Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Page 2
2
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
Nefnd á vegum háskólaráðs Háskóla íslands:
Háskólanum verði breytt
í sjálfseignarstofnun
- hagkvæmasta leiðin til að koma i veg fyrir fjárskort
Ótvíræðir kostir eru því fylgjandi
að breyta Háskóla íslands í sjálfs-
eignarstofnun. Þannig má tryggja
að tekjur séu jafnan í samræmi við
nemendaijölda og að gæði kennslu
og rannsókna rýrni ekki vegna fjár-
skorts. Þetta er niðurstaða nefndar
sem háskólaráð Háskóla íslands
skipaði síðastliðið haust að tillögu
Gunnars G. Schram prófessors.
Nefndin skilaði afdráttarlausum
niðurstööum fyrir skömmu. Þar er
mælt með því að hafist verði handa
um undirbúning sjálfseignarstofn-
unar um rekstur Háskóla íslands,
enda blasi við íjárskortur.
„Fyrir Háskóla íslands myndi
skipta einna mestu í þessu efni að
hann fengi fullt sjálfsstæði í öllum
máfurn sínum, sem er forsenda fyr-
ir farsæUi framtíðarþróun æðstu
menntastofnunar þjóðarinnar. Þar
er ekki síst mikUvægt að skólinn
fengi fuUt ákvörðunarvald um kjör
starfsmanna sinna. Fjárframlög úr
ríkissjóði yrðu ákvörðuð með samn-
ingi skólans og ríkisvaldsins þar
sem tekið yrði mið af fjölda nem-
enda og kostnaði þess náms sem
nemandi stundar,“ segir meðal ann-
ars í niðurstöðum nefndarinnar.
Auk Gunnars G. Schram sátu í
nefndinni þau Ágúst Einarsson pró-
fessor, Guðrún Johnsen stud. jur.,
Guðrún Pétursdóttir, forstöðumað-
ur Sjávarútvegsstofnunar, Sigurður
J. Grétarsson dósent og Þórólfur
Þórlindsson prófessor. Starfsmaður
nefndarinnar var Jón Þór Sturluson
hagfræðingur. -kaa
IBrúðkaup í hofi:
Brúöhjónin
fram-
kvæmdu
giftinguna
sjálf
DV. Suðumesjum:
„Giftingin var framkvæmd
. af okkur sjáifum og tókst mjög
vel, það var enginn prestur.
Það skiptir engu máli hvort
giftingin er skráð hjá einhverju
ríkisbatteríi," sagði Tryggvi
Gunnar Hansen sem gekk að
eiga Sigríði Völu Haraldsdóttur
aðfaranótt 22. desember.
Brúðkaupið var haldið í
Hraungerðishoflnú i Grinda-
vík, sem Tryggvi reisti, og var
fórnarathöfn þar sem þau mál-
uöu saman mynd sem þau síð-
an brenndu á báli með dansi og
i kveðskap.
„Þetta var fórn listamanna
til þess að auka á frjómátt nátt-
úrunnar og sköpun á komandi
ári með hækkandi sól. Þar sam-
einuðust kraftar karls og konu,
himins og jarðar, ljóss og
myrkurs til árs og friðar,"
sagöi Tryggvi sem segist hafa
valið þennan dag sem er í raun
náttúrunnar jól og áramót á
sama tíma. „Brúðkaup, sem fer
fram með þessum hætti, fellur
inn í táknmynd heilags brúð-
kaups „hierós gámos“ sem á
rætur að rekja til frjósemis-
dýrkunar bronsaldar á Noröur-
löndum og víöar um álfuna,"
segir Tryggvi. -ÆMK
Vestmannaeyjar:
Drengur
fyrir bíl
ISjö ára gamall drengur varð
fyrir bíl á Vesturvegi, fyrir
framan'verslunina Vöruval, í
Vestmannaeyjum um klukkan
eitt í gærdag. Fyrst var haldið
aö hann væri mikið slasaður
en sera betur fór reyndust
p meiðsli hans minni háttar, í
andliti og á hönd. -ÞK
Fjöldi jólasveina var á ferli í gær. Þessir kátu kappar sáust á stórum jeppa fyrir utan lögreglustöðina í Reykjavík.
DV-mynd GS
Völvuspá Vikunnar vekur athygli í útlöndum:
Myndarlegur karl mun
setjast í forsetastól
- fimm frambjóðendur taka þátt í kosningaslagnum
„Það er vor í lofti. Það er umtals-
verð uppsveifla að eiga sér stað í ís-
lensku efnahagslífi eftir sjö mjög
mögur.ár. Ár mikilla fórna,“ hefur
Vikan eftir völvu sem getið hefur
sér gott orð fyrir spádómsgáfu sína,
bæði á íslandi og víða erlendis.
Fyrir skömmu var greint ítarlega
frá véfréttum völvunnar í danska
blaðinu Berlingske Tidende, eink-
um þó þeim sem snúa að alþjóð.
Fleiri erlend blöð og tímarit hafa
sýnt málinu áhuga því völvan þykir
sjá nokkuð vel fram í tímann.
Á innlendum vettvangi telur völ-
van einsýnt að friður muni vera á
vinnumarkaðinum í byrjun næsta
árs og nú sjái fyrir endann á þeirri
gjaldþrotahrinu sem þjóðin hefur
upplifað á undanfomum árum. Völ-
van sér fyrir sér að í forsetakosn-
ingunum í júní muni myndarlegur
karl ná kjöri eftir kosningabaráttu
sem fimm frambjóðendur taki þátt í.
í pólitíkinni munu leiðir skilja
milli „borgardætra" og landsbyggð-
arkvenna sem meðal annars leiði til
þess að Kvennalistinn bjóði ekki oft-
ar fram. Völvan telur vafasamt að
Þjóðvaki muni lifa vorið af en sér
fyrir sér karlmann um fimmtugt
sem muni láta mjög til sín taka í
pólitíkinni næstu fimm árin.
Völvan fer um víðan völl í véfrétt-
um sínum og segir meöal annars að
skattyfirvöld mimi gera harða aðfór
að svartri starfsemi og gervi-
verktökum. Um tíma muni Kvía-
bryggja taka á sig yfirbragð klúbbs
stórlaxa þegar fimm forstjórum
verði stungið þar inn fyrir sömu
sakir. Þá sér hún fyrir sér hneyksl-
ismál innan lögreglunnar og um-
hverfisslys í höfn sunnanlands.
-kaa
Jesúbarnið lagt í jötu
- eftir messu og lestur jólaguðspjallsins á aðfangadagskvöld
Á heimili Gunnars Eyjólfssonar
leikara og konu hans, Katrínar Ara-
son, skartar jata með Jesúbaminu
um hver jól. Það er siður á katólsk-
um heimilum að setja upp jötu fyrir
jólin.
„Jatan er fengin hjá Karmelsystr-
unum. Lárus Ingólfsson leiktjalda-
málari bjó til húsið utan um hana.
Við setjum hana upp rétt fyrir jólin
og höfum gert um hver jól síðan viö
giftum okkur, 1959, og hún stendur
fram á þrettánda," sagði Gunnar
Eyjólfsson leikari í samtali við DV í
gær.
„Við höfum enn þá sama kertið
og í byrjun og erum að hugsa um að
láta það duga meðan við lifúm. Eft-
ir að við vorum búin að eiga það í
fimmtán ár áttuðum við okkur á því
hve vel það dugar. Við höfum bara
kveikt á kertinu meðan við borðum
jólamatinn, við erum farin að spara
það.
Sjálft Jesúbarnið er ekki lagt í jöt-
una fyrr en á aðfangadagskvöld. Það
er mjög hátíðleg stund. Eftir mess-
una í útvarpinu les ég jólaguöspjall-
ið og íjölskyldan stendur kringum
jötuna. Dóttursonur okkar, sem er
sjö ára og heitir Gaukur Jörunds-
son, heldur á Jesúbarninu á meðan.
Þegar ég hef lokið lestrinum leggur
Gaukur Jesúbarnið í jötuna og þá
óskum við hvert öðru gleðilegra jóla
því að þá fyrst eru jólin komin hjá
okkur.
Jatan er óskaplega falleg, konan
mín er svo lagin við að raða þessu
upp, englunum, hirðunum og vitr-
ingunum. Jatan er ekki stór, húsið
sem hún stendur inni í kemst í stór-
an eplakassa,“ sagði Gunnar.
-ÞK
stuttar fréttir
IBankamenn
mótmæla
Samband islenskra banka-
manna hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar þeirri ákvörðun
nokkurra bankaútibúa að hafa
opið í kvöld, á Þorláksmessu, er
harðlega mótmælt. Bankamenn
telja það brot á kjarasamningi.
Verðhrun á íbúð
íbúi í Hafnarfirði hefur sent
bæjaryfirvöldum, iðnaðarráð-
herra og ísal bréf þar sem hann
lýsir yfir allri ábyrgð þeirra á
| hugsanlegu verðhruni íbúðar
I sinnar vegna aukinnar efha- og
hljóðmengunar af stækkuðu ál-
í veri. Bylgjan greindi frá þessu.
Sorpa ekki
gleymd
Forráðamenn austurríska
fyrirtækisins Rubert Hofer
segja þær fréttir rangar að þeir
hafl hætt við áform um kaup á
y Sorpu. Samkvæmt Bylgjunni
s hefur fyrirtækið hins vegar
J ákveðið að draga sig í hlé um
t stund.
Siðareglur ekki
brotnar
Siðanefnd Blaðamannafélags-
j ins hefur úrskurðað að Stöð 2
hafi ekki brotið siðareglur fé-
* lagsins þann 14. október sl. með
Smyndbirtingu af umferðarslysi
á Suðurlandsvegi þar sem 3 lét-
ust.
SH opnar
á Spáni
í Sölumiðstöð hraðfrystihú-
| sanna hefúr ákveðið að opna
| söluskrifstofu á Spáni á næsta
P ári og mun Hjörleifur Ásgeirs-
i son veita henni forstööu.
Flotvarpa leyfö
Að fenginni umsögn Hafr-
| annsóknastofnunar hefúr sjáv-
arútvegsráðuneytið ákveðið að
| leyfa í tilraunaskyni notkun
* flotvörpu við loðnuveiðar til 1.
| febrúar á næsta ári.
Áskorun frá
Neslnu
I Bæjarstjóm Seltjamarness
i hefúr skoraö á ríkisstjóm ís-
« lands að mæta ört vaxandi
fikniefnavanda þjóðarinnar
5 með kröftugum og raunhæfum
:í aðgerðum.
Slysaskot
leiörétt
Skífan hefur komið á fram-
■, færi afsökunarbeiðni til hlutað-
| eigandi vegna geislaplötunnar
■s með Herdlsi Þorvaldsdóttur,
1 Oskaljóðin mín. Þar er ljóðið
; Slysaskot í Palestínu sagt eftir
í> Þprstein Valdimarsson en hið
: rétta er að Kristján frá Djúpa-
' læk orti.