Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1995, Qupperneq 24
36
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1995
Fréttir_________________________________________
íslenskir athafnamenn eru stórtækir í Namibíu:
Nýuppgert frysti-
hús og glæsi-
legur togari
Nýuppgert, stækkað og tækjavætt
frystihús í eigu Seaflower Whitefish
Corporation, sameiginlegs fyrirtæk-
is fslenskra sjávarafurða, ÍS, Nýsis
og namibískra stjórnvalda, verður
vígt í Liidderitz í Namibíu um
næstu mánaðamót. Húsið tekur til
starfa í byrjun desember og er von-
ast til að það geti framleitt allt að 15
þúsundum tonna af fiski, mestmegn-
is lýsingi, á ári. Hátt í 400 starfs-
menn verða hjá frystihúsinu, þar af
nokkrir tugir íslendinga, og fer
framleiðslan á Evrópumarkað, til
dæmis á Spán.
„Það var skipt um allt, settar nýj-
ar vinnslulínur og tækjavætt algjör-
lega upp á nýtt þannig að húsið á að
vera eins og fullkomnustu frystihús
hér heima. Þama verður öll hefð-
bundin vinnsla. Við eruni komnir
með stóran lausfrysti þannig að við
höfum alla möguleika á að fram-
leiða beint fyrir neytendur,“ segir
Sigurður Gils Björgvinsson, hag-
fræðingur hjá íslenskum sjávaraf-
urðum, ÍS.
Áætlað er að endurbætumar á
frystihúsinu hafi kostað um það bil
150 milljónir króna og er fjármagnið
að mestu tekið að láni hjá Norræna
þróunarsjóðnum.
Frystitogarinn Hannover, sem er
í eigu fyrirtækisins og mun heita
Seaflower, heldur í dag til Namibíu.
Áætlað er að togarinn, sem er 93ja
metra langur, verði kominn þangað
fyrir vígslu frystihússins. Sigurður
segir að Slippstöðin Oddi á Akur-
eyri hafi útbúið hann fyrir lýsings-
vinnslu og hafi það tekist mjög vel.
„Þetta er flottasti úthafstogari
sem sést,“ segir Sigurður.
Um 90 starfsmenn verða á frysti-
togaranum, þar af verður stór hluti
íslendingar. -GHS
Frystitogarinn Hannover í eigu íslensk-namibíska fyrirtækisins Seaflower
Whitefish Corporation er á leið til Ludderitz í Namibíu en þar er verið að vfgja
nýendurbætt og tækjavætt frystihús sem mun framleiða 15 þúsund tonn af
fiski á ári fyrir Evrópumarkað. DV-mynd BG
Álafosskvosin í Mosfellsbæ:
Reynt að selja leigjend-
um verksmiðjuhúsið
Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og
forsvarsmenn Framkvæmdasýslu
ríkisins hafa hist til að ræða sölu
húsa í Álafosskvosinni í Mosfells-
bæ en bæjarfulltrúar hafa verið
óánægðir með það hvernig staðið
hefur verið að sölunni.
Jóhann Sigurjónsson, bæjar-
stjóri Mosfellshæjar, segir að nið-
urstaöa fundarins hafi orðið sú að
Framkvæmdasýslan myndi láta á
það reyna hvort leigjendur í verk-
smiðjuhúsinu svokaUaða í Ála-
fosskvosinni geti og vilji kaupa
húsiö. -GHS
m moo
ÞANNIG
VIRKAR
TÖLVAN
Bok ug geisladiskur! P
Þannig virkar tölvan
er skemmtileg leið til
að kynnast tölvunni og
framar öllum í sinni röð.
Alfrcd Poor, PC Magazine
Sláandi...fræðandi...auðskilin.
L.R. Shannon, The New York Times
Hnökralaus samsetning texta og
mynda gera flókna eðlisfræði
einkatölvunnar eins sjálfsagða
og þyngdarlögmálið.
Lorry Blosko, The Associoli
Þau Sigríður D. Friðjónsdóttir og Róbert Freyr Jónsson, sem starfa hjá Sölt-
unarfélagi Dalvíkur, sátu í mestu makindum fyrir utan vinnustað sinn, með
kaffibolla og sígarettur í höndunum. Þau sögðu harðbannað að reykja inn-
andyra í fyrirtækinu og því væri ekki um annað að ræða en að flytja sig út á
götuna til að svala nikótínnautninni. DV-mynd gk
Byggingar í eigu Akureyrarbæjar:
Brunavörn-
um víða
ábótavant
- æfingum ekki sinnt þrátt fyrir lög þar um
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það má segja að ástandið sé
víða slæmt en þetta erindi, sem
var verið að ræða í framkvæmda-
nefnd bæjarins, er að mestu leyti
ítrekun vegna ábendinga um úr-
bætur sem lagðar voru fram af
Brunamálastofnun á árunum
1990 til 1991. Síðan hefur því mið-
ur lítið gerst,“ segir Tómas Búi
Böðvarsson slökkviliðsstjóri
vegna ástands brunavarna í ýms-
um mannvirkjum í eigu Akureyr-
arbæjar.
Úttekt eldvarnaeftirlitsmanns
sem varðar ýmis opinber mann-
virki, s.s. skóla, íþróttahús og
samkomnhús bæjarins, ber með
sér að krafist er umtalsverðra úr-
bóta í brunavarna- og öryggis-
málum sem munu hafa mikinn
kostnað í för með sér. Fram-
kvæmdanefnd Akureyrar ræddi
þessi mál á fundi sínum og óskaði
eftir því að byggingadeild bæjar-
ins færi yfir skýrslur og gerði til-
lögur um forgangsröðun þess
hvernig að úrbótum verði staðið.
Tómas Búi Böðvarsson segir að
Samkomuhúsið við Hafnarstræti
komi ávallt upp í þessari um-
ræðu, en það hús er leikhús bæj-
arins. Húsið er gamalt timburhús
og Tómas Búi segir að þar sé
margt öðruvísi en æskilegt megi
teljast. Hann segir að þar séu leið-
ir til úrbóta, s.s. að setja upp við-
vörunarkerfi og vatnsslök-
kvikerfi auk þess að hólfa húsið
betur niður.
Varðandi skólahúsin sem gerð-
ar hafa verið athugasemdir við
benti Tómas Búi á að í gildi væru
lög sem kveða á um rýmingará-
ætlun og skyldu þess að æft sé
hvernig rýma eigi slík hús. Hann
segir að í sumum tilvikum sé því
sinnt, t.d. í Bamaskóla Akureyr-
ar, en segir jafnframt að á öðrum
stöðum hafi slíkar æfingar ekki
farið fram.
Breytingar í áfengissölu 1. desember:
ATVR-merking
á flöskum ekki
nauðsynleg
- innflytjendur mega sjálfir flytja inn bjór, vín og áfengi
„í þeirri reglugerð sem tekur gildi
1. desember næstkomandi er sú
breyting að ekki er lengur nauðsyn-
legt að ÁTVR-merkið sé á flöskum
með áfengum drykkjum. ÁTVR
hafði sent vínframleiðendum, sem
höfðu umboðsmenn á íslandi, bréf
þess efnis að ÁTVR hefði einkaleyfi
á ÁTVR- merkinu og því þyrfti leyfi
til að setja það á flöskurnar. Nú er
það úr sögunni og þess vegna verð-
ur þetta allt miklu einfaldara í snið-
um,“ sagði Andrés B.- Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Bræðranna
Ormsson, sem hefur umboð bæði
fyrir vín og bjór.
Það hefur verið uppi nokkur
ágreiningur milli innflytjenda og
ÁTVR um ýmislegt í reglugerðinni
meðan hún var í undirbúningi.
Andrés segir þær nú að mestu leyst-
ar og að hann sé ágætlega sáttur við
hana. Það sem helst vanti sé að
ÁTVR hætti að flytja sjálft inn þær
tegundir sem hafa umboösmenn hér
á landi. Innflytjendur vilji sjálfir
annast það mál. Hann sagði menn
vona að breyting yrði þama á hægt
og rólega.
„Önnur nýlunda verður tekin upp
eftir 1. desember. Hún er sú að nú
mega innflytjendur sjálfir flytja inn
áfenga drykki og eiga þá í öruggri
lagergeymslu og afgreiða sjálfir til
veitingahúsa og þeirra sem hafa
skemmtana- og vínveitingaleyfi,"
sagði Andrés B. Sigurðsson. -S.dór