Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1995, Page 27
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1995
39
Préttir
Sjónvarpsstöðin Sýn hefur reglulegar útsendingar á fimmtudaginn:
I bullandi samkeppni
um hylli áhorfenda
- segir Páll Magnússon sjónvarpsstjóri - engan aukabúnaö þarf til aö ná útsendingum
Sjónvarpsstöðin Sýn mun
hefja reglulegar -útsendingar á
fimmtudaginn kemur kl. 20.
Útsendingar munu ná til allra
sjónvarpsnotenda á svæði sem
markast af höfuðborgarsvæð-
inu, Suðurnesjum og Akra-
nesi. Útsendingarnár verða öll-
um opnar til og með 21. nóvem-
ber og geta allir séð þær án
þess að gera sérstakar tækni-
legar ráðstafanir. Frá og með
22. nóvember geta áskrifendur
Stöðvar 2 síðan séð útsending-
ar Sýnar án endurgjalds í
ákveðinn tíma. Er það gert til
frekari kynningar á dagskrá
stöðvarinnar.
Ekkert aukaloftnet né
myndlykill
Sýn sendir út á VHF- og
UHF-bandi sem eru hin hefð-
bundnu tíðnisvið sjónvarpsút-
sendinga. Sýn mun síðan eiga í
samvinnu við Stöð 2 um inn-
heimtu og tæknileg atriði. Það
þýðir að nota má sama mynd-
lykil og notaður er fyrir Stöð 2
til að ná útsendingum Sýnar
eftir að þeim verður læst. Síð-
ar þurfa væntanlegir áskrif-
endur Sýnar ekki að útvega
sér nein aukatæki, hvorki ann-
an myndlykil né loftnet, til að
ná útsendingunum. Þeir sem
notast eingöngu við örbylgju-
loftnet til að ná útsendingum
Fjölvarpsins, RÚV og Stöðvar
2 þurfa heldur engan aukaút-
búnað til að ná útsendingum
„Það er afar einfalt mál og fyrirhafnarlaust af hálfu áskrifandans að ná útsendingum okkar,“ segir Páll Magnússon, sjónvarps-
stjóri Sýnar, en Sýn hefur reglulegar útsendingar á fimmtudaginn.
Sýnar.
„Það er afar einfalt mál og
fyrirhafnarlaust af hálfu
áskrifandans að ná útsend-
ingum okkar,“ sagði Páll
Magnússon, sjónvarpsstjóri
Sýnar, við DV.
Vinsælir þættir og
kvikmyndir
Efni það sem Sýn mun senda
út verður fjölbreytt þar sem
vinsælar og spennandi þátt-
araðir og kvikmyndir verða
fyrirferðarmiklar. í því sam-
bandi má nefna að Sýn hefur
gert stóra samninga um
kaup á kvikmyndum til sýn-
inga. Þá eru ónefndar
íþróttaútsendingar stöðvar-
innar. Sýn hefur gert samn-
ing um beinar útsendingar
frá meistarakeppni Evrópu í
knattspyrnu þar sem bestu
félagslið álfunnar leiða sam-
an hesta sína. Síðar munu
fleiri íþróttagreinar verða á
dagskránni en eftir er að
ganga endanlega frá þeim
málum.
Páll undirstrikar að þó Sýn
og Stöð 2 eigi í samvinnu um
innheimtu og tæknileg atriði
séu þetta tvö aðskilin hluta-
félög.
„Við verðum i bullandi sam-
keppni um hylli áhorfenda
við Stöð 2, Stöð 3 og Sjón-
varpið og munum hvergi
gefa okkur," sagði Páll..
Súðavík:
Uppsögn
forðagæslu-
manna-
veldur
deilum
„Það var ákveðiö að breyta
þessum málum nokkuð með
spamað fyrir hreppinn í huga.
Þetta er landstór hreppur og viö
viljum minnka kostnaö við akst-
ur og ferðir. Þess vegna var
forðagæslumönnunum sagt upp
en það kemur alveg til greina að
endurráða þá,“ sagöi Ágúst
Björnsson, sveitarstjóri í Súða-
víkurhreppi, í samtali við DV.
Vegna þeirrar ákvörðunar
meirihluta hreppsnefndar að
segja forðagæslumönnunum upp
og breyta starfinu hafa spx'ottið
upp deilxxr ixman hreppsnefndar.
Heiðar Guðbrandsson, helsti
talsmaður minnihlutans, er
þessu fullkomlega andvígur.
Hann sagðist, í samtali við
DV, hafa lagt fram dagskrártil-
lögu á fundi hreppsnefndar, þeg-
ar þetta kom til umræðu, um að
hætta umræöu um máliö og láta
forðagæslumenn ljúka vqrki
sínu. Síðan að láta bændur gera
tillögu um hvemig þeir vifja að
þessum málum verði hagað í
framtíðinni. Þessi tillaga var
felld 3:2.
Búast má við að þessu máli sé
ekki lokið því ráðherra verður
að staðfesta breytingar á forða-
gæslu i hreppnum. -S.dór
Hljómkoddinn
HJÓLIÐ S/F
Sími: 561 0304
Koddinn er miklu þægilegri en nokkur Það besta er eftir; hann kostar lítið meira en
heymartól því hátalaramir sitja svo djúpt að venjulegur koddi, aðeins 2.890.-.
þú finnur aldrei fyrir þeim.
Viltu hlusta á hljóðbók, eða bara ná fréttunum
á miðnætti án þess að vekja maka þinn?
Lausnin er hinn ofurþægilegi Hljómkoddi.
Eða bömin, þau elska líka að heyra kvöld-
söguna í Hljómkoddanum.
Heildverslunin
H. k5Uf\L^<M\
Sími: 651027, 896 2860.
VERSLUNIN m,
il,Jliiisi) EHl VtjéMtoM HIJ&MBÆRf
i fl/rnrir/-ÁTf i l/n _ rím r i i ^r/i/i
HVmiSGÖTU 103 • SÍMI: 511 2S00
gerir þér kleift að hlusta á útvarp, sjónvarp,
segulband eða geislaspilara í steríó uppi í rúmi
án þess að tmfla þá sem næstir þér em.
Þú getur jafnvel tengt hann við útvarps-
vekjarann til að maki þinn vakni ekki þegar þú
vilt fara á fætur.
Útsölustaðir:
Kaupfélag
Vopnfirðinga,
Kaupfélag
Héraðsbúa,
Helgi Garðars.,
Eskifirði,
Tónspil,
Neskaupsstað,
Kaupfélag
Rangæinga,
Hljóðtækni,
Selfossi,
Rafeindaþj.
Guðmundar,
Grindavík,
Ljósboginn,
Keflavík,
Kaupfélag
Borgfirðinga,
Skipavík,
Stykkishólmi,
Hljómborg,
Isafirði,
Laufið,
Bolungavík,
Ómur, Húsavík.