Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Síða 49
UV LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
53
I
I
(
<
i
i
i
i
i
i
i
- nú er hún seld í styrkleikaflokkum og menn bjúða upp á skötuhlaðborð
Mah-gler
Súper-gler
ú séð þína mynd í réttum lit
AAAA áAAAAAAAáAáá
innrömmun fyrir jól
RAMMA Sérverslun m/innrómmunarvörur
MJÐSTOÐIN
> ío (smún^ím^sii-ieie
■*m
Þorláksmessa er orðin skötuhátíð
hjá mörgum landsmönnum og ekki
bara þeim sem koma að vestan. Á
undanförnum árum hefur þessi
vestfirski siður að borða skötu eða
skötustöppu á Þorláksmessu verið
mjög að ryðja sér til rúms hér á
landi. Veitingahús auglýsa nú
skötuhlaðborð á Þorláksmessu með
miklum krafti en desembermánuð-
ur er í raun orðinn nokkurs konar
vertið hjá þeim þar sem jólahlað-
borðin eru vart á enda þegar skatan
tekur við. Eftir áramótin eru það
síðan þorrahlaðborðin.
Etin með allri
vesturströndinni
í bók Árna Björnssonar, Saga
daganna, segir að á Þorláksmessu
hafl hangiketið verið soðið þennan
dag og sú tilbreyting sums staðar
gerð í mat að menn fengu rétt að
smakka á því heitu.
„Annars staðar var tiltekið fiskát
iðkað á Þorláksmessu, ekki síst um
landið vestanvert. Er þar einkum að
nefna skötu en hún var alþekktur
Þorláksmessumatur með allri
ströndinni frá Vestíjörðum og suður
fyrir Faxaflóa. Dæmi finnast reynd-
ar líka um Þorláksmessuskötu á
Suðurlandi allt austur að Berufirði
þótt hún sé þar mun sjaldgæfari, en
ekki á Norður- og Austurlandi.
Náttúrulega aðstæður valda hér
án efa nokkru. Skata veiðist einkum
í hlýja sjónum austan frá Horna-
firði og vestur um ísafjarðardjúp. Á
Breiðafirði og Vestíjörðum veiðist
hún aðallega á haustvertíð, svo að
þar var hún fremur tiltæk en ann-
ars staðar rétt fyrir jól.
Eindregnast var og er skötuát
þetta á Vestfjörðum og þó öllu held-
ur skötustappa af kæstri skötu og
mörfloti sem er bræddur hnoðmör.
Stappan þekkist raunar vel frá
norðanverðu Snæfellsnesi og allt til
Hornstranda. Þótti mörgum Vest-
firðingum meðal heimildamanna
þjóðháttadeildar sem lyktin af
skötustöppu væri fyrsta ákennilega
merki þess að jólin væru í nánd.“
„Undanfarið hafa menn verið að
kvarta yfir því að búið sé að koma
því inn hjá þjóðinni að skata sé eitt-
hvað sér vestfirskt fyrirbæri. Þetta
er alls ekki rétt. Skata hefur verið
borðuð þar sem hún veiðist, sem er
GSM GSM GSM
Til sölu nokkrir Ericsson GH 198 m/30 tíma rafhlöðu og
tvöföldu hleðslutæki. Verð kr. 34.900,-
Upplýsingar í sima 896-896-5.
TAKMARKAÐ MAGN!
Blóðbankinn óskar öllum blóðgjöfum og
velunnurum sínum gleðilegra jóla og góðs komandi
árs með þökk fyrir hjálpina á liðnum árum.
BLÓÐBAINKIINN
Skata hengd upp í fiskhjalli.
alveg frá Hornafirði, vestur með
suðurströndinni, með vesturströnd-
inni og allt tO Vestfjarða, eins og
fram kemur í bók minni.
Reyndar heyrði ég viðtal við
mann nýverið sem sagði að það
veiddist lítið annað en tindabikkja
út með Vestfjörðum nú þótt stór-
skata hafi þar veiðst fyrir 10 til 15
árum. Hann sagði að ef Vestfirðing-
ar vikiu fá skötu nú þá þyrftu þeir
að fá hana senda. Hins vegar vilja
sumir halda því fram að tinda-
bikkja, sem áður var fleygt, sé mun
betri matur en stórskata, því hún er
ekki eins gróf.
Sennilega er ástæða þess að skata
hefur verið eignuð Vestfirðingum
sú að sem Þorláksmessumatur hélst
hún lengur þar en víða annars stað-
ar. Hún veiddist líka mest á Vest-
ijörðum í nóvember og desember.
Svo breiddist skötuátið á Þorláks-
messu út með brottfluttum Vestfirð-
ingum,“ segir Árni Björnsson.
NNROMMUN
NÝTT GLER
DV-mynd Sveinn
í dag eru fisksalar svo farnir að
bjóða upp á kæsta skötu í nokkrum
styrkleikaflokkum. Veitingamenn
eru farnir að bjóða upp á vestfirskt
skötuhlaðborð. Einn þeirra er Guð-
mundur Viðarsson, veitingamaður
á Pottinum og pönnunni.
„Extra-kæst"
fyrir hugaða
„Ég byrjaði sem matreiðslumaður
um 1980 og áhuginn á Þorláksmess-
uskötu hefur stóraukist síðan þá.
Þetta er fólk á öllum aldri sem borð-
ar þetta og það er alltaf að aukast að
unglingar borði þetta,“ segir Guð-
mundur.
Hann býður upp á Þorláks-
messuskötu sem sér vestfirskt fyrir-
bæri og nú sé hún borin fram á
þrennan máta. í boði sé söltuð og
kæst skata, söltuð skata og ný
skata. „Fyrir þá sem eru sérstaklega
hugaðir þá er hún extra-kæst. Þeim
bjóðum við upp á tindabikkjubörð."
Aðspurður hvernig „skötufjand-
samlegir" gestir kunni við sig á
veitingastaðnum á Þorláksmessu
þegar ammoníakfnykurinn, eða
ammoníakilmurinn, er hvað mestur
segir hann ekki bera á kvörtunum.
Þarna sé um einn dag á ári að ræða
og flestir sækist eftir þessu þennan
eina dag.
Potturinn og pannan bjóða í ár
upp á skötuhlaðborð. í boði eru
ýmsar gerðir af skötu og fiskmeti.
„Fólk er farið að sækjast eftir öðru-
vísi mat og við erum að bregðast við
þeim kröfum."
-pp/ELA
J