Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Síða 23
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 23 Þórunn Þorleifsdóttir, Fordstúlkan 1995, komin heim frá Las Vegas: Fékk atvinnutilboð í Flórída Þórunn í bátsferð í Flórída en þangað var henni boðið eftir keppnina. „Þetta var mikil upplifun þó dag- skráin hafi verið erfið. Við þurftum að vakna klukkan sjö á morgnana og strax eftir morgunmat vorum við drifnar í endalausar myndatpkur. Stundum var þetta talsverð bið eftir að komast að, sértaklega þar sem ég er aftarlega í stafrófinu," segir Þór- unn Þorleifsdóttir, Fordstúlkan 1995, sem er nýkomin heim frá Las Vegas þar sem hún tók þátt í keppn- inni Supermodel of the World. Þórunn komst ekki í úrslit í keppninni en hins vegar fékk hún atvinnutilboð frá útibúi Ford Mod- els á Miami í Flórída og fór hún þangað eftir keppnina til að kanna aðstæður. „Mér leist mjög vel á mig þar og ætla að velta því fyrir mér yfir hátíðir hvort ég eigi að fara þangað eftir áramótin." Þórunn fékk bréf í hendur frá Colleen C. Graham, sem rekur Ford Models á Miami, þar sem hún hrósar henni í hástert. Fallegt meðmælabréf í bréfinu segir: „Það var frábært að kynnast Þórunni. Það er ekki oft sem maður hittir fyrirsætu sem er jafn athyglisverð og sæt og hún. Ég er þess fullviss að Þórunn getur starfað sem fyrirsæta víða um heim á ólíkum stöðum. Hún á eftir að spjara sig og ég er þess fullviss að henni á eftir að ganga vel. Ég hlakka til að kynna hana. Þórunn hefur allt til að hera sem prýða má góða fyrirsætu. Hún er ekki hara falleg að utan heldur að innan líka.“ Þórunn dvaldi hjá Colleen á Mi- ami og sagði að vel hefði verið hugs- að um sig. Henni leist mjög vel á all- ar aðstæður og segist geta hugsað sér að taka tilboðinu. „Ég er samt búin að innrita mig í skólann eftir áramót þannig að ég þarf aðeins að hugsa mig um,“ segir hún. Stúlkurnar sem tóku þátt í Su- permodel of the World bjuggu á Hard Rock hótelinu í Las Vegas en það er sambyggt einu af stóru spila- vítunum sem borgin er fræg fyrir. „Við máttum ekki einu sinni labba í gegnum spilavítið, það var svo mjög passað upp á okkur. Öryggis- verðir fylgdu okkur um allt og hver okkar hafði sinn lífvörð þannig að öryggis okkar var gætt í hvívetna," segir Þórunn. Með ríkum spilafíklum Hún segir að hótelið hafi verið óvenju glæsilegt og vel búið. „Okk- ur var sagt aö á þessu hóteli byggju margir ríkir og frægir spilafiklar. Við fórum í rútuferð um borgina og stoppuðum við eftirminnilega staði þar sem teknar voru myndir. Það var rnjög gaman að sjá þetta allt. Borgin var í raun ekkert nema alls kyns ljósaskilti, flestöll með blikk- ljósum og miklu skrauti. Meira að segja McDonald’s var blikkandi." Þórunn segir að svo ströng örygg- isgæsla hafi verið á keppendum að þær máttu ekkert fara út fyrir hót- elið nema samkvæmt dagskránni. „Ég var í Las Vegas í fimm daga og mér gekk mjög vel að komast þangað. Ég var hálfsmeyk áður en það var óþarfi. Það var tekið á móti mér á flugvellinum og hugsað um mann allan tímann. Auk þess lenti ég með skemmtilegri stelpu frá Póll- andi í herbergi og við reyndum að skoða okkur um á hótelinu og horfa á sjónvarp og þess háttar enda mátt- um við ekkert fara út. Annars kom bandarískt sjónvarp mér mjög á óvart. Það voru yfir eitt hundrað stöðvar og ekkert nema auglýsingar þannig að maður vissi ekkert á Vegas. Bak við Þórunni eru föt af Mick Jagger í glerkassa. hvað maður ætti að horfa. Mér fannst þessar bandarísku auglýsing- ar mjög hallærislegar." Sú ungverska vann Þórunn segist hafa kynnst nokkr- um stúlkum í hópnum, sérstaklega pólsku, portúgölsku og norsku stúlkunum. „Ég talaði við allar stelpurnar en hafði mest samskipti við þessar þrjár. Stúlka frá Ung- verjalandi vann keppnina en ég hélt að sú kanadíska myndi vinna en hún komst ekki í úrsiit.“ Ætlunin var að Þórunn færi heim strax að lokinni keppninni en þar sem henni var boðið til Miami þáði hún það. „Okkur var boðið í veislu síðasta kvöldið og þá talaði Colleen við mig og bauð mér með sér heim. Ég hafði ekki einu sinni tíma til að láta foreldra mína vita fyrr en eftir að ég átti að vera lögð af stað til ís- lands. Það var ótrúlegur hiti á Mi- ami og Colleen bauð mér i bátsferð sem var mjög skemmtileg." Ef Þórunn tekur tilboðinu frá Mi- ami getur hún á auðveldan hátt safnað sér myndum í möppu sem er fyrsta skrefið í fyrirsætuheiminum. „Það er vissulega freistandi að gera það,“ segir hún. „Þetta er tækifæri sem ég fæ kannski ekki aftur. Reyndar vildi Colleen að ég yrði eft- ir í Flórída en það vildi ég ekki.“ Þórunn segir að í þessari fyrstu ferð sinni til Bandaríkjanna hafi hún heillast af þjóðinni. „Banda- ríkjamenn eru aÚt öðruvísi en ég átti von á. Mér finnst þeir sérstak- lega vingjarnlegir." Engir hamborgarar á Hard Rock Þar sem stúlkurnar bjuggu á Hard Rock hótéli fóru þær auðvitað á Hard Rock Café og borðuðu. „Mér hefur alltaf fundist Hard Rock Café hér á landi flottur staður en þessi var æðislegur. Við máttum reyndar ekki borða hamborgara og franskar heldur fengum við salatbar. Síðasta daginn máttum við hins vegar borða eins og við vildum.“ Þórunn hitti Eileen Ford og ræddi við hana. „Hún er ótrúlegur mannþekkjari. . Hún vissi alltaf hvernig stúlkunum leið, t.d. sagði hún mér að fara og fá mér að borða því hún sá á mér að ég væri svöng sem var rétt. Þessi ferð var mjög skemmtileg og mér finnst ég vera reynslunni ríkari eftir hana. Síðan kemur í ljós eftir áramótin hvað ég kýs að gera varðandi fyrirsætustörfin," segir Þórunn Þorleifsdóttir. -ELA Það er gaman að grilla á nýju „MÍNÚTU-SNERTIGRILLUNUM" Nýju „mínútu-snertigrillin" frá Dé Longhi eru tilvalin þegar þig langar í gómsætan grillmat, kjöt, fisk, grænmeti eða nánast hvað sem er. Þú getur valið um 2 stærðir á stórgóðu jólatiIboðsverði, kr. 7.650, - eða kr. 8.530,- /Famx HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 Ljúfur dagur í Flórída. Luxor NY LINA '96 7045 Black Matríx glampalaus skjár, Nicam stereo, hraðvirkt textavarp, 400 lína upplausn. Hágæðasjónvarp með miklum myndgæðum. 109.900 stgr. VERSLUNIN Euro raðgreiðslur til allt að 36 mán. VtSA Visa raðgreiðsiur : til allt að 24 mán. HUOMBÆR? SKEIFAN 7 - SÍMI 533 2500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.