Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Side 32
Menn voru íbyggnir á svip síðasta dag þingsins fyrir þessi jól.
DV-myndir Brynjar Gauti
Jólaböm Alþingis
í hátíðarskapi
Það var mikið um að vera á Al- hádegi var gert hlé og þá þyrptust Menn voru vel til i slíkar hugleið-
þingi á fimmtudaginn enda ætluðu konur og menn i mat. DV-menn ingar enda hlakka þingmenn til jóla
menn að klára þingstörfin þennan reyndu aö stöðva nokkra þeirra tií eins og aðrir landsmenn.
dag og komast í langþráð jólafrí. Um að fá stutt spjall um jólin og jólasiði. -ELA
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra:
Hlakka til að komast heim
i
i
t
„Ég ætla að eyða jólunum á Skag-
anum hjá öllum körlunum mínum.
Ég kemst þó ekki heim fyrr en á
Þorláksmessu en ég hlakka mikið
til. Ég bíð eftir að komast til að
kaupa í matinn og jólagjafirnar en
ég hef ekkert getað gert,“ sagði Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra.
Hún sagði að karlarnir heima
væru búnir að baka með góðra
kvenna hjálp úr fjölskyldunni. „Mér
skilst að það allt sé í góðu standi,“
sagði hún.
„Jólin koma víst hver sem undir-
búningurinn hefur verið en ég á
von á því að mér takist að ljúka
þessu öllu á réttum tíma.“
- Er þetta ekki mun meiri anna-
tími hjá þér en áður?
„Jú, það. hefur aldrei verið eins
slærnt."
- Eru einhverjir sérstakir siðir í
þinni fjölskyldu?
„Við borðum alltaf rjúpu á að-
fangadagskvöld, erum síðan í róleg-
heitunum en heimsækjum svo
tengdamóður mína. Á jóladag förum
við alltaf í kirkju og eigum rólegan
dag. Við lesum og fjölskyldan er
mikið saman.“
- Ert þú mikið jólabam?
„Já, ég hef alla tíð haft mjög gam-
an af undirbúningi jólanna þótt ég
hafi ekki haft þann tíma núna sem
ég vildi.“
- Hvað langar þig mest að fá í
jólagjöf?
„Það hef ég ekki hugsað út í. Ætli
ég vilji ekki bara hvUd og frið. Það
er besta jólagjöfin að fá að vera með
fjölskyldu sinni.“
Ingibjörg hefur búið í Reykjavík
undanfarið en hún kemst ekki heim
til sín nema stöku sinnum vegna
anna. Það er óvenjulegt að ráða-
menn flytji til Reykjavíkur án fjöl-
skyldunnar eins og hún hefur gert.
Ingibjörg er því að vonum spennt að
komast heim í dag eftir langa fjar-
veru."
- Er það ekki erfitt að vera svo
mikið frá fólkinu sinu?
„Þetta venst og meðan fjölskyldan
gerir sér ekki rellu út af þessu geng-
ur allt vel.“
- Verður þú þá ekki bara jólagjöf-
in þeirra þegar þú kemur heim?
„Ég vona að ég spilli að minnsta
kosti ekki jólunum," sagði Ingibjörg
og hló.
- En er fjölskyldan kannski að
hugsa um að flytja í bæinn?
„Nei, það er ekki á dagskrá. Ég
myndi ekki sinna fjölskyldunni
neitt betur þótt hún væri hérna.“
- Ert þú orðin þreytt eftir haust-
ið?
„Já, það verð ég að viðurkenna -
það er farið að síga á seinni hálfleik.
Þó hafa oft verið miklu meiri næt-
urfundir en núna.“
- Hefur þú fengið mörg jólakort
frá læknum og hjúkrunarfólki?
„Ég hef fengið heilmörg jólakort
en ekki haft tima til að skoða þau.
Ætli ég noti ekki jólin í það líka,“
sagði Ingibjörg Pálmadóttir, kát og
glöð og komin í jólaskap.
-ELA
Ingibjörg Pálmadóttir hefur fengið mörg jóiakort.
DV-mynd BG
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 JjV
Arni Mathiesen á eftir að koma hrossunum sínum í hús.
W
Arni Mathiesen:
Miklar breytingar á þessum jólum
„Ég ætla að slappa af, borða og
lesa yfir jólin," sagði Árni
Mathiesen, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins. „Það verður að vísu svo-
lítið uppnám á venjunum þetta árið
þar sem við erum nýflutt í nýtt hús
og ýmislegt hefur verið að gerast.“
Árni sagðist ætla að borða kalkún
á aðfangadag en sagði að það væri
ein af breytingunum því það hefði
hann ekki gert áður.“
- En hvað langar þig mest að fá í
jólagjöf?
„Ég er nú ekkert farin að hugsa
um það. Ég vil aldrei vita hvað ég
fæ í jólagjöf, það er meira gaman að
láta það koma á óvart."
- En hvað tekur við nú þegar
þingið fer í frí?
„Maður fer í að undirbúa jólin og
síðan verður gott að fá hvíld. Ann-
ars þarf ég að sinna hrossunum
mínum og koma þeim í hús. Einnig
á ég eftir að gera jólahreingerning-
una þar.“
- En hlakkar þú til jólanna?
„Já, ég hlakka alltaf til jólanna.
Ég er mikið jólabarn," sagði Árni
Mathiesen.
-ELA
Ossur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson:
Langar í aðra stelpu
„Ég ætla að eyða jólunum í að
borða allar þær smákökur sem ég
hef, þrátt fyrir miklar annir, gefið
mér tíma til að baka ásamt minni
ágætu konu. Einnig ætla ég að lesa
mikið af bókum og síðan ætla ég að
vagga barninu mínu á hné jafht
kvölds og morgna," sagði Össur
Skarphéðinsson, þingmaður Al-
þýðuflokks, léttur og hress, er hann
svaraði því hvernig hann ætlaði sér
að eyða jólunum.
„Það er griðarlegt magn af jóla-
boðum í minni fjölskyldu, báðum
megin, þannig að maður kemst
varla yfir meira. Systkini konu
minnar skiptast á að halda jólaboð
og nú er komið að okkur að halda
það. í fyrsta skipti fer ég lika á tvö
eða þrjú jólaböll með Birtu dóttur
minni.
- Hvað ætlar þú að borða á að-
fangadag?
„Þaö er hefðbundið að borða híun-
borgarhrygg á aðfangadag."
- En hvað langar þig mest að fá í
jólagjöf?
„Aðra stelpu."
- Rætist sú ósk?
„Nei, ekki að minnsta kosti á
þessum jólurn."
- Þú segist vera búinn að baka,
hvernig gastu gefið þér tíma til
þess?
„Ég er svo duglegur að greiða fyr-
ir þingstörfum. Annað slagið verða
eyður og þá geta menn hlaupið út og
gert ýmislegt. Til dæmis á miðviku-
dag, þegar Steingrímur j. Sigfússon
hélt þriggja tíma ræðu, þá gafst
ágætis tækifæri til að hlaupa og
kaupa jólagjafír. Menn eins og
Steingrímur eru því mjög vinsælir í
þessum önnum.“
- En hlakkar þú til jólanna?
„Já, ég hlakka mikið til þeirra. Ég
er rosalegt jólabarn en hann er jóla-
sveinninn," sagði Össur og greip
um félaga sinn, Davíð Oddsson for-
sætisráðherra, og hló.
-ELA