Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Page 37
]D"%Í' LAUGARDAGUR 23. DESEMtíER 1995
fréttir 4i
Heimili hlaðið safnmunum á uppboð:
Dýr reyndist Nureyev allur
- hundrað pör af ballettskóm fóru á yfir sjö milljónir
Nýverið hélt uppboðsfyrirtækið
Christies uppboð á veraldlegum eig-
um ballettdansarans Rudolfs Nurey-
evs. Nureyev, sem kunnugt er lést
fyrir þremur árum úr alnæmi, 54
ára að aldri, bjó í París og á uppboð-
inu mátti finna fommuni úr búi
hans, listmuni og búninga sem
hann hafði klæðst á ballettsýning-
um á ferli sínum.
Yfir 800 munir seldust á uppboð-
inu og tókst að safna hátt í 200 milij-
ónum króna í sjóð sem nefndur var
í höfuðið á Nureyev og ætlað er að
hjálpa ungum hæfileikaríkum ball-
ettdönsurum í námi.
Um miðjan áttunda áratuginn
fékk Nureyev, sem flúði frá Sovét-
Ef einhvern hefði vantað 100 pör af
ballettskóm, stærð 7 EEE, hefði
mátt kaupa þá fyrir aðeins 7,4 millj-
ónir.
Annað tveggja útskorinna eikar-
rúma sem finna mátti í ibúð Nureyi-
evs í París. Það fór fyrir litlar 1,2
milljónir.
Nureyev hvílir lúin bein í þriggja sæta sófa sínum á heimili sfnu í París árið
1986. Sófinn seldist á tæplega tvær milljónir. Bak við hann má sjá hnattlík-
an úr mahóní í viktoríönskum stíl. Líkanið seldist á tæplega 2,6 milljónir.
Japanski sloppurinn, sem Nureyev er klæddur, seldist á 230 þúsund krónur.
ríkjunum til Vesturlanda árið 1961,
greiddar fleiri hundruð þúsund
krónur fyrir hverja sýningu sem
hann dansaði í. Þetta gerði honum
kleift að lifa eins og blómi í eggi en
auk þess að eiga íbúð í París átti
hann heimili á Ítalíu, Mónakó, Karí-
bahafi, Virginíu-ríki í Bandaríkjun-
um og New York en innbúið af síð-
astnefnda heimili hans var selt á
uppboði í New York í janúar síðast-
liðnum og skilaöi milljónum. Áætl-
aðar eigur Nureyevs. voru sagðar
nema 2,6 milljörðum við lát hans og
var margt ægifagurra muna með
gífurlegt söfnunargildi að finna í
dánarbúinu.
„Það var sýnilegt að mikill
smekkmaður hafði sankað að sér
öllum þessum munum. Af öllum
þeim dánarbúum sem ég hef átt þátt
í að koma í verð þá hef ég aldrei
haft það meira á tilfinningunni að
eigandi þeirra myndi labba inn í
uppboðssalinn,“ lét David Llewllyn,
uppboðshaldari hjá Christies.
Kynbótaræktun á kyrkislöngum
Þau eru misjöfn áhugamálin og
starfsgreinamar sem mennirnir
velja sér. Mark Miles, þrítugur bif-
vélavirki í Montanaríki í Bandaríkj-
unum, sameinaði hvort tveggja þeg-
ar hann tók að rækta slöngur og
snáka - hvítar kyrkislöngur og kö-
flótta kornsnáka.
„Þú byrjar á því að finna þér
slöngu sem er að lit sem þú kannt
við. Þá hefjast kynbæturnar og þú
bíður og vonar að afkvæmi slöng-
unnar séu með réttu genin í sér. Þú
þarft tvær kynslóðir slangna til að
breyta lit þeirra,“ segir Mark.
Kynbætur sem þessar hækka
slöngur í verði en yfir 700 þúsund
slöngusafnarar eru í Bandarikjun-
um einum saman. Venjuleg
bóaslanga kostar um 6.500 krónur
þar í landi en hvít-kynbætt slanga
af sama stofni getur kostað 100 þús-
und krónur.
„Mark hugsar vel um snákana
sína,“ segir Kevin Muchnick, við-
skiptavinur Marks. „Þess vegna
gengur honum vel í ræktinni.“
Mark hefur haft dálæti á snákum
og slöngum frá barnæsku. Árið 1985
starfaði hann sem bifvélavirki og
annaðist 10 skröltorma á verkstæði
sínu. Tveimur árum seinna sá hann
fyrstu albínóa-bóaslönguna sem var
1,3 milljóna króna virði. í kjölfarið
fékk hann lánaðan pening hjá unn-
ustu sinni, sem hann er giftur og á
tvö böm með núna, og keypti tvær
albínóa-bóaslöngur. Átján mánuð-
um seinna höfðu slöngurnar eignast
200 fól afkvæmi.
í dag hefur verðið á kynbættum
slöngum og snákum fallið talsvert
sökum mikils framboðs. Þegar vel
tekst hins vegar til í kynbótum er
hægt að fá góðan pening fyrir af-
kvæmin.
Mark hefur nú opnað gæludýra-
verslun í heimabæ sínum. Eigin-
konan er hin ánægðasta þar sem
hún getur nú notað bílskúrinn til
þeirra hluta sem hann var byggður
og er laus við snákana af heimilinu.
. . . að Christopher, bróðir Ma-
donnu, væri orðinn þreyttur á
útstáelsi systur sinnar. Hann
ynni nú að því að taka saman
lista yfir gagnkynhneigða vini
sína sem væru líklegir til að róa
systur hans og láta draum
hennar um barneignir rætast.
. að uppboðsfyrirtækið
Christies hefði ákveðið að selja
nærföt Gretu Garbo á uppboði.
Nærfötin gaf Greta ástmanni
sínum, Gilbert Roland, þegar
hann var sendur á vígstöðvarn-
ar í seinni heimsstyrjöldinni.
. . . að það hefði ekki komiö
neinum á óvart þegar Michael
Jackson hefði komið inn í fata-
verslun í New York á dögunum
og beðið um að fá að kaupa ali-
ar gínurnar f glugganum í versl-
uninni. Gínurnar voru sendar á
hótelherbergi hans þar og kom
þá í Ijós að herbergið var fullt af
gínum.
. . . að söngkonan Paula Abdul
hefði komið matargesti á veit-
ingastað einum í Beverly Hills
til bjargar á dögunum. Maturinn
stóð í hálsi gestsins og hrærðu
nærstaddir hvorki legg né lið
þegar maðurinn baðaði út öng-
um nema Paula sem greip um
manninn svo maturinn þrýstist
upp úr honum.
. . . að Bond-stjarnan Pierce
Brosnan hefði séð rautt á dög-
unum þegar aðdáandi bað
hann um eiginhandaráritun.
Stjarnan féll á eigin bragði því
penni, sem aðdáandinn rétti Pi-
erce, sprakk í höndunum á
stjörnunni sem sakaði að vísu
ekki því um reykbombu var að
ræða.