Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Page 19
JjV LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 19 Danmörk: Alexandra prinsessa vinsælasta jólagjöfin Þegar börnin taka utan af jóla- pökkunum í Danmörku verða það án efa margar litlar stúlkur sem fá eftirlætisdúkkuna, nefnilega Al- exöndru prinsessu í brúðarkjólnum og með slör. Strákarnir verða ör- ugglega hissa þegar þeir taka utan af litlu bílabrautinni með hrað- skreiðum bílum. Þetta eru nefnilega mest seldu jólagjafirnar handa dönskum börnum þetta árið. Á síðasta ári voru það skjald- bökufigúrur sem séldust best en nú er það Micro-bílabrautin, og það þrátt fyrir að engir sjónvarpsþættir hafi verið gerðir um hana. Micro-bílabrautin kostar frá 600 til 3600 krónum en Alexandra prinsessa kostar um 1800' krónur. Þar sem prinsessudúkkan var búin til áður en hið konunglega brúð- kaup fór fram er brúðarkjóllinn ekki alveg eins og kjóll Alexöndru en þó mjög líkur. Önnur leikföng á vinsældalistan- um topp tíu er smádót sem kallast Polly Pocket, syngjandi eða talandi smábrúður. Lítil hljómborð eru vin- sæl, svo og ýmis leikföng sem tengj- ast frægum sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum, að ógleymdu Legói. Leikfangaverslanir í Danmörku selja fyrir um sjö milljarða fyrir jól- in. Danska blaðið Politiken ræddi við nokkra sem voru að kaupa jóla- gjafir í leikfangabúð og þar á meðal var íslensk stúlka, Sigríður Auðuns- dóttir, sem sagðist vera að kaupa handa ættingjum heima á íslandi. Bylting — Ekta ★★ Engin bylting Danshljómsveitin Bylting hefur hingað tO haldið sig við dansiballa- mennsku. Hún fetar sig inn á nýjar brautir á þessu hausti með því að senda frá sér plötuna Ekta. Á henni eru tíu lög, flest eftir liðsmenn hljómsveitarinnar. Blandað er sam- an poppi, danspoppi og rokki og sennilega er það höfuðástæðan fyrir því að útkoman er full karakterlaus. Hljómplötur Ásgeir Tómasson Liðsmenn Byltingar eru hins vegar þokkalegustu spilarar, söngur er i lagi og uppbygging laga er hefð- bundin þannig að heildarútkoman er viðunandi. Spurningin er hins vegar sú hvort Bylting hefði ekki átt að gefa plötu sína út að sumarlagi í sam- keppni við aðrar hljómsveitir sem beina starfskröftunum fyrst og fremst að því að skemmta á dans- leikjum. Hún er auðheyrilega á svipaðri línu og Vinir vors og blóma óg fleiri sveitir sem viljáhafa léttleikann í fyrirrúmi. Búast hefði mátt við því að plata eins og Ekta fengi meiri athygli að vori til eða sumri heldur en í grjótharðri sam- keppni á ofmettuðum jólamarkaði og hefði því orðið aðstandendum sínum að meira liði en með því að týnast í beljandi plötuflóði. Ekki viljum við upplýsa hvað það er sem Sigríður var að kaupa en litlu frænkurnar og frændurnir verða án efa glöð þegar þau taka upp pakk- ana frá Danmörku. Sigríður Auðunsdóttir var að kaupa leikföng í leikfangabúð á Strikinu handa frænkum og frændum á íslandi. Alexandra prinsessa og Micro-bílabraut eru vinsælustu jólagjafirnar í Danmörku fyrir þessi jól. ISLENSKIFJARSJOÐURINN Skattaafsláttur • nýr, spennandi ávöxtunarmöguleiki • hlutur í vaxtartækifærum ffamtíðarinnar ÍSLENSKI FJÁRSJÓÐURINN HF. er nýr sérhæfður hlutabréfasjóður frá Landsbréfum hf. Sjóðurinn fjárfestir i fyrirtækjum sem eiga mikla vaxtarmöguleika, bæði á sviði sjávarútvegs og tengdrar atvinnustarfsemi og í upprennandi atvinnugreinum, þar sem há:flr stjórnendur, sérfræðiþekking og íslenskt hugvit skapa fyrirtækjum vænlega samkeppnisstöðu á alþjóðlegum mörkuðum. • Skattaafsláttur Hlutabréf í ÍSLENSKA FJÁRSJÓÐNUM vcita einstaklingum allt að 45.000 króna cndurgrciðslu tckjuskatts í ágúst á næsta ári (90.000 kr. hjá hjónum). • Fjárfesting til framtíðar Auk þess færð þú góða ávöxtun sparifjár og nýtur þátttöku í arðvænlegum vaxtar- tækifærum. • Boðgreiðslur eða áskrift I’ú gctur keypt hlutabréf á VISA og EURO boðgrciðslum ti! allt að 24 mánaða cða í mánaðarlegri áskrift. • Einfaldara getur það ekki verið! Þú gctur kcypt hlutabrcfí ÍSLENSKA FJÁRSJÓÐNUM hjá Landsbréfum og í öllum útibúum Landsbankans. • Eitt símtal dugir Hvort scm þú vilt kaupa á boðgreiðslum, í áskrift cða cinfaldlcga staðgreiða! Tryggðu þér bréf í tæka tíð & , LANDSBRÉF HF. 7^4 SUÐURIANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 588 9200, BRÉFASÍMI 588 8598

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.