Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
Fréttir
Samvinna lögreglunnar í Reykjavík og Hafnarfirði skilar árangri:
Fjórir menn um tvítugt
viðurkenna milljóna spjöll
- stóðu að Heiðmerkurskemmdarverkunum og óku vörubíl á þrjá bíla í Kópavogi
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Hafnarfirði í samvinnu við rann-
sóknardeild lögreglunnar í Reykja-
vík hefur upplýst þrjú bílþjófnaðar-
mál og skemmdarverk sem unnin
voru í Heiðmörk og Kópavogi í júní
síðastliðnum. Fjórir karlmenn um
tvítugt hafa viðurkennt aðild að
málunum.
Málin sem lögreglan hefur upp-
lýst eru í fyrsta lagi umtalsverð
skemmdarverk í Heiömörk þegar
stolnum dráttarbíl frá Vöku var
ekið á trjágróður, vinnuskúr Skóg-
ræktarfélagsins, salemisaðstöðu og
bekki og borð 3. júní síðastliðinn
eða um hvítasunnuna. Meðal trjá-
gróðurs sem var skemmdur voru
tvö þriggja til fjögurra metra há
grenitré sem gróðursett voru 1958
og sérmerktur trjálundur.
Tilkynnt var um skemmdarverk-
in til lögreglu að morgni hvíta-
sunnudags og leitaði fjöldi lögreglu-
manna á bílum, hjólum og þyrlu af-
brotamannanna fram eftir degi en
til eins þeirra sást þegar hann stal
dráttarbílnum. Leitin var árangurs-
laus.
Tjón var metið á allt að 3 milljón-
ir í Heiðmörk en samkvæmt upplýs-
ingum DV hafa tryggingafélög þegar
greitt rúmlega tvær milljónir vegna
tjónsins þar.
Tjón var metið á allt að þrjár milljón-
ir í Heiðmörk eftir heimsókn pilt-
anna þangað.
í öðru lagi var um að ræða atvik
sem átti sér stað snemma sunnu-
dagsmorguninn 18. júní. Þar var
stolnum Scania vörubíl ekið á þrjár
kyrrstæðar bifreiðar við Lyngheiði
i Kópavogi með þeim afleiðingum
að þær stórskemmdust.
„Þegar ég kom út í útidyrnar sá
ég bara bUa í kássu. Stór vörubUl
stóð þarna og smábíU sem var gjör-
samlega ónýtur - það var ekki rúða
heil í honum - og bUinn okkar sem
búið var að skella upp að húsveggn-
um. VörubUlinn hafði tekið með sér
lítinn bU, klesst hann utan í bUinn
okkar og á húsið. Það var hræðUegt
að sjá þetta. VörubUinn var enn í
gangi og bUstjórinn farinn. Hann
hefur trúlega hlaupið austur með
„Þegar ég kom út í útidyrnar sá ég bara bíla í kássú." sagði Þuríður Erla sem
hér er ásamt manni sínum, Helga Hallvarðssyni. DV-mynd BG
Karlar eru frá Mars, konur eru
frá Venus er söluhæsta bókin
- á jólavertíðinni í desembermánuði
Bókin Karlar eru frá Mars, konur söluhæsta bókin á jólavertíðinni
eru frá Venus eftir John Grey er samkvæmt bóksölukönnun DV. Þar
yfir söluhæstu bækur
1. Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus - John Gray
2. Afrek Berts - Jacobsson & Olsson
3. María, konan bak við goðsögnina - Ingólfur Margelrsson
4. Ekkert að þakka - Guörún Helgadóttir
/f/Á # ■ í||
5. Sex augnablik - Þorgrímur Þráinsson
6. Áfram Latibær - Magnús Scheving
YÆ a |rjM
7. Útkall, íslenska neyðarlínan - Óttar Sveinsson j|
8. Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður - William Hunt
9. Hin hljóðu tár - Sigurbjörg Árnadóttir
10. Milli vonar og ótta - Þór Whitehead
á eftir kemur barnabókin Afrek
Berts eftir Jacobsson og Olsson. Báð-
ar bækurnar í tveimur efstu sætun-
um eru þýddar bækur en bók Ingólfs
Margeirssonar, María, konan bak
við goðsögnina, sem er í þriðja sæti,
er efst frumsaminna íslenskra bóka.
Af þeim 10 bókum sem eru á lista DV
eru 7 frumsamdar á íslensku en
þrjár þýddar af erlendri tungu. Ein
þýddu bókanna er um Vestur-Islend-
inginn Vilhjálm Stefánsson.
Könnun DV er byggð á upplagstöl-
um bókaverslana sem ekki eru
tengdar bókaforlögunum á neinn
hátt. DV hefur áður birt bóksölulista
þrisvar sinnum í mánuðinum og
þeir listar voru byggðir á sölu bóka
á undangenginni viku í mánuöinum.
Þessi listi, sem hér birtist, er byggð-
ur á öllum þeim upplagstölum sam-
anlögðum að viðbættum sölutölum
bóka í síðustu vikunni fyrir jól
(17.-23. desember).
Bókum skilað eða skipt
Hugsanlegt er að þessi niður-
staða breytist lítillega þegar tölur
liggja fyrir um hvaða titlum hefur
verið skilað mest eða skipt fyrir
aðrar. Þeir forsvarsmenn bókaversl-
ana sem samband var haft við voru
sammála um að ekki væri kominn
verulegur skriður á þau mál enn
sem komið er, enda voru margar
bókaverslanir lokaðar þann 27. des-
ember.
Söluhæstu bókunum væri þó eðli-
lega skilað mest. Af einstökum titl-
um sem nefndir voru sem var skil-
að í einhverju magni var minnst á
Hin hljóðu tár og „Útkall, íslenska
neyðarlínan".
Þær bókaverslanir sem tóku þátt
í könnun DV eru; Hagkaupsverslan-
ir í Skeifunni og Kringlunni, á
Akureyri og í Reykjanesbæ, Penn-
inn í Hallarmúla, Sjávarborg í
Stykkishólmi, Bókabúð Brynjars á
Sauðárkróki, Bókabúð Sigurbjöms
á Egilsstöðum, Kaupfélag Ámesinga
og Bókabúð Keflavíkur í Reykjanes-
bæ.
-ÍS
Þú getur svaraó þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já Jj
Nel 2.J
,x ö d d
FOLKSINS
904-1600
Strengir þú
áramótaheit?
Alllf I »tafr«na kertlnu me6 tónvalaslma geta nýtt »ér þessa þjðnustu.
Slökkviliðsmenn í Reykjavík:
Undirbúningi
neyðarlínunnar áfátt
„Við gagnrýnum fyrst og fremst
vinnubrögðin við undirbúninginn
og með hve skömmum fyrirvara
þessu er skellt á,“ segir Vemharður
Guðnason, fulltrúi slökkviliðs-
manna í Reykjavík, en þeir héldu
fund í gær þar sem undirbúningur
vegna upptöku neyðarlínunnar nú
um áramótin var átalinn.
Sem dæmi um gagnrýnisverð at-
riði nefnir Vernharður að nýr
tækjabúnaður á Slökkvistöðinni í
Reykjavík hafi enn ekki verið
kynntur starfsmönnum þótt
skammur tími sé til stefnu og eins
sé enn óljóst við hverja á að hafa
samband úti um land í neyðartilvik-
um.
Vernharður sagði aö gömlu neyð-
arnúmerin yrðu áfram í notkun og
hann sagði að reynt yrði að sinna
neyðarþjónustimni eins og kostur
væri þrátt fyrir skamman undir-
búningstíma. Nýja neyðarnúmerið
112 verður í notkun frá miðnætti 31.
desember. -GK
götunni,“ sagði kona sem vaknaði
við gífurlega læti umræddan sunnu-
dagsmorgun.
Sleppt eftir yfirheyrslur
Rannsóknardeildir lögregluemb-
ættanna tveggja hafa fengist við
rannsókn málanna frá því i sumar.
Gissur Guðmundsson, rannsóknar-
lögreglumaður í Hafnarfirði, sagði í
samtali við "DV að menn þar á bæ
hefði grunað hverjir hefðu verið á
ferðinni án þess að hægt hefði verið
að sanna það og því hefði verið beð-
ið eftir rétta tækifærinu. Það gafst
aðfaranótt miðvikudags þegar bíl
var stolið í Reykjavík. Tveir ölvaðir
menn um tvítugt voru handteknir á
bílnum. Annar þeirra viðurkenndi
að hafa stolið bílnum sem þeir voru
teknir á og báðir viðurkenndu þeir
aðild að Heiðmerkurmálinu.
í kjölfarið voru tveir jafnaldrar
þeirra handteknir og viðurkenndi
annar þeirra að hafa ekið dráttar-
bílnum í Heiðmörk og vörubílnum í
Kópavogi.
„Við höfum unnið að þessu máli
eftir vísbendingum og öðru og það
small saman í gær,“ sagði Gissur.
Enginn mannanna fjögurra hefur
komið við sögu lögreglu áður vegna
alvarlegra brota og var þeim sleppt
eftir yfirheyrslur. -pp
Stuttar fréttir
Millión í verðlaun
Búnaoarbankinn hefur að
höfðu samráði við RLR ákveðið
að veita milljón krónur í verð-
laun fyrir upplýsingar sem leiða
til handtöku þeirra sem rændu
Vesturbæjarútibú bankans
skömmu fyrir jól.
Heiðursskot á
áramótum
Danska varðskipið Vædderen
verður í Reykjavík um áramót-
in. Kl. 23 á gamlárskvöld mun
skipið sKjóta 3 skotum til heið-
urs Danmörku og á miðnætti
verður þrem skotið hleypt af til
heiðurs íslandi.
Takmarkaðar
áritanir
Fjárlagadeilur bandarískra
stjórnvalda valda þyí að banda-
ríska sendiráðið á íslandi mun
aðeins gefa vegabréfsáritanir i
neyðartilfellum.
Nýi Garöur seldur
Haskóli íslands hefur keypt
Nýja Garð af Félagsstofnun
stúdenta á 95 milljónir. Á Nýja
Garði verður komið upp skrif-
stofuaðstöðu fyrir kennara,
einkum í heimspekideild.
Samið um
sjúkraflug
Fyrsti samningurmn um
sjúkraflug innanlands var und-
irritaður í gær. Samkvæmt hon-
um hefur íslandsflug sjúkraflug
á Vestfjörðum á nýársdag.
SH kostar
prófessor
Sölumiðstöð hraðfrystihú-
sanna mun greiða laun prófess-
ors í sjávarútvegsfræðum við
Háskólann á Akureyri. Samn-
ingur þessa efnis hefur verið
gerður til 3 ára en eftir það mun
hann framlengjast í eitt ár í
senn. -kaa