Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
33
Menning
Sveittar ástríður
A sviði Samkomuhússins á
Akureyri ólga heitar ástríður
og svitinn lekur af persónunum
í kæfandi sumarhita New Or-
leans.
Leikhúsgestir verða algjör-
lega að gefa sig blekkingunni á
vald því að úti fyrir ríkir ís-
lenskm- vetur eins og hann
verður fegurstur í 16 gráða
froststillu og marglit jólaljósin
lýsa upp hrímuð trén.
Jólaverkefni L.A. að þessu
sinni er víðfrægt leikrit Tenn-
essee Williams, Sporvagninn
Girnd. Þetta er mikið raunsæis-
drama, eins og þau voru skrif-
uð um miðja öldina, en verkið á
að gerast árið 1947.
Aðalpersónan er kennslu-
kona, Blanche DuBois, sem
kemur í heimsókn til systur
sinnar, Stellu, og manns henn-
ar i New Orleans. Blanche hef-
ur ekki hitt mág sinn áður og
henni bregður nokkuð i brún er hún sér gripinn og
aðstæðurnar sem Stella býr við. Það er skiijanlegt þar
sem fljótlega verður ljóst að hún er komin til að vera.
Þær systur eru aldar upp á plantekru fjölskyldunn-
ar sem nú er töpuð en þrátt fyrir eignamissi hefúr
Blanche ekki komist út úr hugsunarhætti yfirstéttar-
innar. Hún vandist þvi að fá allt
upp í hendurnar og láta stjana við
sig og þannig vill hún hafa það
áfram.
Fljótlega slær í brýnu milli henn-
ar og Stanleys, manns Steliu, og
þar takast á tveir heimar. Stanley
er óheflaður og grófur og hann sér í gegnum sögur
Blanche af sjálfri sér sem ekki reynast sannleikanum
samkvæmar. Átök þeirra leiða svo til uppgjörs og
átakanlegra leiksloka.
Verkið er fyrst og fremst mikið persónudrama og
þess vegna skiptir sköpum hvernig til tekst með val
leikara í hlutverkin og frammistöðu þeirra. Það er
sérstaklega mikilvægt að pólarnir tveir, Blanche og
Stanley, séu sterkir og á milli þeirra þarf að vera
spenna sem bókstaflega gneistar af.
Haukur J. Gunnarsson leikstjóri leggur greinilega
mikla rækt við þennan þátt og persónuleikstjórn
hans er skýr.
Rósa Guðný Þórsdóttir leikur „yfirstéttarkonuna"
Blanche og nær vel til áhorfenda í hlutverkinu. Blan-
che má muna sinn fifil fegri, hún er taugatrekkt og
liflr í einni allsherjar blekkingu. Það er spurning
hvort hún er ekki sjálf farin að trúa sögunum sem
hún spinnur upp um líf sitt. En þess ber líka að gæta
að blekkingin er hennar eina vörn í hörðum heimi
sem hún kannski skilur ekki til fulls. Þegar spilaborg-
in hrynur bugast Blanche endanlega.
Þetta er geysilega margslungið hlutverk og mér
fannst leikur Rósu Guðnýjar bestur þegar túlkunin
var innhverf og á lágværu nótunum. Þar komst leik-
konan næst kjarnanum. Taugaveiklunin var hins
vegar stundum of yfirdrifín og kippir og pat lýttu leik
hennar í sumum atriðum alveg að nauðsynjalausu.
Þetta var sérstaklega áberandi í fyrri hlutanum en
þegar á leið og dramatískur hápunktur nálgaðist þétt-
ist túlkunin og varð um leið mun sterkari.
Rósa Guðný Þórsdóttir og Valdimar Orn Flygenring í hlutverkum Blanche og
Stanleys í Sporvagninum Girnd hjá Leikfélagi Akureyrar.
Valdimar Örn Flygenring leikur Stanley sem senni-
lega hefur þótt yfirmáta gróf og ruddaleg persóna fyr-
ir hartnær fimmtíu árum þó að fáum bregði í dag.
Hann er frummaður, líkastur heimaríkum hana á
haug sem ver sitt yfirráðasvæði með kjafti og klóm.
Allt þetta kemst vel til skila í túlkun Valdimars. Per-
sónan verður þó ekki alsvört því að
Stanley er nokkur vorkunn, að
minnsta kosti framan af.
Bergljót Arnalds leikur Stellu
Kowalski. Hún var fulleinhæf,
barnaleg og geðlaus í túlkun sinni
til að byrja með en tök hennar
Leiklist
Auður Eydal
styrktust eftir því sem átökin urðu meiri. Guðmund-
ur Haraldsson leikur Mitch sem hefur orðið lítt
ágengt í kvennamálum, kannski af því að hann stam-
ar, en Blanche gerir sig mjög svo líklega við hann.
Guðmundur heldur þétt utan um persónulýsinguna
og vinnur hlutverkið vel.
Sunna Borg og Aðalsteinn Bergdal leika kostulegt
par á efri hæðinni og Skúli Gautason einn spilafélaga
Stanleys.
Leikmynd Sveins Lunds-Rolands er mjög vel út-
færð, þröng íbúð Kowalski-hjónanna fremst en baka
til sést út á götu í gegnum stóra glugga og hálfgagn-
sæja veggi. Tröppur liggja upp á efri hæöina. Sviðið
er stílhreint en um leið nokkuð margbrotið og gefur
góða möguleika fyrir framvindu verksins. Lýsing og
tónlist styrkja heildarmyndina og búningarnir færa
okkur tO eftirstríðsáranna.
Sporvagninn Girnd er sigilt verk og í sýningu L.A.
skilar dramað sér vel þó að betur mætti neista á milli
aðalpersónanna.
Leikfélag Akureyrar sýnir:
Sporvagninn Girnd
Höfundur: Tennessee Williams
Þýðing: Örnólfur Árnason
Lýsing: Ingvar Björnsson
Tónlist: Karl O. Ol-
geirsson
Búningar: Haukur
J. Gunnarsson
Leikmynd: Svein
Lund-Roland
Leikstjórn: Haukur
J. Gunnarsson
Tilkynningar
Göngu-Hrólfar
Síðasta ganga ársins verður 30. des-
ember kl. 10 frá Hverfisgötu 105.
Kætumst saman.
Laugardagsganga Hana nú
í Kópavogi verður á morgun. Lagt af
stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl.
10. Nýlagað molakaffi.
Kvenfélag Óháða
safnaðarins
Jólatrésskemmtun verður í Kirkju-
bæ laugardaginn 30. desember kl.
15.
Ferðafélag íslands
efnir laugardaginn 30. desember kl.
16.30 til árlegrar blysfarar og ára-
mótagöngu um Elliðaárdalinn. Þetta
er stutt og skemmtileg fjölskyldu-
ganga til að kveðja gott ferðaár.
Mæting hjá skrifstofu og félags-
heimili Ferðafélagsins að Mörkinni
6 (v. Suðurlandsbraut, austan Skeið-
arvogs). Nokkur sæti eru laus í ára-
mótaferð í Þórsmörk 30/12 til 2/1.
Brottfór laugardag kl. 8. Miðar á
skrifstofunni.
nýtt íslenskt leikrit
eftir Kristínu Ómarsdóttur
mik
hræðilegur ærslaleikur
forsýning fim. 4/1, kl. 20.00
frumsýning fös. 5/1, kl. 20.00
2 sýn. lau. 6/1 kl. 20.30
3 sýn. sun. 7/1 kl. 20.30
miðaverð kr.1000 - 1500
miðasalan er opin frá kl. 18 sýningardaga
......® pöntunarsími: 5610280
allan sólarhringinp llllllllllllllil
GREIÐSLUKORTApJONUSTA
llllliillll
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÐ:
ÍSLENSKA MAFÍAN
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson
Leikmynd: Axel Hallkell
Jóhannesson
Lýsing: David Walters
Búningar: Þórunn Elísabet
Sveinsdóttlr
Söngstjórn: Valgeir Skagfjörð
Hljóömynd: Baldur Már
Arngrímsson
Sýningarstjóri: Guðmundur
Guðmundsson
Leikendur: Ari Matthíasson, Árni
Pétur Guðjónsson, Bryndís Petra
Bragadóttir, Eggert Þorleifsson,
Ellert A. lngimundarson,.Felix
Bergsson, Guðmundur Ólafsson,
Hanna Maria Karlsdóttir, Helga
Braga Jónsdóttir, Magnús
Olafsson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Pétur Einarsson,
Sóley Elíasdóttir, Valgeir
Skagfjörð, Þröstur Leo
Gunnarsson.
Sýning, laud. 30/12, uppselt, grá kort
gilda, fid. 4/1, fáein sæti laus, rauð kort
gilda, laud . 6/1 blá kort gilda.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Lau 30/12 kl. 14, fáein sæti laus, sun.
7/1 kl. 14, lau. 13/1 kl. 14, sun. 14/1 kl.
14.
LITLA SVIÐ KL. 20:
HVAÐ DREYMDI ÞIG,
VALENTÍNA?
eftir Ljúdmílu Razumovskaju
Föst, 29/12, örfá sæti laus, lau. 30/12,
örfá sæti laus, lau. 6/1, föst. 12/1, lau.
13/1.
STÓRA SVIÐ KL. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Föstud. 29/12, föst. 5/1.
Þú kaupir einn miða, færð tvo!
Samstarfsverkefni
við Leikfélag Reykjav/kur:
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30:
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Fös. 29/12, uppselt, föst. 5/1, sun. 7/1,
föst. 12/1.
Fyrir börnin: Línu-ópal, Línu-bolir og
Línu-púsluspil.
Miðasalan er opin alla daga frá
kl. 13-20. Lokað verður á
gamlársdag og nýársdag, auk
þess er tekið á móti miðapönt-
unum í síma 568-8000 alla
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
\ i \ Munið nýtt símanúmer
3V i
5! )§ 5006
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSID
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30:
KIRKJUGARÐSKLÚBBURNN
eftir Ivan Menchell
Leikendur: Guðrún Stephensen,
Margrét Guðmundsdóttir, Sigurveig
Jónsdóttir, Bessi Bjarnason, Þóra
Friðriksdóttir
Þýðing: Elísabet Snorradóttir
Lýsing: Ásmundur Karlsson
Leikmynd: Úlfur Karlsson
Búningar: Helga Stefánsdóttir
Tónlistarumsjón: Andrea Gylfadóttir
Leikstjórn: Andres Sigurvinsson
Frumsýning föd. 5/1, 2. sýn. sud. 7/1, 3.
sýn. fid. 11/1, 4. sýn. Jd. 13/1, 5. sýn.
sud. 14/1.
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00:
DONJUAN
eftir Moliére
3. sýn. á morgun, uppselt, 4. sýn. fid.
4/1, nokkur sæti laus, 5. sýn. mvd.
10/1,6. sýn. Id. 13/1.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
í kvöld, uppselt, Id. 6. jan., örfá sæti
laus, föd. 12/1, örfá sæti laus, Id. 20/1.
GLERBROT
eftir Arthur Miller
8. sýn. föd. 5. jan., 9. sýn. fid. 11. jan.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Ld. 30/12 kl. 14.00, uppselt., Id. 6/1 kl.
14.00, uppselt, sud. 7/1, kl. 14.00,
uppselt, sud. 7/1 kl. 17.00, örfá sæti
laus, sud. 14/1 kl. 14.00, sud. 14/1 kl.
17.00.
Cjafakort í leikhús -
sígila og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá ki. 10.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSID!
ÍSLENSKA ÓPERAN
! ---11111 Sími 551-1475
Föstud. 29/12 kl. 21.00. Síðustu sýn.
ÍWW1A
itirnni'LY
Föstud. 19/1 kl. 20.
HANS OG GRÉTA
Frumsýning laugard. 13/1 kl. 15.
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 15-19,
sýningardaga er opið þar til
sýning hefst.
SÍMI 551-1475, bréfasími 552-7384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA