Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Síða 59
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
uutín
67
80 ára
Signý Björk Rósantsdóttir,
J óhann Þorkelsson,
fyrrv. verkstjóri.
Brekkustíg 11, Sandgeröi,
verður áttræður á mánudag.
Eiginkona hans er Fanney Sæ-
björnsdóttir.
Þau veröa meö heitt á könnunni á
morgun, sunnudag.
Þórhildur Berþórsdóttir,
Hólabrautl7, Akureyri.
Aðalsteinn Kristjánsson,
Víöiiundi 20, Akureyri.
starfsmaðurvið Landsbankanná 1
ísafirði, i
Sunnuholtið, ísafirði. V* 11
Eiginmaöur hennarerSig- urðurFinnboga- son gúmmíbáta- skoðunarmaður.
75 ára
Ingibjörg Árnadóttir,
Grundargerði 28, Reykjarik.
Sigurhjörg Kristjánsdóttir,
Skipalóni, Glæsibæjarhreppi.
Guðrún Marie Jónsdóttir,
Klyfjaseli 7, Reykjavík.
Þorsteinn B.A. Guðmundsson,
Ásvelli, Fljótshlíðarhreppi.
HilmirHelgason,
Seljahlið ÍC, Akureyri.
Ester Hannesdóttir,
Vikurási 4, Reykjavík.
Ragna Kristin Jónsdóttir,
Kambsvegi 17, Reykjavík.
40ára
70 ára
Hannes Björgvinsson,
Ásvegi 23, Breiðdalshreppi.
Vigdís Bjarnadóttir,
Jörfabakka 6, Reykjavík.
50 ára
Valgerður Kristjónsdóttir,
Jöklafold 6, Reykjavík.
Guðbjörn Gunnarsson,
Háaleitisbraut26, Reykjavík.
Haraldur Ingi Haraldsson,
Tröllagili 14, Akureyri.
Ásta Guðmundsdóttir,
Amarhóh, Vestur-Landeyjahreppi.
Garðar Guðmundsson,
Hólmi, Austur-Landeyjum.
Jónína Kristin Jónsdóttir,
Fossvegi 21, Siglufiröi.
Hj alti Kj artansson,
Vegghömrum 6, Reykjavík.
Jón Sæmundur
Kristinsson
Jón Sæmundur Kristinsson, Ár-
vegi.8, Selfossi, verður fimmtugur
á mánudaginn.
Starfsferill
Jón Sæmundurfæddist á Braut-
arhóli í Biskupstungum og ólst þar
upp í foreldrahúsum. Hann flutti í
sambýlið að Árvegi 8, Selfossi,
þann 28.3.1982 og hefur búiö þar
síðan.
Jón Sæmundur hefur starfar á
vernduðum vinnustað á vegum
svæðisstjórnar Suðurlands frá því
hann flutti á Selfoss.
Fjölskylda
Systkini Jóns Sæmundar eru
Ragnar, f. 11.4.1929, starfsmaður
hjá Jarðborunum hf., búsettur í
Garðabæ; Sigríður Guðbjörg, f.
23.11.1932, d. 21.6.1989, verslunar-
maður í Reykjavík; Sigurjón, f. 8.9.
1934, fyrrv. bóndi í Vegatungu í
Biskupstungum; Arnleif Margrét,
f. 18.9.1940, bóndakona í Ölfusholti
í Hraungerðishreppi; Hrefna, f.
13.2.1942, starfsmaður Pósts og
síma á Selfossi; Bjarni, f. 19.7.1950,
b. á Brautarhóli í Biskupstungum.
Foreldrar Jóns Sæmundar: Krist-
Jón Sæmundur Kristinsson.
inn Sigurjónsson, f. 26.3.1902, d.
30.6.1987, bóndi á Brautarhóli í
Biskupstungum, og Kristrún Sæ-
mundsdóttir, f. 16.2.1907, fyrrv.
húsfreyja á Brautarhóh, en dvelur
nú á hjúkrunarheimihnu Ljós-
heimum á Selfossi.
Jón Sæmundur tekur á móti gest-
um í félagsheimilinu Aratungu í
Biskupstungum á morgun, sunnu-
daginn 12.11., frá kl. 16.00.
Gísli Jón Helgason
Gísli Jón Helgason verslunar-
maður, Bolholti 4, Reykjavík, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Gísli fæddist í Mundakoti á Eyr-
arbakka en ólst upp á Þingeyri til
tíu ára aldurs er hann flutti til
Reykjavíkur. Hann stundaði
barnaskólanám í Laugamesskóla.
Gísli var viðgerðarmaður í Árt-
úni í tvö og hálft ár, var til sjós um
skeið og var verkamaður á Þing-
eyri. Hann hóf síðan störf hjá ísleifi
Jónssyni byggingaverktaka 1965 og
hefur starfað þar síðan.
Gísh hefur starfað með Kast-
klúbbi Reykjavíkur um árabil og
setið í stjóm klúbbsins. Þá hefur
hann starfaði í nefndum á vegum
Stangaveiðifélags Reykjavíkur og
setið í stjórnum og nefndum hjá
Ármönnum.
Fjölskylda
Hálfsystkini Gísla, samfeðra, eru
Kristín Helga, f. 2.7. 1943; Sigrún,
f. 9.12. 1948; Vigfús, f. 29.3. 1950;
Magnús, f.9.4.1952; Sesselja Katrín,
f. 4.6. 1953; Jóhanna Björk, f. 28.2.
1955; Steinunn, f. 22.1. 1957; Óskar
Helgi, f. 2.7. 1958; Friðmundur
Heimir, f. 6.8.1961; Sigríður Ragn-
hildur, f. 14.11. 1962; Jón Lárus, f.
22.1. 1965.
Foreldrar Gísla voru Helgi Vig-
fússon, kaupfélagsstjóri á Eyrar-
bakka, og Margrét Gísladóttir hús-
móðir.
Gísh tekur á móti gestum sínum
í félagsheimih Ármanna, Duggu-
vogi 13, eftir kl. 16.00.
Jóhann Larsen Knútsson
Jóhann Larsen Knútsson prentari,
Dunhaga 23, Reykjavík, verður
flmmtugur á morgun.
Starfsferill
Jóhann fæddist í Esbjerg í Dan-
mörku en ólst upp í Laugamesinu
í Reykjavík til þrettán ára aldurs
og síðan í Hafnarfirði. Hann lauk
gagnfræðaprófi 1962, lærði prent-
iðn í Prentverki hf. og lauk sveins-
prófi 1967.
Jóhann starfaði í Prentverki hf.,
hjá prentsmiðjunni Eddu og í Al-
þý ðuprentsmiðj unni. Hann keypti
Ingólfsprent, ásamt Jóni Óskars-
syni 1976 og hefur starfrækt það
síðan. Jóhann bjó í Hafnarfírði til
1990 er hann flutti til Reykjavíkur
þar sem hann hefur átt heima síð-
an.
Jóhann hefur starfað mikið fyrir
iþróttahreyfmguna í Hafnarfirði.
Hann var um tíma formaður knatt-
spyrnudeildar Hauka, var formað-
ur Knattspyrnuráðs Hafnarfjarð-
ar, sat í íþróttaráði Hafnarfiarðar
í tólf ár, sat í stjóm Knattspyrnu-
þjálfarafélags íslands og var knatt-
spyrnuþjálfari í rúm þrjátíu ár,
lengst af hjá Val og Haukum. Þá
hefur hann á síðustu ámm starfað
með samtökunum Komið og dansið
og verið þar leiðbeinandi.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 7.5.1967 Þórelfu
Jónsdóttur, f. 4.6.1945, fósfru. Hún
er dóttir Jóns Einarssonar, vél-
stjóra á Akranesi, og Önnu Hall-
dórsdóttur húsmóður. Jóhann og
Þórelfa skildu 1990.
Sambýliskona Jóhanns frá 1991
er Hildur Valgeirsdóttir, f. 24.12.
1950, líffræðingur. Hún er dóttir
Valgeirs Lámssonar vélvirkja og
Aðalheiðar Kristjánsdóttur hús-
móður.
Börn Jóhanns og Þórelfu eru
Reynir Jóhannsson, f. 2.4.1967, við-
skiptafræðingur, kvæntur Láru
Magnúsdóttur hjúkrunarfræðingi
og er sonur þeirra Jóhann Karl
Reynisson en fósturdóttir Reynis
er Heiða Bára Stefánsdóttir; Bragi
Jóhannsson, f. 18.7.1969, kvæntur
Ámýju Steindórsdóttur fóstru og
er sonur þeirra Steindór Bragason;
Brynjar Jóhannsson, f. 23.11.1974;
Hjörtur Jóhannsson, f. 1.9.1978,
nemi.
Systkini Jóhanns eru Sonja, f.
20.6.1944, þroskaþjálfí í Hafnar-
firði; Edda, f. 4.10.1949, búsett í
Svíþjóð; Axel, f. 9.12.1954, garð-
yrkjumaður í Hafnarfirði; Hilmar,
f. 23.5.1956, trésmiður í Grindavík;
Gerða, f. 28.5.1958, húsmóðir í Sví-
Jóhann Larsen Knútsson.
þjóð.
Foreldrar Jóhanns voru Knútur
Magnússon, f. 1.4.1921, d. 1992,
málarameistari í Hafnarfirði, og
Sjöfn Jóhannsdóttir, f. 25.10.1919,
húsmóðir.
Ætt
Knútur átti danska foreldra og
var ahn upp í Esbjerg en flutti tii
íslands, ásamt konu sinni og börn-
um, eftir seinni heimsstyijöld.
Sjöfn er dóttir Jóhanns Garðars
Jóhannssonar frá Öxney og Frið-
riku Eggertsdóttur frá Fremri-
Langey.
ÆSad er merkilegt hvað sum lög eru lífsseig.
^ Lög eins og Only You, Sunny side of the street,
Amor, Quando quando, Keep On Running, More og öll hin.
Þau þurfa ekki einu sinni að vekja upp minningar því að þau
búa yfir sjálfstæðum töfrum.
Á þessari geislaplötu, sem gleðigjafinn André Bachmann
sendir frá sér, eru mörg þessara laga auk nokkurra sem
sjaldnar hafa heyrst.
Platan er líka eins og André; Ijúf, þægileg og kemur beint
frá hjartanu.
Þetta er geislaplata til þin.
JAPtSt