Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
11
Fréttir
Fljótin í desember:
Yfir 36 stiga
hitamunur
DV, Fljótum:
Þrátt fyrir mikinn hitamun í des-
ember verður ekki annað sagt en
tíðarfar hafi verið mjög hagstsætt
hér nyrðra. Fyrstu 16 daga mánað-
arins fór hiti aldrei niður fyrir
frostmark á veðurathugunarstöð-
inni á Sauðanesvita. Mest komst
hitinn í 16,1 stig sem er með því
allra hæsta sem mælst hefur í des-
ember.
Um jólahátíðina var stillt og bjart
veður og þá fór frostið niður fyrir 20
gráður. Það hefur því orðið Rúm-
lega 36 stiga hitamunur í desember.
Þessi hagstæða veðrátta gerði
samgöngur fyrir og um jólahátíðina
auðveldari en oftast áður. Snjór er
með minnsta móti og nánast ekkert
hefur þurft að moka snjó á vegum
þennan mánuð.
Veðrátta hefur einnig orðið til
þess að sauðfé á jörðum sem eiga
land að sjó hefur verið úti allt til
þessa og nýtt fjörubeit. Slíkt þóttu
mikil hlunnindi fyrr á árum en er
nú mun minna notað enda búskap-
arhættir um flest breyttir frá því
sem var fyrir 20-30 árum. -ÖÞ
Edda Guðmundsdóttir kennari að leiðbeina nemendum sínum
DV-myndir DÓ
Námskeið í hand-
flökun vegna at-
vinnulausra kvenna
DV, Akranesi:
Nú er nýlokið námskeiði í hand-
flökun sem atvinnufulltrúi Akra-
ness og Farskóli Vesturlands stóðu
að. Námskeiðið var styrkt af
kvennasjóði félagsmálaráðuneytis-
ins og Haraldi Böðvarssyni hf.
Að sögn Brynju Þorbjörnsdóttir
atvinnufulltrúa var tilgangurinn
með námskeiðinu að styrkja stöðu
atvinnulausra kvenna á vinnumark-
aðnum og bæta grundvöll fyrir
rekstri smærri fiskverkana sem nýta
betur undirmálsfisk og utankvóta-
tegundir en þessi fiskur er í dag nán-
ast allur fluttur úr bæjarfélaginu til
vinnslu annars staðar. -DÓ
Árneshreppur:
Fjölmenni í messu
hjá séra Jóni
- en enginn organisti
DV, Selfossi:
Séra Jón Isleifsson messaði í Ár-
neskirkju hinni nýju á Ströndum á
jóladag. Fjölmenni var í kirkjunni
því mikið er um gesti í hreppnum
eins og alltaf um jólin. Ræða séra
Jóns var frábær að sögn og tekst
honum alltaf vel upp í jólamess-
unni.
Eftir messu bauð presturinn öll-
um í kaffi í anddyri kirkjunnar og
er það venja hjá honum að bjóða í
kaffi og meðlæti þó einhleypur sé.
í kirkjunni er nýtt orgel af góðri
gerð en því miður hefur ekki fengist
organisti til að leika á það. Vonandi
rætist úr því. Það var því ekki að-
eins organistinn í Langholtssókn í
Reykjavik sem lék ekki á kirkjuorg-
el sóknarinnar f jólamessunni.
Regína
Búöardalur:
Hagnaður hjá afurðasölunni
DV, Akranesi:
Aðalfundur Afurðasölunnar í
Búðardal fyrir nýliðið starfsár var
haldinn 7. desember sl. Þar kom
fram að hagnaður var 3,9 millj.
króna en árið áður varð 19,1 millj.
króna tap.
Betri afkoma byggist aðallega á
lækkun kostnaðar svo sem fjár-
magnskostnaðar, stjórnunarkostn-
aðar og umbúðakostnaðar.
Skuldir frá fyrra ári hafa lækkað
um 42 miUj. króna milli ára og eig-
in fé er nú 28,6%. í haust var slátr-
að 21.522 dilkum og 2.330 fullorðnu
fé sem er svipað og 1994. Fallþungi
dilka hefur minnkað um 1,2 kg. -DÓ
ATHAFNAMENN!
Notaðar vinnuvélar og tæki á sérkjörum
fram til áramóta
ATHUGIÐ! Tvöfóld flýtifyming
ef keypt er fyrir áramót
Ingvar
| Helgason hf.
F Sævarhöfða 2
véladeild sími 525 8070
Sl AS^
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000 GKR.
1976-2.fl. 25.01.96 -25.01.97 kr. 14.908,40
1977-1.fl. 25.03.96 -25.03.97 kr. 13.914,50
1978-l.fl. 25.03.96-25.03.97 kr. 9.434,10
1979-l.fl. 25.02.96 - 25.02.97 kr. 6.238,10
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1981-l.fl. 25.01.96-25.01.97 kr. 246.108,00
1985-1.fl.A 10.01.96- 10.07.96 kr. 71.975,10
1985-1.fl.B 10.01.96- 10.07.96 kr. 34.194,80**
1986-l.fl.A 3 ár 10.01.96- 10.07.96 kr. 49.611,40
1986-1.fl.A 4 ár 10.01.96- 10.07.96 kr. 57.021,90
1986-l.fl A 6 ár 10.01.96- 10.07.96 kr. 59.704,80
1986-1.fl.B 10.01.96- 10.07.96 kr. 25.219,90**
1986-2.fl.A 4 ár 01.01.96-01.07.96 kr. 46.740,60
1986-2.fl.A 6 ár 01.01.96-01.07.96 kr. 48.847,20
1987-1.fl.A 2 ár 10.01.96- 10.07.96 kr. 38.742,80
1987-1.fl.A 4 ár 10.01.96 - 10.07.96 kr. 38,742,80
1989-l.fl.A 2,5 ár 10.01.96 - 10.01.97 kr. 19.181,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 29. desember 1995
SEÐLABANKIÍSLANDS