Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1995, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1995
47
Préttir
Sífellt meiri skrifborðsvinna hjá Hollustuvernd:
Aukin vinna fyrir stjórn-
völd bitnar á eftirlitinu
- segir Hermann Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri
„Við erum alltaf að taka að okkur
meiri og meiri skrifborðsvinnu fyr-
ir stjómvöld og það hefur vitaskuld
bitnað á því að við höfum minni
tima og minni mannskap til að
sinna beinu eftirliti,“ sagði Her-
mann Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Hollustuverndar, í
samtali við DV. Hollustuvernd hef-
ur nokkuð verið gagnrýnd fyrir það
að undanfömu að sinna ekki eftir-
litshlutverki sínu, hvorki með
merkingum á umbúðum né inn-
flutningi matvara.
Hermann segir starfsmenn Holl-
ustuverndar vera á kafi í því að gefa
út þær reglugerðir sem nauðsynleg-
ar eru í sambandi við Evrópska
efnahagssvæðið. Hann segir að meg-
inþungi almenns matareftirlits sé í
höndum heiibrigðiseftirlits sveitar-
félaga. Þar á bæ eigi menn að vera í
sambandi við Hollustuvernd og
senda stofnuninni sýni til þess að
rannsaka. Hermann segir að það
séu starfsmenn heilbrigðiseftirlits-
ins sem eigi t.d. að fara í verslanir,
kanna merkingar og sjá til þess að
farið sé eftir reglugerðum í sam-
bandi við allan innlenda þáttinn.
Aðeins innflutningseftirlit
„Við höfum lítið beint eftirlit og
emm fyrst og fremst að gera þær
reglugerðir og vinnureglur sem
menn þurfa að vinna eftir. Heil-
brigðiseftirlitið er með puttana á
þessu og við stöndum á bak við það
ef upp koma einhverjar spumingar
í sambandi við túlkun á reglugerð-
um. Eina beina eftirlitið sem við
höfum með höndum er innflutn-
ingseftirlitið og einn maður sinnir
því, fer í innflutningsfyrirtæki, toll-
inn og svo framvegis. Rannsóknar-
stofan hjá okkur sér um sýnatöku
úr matvælum ef um það er að ræða
og þar vinna tveir menn,“ segir
Hermann.
Stöðugildi Hollustuvemdar em
40 og 43 menn em á launaskrá. Á
árinu 1994 voru rekstrargjöld alls
um 106 milljónir og sértekjur voru
20%. Hermann viðurkennir að eftir-
litið sé kannski ekki nægjanlegt og
segir það vera nokkurs konar
stikkprufueftirlit. Hann segir alveg
ljóst að með auknum innflutningi á
óunnum vörum þurfi Hollustu-
vernd meira fjármagn ef hún eigi að
geta sinnt hlutverki sínu sem
skyldi.
„Gagnrýnin á þessa stofnun er
einkennileg. Stundum er hún sögð
bákn af kerfiskörlum sem ekkert
geri af viti og þvælist bara fyrir. Á
hinn bóginn heyrum við að allt of
fáir séu í þessu starfi og mannafl-
inn sé svo lítill að hann sé bara til
málamynda. Þama skiptir það máli
hverjir hagsmunir þess eru sem er
að gagnrýna," sagði Hermann
Sveinbjörnsson.
-sv
Ólafur Sæmundsson hafnarvörður á bryggjunni í norðurhluta hafnarinnar.
Bryggjudekkið hefur farið illa í óveðrinu eins og sjá má á myndinni.
DV-mynd gk
Norðurgarður hafnarinnar í Ólafsfirði:
Bryggjudekkið
nánast ónýtt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Bryggjudekkið hér á norðurgarð-
inum er nánast ónýtt, bryggjan hef-
ur lyfst upp á stórum kafla og
timbrið undir því er meira og
minna brotið,“ segir Ólafur Sæ-
mundsson, hafnarvörður í Ólafs-
firði, en nú er lokið við að kanna
skemmdir sem urðu á hafnarmann-
virkjum í Ólafsfirði í óveðrinu á
dögunum.
Ljóst er að grjótgarðurinn við
bryggjuna er mjög illa farinn, mikið
grjót hefur farið úr garðinum og inn
á bryggjuna og eitthvað af því án efa
í höfnina sjálfa. Sá hluti bryggjunn-
ar sem er úr timbri er víðast möl-
brotinn enda þeyttust stórir steinar
inn á bryggjuna, og á öðrum stöðum
hefur steypan brotnað af og stórar
sprungur eru í vegg milli bryggj-
unnar og grjótvarnargarðsins.
„Hafnamálastofnun hefur lokið
við úttekt á skemmdunum og nú er
verið að skoða hvernig þetta verður
bætt,“ segir Hálfdán Kristjánsson
bæjarstjóri. „Það þarf að standa vel
að viðgerð því í núverandi ástandi
fer bryggjan mun verr ef við fáum
annað eins veður á okkur aftur. Ég
tel að tjónið sé varlega metið a-.m.k.
upp á 10 milljónir króna. Ég reikna
fastlega með að viðgerð á grjótvam-
argarðinum verði boðin út í vetur
og framkvæmdir geti hafist næsta
vor,“ segir Hálfdán.
Vetrarvörunar eru komnar!
Við höfum yfirstærðirnar
Fatnaöurviö allra hæfi,
Kynniö ykkur okkar hagstæöa verö.
10% staðgreiðslu afsláttur
Búðin, Bíldshöfða 18
Opið: mánud.-föstud. 10-18
Jotun .
íranmaming
▼
T
aislattur
Við blöndum óskalitina þína
VerðdœmU
Verðfrá
Innimálnmg, gljástig 3:
39%rA*
Innimálning, gljástig 7:
Verú frá
48 7
kr./l
* Verð nuðast \ið 101 fötnr.
HÚSASMIÐJAN
Skútuvogi 16 ■ Slmi 568 7710
Helluhrauni 16-Slmi 565 0100
Sama verð á öllum litum,
Fœst í þúsundum litatóna.