Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Side 60
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
LAUGABDAGUR 23. DESEMBER 1995
Veðrið á aðfanga-
dag og jóladag:
Léttskýjað
vestan til
Á aðfangadag og jóladag
verður norðaustlæg átt, kaldi
með éljum um landið austan-
vert en hægara og víðast létt-
skýjað vestan til.
Frost verður á bilinu 6 til 14
stig.
Veðrið í dag
er á bls. 61
Viera Gulázsiová og Pavel Manasek,
sem fluttu til íslands frá Tékklandi
fyrir rúmum 4 árum, eru organistar
hvort í sinni kirkjunni á höfuðborg-
arsvæðinu og hafa í nógu að snúast
yfir jólahátfðina. DV-mynd S
Tékknesk hjón í önnum:
Organistar
hvort í sinni
kirkjunni
- létu þýða 12 jólatexta
Tékknesku hjónin Pavel Manasek
og Viera Gulázsiová verða í önnum
yfir jólahátíðina. Þau starfa bæði
sem organistar, hún í Seltjarnarnes-
kirkju og hann í Háteigskirkju, og
munu því ekki sjá mikið hvort af
öðru næstu daga. Auk þess munu
þau flytja 12 tékknesk jólalög ásamt
kirkjukórum sínum í útvarpsþætti
á rás 1 á jóladag og Pavel verður í
sviðsljósinu á aðfangadag þegar
sjónvarpað verður frá jólamessu í
Háteigskirkju.
Viera og Pavel hafa verið búsett á
íslandi í 4'/2 ár, fyrst. í 2 ár á Djúpa-
vogi þar til þau fluttu til Reykjavík-
ur. Þau hafa látið mikið að sér
kveða í tónlistarlífinu og stjórna öfl-
ugum kórum í kirkjum sínum.
Lögin, sem flutt verða inn á milli
viðtals við þau á rás 1, voru tekih
upp á sameiginlegum jólatónleikum
kóranna fyrr í desember. Þau létu
þýða texta við jólalögin, sem flest
eru samin á 17. og 18. öld, og fengu
aðstoð við það frá Sigurbirni Ein-
arssyni, Guðjóni Leifi Gunnarssyni,
Ólafi Ágústssyni og Ragnheiði Arn-
ardóttur. Þetta er í fyrsta sinn sem
lög af þessu tagi hafa verið flutt á ís-
landi. -bjb
Gunnar Eyjólfsson ieikari á heimili sínu í Breiöholtinu í gær að stilla upp englum, fjárhirðum og vitringum við jötu
sem Jesúbarnið verður lagt í annað kvöld. Þetta hefur Gunnar gert fyrir hver jól síðan árið 1959.
DV-mynd BG
Óhappalítil
jólaumferð
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
hefur jólaumferðin gengið vel, eitt-
hvað var þó um að bílar nudduðust
saman en slys voru minni háttar.
Eitthvað var um búðahnupl í borg-
inni í gær en það var lítils háttar.
Af umferðinni á landsbyggðinni
var mestallt gott að frétta. í Hafnar-
firði og Kópavogi var mikil umferð
eins og annars staðar á landinu,
árekstrar smávægilegir en að sögn
lögreglu á þessum stöðum var
óvenjulega lítið um þá. -ÞK
Grensásvegi 11
Sfmi: 5 886 886 Fax: 5 886 888
Grœnt númer: 800 6 886 ,
Jólaveðrið:
Hvít jól og kalt
„Það er útlit fyrir svipað veður á
Þorláksmessu, aðfangadag og jóla-
dag. Það verður norðaustlæg átt og
strekkingsvindur um landið austan-
____yert en hægur vindur annars stað-
ar. Það er búist við éljum norðan og
austan til á landinu en léttskýjuðu í
öðrum landshlutum. Þá verður tals-
vert frost þessa daga.
Annan í jólum verður breytileg
átt og léttskýjað og upp úr því fer
eitthvað að hlýna,“ sagði Hörður
Þórðarson, veðurfræðingur á Veð-
urstofu íslands, þegar hann var
spurður um jólaveðrið. -ÞK
Þjónusta yfir
hátíðirnar
Upplýsingar um jólamessur í
kirkjum er að finna á bls. 48 í blað-
inu í dag. Upplýsingar um aðra
----þjónustu um jólin er að finna í blað-
inu í gær, DV-helgin.
Á bls. 27 í gær eru upplýsingar
um ferðir strætisvagna, innanlands-
flug, áætlun Herjólfs, heimsóknar-
tíma á sjúkrahús, neyðarvakt tanh-
lækna, sundstaði, aðstoð í kirkju-
görðum og afgreiðslutíma bensín-
stöðva og á bls. í gær 28 er allt um
sérleyfisferðirnar. -ÞK
Bankinn er tasp-
ast alsæll!
á aðfangadag
og jóladag
Blaðaafgreiðsla DV er opin frá kl.
6-14 í dag. Lokað á aðfangadag, jóla-
dag og annan i jólum. Miðvikudag-
inn 27. desember er opið frá kl. 6-20.
Smáauglýsingadeild DV er lokuð
í dag, Þorláksmessu. Lokað verður á
aðfangadag og jóladag. Opið verður
þriðjudaginn 26. desember, annan í
jólum, frá kl. 16-22.
DV kemur næst út eldsnemma að
morgni miðvikudagsins 27. desemb-
er.
Gleöileg jól!
Hald lagt á eitt þúsund alsælutöflur og eitt kíló af amfetamíni:
Stór fíkniefna-
sending stíluö á
Landsbankann
- tugmilljóna verðmæti eiturlyfiategunda sem teljast mjög hættulegar
Fíkniefnalögreglan og Tollgæsl-
an í Reykjavík rannsaka verulega
stórt fíkniefnamál vegna póst-
sendingar sem barst til landsins i
vikunni. í henni reyndust vera
eitt þúsund alsælutöflur (ecstasy)
og eitt kíló af amfetamíni.
Söluverðmæti eiturlvfjanna
nemur á milli 10 og 20 milljónum
króna.
Málið er ekki einungist stórt í
sniðum vegna magns efnanna
heldur telst þaö mjög alvarlegs
eðlis, ekki síst þegar litið er til
þess að alsæla og amfetamín telj-
ast mjög hættuleg efni.
Sendingin barst til landsins frá
Hollandi á nafni ákveðins aðila en
hún var einnig stíluð á Lands-
banka íslands. Það voru tollverðir
sem skoðuðu sendinguna eftir að
hún barst til landsins og komust á
snoðir um hvert innihaldið var.
Hver ástæðan er fyrir því að send-
ingin var stíluð á stærstu banka-
stofnun landsins liggur ekki fyrir.
Hins vegar er ekkert sem fram
hefur komið sem getur á nokkurn
hátt tengt Landsbankann við mál-
ið.
Samkvæmt upplýsingum DV
hafði flkniefnalögreglan ákveðnar
vísbendingar um hver ætti að fá
sendinguna og þar með hver hefði
staðið að innflutningnum. Þegar
DV fór í prentun í gærkvöld lá
ekki fyrir hvort einhver hefði ver-
ið handtekinn vegna málsins.
Björn Halldórsson hjá Fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykja-
vík vildi ekki tjá sig um málið í
gær. -Ótt