Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Page 17
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
idge
17
íslandsmót yngri og (h)eldri spilara 1995:
Ljósbrá og Stefán íslands-
meistarar yngri spilara
- Guðmundur og Stefán Islandsmeistarar (h)eldri spilara
Ljósbrá Baldursdóttir og Stefán
Jóhannsson tryggðu sér íslands-
meistaratitilinn í flokki yngri spil-
ara um sl. helgi eftir harða keppni
við Aron Þorfinnsson og Sverri G.
Kristinsson. Stefán var raunar að
verja titil sinn ffá í fyrra meðan
Ljósbrá er fyrsta konan sem vinnur
titilinn.
Röð og stig efstu para var þessi:
1. Ljósbrá Baldursdóttir — Stefán
Jóhannsson 111
2. Sverrir G. Kristinsson — Aron
N. Þorfinnsson 84
3. Steinar Jónsson — Magnús
Magnússon 82
4. Bjami A. Sveinsson — Halldór
M. Sverrisson 64
5. Björgvin Sigurösson — Rúnar
Einarsson 63
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
í flokki (h)eldri spilara sigruðu
Guðmundur Pétursson og Stefán
Guðjohnsen með nokkrum yfirburð-
um en íslandsmeistaramir frá í
fyrra, Þórir Leifsson og Þorsteinn
Pétursson, urðu í öðru sæti.
Stefán og Guðmundur náðu efsta
sætinu í áttundu umferð og juku
síðan jafnt og þétt við forystuna þar
tO upp var staðið.
Röð og stig efstu para var þannig:
1. Guðmundur Pétursson — Stef-
án Guðjohnsen 121.
2. Þórir Leifsson — Þorsteinn Pét-
ursson 72.
3. Torfi Ásgeirsson — Bemharður
Guðmundsson 50.
4. Arnar G. Hinriksson — Einar
V. Kristjánsson 32.
5. Jón Stefánsson — Sveinn Sigur-
geirsson 21.
Við skulum skoða eitt spU frá
(h)eldri flokknum.
S/N—S
4 ÁG
V Á763
> G532
4 K108
* KD64
* DG984
* D10
* 63
N
* 8532
K986
* G9742
* 1097
*» K1052
■f Á74
* ÁD5
Norður Austur Suður Vestur
1 lauf 1 hjarta 2 hjörtu pass
2 grönd pass 3 grönd pass
pass pass
Margir telja rétt að koma sem
fyrst inn í sagnirnar og vestur var
einn þeirra. Undirritaður stýrði síð-
an sögnunum í þrjú grönd. Salurinn
var hins vegar að spila fjögur
hjörtu, sem voru dauðadæmd vegna
hinnar slæmu tromplegu.
Vestur spilaði út hjartadrottningu
og Guðmundur Pétursson drap á ás-
inn í blindum. Útlitið var ekki sér-
lega bjart en ekki var samt útilokað
að vinna spilið. Og hugsanlega væru
einhverjir að spila fjögur hjörtu sem
voru dauðadæmd.
Lítill tígull úr blindum sem var
drepinn á tíu vesturs. Hann skipti
yfir í spáðakóng sem voru góðar
fréttir fyrir Guðmund. Hann dúkk-
aði annan tígul til vesturs sem tók
spaðadrottningu og spOaði meiri
spaða. Guðmundur prófaði nú tígul-
inn en hann féll ekki. Spilið var
samt ekki vonlaust ef vestur hafði
byrjað með þrjá spaða, fimm hjörtu,
tvo tígla og þrjú lauf. Guðmundur
tók nú þrisvar lauf og vestur virtist
hafa tegundað einn spaðann með
laufunum því hann kastaði spaða í
þriðja laufið. Þar með var sviðið sett
fyrir hjartaendaspil og Guðmundur
átti tvo síðustu slagina -á K—10 í
hjarta.
Unnið spil en líklega var jafnmik-
ið fyrir einn niður.
Stefán Guðjohnsen og Guðmundur
Pétursson náðu efsta sætinu í átt-
undu umferð í íslandsmóti (h)eldri
spilara og juku síðan jafnt og þétt
við forystuna þar til upp var staðið.
DV-mynd GVA
laugardag kl. 10-17
sunnudag kl. 13-17
mánudag kl. 9-18
hjá Ingvari Helgasyni
þar fœrð þú |i
á frábæru
og jafnvel
U H jyrstu 6-8 mánuðina.
fyrsta hálfa árið og
fylgja bílnum
Notaðir bílar
Sími 525 8020
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími 525 8000