Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1995, Qupperneq 40
52
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1995
onn
Kvennalistakonur á kvennalista-
fund
Kvennalistinn
og kvenna
listakonur
„Kvennabaráttan kemst
kannski af án Kvennalistans en
hún kemst ekki af án kvenna-
listakvenna."
Ragnhildur Vigfúsdóttir, í Tímanum.
Talsmenn útlendinga-
andúðar
„8081 íslendingur rauk í sím-
ann til að gerast talsmenn þjóð-
rembu og útlendingahaturs."
Kolbrún Bergþórsdóttir, í Alþýðublað-
inu um atkvæðagreiöslu í Al-
mannarómur.
Ummæli
Að eilífu varaformaðu
„Gestur fundarins var sjálfur
stórmógúll auðhyggjunnar innan
forustusveitar Sjálfstæðisflokks-
ins, Friðrik Sophusson íjármála-
ráðherra og að eilífu varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Amen.“
Pjetur Hafstein Lárusson, í Tímanum.
Frekir útgerðarmenn
„Tvímælalaust vegna óbilgirni
og frekju ákveðins hóps útgerð-
armanna sem forysta LÍÚ hefði
átt að setja ofan í við strax í stað
þess að taka undir málflutning
þeirra."
Helgi Laxdal, í DV, um orsök verkfalls-
Keanu Reeves hélt eftir fötunum
sem hann klæddist í Johnny
Mnemonic.
Fötin sem enduðu
hjá leikurunum
Frægir kvikmyndaleikarar fá
yfirleitt að eiga það sem þeir
kæra sig um úr kvikmyndum
sem þeir leika í. Það er bara
ekki alltaf sem þeir vilja það en
þó hafa margir gaman af að eiga
eitthvað til minningar. Nokkrir
voru spurðir.
John Travolta segist ekki hafa
kært sig um hvítu jakkafótin
sem hann klæddist í Saturday
Night Fever en hefði betur hirt
þau þar sem þau seldust á tugi
þúsunda dollara, en hann á
skóna sem hann dansaði i.
Keanu Reeves segist ekki hafa
viljað eiga neitt til minningar
um Speed: „Ekki gat ég tekið
strætisvagninn með mér heim.“
Reeves segist þó hafa eignað sér
jakkafötin sem hann klæddist
sem Johnny Mnemonic í sam-
nefndri kvikmynd.
Kenneth Brannagh segist hafa
haft heim með sér kórónuna
sem hann var með í Henry V.
„Kórónan er nú í blómabeðinu í
Blessuð veröldin
garðinum hjá mér þar sem hún
er umvafin fallegum blómum og
vekur mikla hrifningu hjá þeim
sem hana sjá.“
Ed Harris segist hafa tekið
heim með sér hvíta vestið sem
hann klæðist í Apollo 13. „Kvöld
eitt vorum við konan mín að
fara út að borða og mér fannst
tilvalið að fara í vestinu. Hún
tók andköf og spurði hvort ég
ætlaði virkilega að láta sjá mig í
þessu. Vestið fór beint í fata-
skápinn."
Víðast bjart veður
í dag verður norðaustangola og
smáskúrir eða él við norðaustur-
ströndina en víðast bjart veður ann-
ars staðar.
Frost verður 0 til 4 stig, sunnan-
og austanlands í nótt, annars verður
2 til 6 stiga hiti.
Veðrið í dag
A höfuðborgarsvæðinu léttir til
með norðaustangolu og hiti verður
2 til 5 stig.
Sólarlag í Reykjavlk: 16.35
Sólarupprás á morgun: 9.51
Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.10
Árdegisflóð á morgun: 10.35
Heimild: Almanak Háskólans
Akureyri léttskýjaó 4
Akurnes heióskirt 1
Bergsstaðir skýjaö 6
Bolungarvik skýjaö 6
Egilsstaóir léttskýjaó 1
Keflavíkurflugvöllur léttskýjaö 3
Kirkjubœjarklaustur léttskýjaó -1
Raufarhöfn skýjaó 5
Reykjavík léttskýjaö 3
Stórhöföi léttskýjaö 4
Helsinki skýjaó -3
Kaupmannahöfn léttskýjaö 7
Ósló léttskýjaó -2
Stokkhólmur skýjaö 0
Þórshöfn alskýjaö 8
Amsterdam léttskýjaó 13
Barcelona skýjaó 18
Chicago alskýjaö -7
Frankfurt léttskýjaö 12
Glasgow mistur 12
Hamborg þokumóöa 8
London skýjað 14
Los Angeles þokumóóa 14
Lúxemborg skýjaó 10
Madríd rigning 8
Mallorca skýjaó 21
New York alskýjaö 4
Nice rign. á síð. klst. 19
Nuuk alskýjað -1
Orlando léttskýjaö 7
Valencia léttskýjaö 19
Vín þokumóöa 4
Winnipeg heiöskirt -26
Þröstur Guðbjartsson, leikari og leikstjóri:
Tel okkur vera með
góða sýningu
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Þegar þau hjá Leikfélaginu leit-
uðu til mín í ágúst voru þau með
þrjú leikrit í höndunum. Stræti
var mest spennandi en það var
einnig stærst að umsvifum. Þetta
er erfitt verk og glíman var spenn-
andi. Leikararnir þurftu að hafa
fyrir hlutunum en ég tel að þessi
uppfærsla hafi tekist óskaplega vel
Maður dagsins
hjá okkur,“ segir Þröstur Guð-
bjartsson, leikstjóri Strætis sem
Leikfélag Keflavíkur hefur sýnt
við góðar undirtektir í Keflavík.
Þröstur segir að það sem kom
honum mest á óvart hafi verið
hvað leikfélagið á breiðan og sterk-
an hóp leikara, allt frá unglingum
upp í sjötugt, og væri þar hver öðr-
Þröstur Guðbjartsson
um betri. „Leikfélag Keflavíkur
getur tekist á við hvaða leikrit sem
er og þarf ekki að kvíða framtíð-
inni því að nógur er efniviðurinn."
Þröstur útskrifaðist úr Leiklist-
arskóla Islands 1978 og hefur verið
lausráðinn leikari og leikstjóri síð-
an. Hann segist hafa starfað mikið
með áhugaleikfélögum sem leik-
stjóri og leiðbeinandi og eru sýn-
ingarnar, sem hann hefur sett upp
hjá áhugafélögum, komnar tölu-
vert á fjórða tuginn. Einnig hefur
hann leikið hjá stóru leikhúsunum
í Reykjavík,- Þá hefur hann leikið í
sjónvarpsmyndum og kvikmynd-
um og er nýjasta kvikmyndin sem
hann leikur í Agnes sem frumsýnd
verður að öllum líkindum um jól-
in. Þar leikur hann hreppstjóra og
segir Þröstur það vera lítið og
notalegt hlutverk.
Þegar kemur að áhugamálum
fyrir utan leiklistina segir Þröstur
þau vera ferðalög til útlanda og að
fylgjast með menningu annarra
þjóða.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1366:
Handverk á
fslandi
í Ráðhúsinu stendur nú yfir
sýning á íslensku handverki og
listiðnaöi. Á sýningunni eru sýn-
ishorn af framleiðslu 66 aðila af
öllu landinu. Sýningamefnd
skipuð Ástþóri Ragnarssyni iðn-
hönnuði, Elísabetu Haraldsdótt-
ur leirlistakonu og Helgu Mel-
steð prjónakennara völdu hluti
inn á sýninguna. Þetta er í raun
Sýningar
fyrsta handverkssýningin þar
sem ákveðið gæðamat er hluti af
þátttökuskilyrðum. Allir hlutir á
sýningunni eru til sölu i verslun-
um, gaUeríum, handverkshúsum
eða beint frá framleiðanda. Sýn-
ingin er opin aUa virka daga frá
kl. 10-19 og um helgar frá kl.
Skák
Þessi staða er úr B-flokki á stór-
meistaramótinu í Horgen í Sviss á
dögunum. Þjóðverjinn Gabriel hafði
svart og átti leik gegn Svisslend-
ingnum Brunner:
31. - Hxg2! 32. Kxg2 Dxf3+ 33. Kgl
Dxdl+ og hvítur gaf. Einfalt en
sterkt.
Sigurvegari í B-flokki var Ung-
verjinn Zoltan Almasi sem hlaut 7,5
v. af 9 mögulegum. Julian Hodgson
varð í 2. sæti með 6,5 v. en Kinder-
mann og Zuger fengu 6 v. sem nægði
þeim síðarnefnda tU áfanga að stór-
meistaratitli. Jón L. Árnason
Bridge
Á hverju ári mætast Bridgefélög
Selfoss og Kópavogs í bæjakeppni og
er þá oft hart barist. Þessi árlega
keppni félaganna fór fram í síðustu
viku og hér er eitt forvitnilegt spil
af viðureigninni á fyrsta borði. I NS
sátu Sigfús Örn Árnason og Friðjón
Þórhallsson fyrir Bridgefélag Kópa-
vogs en Selfyssingarnir Sigfús og
Gunnar Þórðarsynir sátu í AV.
Sagnir enduðu í þremur gröndum
sem við fyrstu sýn virðast vera mun
verri samningur heldur en fjórir
spaðar. Fjórir spaðar fara hins veg-
ar niður í flestum tilfeUum því vörn-
in tekur sennilega hjartastungu í
spilinu og hnekkir því þannig.
Norður (Sigfús Örn) var sagnhafi í
þremur gröndum og fékk út lítið
hjarta:
4 A
V KG10
♦ ÁK1094
4 KG63
* 875
4» ÁD74
* 765
♦ G103
83
•+ D83
4 ÁD952
N
* 1087
Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsorði
4 KD9642
9652
♦ G2
4 4
Sigfús Örn átti fyrsta slaginn á tí-
una og lagði að sjálfsögðu niður
spaðaásinn í öðrum slag. I stað þess
að spila tígli að gosanum og treysta
á drottninguna í austur ákvað Sig-
fús Örn að gera ráð fyrir annarri
legu. Hann spilaði tígultíunni í
þriðja slag. Sigfús Þórðarson í vest-
ur sá fljótt að ekki dugði að drepa á
drottninguna og gerði vel í því að
gefa slaginn. Sigfús Örn tók þá fjóra
slagi á tígul og spUaði sig út á
hjarta. Gunnar tók tvo slagi í þeim
lit en varð síðan að spila laufi. Norð-
ur fékk slaginn á gosann en spilaði
einfaldlega aftur litlu laufi. Vestur
átti slaginn á drottninguna en varð
að gefa níunda slaginn aftur á lauf.
Vel spilað. ísak Örn Sigurðsson