Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Page 8
8 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 33’^ ’ ifréttir Þorskurinn ekki bara á Vestíjarðamiðum: Það hefur orðið vart við mikinn þorsk miklu víðar - segir Ásmundur Ásmundsson, skipstjóri á Snæfugli frá Reyðarfirði DV, Akureyri: „Ég hef ekkert veriö að leita að þorski en þeir sem það hafa gert hafa ekki verið lengi að ná því sem þeir hafa ætlað sér,“ segir Ásmund- ur Ásmundsson, skipstjóri á frysti- togaranum Snæfugli frá Reyðar- firði. Fréttir af mikilli þorskgengd eru samkvæmt því ekki bundnar við Vestfjarðamið, þar sem Snæfugl hefur verið að veiðum austur af landinu og þar virðist einnig mjög mikill þorskur á ferðinni. „Menn hafa t.d. reynt við þorskinn í Hvalbakshallinu og þeir Flóðahætta á Suðurnesjum: Tilbúnir með sand- poka og viðarplötur DV. Suðumesjum: „Við höfum komið skilaboðum til allra sveitarstjórna og björgun- arsveita á svæðinu - utan Grinda- víkur - að þær hugi sérstaklega að Ðóðahættunni nú þannig að allt veröi gert til að koma í veg fyrir hugsanlegt tjón. Starfsmenn sveitarfélaganna verða til staöar með sandpoka og viöarplötur til að koma í veg fyrir skemmdir," sagði Ellert Eiríksson, formaður Almannavamanefndar Suður- nesja, í samtali við DV. Menn eru í viðbragðsstööu vegna flóöa- hættu sem gæti skapast þegar stórstreymi nær hámarki á að- fangadagsmorgun. Ef mikill vind- ur stendur á land kann sjógangur að verða mikill og mannvirki gætu verið í hættu. Fylgst er sér- staklega með vissum götum í Vog- um, næst hafnarsvæðinu. Einnig með húsum sem standa lægst við Hafnargötu í Keflavík og Herðu- breið og Skjaldbreið í Njarðvík. Þá verður fylgst með holræsum sérstaklega. Hættuástand getur staðið fram í mars. ^ Jólagestir 3 - 1— Björgyin Halldórssoii ^ ^ Stórverslun Laugavegl 26 (opið alla daga til kl. 22) - Sími 525 5040 Krínglunnl S • K• í - F - A- N (Opið virka daga til kl. 21. Laugardaga og sunnudaga til kl. 18) - Sími 525 5030 Laugavegi 96 Sími 525 5065 Póstkröfusími 525 5040 veiddu sem' það reyndu. Þá hafa linubátarnir verið að fá mjög gott af þorski. Það hefur orðið vart við mikinn þorsk miklu víðar en áður, bæði djúpt og grunnt," segir Ás- mundur. Hann segir það enga spurningu að það sé búið að vernda þorskinn á kostnað annarra tegunda, grálúöan, karfinn og ufsinn hafi látið mjög á sjá vegna aukinnar sóknar í þær tegundir. „Á sama tíma verðum viö vegna kvótaleysis að forðast þor- skinn sem er um allan sjó. Þorsk- gengdin er því ekki bara út af Vest- fjörðum heldur líka hér fyrir austan þar sem mikið er af honum. En það er skiljanlegt að fiskifræð- ingum gangi illa að viðurkenna þetta, enda myndu allir hætta að trúa þeim eftir það, þeir sem enn gera það. Hafa þeir ekki náð ofurvaldi á íslenskum stjórnmála- og embættis- mönnum?" sagði Ásmundur. -gk Þorskgengdin á VestjQaröamiöum og út af Austurlandi: Þetta magn gefur ekki rétta mynd af ástandinu - segir Þorsteinn Vilhelmsson, útgeröarmaöur á Akureyri DV, Akureyri: „Ég tel að þessi veiði fyrir vestan og austan að undanfórnu gefi ekki alveg rétta mynd af því hversu mik- ið er til af þorski í sjónum hér við land,“ segir Þorsteinn Vilhelmsson, fyrrverandi skipstjóri og einn af eig- endum Samherja hf. á Akureyri, vegna frétta af mikilli þorskgengd á Vestfjarðamiðum og út af Austur- landi. „Ég er ekki viss um að ef á miðin kæmu 50-100 skip, eins og var oft á árum áður, að þar yrði lengi um einhverja mokveiði að ræða. Það sem menn hafa verið að segja, eins og t.d. það að hægt sé að afkasta á einum togara um 1000 tonnum á sól- arhring, er bara hlutur sem ég hef aldrei heyrt og skil ekki. Menn eiga að vita betur en þetta. Það er e.t.v. hægt að ná þessu inn fyrir með ein- hverjum dælum ef það ætti að fara í bræðslu. Við lentum oft í góðri veiði hér á árum áður, en þá var þröngt á mið- unum og menn urðu að taka tillit Börnin á Merkurbæjunum. Þau heita, talið frá vinstri: Ólafur Árni Sveinbjarn- arson, Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, Aldís Stella Asgeirsdóttir, Árni Ás- geirsson, Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir og Hafdís Ásgeirsdóttir. DV-myndir Jón Ben Börnin velja jólatré úr trjálundi bæjanna DV, Hvolsvelli: í sjö ár hafa börnin á Merkurbæj- unum undir Eyjafjöllum sótt jólatré í lítinn trjálund skammt frá bæjun- um. Það er stór hluti af jólaundir- búningnum og börnin hlakka til og telja dagana þar til kemur að því að velja jólatré og færa það heim í bæ. Þann 20. desember rann stóra stundin upp. Þau fóru og felldu tré og drógu heim að bæ og ekki spillti að það byrjaði að snjóa um morgun- inn og líklega verða hvít jól undir Eyjafjöllum í ár. Ásgeir Árnason, bóndi í Stóru- Mörk, hefur plantaö í trjálundinum síðan hann var 11 ára og i dag njóta börnin hans góðs af starfi hans. Fyrstu árin uxu trén allt að því lág- rétt vegna næðings en Ásgeir notaði gamlar vírnetsrúllur til að mynda skjól og í dag er kominn fallegur trjálundur sem þarf aö grisja og er það gert með fyrrnefndum hætti. -JB hver til annars. Núna eru 1-2 skip á þessum blettum og þurfa ekki að taka tillit til annarra. Það er þorsk- ur á einhverjum svæðum núna sem stendur mjög þétt vegna þess að hann hefur fengið að vera i friði. Það hafa t.d. ekki mörg skip kastað á Halanum frá því í vor og þar til í haust. Það er því eðlilegt að fiskur- inn Fmni sér griðland og ástandið væri ískyggilegt ef þarna fiskaðist ekki,“ segir Þorsteinn Vilhelmsson. -gk Togarar viö veiðar um jól og áramót DV, Rjótum:______________ Þrír af togurum Fiskiðjunn- ar/Skagstrendings. á Sauðár- króki verða á veiðum um jól og áramót og munu selja afla sinn erlendis eftir áramót. Skafti sel- ur á Bretlandi 3. janúar en Skagfirðingur og Hegranes selja í Bremerhaven 8.-10. janú- ar. Að sögn Gísla Svans Einars- sonar, útgerðarstjóra fyrirtæk- isins, hafa togarar þess yfirleitt verið að veiðum á þessum tíma undanfarin ár og oft selt vel eft- ir áramótin. Þannig fékk Skafti 31 milljón króna fyrir 160 tonn í byrjun þessa árs en það er með hæsta meðalverði sem ísfisktogari hef- ur fengið. Gísli sagði að verð á erlendum mörkuðum hefði ver- ið lélegt undanfarið en menn treystu á að það hækkaði veru- lega í byijun ársins eins og síð- ustu árin. Fjórði togari fyrirtækisins, Málmey, hefur verið á karfa- veiðum og mun halda þeim áfram eftir áramót. Kemur í land milli jóla og nýárs. -ÖÞ Andakílsárvirkjun: Akranes kaupir DV, Akranesi:____________ Gengið var frá samningi milli Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar í síðustu viku um kaup Akumesinga á 20% hlut Borgarbyggðarmanna í Andakílsárvirkjun. Kaupverðið er 120 milljónir króna.Að sögn Gísla, bæjarstjóra á Akranesi, er hlutur heimamanna nú orð- inn 60% í virkjuninni. -DÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.