Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Side 33
DV LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
37
Guðni Agústsson:
Læt mig dreyma
um Vetrareld
„Ég er farinn að hlakka mikið til
jólanna. Ég ætla að lesa góðar bæk-
ur og vera með fjölskyldunni austur
á Seifossi," sagði Guðni Ágústsson,
þingmaður Framsóknarflokksins.
Hann sagði að ekki væri um nein-
ar sérstakar hefðir að ræða í sinni
fjölskyldu um jólin en þó væri til
siðs á aðfangadag að borða' ham-
borgarhrygg.
„Fjölskyldan er stór og það verða
án efa mörg jólaboð um hátiðirnar."
- En hvað langar þig mest að fá í
jólagjöf?
„Ég hef verið að láta mig dreyma
um Vetrareld eftir Friðrik Erlings-
son en ég var búinn að fá bókina
Kóngur um stund um Gunnar
Bjarnason sem er gamall kennari
minn.
- Af hverju langar þig í Vetrar-
eld?
„Mér finnst höfundurinn athygl-
isverður. Ég hef gaman af að lesa en
hef of lítinn tíma til þess.“
- Hefur þú komist til að baka fyr-
ir jólin?
„Við erum eiginlega að mestu
hætt að baka fyrir jólin en gerum þó
nokkrar tegundir af smákökum,"
svaraði Guðni Ágústsson sem beið
eftir jólafríinu í þinginu og að kom-
ast austur fyrir fjall.
-ELA
Guðni Agústsson heldur jólin á Selfossi.
DV-myndir BG
Nauðalíkir tvíburar
- jafnvel mamma þeirra lætur blekkjast
Eineggja tvíburarnir Linda
Smotherman og Brenda Weather-
by eru orðnar 43 ára og eru enn
svo líkar að mamma þeirra þekk-
ir þær ekki í sundur. „Þær eru
jafn háar, jafn þungar, brúneygö-
ar og jarphærðar," segir móðir
þeirra, Virginia Campbell. Þá er
andlitsfallið hið sama, þær hafa
eins broshrukkur og göngulagið
er það sama. „Þær hafa nákvæm-
lega eins rödd og þær hafa unun
af að plata mig,“ segir móðirin.
Linda segir að þær hafi verið
að plata mömmu sína og raunar
allan heiminn síðan þær voru tán-
ingar.
„Stundum var mamma að refsa
annarri okkar með því að banna
henni að fara út úr herberginu.
Þá skiptum við bara um föt og sú
sem var í skammarkróknum fór
út og inn eins og henni sýndist,"
segir Linda. „Ég var ekkért of góð
í ensku og sögu í skólanum en
Brenda var það hins vegar. Þegar
enskutími eða sögutími var fór
hún á minn stað. Svo mætti ég í
þau fog sem ég var góð i. Það
sama var uppi á teningnum þegar
við byrjuðum að fara út með
strákum. Ef mér leist ekki á þann
sem vildi fara út með mér fór
Brenda í staðinn og athugaði
hvernig henni litist á hann. Við
plötuðum marga stráka og enn
þann dag í dag vita þeir ekkert
hvora okkar þeir kysstu í gamla
daga.“
Þær giftust báðar á sama árinu
og hvor þeirra á tvo drengi og
tvær stúlkur. Brenda býr I Shel-
byville Tenn en Linda í Nashville,
60 mílur í burtu. Þær klæðast
samt eins, hafa sama matarsmekk
og eru mjög nánar. „Þegar Brenda
er niðurdregin er ég það líka,“
segir Linda.
Eiginmaður Brendu dó fyrir
fimm árum og eiginmaður Lindu
tók hana undir sinn verndarvæng
- en jafnvel hann þekkir þær ekki
í sundur. „Þegar ég fer að versla
með Lindu tek ég Brendu með og
kaupi það sama handa henni.
Þetta er eins og að hafa tvær fal-
legustu konur heims til að gleðja.
Stundum ruglast ég á þeim,“ við-
urkennir hann.
Og Brenda bætir við: „Hann
elskar okkur báðar en ekki ná-
kvæmlega á sama hátt. Sumt eig-
um við systurnar ekki sameigin-
legt.“
Eins og sjá má eru þær Brenda og Linda mjög líkar.
Bændur og biíaíið
CsiianiH) IfiMffliíéif
Lára Margrét Ragnarsdóttir.
DV-mynd BG
Enginn
Lára Margrát Ragnarsdóttir:
tími til að baka
„Ég ætla að taka til þegar ég fær
frí, ég hef ósköp lítið getað gert.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég er
ekki búin að baka á þessum tíma en
ég ætla að gefa mér tíma til þess,“
sagði Lára Margrét Ragnarsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
„Jólin hjá mér eru alltaf ósköp in-
dæl. Ég hef alltaf rjúpur á aðfanga-
dagskvöld, börnin og barnabörnin
koma í heimsókn. Það er þó nokkuð
af jólaboðum í fjölskyldunni, t.d.
hittumst við systkinin alltaf á jóla-
dag.“
- Hvað langar þig helst að fá í
jólagjöf?
„ Góða bók, þær eru margar nýút-
komnar. Helst vildi ég lesa góða
ævisögu." .
- Hvernig leggjast jólin í þig?
„Þau leggjast vel í mig, sérstak-
lega þar sem þinginu er að ljúka. Ég
er mikið jólabarn í mér. Þegar ég
fer til útlanda og sé verslanir með
jólaskrauti þarf ég alltaf að kaupa
eitthvað. Ég hef óskaplega gaman af
að skreyta í kringum mig.“
- Eru einhverjar sérstakar hefðir
í þinni fjölskyldu?
„Já, ég hef alltaf haft sömu siði í
upphafi aðventu frá því ég gifti mig,
í þrjátíu ár. Þegar börnin voru lítil
bakaði ég tertu um morguninn, síð-
an fórum við að skoða í búðar-
glugga, keyptum greinar og skraut
til að skreyta aðventukransinn og
kveiktum á fyrsta kertinu, drukk-
um súkkulaði, borðuðum tertu og
hlustuðum á jólalög."
- En á ekki að nota tímann til að
hvílast?
„Jú, sannarlega en starfið er
þannig að maður á aldrei frí í raun-
inni. En þó þetta hafi verið törn á
undanförnum dögum þá hefur
haustið verið gott. Ég man eftir
miklu meira annríki en nú hefur
verið,“ sagði Lára Margrét Ragnars-
dóttir.
-ELA
JOLALEIKUR
Vinningshafi 22. des. 1995:
Davíd Þór Björnsson
Svannahlið 8 - Sauðárkróki
VINNINGUR DAGSINS:
YOKO YPR-200
FM-STEREO ÚTVARPSTÆKI
með segulbandi að verðmæti
3.990 kr. frá Bónus Radíó
Grensásvegi 11
Þú getur tekiö þátt í jólaleik
Bónus Radíó á hverjum degi til
23. des. með því að hringja
ísíma 904 1750
og svara þremur spurningum.
Verð 39,90 mínútan.
Glae'silegir vinningar eru í boði:
20 YOKO útvarpstæki
með segulbandi sem eru dregin út
frá mánudegi til föstudags að
verðmæti 3.990 kr.
3 öflugir Affinity GSM símar sem
dregnir eru út á laugardögum, að
verðmæti 54.890 kr.
Á Þorláksmessu verður dregið úr
nöfnum allra þátttakenda um
aðalvinninginn sem er fullbúin CMC
margmiðlunartölva að verðmæti
202.804 kr.
Jólaleikur Bónus Radíó er í síma
904 1750
Verð 39,90 mínútan .
BKI
l^FFE
JLV.IÍ1KPH
MILUONALEIKUR
Þú getur unnið
-r-' m m
Dregið
l ' m
.í * 31. desember
Til að taka þátt í BKI milljónaleiknum
þarft þú að klippa strikamerki
af tveimur BKI kaffipökkum
BKI
IAFFE
^ eyW
BKI
i VAFFE
festa við þennan þátttökuseðil og senda merkt
BYLGJAN, Lynghálsi 5,110 Reykjavík.
9,
Á jj
pr r
Nafn:
Heimili:
Póstnúmer & staður:
Sími: