Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Síða 58
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
66 -k
Arnfríður Jónasdóttir
Amfríður Jónasdóttir, Þverá I,
Blönduhlíð í Skagafirði, verður ní-
ræð á morgun.
Starfsferill
Arnfríður fæddist í Grundarkoti
í Blönduhlíð og ólst upp hjá foreld-
rum sínum en þau bjuggu í Grund-
arkoti, Uppsölum, að Vöglum, í
Óslandi og í Hofdölum. Eftir að
Amfríður giftist fyrri manni sínum
bjuggu þau í Varmahlíð, á Siglu-
firði, í Hofdölum og í Brekkukoti
en fluttu síðan í Axlarhaga 1938 og
bjuggu þar uns hún missti mann
sinn 1955.
Amfríður var í Axlarhaga næsta
vetur ásamt tveimur yngstu böm-
um þeirra hjóna en flutti að Þverá
árið 1956 til Hannesar Stefánssonar
og giftist hún honum 1958.
Arnfríður hefur frá unga aldri
unniö öll þau störf sem aðstæðurn-
ar kröfðust hverju sinni en einkum
eru það sveitin, búskapurinn og
húsmæðrastörfin sem notið hafa
verka hennar, að ógleymdum
pijónaskap og öðrum hannyrðum.
Fjölskylda
Amfríður giftist 1930 fyrri manni
sínum, Jóni Pálmasyni, f. 7.10.1900,
d. 1955, frá Svaðastöðum í Viðvík-
ursveit. Hann var sonur Pálma
Símonarsonar og Önnu Friðriks-
dóttur sem bjuggu á Svaðastööum.
Börn Arnfríðar og Jóns eru Sig-
urbjörgErla, f. 19.6.1931, húsmóðir
og starfsmaður Saumastofunnar
Vöku á Sauðárkróki, gift Páli
Hjálmarssyni, verkstjóra hjá KS,
og eiga þau þrjá syni; Pálmi, f. 20.7.
1933, rennismiður og verktaki á
Sauðárkróki, kvæntur Eddu Vil-
helmsdóttur húsmóður er starfar
við heimihsaðstoð hjá bæjarfélag-
inu og eiga þau fjögur börn auk
þess sem Pálmi á eina dóttur frá
því áður með Sigurlaugu Oddsdótt-
ur; Hreinn, f.'12.1.1943, b. á Þverá
I, var kvæntur Nínu Kristínu
Guðnadóttur og eiga þau tvær dæt-
ur; Þórdís, f. 23.8.1947, húsmóðir á
Sauðárkróki, var gift Tómasi Már-
ussyni bónda og eiga þau þrjá syni
en seinni maður hennar er Hannes
Friðriksson söðlasmiður.
Systur Amfríðar: Þórdís, f. 3.6.
1902, d. 1942, húsmóðir á Sauðár-
króki; Hólmfríður, f. 12.9.1903, hús-
móðir, skáldskona og fyrrv. fbrm-
aður Verkakvennafélagsins Öld-
unnar á Sauðárkróki.
Foreldrar Amfríðar vom Jónas
Jónasson (Hofdala-Jónas), f. 13.11.
1879, d. 22.8.1965, b. og skáld í
Syðri-- Hofdölum, og k.h., Anna
Ingibjörg Jónsdóttir frá Þorleifs-
stöðum, f. 6.7.1871, d. 19.12.1960.
Ætt og frændgarður
Jónas var sonur Jónasar, b. á
Tyrfmgsstöðum og Gmndarkoti,
Jónassonar, b. í Stóru-Brekku,
Gunnlaugssonar, b. í Saurbæjar-
gerði í Hörgárdal Jónssonar.
Móðir Jónasar skálds var Katrín
Hinriksdóttir, Rafnssonar, b. á
Breið, Þórðarsonar. Móðir Hinriks
var Katrín, systir Hinriks, föður
Jóns, skálds á Helluvaði, föður Sig-
urðar, skálds á Amarvatni, og
Jóns, alþm. í Múla, föður Árna
alþm. frá Múla. Katrín var dóttir
Hinriks, b. á Tunguhálsi, Gunn-
laugssonar, af ætt Hrólfunga.
Hálfbróðir Önnu Ingibjargar var
Albert Ágúst, h. í Flugumýrar-
hvammi, faðir dr. Eiríks, prófasts
á Hesti í Borgarfirði, föður Jóns,
fyrrv. skattstjóra á Akranesi, og
Friðriks, yfirbryta á Keflavíkur-
flugvelh. Anna Ingibjörg var dóttir
Jóns, b. á Miklabæ í Óslandshhð,
Gíslasonar, ogHólmfriðar Skúla-
dóttur, b. á Krossi í Óslandshhð og
víðar, Gíslasonar. Móðir Skúla var
Hólrafríður Skúladóttir, b. á
Neðri-Mýmm í Refasveit, Björns-
sonar, prests á Hjaltastöðum,
Arnfríður Jónasdóttir.
Skúlasonar. Móðir Hólmfríðar var
Svanhildur Þorgrímsdóttir, hrepp-
stjóra á Bolagmnd, Jónssonar,
bróður Ólafs á Frostastöðum, föður
Ingibjargar, konu Björns Jónsson-
ar, prests í Bólstaðarhlíð, en þau
vom ættforeldrar Bólstaðarhhðar-
ættarinnar. Ingibjörg var lan-
gamma Þorvalds, afa Vigdísar for-
seta.
Amfríður verður að heiman á
afmælisdaginn.
Esbjöm Rosenblad
80 ára
Árni Ingimar Helgason,
Langanesvegi39, Þórshöfn.
Marta Sveinsdóttir,
Úthhð 12, Reykjavík.
75 ára
Anna Björg Sigurðardóttir,
Gunnlaugsstöðum, Vallahreppi.
70 ára
Ingimar Ottósson,
bóndi og hreppstjóri í Vorsabæjar-
hjáleigu, Gaulverjabæjarhreppi.
Eiginkona hans er Guðbjörg Guð-
mundsdóttir húsfreyja.
Þau eru ekki heima á afmælisdag-
inn,
60 ára
Björgvin Guðnason,
IUugagötu 16, Vestmannaeyjum.
María Leósdóttir,
Sléttuvegi5, Selfossi.
ÓlafíaG. Blöndal,
Sogavegi 148, Reykjavík.
Erla Lárusdóttir,
Reykjavöllum, Biskupstungna-
hreppi.
Þuríður Sumarliðadóttir,
Gróustöðum, Reykhólahreppi.
50ára
Gerður J. Benediktsdóttir,
nuddari og söngkona.
Eskihlíð 20A,
Reykjavík.
Eiginmaður
hennarerMagn-
úsPálssonfrá
Gilsárstekk í
Breiðdal.
Geröur tekur á
mótiættingjum
ogvinumísam-
komusal aö Skúlagötu 40 mihi kl.
16.00 og 19.00 í dag, laugardag.
Sesselja Gísladóttir,
Strandaselie, Reykjavík.
Alda Kjerulf Jóhannsdóttir,
Bröttuhlíð 4, Seyðisfirði.
Jón Þóroddur Jónsson,
Gerðhömrum 2, Reykjavík.
Guðbj örg Bárðardóttir,
Langholtsvegi 112B, Reykjavík.
40ára
Guðfinna E. Guðmundsdóttir,
Blönduhhð 19, Reykjavík.
Guðmunda H. Jóhannesdóttir,
Goðheimum 1, Reykjavík.
Dr. jur. Esbjörn Rosenblad, rithöf-
undur og fyrrv. diplomat viö
sænsku utanríkisþjónustuna, til
heimilis að Melabraut 5, Seltjarn-
arnesi, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Esbjörn fæddist í Stokkhólmi og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann
lauk stúdentsprófi frá mennta- og
heimavistarskólanum í Sigtuna
1940, MA-prófi í fornleifafræði,
sögu, latínu, stjórnmálafræði og
uppeldisfræði frá háskólanum i
Uppsölum 1944 og embættisprófi í
lögfræði við sama skóla árið 1948.
Esbjörn varð doktor í alþjóðalögum
frá Stokkhólmsháskóla 1977 en
doktorsritgerð hans ber heitið Int-
ernational Humanitarian Law of
Armed Conflict, Some Aspects of
the Principle of Distinction and
Related Problems, og fjallar um
mannréttindi á stríðstímum. Rit-
gerðin var gefin út í Stokkhólmi
1977 og síðan endurútgefin og dreift
víða um heim af Alþjóða Rauða
krossinum í Genf tveimur árum
síðar.
Sem diplómat og sérfræðingur í
alþjóðalögum hefur Esbjörn setið
fjórar ráðstefnur í Genf um mann-
réttindi á stríðstímum og unnið
mikið að þeim málefnum, m.a. á
vegum Rauða krossins.
Esbjörn var diplómat við sænsku
utanríkisþjónustuna frá 1948-86.
Hann starfaði í Lundúnum á árun-
um 1950-52 og 1964-69. Þá starfaði
hann í Bonn, Rómaborg og Stokk-
hólmi en kom til Reykjavíkur 1977
þar sem hann starfaði síðan fram
til eftirlaunaaldurs 1986 er hann
settist að hér á íslandi.
Esbjörn hefur mikinn áhuga á
íslandi. Hann hefur kynnt sér mjög
rækilega íslensk málefni og ís-
landssögu. Bók hans og Rakelar,
konu hans, um ísland, Island i saga
og nutid, kom út hjá Norstedts í
Stokkhólmi 1990, kom út á ensku
hjá Mál og menningu 1993 og mun
koma út á frönsku og þýsku í end-
urbættri útgáfu á næsta ári.
Fjölskylda
Esbjörn kvæntist 8.4.1979 Rakel
Sigurðardóttir, f. 8.4.1921, d. 4.4.
1994, húsmóður, rithöfundi, tann-
smið og leiösögumanni. Hún var
dóttir Sigurðar Egilssonar, b„
kennara, smiðs og búfræðings á
Laxamýri, af Laxamýrarætt, og
k.h., Rakelar Pálsdóttur Kröyer
Esbjörn Rosenblad.
húsmóður.
Foreldrar Esbjöms voru Carl
Rosenblad, lögfræðingur og liðsfor-
ingi, og kona hans, Márta Rosen-
blad, f. Rydén.
Esbjörn er af sænskum embættis-
og prestaættum en föðuramma
hans var af þekktum dönskum
listamanna- og tónskáldaættum,
m.a. komin af tónskáldinu Hans
Christian Lumbye.
Hundrað ára:
Hjónaband
Þann 20. ágúst voru gefin saman í
hjónaband í Innra-Hólmskirkju af
séra Jóni Einarssyni Inga Ósk Jóns-
, dóttir og Hálfdán Ingólfsson. Heimili
þeirra er að Fjarðarstræti 11, ísafirði.
Myndsmiðjan, Akranesi.
Þann 22. júlí voru gefin saman í
hjónaband í Lágafellskirkju af séra
Jóni Þorsteinssyni María Jónsdóttir
og Bergþór Haraldsson. Heimih
þeirra er að Suðurvangi 2, Hafnar-
firði. Með þeim á myndinni eru börn
þeirra, Ámi Reynir og Bryndís.
Ljósm. Rut.
Þorbjörg Gestsdóttir
Þorbjörg Gestsdóttir húsmóðir,
sem nú dvelur á hjúkrunarheimil-
inu Nausti á Þórshöfn, verður
hundrað ára á morgun.
Starfsferill
Þorbjörg fæddist á Völlum í Þist-
ilfirði en flutti ung með foreldrum
sínum að Garði í Þistilfiröi og ólst
þar upp. Hún stundaði þar öll al-
menn sveitastörf þess tíma en var
um tvítugt er hún missti móður
sína og stóð því fyrir heimilinu hjá
föður sínum næstu tíu árin.
Þorbjörg flutti síðan til Raufar-
hafnar og stundaði þar heimilis-
störf á heimili Sumarlínu, systur
sinnar. Þá vann hún um árabil á
heimih Sigríðar, systur sinnar, á
FlöguíÞistilfirði.
Þorbjörg flutti til Þórshafnar,
haustið 1941 og hefur átt þar heima
síðan. Þar stóð hún fyrir heimili
með Sigmundi, bróður sínum, og
dótturhans.
Þorbjörg og Sigmundur bjuggu á
sambýh aldraðra á Þórshöfn í tvö
ár en hafa nú dvahð á hjúkrunar-
heimilinu Nausti á Þórshöfn sl.
þrjú ár.
Fjölskylda
Fóstursonur Þorbjargar er Þor-
finnur Jóhannsson, sjómaöur í
Reykjavík, kvæntur Margréti El-
íasdóttur og eiga þau þijú börn.
Systkini Þorbjargar: Sigríður
Gestsdóttir, f. 1893, d. 1979, hús-
freyja á Flögu í Þistilfirði, var gift
Jóhannesi Guðmundssyni, bónda
þar, og eignuðust þau sjö börn;
Björg Ólöf Gestsdóttir, f. 1897, dó
um tvítugt, ógift og barnlaus; Sum-
arlína Gestsdóttir, f. 1900, dó há-
öldruð, húsmóðir á Raufarhöfn,
gift Þorfinni Jónssyni sjómanni og
eignuöust þau fimm börn; Þor-
steinn Gestsson, dó í bamæsku;
Sigmundur Gestsson, f. 1906,
verkamaður á Raufarhöfn og síðan
á Þórshöfn, dvelur nú á hjúkrunar-
heimihnu Nausti og á hann eina
dóttur; Þorsteinn Gestsson, f. 1909,
verkamaður á Raufarhöfn, kvænt-
Þorbjörg Gestsdóttir.
ur Guðnýju Sigurðardóttur hús-
móöur og eignuðust þau sjö böm.
Foreldrar Þorbjargar vom Gest-
ur Sigmundsson, bóndi á Garði í
Þistilfirði, og k.h., Rósa Lilja Eg-
gertsdóttir, húsfreyja. Gestur var
Suður-Þingeyingur en Rósa Lilja
varEyfirðingur.