Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
49
É
■
I
I
I
1
ff
i
Seyðisfjörður:
Byggingarnefnd
samþykkir hús
á hættusvæði
Byggingarnefndih á Seyðisiirði
hefur samþykkt teikningar Kaup-
félags Héraðsbúa að byggingu 400
fermetra verslunarhúsnæöis á
lóðinni númer 1 við Vesturveg á
Seyðisfírði. Samkvæmt gildandi
aðalskipulagi er lóðin á "hættu-
svæði og vísar nefndin í hættu-
matið á svæðinu, að sögn bæj-
arritarans á Seyðisfirði. Verið er
að endurskoða hættumatið og er
búist við nýju mati fljótlega eftir
áramót.
„Við eigum eftir að funda um
þetta en verðum að sjá hvað þetta
nýja hættumat segir. Við eigum
hvort sem er eftir að undirbúa
útboð á byggingunni þannig að
ég sé ekki að það komi mikið að
sök þó að við bíðum,“ segir Ingi
Már Aðalsteinsson, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Héraðsbúa, en
kaupfélagið hafði ætlað sér að
heQa byggingarframkvæmdir á
Seyðisfirði i haust.
„Það hefur dregist að fá niður-
stöðu hjá byggingarnefhd. Það
voru engar umræður um snjó-
flóðahættu í haust en það breytir
svolitlu eftir þessar hörmungar.
Ef allt hefði gengið að óskum
værum við byrjaðir að byggja en
nú hljótum við að skoða þetta
sérstakiega,“ segir hann.
Ingi Már segir að samkvæmt
munnmælasögum hafi snjóflóð
cddrei fallið á lóðina við Vestur-
veg 1 en skömmu fyrir aldamót
hafi snjóflóð fallið þarna i ná-
grenninu og þá hafi orðið stór-
tjón. -GHS
Tennishöllin:
Bæjarábyrgðir
lengjast úr
15 í 25 ár
Þorbjörn Gúðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Tennishallarinnar
í Kópavogi, segir verið sé að
kanna hlutafjáraukningu Tennis-
hallarinnar hf. og ræða við bæj-
aryfirvöld um lengingu bæjará-
byrgðar Kópavogskaupstaðar úr
15 árum i 25 ár.
Þorbjöm segir að rétt sé að
bæjarábyrgöir nemi tæpum 70
milljónum króna en rangt sé að
heildarskuldir hlutáfélagsins
nemi um 175 milljónum króna.
Sú upphæð er lægri, að hans
sögn, en ekki vildi hann segja
hver upphæðin væri.
Samkvæmt heimildum DV er
aðeins 36 prósenta nýting á Tenn-
ishöilinni. -GHS
Hvalfjarðargöngin:
Styttist í samninga
Danlel Ólafsson, DV, Akranesi:
„Það fer að styttast í að samn-
ingar um Hvalfjarðargöngin verði
undirritaðir. Vinnan við þá hefur
gengið vel að undanfórnu en þetta
er flókið mál og viðamikið. Maður
vonar að hægt verði aö gefa út yf-
irlýsingu um miðjan mánuðinn
um undirskriftardaginn," sagði
Gylfi Þórðarson, stjórnarformað-
ur Spalar, sem hefur með Hval-
fjarðargöngin að gera.
Hamfarirnar á Flateyri:
Minningartónleikar
í Hásknlabíni
Minningartónleikar verða
haldnir í Háskólabíói vegna nátt-
úruhamfaranna á Flateyri klukk-
an 21 n.k. þriðjudagskvöld. Fjöldi
listamanna leggur þar fram vinnu
sína. Þar má nefna félaga úr Sin-
fóníuhljómsveit íslands, félaga úr
kór íslensku óperunnar, Karlakór
Reykjavíkur auk fjölda þekktra
einsöngvara og einleikara.
Miðaverð er 1000 krónur og
rennur ágóðinn til Samhugar í
verki. -rt
Stefnumótun í ferðaþjónustu hrundið í framkvæmd:
- segir Halldór Blöndal samgönguráðherra
„Nú er rétti tíminn til að hrinda
þessari vinnu í framkvæmd. Með
stefnumótun í ferðaþjónustu getum
við áttað okkur á þeim þáttum sem
við höfum vanrækt um leið og hug-
að er að framtíðinni. Ferðaþjónust-
an er auðlind sem þarf að nýta,“ seg-
ir Halldór Blöndal samgönguráð-
herra. \
Hafldór hefur skipað nefnd til að
stýra vinnu við opinbera stefnumót-
un í ferðaþjónustu hér á landi.
Nefndin hefur ráðið Hagvang til
vinnu við stefnumörkunina, auk
þess sem hún hefur ráðið sér starfs-
mann, Bjarnheiði Hallsdóttur ferða-
málafræðing. Verkið verður unnið í
nánu samstarfi við þá sem starfa að
ferðaþjónustu enda talið að um sam-
eiginlega hagsmuni ríkisvalds og
greinarinnar sé að ræða. Formaður
nefhdarinnar er Magnús Oddsson
ferðamálastjóri.
Mikill vöxtur hefur verið í ferða-
þjónustu á íslandi á undanförnum
árum og er talið að hún muni allt að
því tvöfaldast á næstu 15 árum. Það
myndi þýða að störfum í ferðaþjón-
ustu hér á landi fjölgaði um allt að
3.500 á tímabilinu.
Á síðasta ári skilaði ferðaþjónust-
an um 12 prósentum allra gjaldeyr-
istekna þjóðarinnar, eða um 16,9
milljörðum. Sé litið til undanfar-
inna þriggja ára eru gjaldeyristekj-
urnar tæplega 45 milljarðar, þar af
Magnús Oddsson ferðamálastjóri og Halldór Blöndal samgönguráðherra.
DV-mynd Sveinn
hefur ríkissjóður fengið um 13,5
milljarða í tekjur.
Að sögn Halldórs er stefnumótun-
in, sem nú verður ráðist í, liður í
því að undirbúa menn undir aukna
samkeppni á sviði ferðamála. Mark-
miðið sé meðal annars að setja bæði
byggðarleg og efnahagsleg markmið
og vísa leiðirnar að þeim. Tryggja
verði arðsemina án þess að ganga of
nærri náttúrunni og tryggja þarf
samkeppnishæfni íslenskra aðila á
alþjóðamarkaði.
-kaa
Argos-listinn-ótrúlegt verð!
Pantlö strax. Sumar vörutegundir aö seljast upp.
Snyrtispegill m.
Ijósum, stækkar
Vönduð Bohemia
kristalsglös, 6 í gjafakassa,
3 gerðir
SSSRSSUS Kleinuhrinaajárn
kr. 1350
Samkvæmistaskataska
úr leöri, 20 cm breiö
Herraraksett
Steikarhnífa-
pör f. 6
Þrýstikaffíkanna
kr. 1795
Frá ki'. 429
Perlulokkar úr gulli,
margar gerðir
; (NCIVDÍS BARBÍt:
JBWtLltRV
kr. 1113
Barbie skartgripaskrín
m. skartgripum,
h. 11 cm
Vandaður lampi,
hæö 37 cm
kr. 1588
kr. 3974
Góður dúkkuvagn,
handfang, 68,5 cm
kr. 475
Talanai tabM
leikfanga sími
Góður jólapappír, 8 m, kr. 157, o.fl., o.fl.
Þú færð gjöfina í ARGOS.
Verðlistans kr. 200 án bgj.
Full búðaf vörum, alltaf útsala.
Silfureyrnalokkar
Verslun Hólshrauni 2,
Pöntunarsími 555 2866