjómanum hrært út í áður en lagt er á borð. Grillaður humar Skelflettur humar er kryddaður með hvítlauksdufti. Ananasbiti settur með hverjum humri, beikoni vafið um og þrætt á tré- pinna. Gott er að láta pinnana liggja í köldu vatni í smástund svo þeir brenni ekki. Humarspjótin eru síðan grilluð í tvær mínútur á hvorri hlið tvísvar sinnum. Góð sósa með þessu: Ein dós sýrður rjómi, 2 msk. majónes, 1 smátt skorin rauð paprika, og 1/2-1 tsk. steinselju- og hvítlauks- salt. Öllu blandað saman. Grafin ýsa „Mér finnst sniðugt að hafa þennan rétt á veisluhlaðborði en hann er mjög góður og borinn fram með ristuðu brauöi. 1 kg ýsa 3-A sítrónur (safinn) Fiskurinn er skorinn í fer- hyrnda bita, sítrónusafinn kreistur vel yfir og látið vera í 24 klst. í lok- uðu fati í ísskáp. Eftir sólarhring- inn er safinn síaður frá og fiskin- um raðað á fat og skreyttur með sítrónum og fersku dilli. Með þessu er borin fram sinn- epssósa: 1 dl majónes, 1 dl sýrður rjómi, 1 msk. sætt sinnep, 1 msk. hunang, 3-4 msk. shire sojasósa og 1/2 tsk. worchestersósa. Þetta er skreytt með dilli. Sósan bragðbætt eftir smekk. Margrét ætlar að skora á vinnu- félaga sinn á Borgarspítalanum, Kristínu Aðalsteinsdóttur hjúkr- unarfræðing, að verða næsti mat- gæðingur. „Ég veit að hún er mik- il áhugamanneskja um matar- gerð.“ -ELA Margrét Lilja Einarsdóttir er matgæöingur vikunnar. DV-mynd Sætar kartöflur Sætar kartöflur (sweet pot- atoes) fást í stórmörkuðum hér á landi en kannski eru margir sem ekki vita hvemig á að mat- reiða þær. Sætar kartöflur er hægt að matreiða á nákvæm- lega sama hátt og venjulegar kartöflur, sjóða þær, baka eða mauka. Sagt er að sætar kart- öflur hafi borist til Evrópu árið 1493 með Kristófer Kólumbusi eftir að hann fann Ameríku. Þær hafa alla tíð verið vinsæll matur í Ameríku þótt þær hafi nú haslað sér völl víða um Evr- ópu. Bandaríkjamenn borða alltaf sætar kartöflur með kalkúni og þá sérstaklega á þakkargjörðardaginn. Sætar kartöflur á alltaf að sjóða með hýðinu til þess að þær halda bragði sínu og næringu. Grafin rjúpa Nú er tími rjúpnaveiði- manna og sjálfsagt hugsa þeir sér flestir að geyma veiðina til jólanna. Þó hin hefðbundna ís- lenska jólarjúpa sé mikið lost- æti þá má vel prófa að matreiða hana á fleiri vegu. Grafin rjúpubringa þykir t.d. mikill herramannsmatur og finasti forréttur. Ef þú telur þig vanta C- vítamín er kjörið að borða kiwiávöxt. Hann er fuflur af C- vítamíni og inniheldur einnig A- og D-vítamín. Kiwiplantan kemur upprunalega frá Kína en mest er framleitt af ávextinum á Nýja Sjálandi. Kiwi er hægt að kaupa allt árið. Ávöxturinn er bestur þegar hýðið gefur að- eins eftir þegar þrýst er á það. Kiwi geymist lengi í kæliskáp. Hægt er að boröa kiwi eins og hann kemur fyrir, skera hann I tvennt og borða innan úr, en einnig er hægt að nota hann í fjölmarga rétti. Geymsla á rjúpu Að sögn Jónasar Þórs kjöt- verkanda á nýskotin rjúpa að geymast á köldum og þurrum stað í 12-15 daga. Nauðsynlegt er aö hafa jafnan hita á rjúp- unni. Hún má ekki frjósa og heldur ekki verða fyrir rign- ingu eða raka. Rjúpan á að hanga með lappirnar niður þannig að kjötið verði mýkra og fái gott bragð. Gæs á að hanga eins og við sömu skil- yrði en þó ekki nema 5-6 daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.