Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Page 21
UV LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
21
Kjamorkufjölskylda í K
hefur breytt kjarnorkuskotpalli í heimili sitt
Edward og Dianna Peden geta sofið róleg fyrir innbrotsþjóf-
um á heimili sínu. Eini inngangurinn að heimili þeirra er 40
metra löng göng. Veggir heimilisins eru hálfs metra þykkir.
Enga veggglugga er þar að finna, aðeins einn þakglugga sem er
20 metrar í þvermál. Þótt það kunni að hljóma undarlega er
heimili þeirra betur útlítandi í dag en það var fyrir 30 árum
þegar fyrri íbúi þess, langdræg kjarnorkueldtlaug af Atlas E
gerð, fór þaðan.
„Bygging mannvirkisins var réttlætt með fælingarmætti
kjarnavopna en það hefur tekið verulegum breytingum frá því
sem var eftir að við fluttum inn,“ segir Edward, 48 ára fyrrum
mannkynssögukennari i menntaskóla og núverandi framleið-
andi léttra flugvéla.
Hjónin keyptu eldfláugaskotpallinn og mannvirkin sem hon-
um fylgdu fyrir 2,6 milljónir fyrir ellefu árum. Á þeim tíma
hafa þau gert heimilið upp og búa þar núna ásamt dætrum sín-
um tveimur, sem eru 10 og 12 ára. Þegar hafa þau innréttað þar
eldhús, borðstofu, sjónvarpsherbergi og fjögur svefnherbergi.
Þakið 400 tonna
steinsteypa
Fara þurfti óhefðbundnar leiðir við að gera húsakynnin upp.
—
Mannvirkin eins og þau litu út árið 1961.
Þegar verkið hófst þurfti
að byrja á því að dæla
tveggja og hálfs metra
djúpu regnvatni út, þétta
þakið - 400 tonna járn-
benta og steinsteypta
plötu sem hægt var að
draga til hliðar - og setja á
það 40 fermetra þak-
glugga. Að því loknu
komu þau fyrir sólstólum
og útigrilli ofan á plöt-
unni, sem þau kalla reynd-
ar verönd. Reyndar bættu
þau við tveimur inngöng-
um á híbýli sitt til að gera
það heimilislegra.
Þótt heimili þeirra sé
6000 fermetrar að flatar-
máli og lofthæðin tæpir
fimm metrar nýta þau ein-
ungis þriðjung gólfpláss-
ins. Gamlar gryfjur, sem
voru undir kælivökva
Atlas- flaug-
anna, hyggjast
þau nýta undir
sundlaug. Sal-
ernin eru
óbreytt og eld-
flaugaskýlið
nýtir Ed sem
vinnuaðstöðu
þar sem hann
setur saman
flugvélar sín-
ar, sem hægt
er að fljúga frá
heimili þeirra því mílu langur flugvöllur fylgdi
eigninni. Þótt rafmagnsreikningur Pedens-hjón-
anna nemi allt að 17 þúsund krónum mánaðarlega
er orkukostnaður þeirra lítill sem enginn að öðru
leyti. Hvorki þarf að nota loftkælingu á sumrin né
miðstqð á veturnar.
Heimili Pedens hjónanna er einn níu skotpalla
fyrir Atlas-kjarnaflaugar sem reistir voru í Kansas
á sjötta áratugnum. Aðeins einu sinni voru starfs-
Inngangurinn að heimili Pedens-hjónanna er um fjörutíu metra langan steinsteyptan gang.
menn þar í viðbragðsstöðu, það var þegar Kúbudeilan náði há-
marki árið 1962. Tveimur árum seinna urðu Atlas-flaugarnár
úreltar og skotpallarnir voru rýmdir.
Sumir voru seldir bændum eða stórfyrirtækjum. Einn var til
dæmis gerður að skóla en telja má víst að Pedens-hjónin séu
þau fyrstu að gera skotpall að heimili sínu. Þau hafa litlar
áhyggjur af geislavirkum úrgangi eða öðrum spilliefnum en
þau létu töfralækni indíánaættbálks nokkurs ganga úr skugga
um að ekkert slæmt væri á ferð á eða við heimili þeirra.
Fað/r vors krossar
Krossar með faðirvorinu úr silfri og gulli.
Verð á silfurkrossinum er 1.950 kr. með festi.
Verð á 9k gullkrossinum er 4.950 kr. með festi.
^ull
OLLin
Laugavegi 49
Símar 551 7742 og 561 7740
Ermahnappar og bindisnælur
Mikið og glæsilegt úrval af ermahnöppum og
bindisnælum (einnig settum) úrsilfri, gulli, 14k og
9k, og einnig ódýrum gylltum málmi, komið og
skoðið hið frábæra úrval.
Verð á hnöppum sem eru á myndinni er:
hnappar 7.600 kr. og bindisnæla 4.900 kr.
Hægt er að fá fallegt sett úr gylltu frá 2.100 kr.
^m// [_augavegj 49
Ifiilin Símar 551 7742 og 561 7740
Herraarmbðnd
Mjög falleg herragullarmbönd á frábæru verði 9k
gull frá 16.200 kr. og upp í 32.000 kr. í 14K
(ekki hol að innan).
Einnig úr silfri og double frá kr. 4.400.
Eigum einnig fallegar herrakeðjur úr gulli og silfri á
góðu verði.
^ull
ollin
Laugavegi 49
Símar 551 7742 og 561 7740
Hringar
Mjög fallegir gullhringar, tví- og þrílitir, gult, rautt
og hvítt gull á frábæru verði, frá kr. 4.500.
Stafahálsmen
Þessi skemmtilegu stafahálsmen fást í Gullhöllinni,
Laugavegi 49. Þau eru úr 14 karata gulli með demanti
sem er 0,01. Verð án festar er kr. 6.100.
Hálsmen
TÖFRARÚNIR,
silfurmen (stafir)
verð með festi
aðeins 1.850 kr.
TÖFRARÚNIR
eru margra alda
gamlar. Menn til
forna notuðu rúnir
þessar sértil
verndar og heilla.
Þeir sem þessar
rúnir bera munu
ekki í vandræði
komast.
<$utt
(Stötlin
Laugavegi 49
Símar 551 7742 og 561 7740
&U Laugavegi 49
(d/föttin Símar 551 7742 og 561 7740
<§uU
(dfföttin
Laugavegi 49
Símar 551 7742 og 561 7740