Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Síða 4
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 TIV
4 Kréttir____________________________
Nágrannaerjur í húsinu viö Bæjarhraun 16 í Hafnarfirði:
Göt boruö og
lagðar lagnir án
heimildar eigenda
- kjallaradyr opnaðar með gömlum lykli í fylgd tveggja lögreglumanna
„Hann fyllti kjallarann af ára-
mótapúöri þó að það væri ekki leyfi-
legt. Við létum lögreglu og eldvama-
eftirlit vita og það var fjarlægt á
stundinni. Hann var óánægður með
þetta og hefur verið með hefndar-
ráðstafanir og skæruhemað síðan,
meinað okkur aðgang að lögnum í
kjallaranum og skrúfað fyrir vatn-
ið,“ segir Helga Þórðardóttir, eig-
andi Skóhallarinnar að Bæjar-
hrauni 16 í Hafnarfirði, um ná-
grannaeijur í húsinu.
Eigendur Skóhallarinnar leituðu
nýlega til sýslumannsins í Hafnar-
firði og fengu liðsstyrk tveggja lög-
reglumanna, opnuðu kjallarann
með gömlum lykli frá fyrri eiganda
og létu iðnaðarmenn bora göt í loft-
ið og vinna við lagnir, til dæmis
skólplagnir, í kjallaranum þó að eig-
endur kjallarans hefðu hafnað bón
þeirra og ekki viljað hleypa þeim
inn í kjallarann. Verkið var unnið
til að Landsbanki íslands gæti opn-
að útibú í húsnæði sem eigendur
Skóhallarinnar leigja út.
Þegar umboðsmaður eigenda
kjallarans kom að iönaðarmönnun-
um á lokastigi verksins og bað þá að
yfirgefa kjallarann var því neitað.
Hann óskaði eftir aðstoð sýslu-
manns við að fá mennina á brott og
var þvi hafnað, samkvæmt heimild-
um DV. Umboðsmaðurinn skipti þá
um skrá á kjallarahurðinni og iðn-
aðarmennirnir urðu frá að hverfa.
Leggja varð vatnslagnir gegnum
vegg á 1. hæðinni frá Skóhöllinni í
húsnæði Landsbankans til bráða-
birgða.
í yfirlýsingu frá eigendum kjall-
arans, Friöriki Gíslasyni og Guðríði
Svavarsdóttur, kemur fram að full-
trúi í byggingadeild Landsbanka ís-
lands hafi fengið leyfi sýslumanns-
Heiðurslaun listamanna:
Fækkar um einn
Ákveðið hefur verið að 16
listamenn hljóti heiðurslaun
listamanna á næsta ári, einum
færri en í ár. Af þeim 17 lista-
mönnum sem hlutu heiðurslaun
listamanna í ár er einn látinn,
María Markan óperusöngkona.
Það kom fram hjá Hjálmari
Árnasyni, sem sæti á í mennta-
málanefnd Alþingis, við fjár-
lagaumræðuna í fyrrinótt að
ekki er gert ráð fyrir að bæta 17.
listamanninum við.
Heiðurslaun listamanna voru
900 þúsund krónur í ár og verða
þau óbreytt næsta ár. Þeir lista-
menn sem hljóta heiðurslaun
eru Atli Heimir Sveinsson, Ámi
Kristjánsson, Ásgerður Búadótt-
ir, Guðbjörg Þorbjamardóttir,
Halldór Laxness, Hannes Pét-
ursson, Helgi Skúlason, Indriði
G. Þorsteinsson, Jón Nordal,
Jón úr Vör, Jórunn Viðar, Krist-
ján Davíðsson, Matthías Jo-
hannessen, Sigfús Halldórsson,
Stefán Hörður Grímsson og
Thor Vilhjálmsson. -S.dór
Reykhólahreppur óskar eftir opinberri rannsókn:
Milljónum varið í
þágu sveitarstjóra
Hreppsnefnd Reykhólahrepps hef-
ur óskað eftir að fram fari opinber
rannsókn á embættisfærslu og fjár-
umsýslu Bjarna P. Magnússonar,
fyrrverandi sveitarstjóra, í fram-
haldi af nýlegri skýrslu endurskoð-
anda um embætti^færslu hans. Von-
ast er til að niðurstöður liggi fyrir
eigi síðar en næsta vor. í skýrslunni
kemur meðal annars fram að ráð-
stafað hafl verið lánum frá Bygging-
arsjóði verkamanna, samtals að
fjárhæð um 5,4 milljónir króna, í
einkaþágu sveitarstjórans án vit-
undar annarra.
í skýrslu endurskoðandans kem-
ur einnig fram að lög um skil á stað-
greiðslu og lífeyrissjóðsiðgjöldum
hafi verið brotin árið 1994. Til að
unnt væri að ganga frá ársreikningi
1994 vom ofangreind lán færð til
skuldar í bókhaldinu og á móti á út-
tektarreikning sveitarstjóra auk
dráttarvaxta. Skuld sveitarstjóra
við sveitarsjóð nam því rúmum 7
milljónum króna í árslok 1994.
Þegar DV hafði samband við
sveitarstjórann nýlega sagðist hann
fara með fjölskyldu sína úr sveit-
inni meðan beðið væri eftir niður-
stöðu rannsóknarinnar. Hann benti
á að tugir manna hefðu skrifað und-
ir stuðningsyfírlýsingu við störf sín.
Fjölskyldan hefði kunnað vel við sig
í Reykhólahreppi og stefndi að því
að koma þangað aftur þegar færi að
hægjast um.
Skatttekjur sveitarsjóðs Reyk-
hólahrepps árið 1994 námu samtals
28,6 milljónum króna en halli reynd-
ist 22,9 milljónir. Heildarskuldir
sve'.asjoósins námu 92,6 milljón-
um og höfðu hækkað um 15,8 millj-
ónir króna milli ára. Skuldir á
hvem íbúa hækkuðu úr 230 þúsund
í 267 þúsund krónur á árinu.
-GHS
Nágrannaerjur hafa verið í húsinu númer 16 við Bæjarhraun í Hafnarfirði vegna lagna sem lagðar voru í kjallara húss-
ins í trássi við vilja eigenda. Eigandi Skóhallarinnar segir að eigendur kjallarans hafi verið með skæruhernað frá því
áramótapúður var fjarlægt úr kjallaranum án vitundar þeirra. Eigendur kjallarans segjast ekki vilja lagnir í kjallarann
af ótta við að hann falii í verði. Talið er hugsanlegt að um brot á eignarrétti eða jafnvel húsbrot hafi verið að ræða.
DV-mynd BG
ins í Hafnarfirði til að fara inn. Eig-
endur segjast ekki hafa staöið gegn
framkvæmdum í kjallaranum „af
neinni illgimi", eins og það er orð-
að, heldur af ótta við að húsnæðið,
sem er samþykkt fyrir sælgætis- og
matvælaframleiðslu, muni rýrna í
verði. Þá hafi verið óskað eftir því
að lagnimar verði fjarlægðar.
„Við komum ekki nálægt þessu
máli, höfum aldrei gefið nokkurt
einasta leyfi enda gátum við ekki
gert það. Eigandi Skóhallarinnar
sagðist hafa lykil að þessu húsnæði.
Þar sem hún næði ekki í eigend-
urna óskaði hún eftir því að lögregl-
an kæmi og skoðaði í kjallarann
þegar hún opnaði. Ég taldi ekkert
athugavert við það,“ segir Guð-
mundur Sophusson sýslumaður.
Hann segist ekki hafa hafnað ósk
umboðsmannsins um aðstoð við að
rýma kjallarann heldur óskað eftir
fresti til að kanna málið.
Talið er að um brot á eignarrétti
eigenda kjallarans geti verið að
ræða þegar kjaliarinn var opnaður
og unnið þar í heimildarleysi, auk
þess sem hugsanlegt er að um hús-
brot hafi verið að ræða. -GHS
Smáíbúðahverfið:
Byggingu í
skrúðgarði
mótmælt
343 íbúar í Smáíbúðahverf-
inu hafa mótmælt fyrirhugaðri
byggingu leikskóla í skrúðgarði
við Grundargarð í Reykjavík,
svokölluðum Grundargerðis-
garði, og eru það eingöngu íbú-
ar í næsta nágrenni við skrúð-
garðinn sem skrifa undir
listana. Þessi staðsetning kom
til athugunar eftir að íbúar við
Hæðargarð mótmæltu byggingu
leikskóla á gamla Víkingsvell-
inum þar.
„Við erum búin að afhenda
þessa lista og sýna vilja íbú-
anna á stóru svæði í kring. Við
viljúm að það sé tekið tillit tU
þess alveg eins og við Hæðar-
garð,“ segir Fjóla Kristjánsdótt-
ir, íbúi við Sogaveg.
í bókun borgaryfirvalda á
borgarráðsfundi á þriðjudag
segir að Ijóst sé að um staðsetn-
ingu leikskóla í Grundargerðis-
garði náist ekki sátt og því
hljóti leikskóli við Hæðargarð
að koma aftur til skoðunar. Að
öörum kosti kunni að reynast
erfitt að leysa vanda leikskóla-
bama i hverfinu. -GHS
Viðskiptafræði:
Próf í reikn-
ingshaldi I end-
urtekið
Deildarforseti viðskipta- og
hagfræðideildar hefur ritað
nemendum i námskeiðinu
reikningshald I bréf þar sem
hann biðst afsökunar á að við
framkvæmd prófs í reiknings-
haldi I, sem fram fór 11. desem-
ber sl„ urðu þau mistök að
próftími var talinn 5 klst. í aug-
lýsingu frá prófstjóra en átti að
vera 4 klst. samkvæmt ákvörð-
un kennara.
Deildarforseti segir í bréfinu
að deildin telji mistökin alfarið
á ábyrgð prófsfjóra.
Ákveðið hefur verið að ann-
að próf fari fram í janúar og
munu allir nemendur sem tóku
prófið 11. desember hafa heim-
ild til að taka það.
„Velji þeir þann kost, mun
verða þannig með málið farið
gagnvart þeim í skrám Háskól-
ans að það sé eins og prófið 11.
desember sl. hafi aldrei átt sér
stað. Þetta þýðir, að einkunn
fyrir prófið 11. desember fellur
niður og ekki verður um missi
próftökuréttar fyrir það próf að
ræða,“ segir í bréfi deildarfor-
seta. -ÞK
Fjölbraut, Suðurnesjum:
35 braut-
skráðir
DV, Suðurnesjum:
Alls voru 35 nemar braut-
skráðir frá Fjölbrautaskóla
Suðurnesja við glæsilega athöfn
í sal skólans 20. desember, 19
piltar og 16 stúlkur. Stúdentar
voru 22. Af starfsmannabraut-
um útskrifuðust þrír, einnig
þrír af tveggja ára námsbraut-
um, allt konur. Sjö vélaverðir,
allt karlmenn, útskrifuðust.
Flestir þeirra nemenda sem út-
skrifuðust voru úr Reykjanes-
bæ eða 22, 5 úr Sandgerði, 3 frá
Grindavík, 3 úr Reykjavík og
Hafnarfirði og 2 úr Garði.
I
Bílheimar ehf. nú fluttir oð Scevarhöföa 2a s: 525 9000