Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
Fréttir
7
Keramikverksmiðjan Glit í Ólafsfirði:
Sölumálin ganga illa og
framkvæmdastjórinn hættur
DV, Akureyri:
„Það er ekki hægt að segja að
sölumálin séu í kaldakoli en hitt er
rétt að sú markaðssetning sem unn-
ið hefur verið að hefur farið illa.
Samningsdrögin eru enn fyrir hendi
en hefur ekki verið fylgt eftir,“ seg-
ir Hálfdán Kristjánsson, bæjarstjóri
í Ólafsfirði, um stöðuna hjá keram-
ikverksmiðjunni Gliti sem keypt
var til bæjarins á síðasta ári.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins
hefur látið af störfum og ljóst virð-
ist að þróunin í rekstri fyrirtækis-
ins hefur ekki verið sú sem eigend-
ur þess vonuðust eftir, en Ólafs-
fjarðarbær er aðaleigandi Glits.
„Það reyndist dýrara að koma fyrir-
tækinu á fót en reiknað hafði verið
með, húsnæðiskostnaður varð
hærri og fjárstreymi til fyrirtækis-
ins hefur ekki verið eins og við ætl-
uðum.
Það átti að véra meginverkefni
framkvæmdastjórans að ganga frá
þessum hlutum og einnig kom í ljós
að samningar um sölumái voru ekki
á því stigi sem við æfluðum. Ég vil
ekki segja að sölumálin séu í lausu
lofti, en ég neita því ekki að vissu-
lega hefur verið framleitt mikið á
lager.
Við horfum fyrst og fremst til
þriggja markaða með framleiðslu
fyrirtækisins, Skandinavíu, Banda-
ríkjanna og Vestur-Evrópu. Sumt af
þessu lofar góðu, en það vantar enn
nokkuö á að umbúöir vörunnar séu
tilbúnar. í dag erum við með
sölusamning við Sviþjóð en annað er
ekki orðið að veruleika," segir Hálf-
dán.
-gk
Norðurland eystra:
Engin eining um stað-
setningu skólamálastofu
DV, Akureyri:
„Því er ekki að leyna að afstaða
Eyþings kemur þvert á þær vænt-
ingar sem við í utanverðum Eyja-
firði höfum haft í þessu máli,“ segir
Hálfdán Kristjánsson, bæjarstjóri á
Ólafsfirði, um þá ákvörðun Ey-
þings, samtaka sveitarfélaga á Norð-
urlandi eystra, að aðsetur skóla-
málaskrifstofu landshlutans verði á
Akureyri og útibú á Húsavík.
„Við lögðum í það vinnu að móta
okkar hugmyndir og þær tillögur
sem nú liggja fyrir taka ekkert tillit
til þeirra. Við höfum gert ráð fyrir
að miðstöðin verði á Akureyri eins
og nú er en ef við horfum til þess
fyrirkomulags sem nú er sjáum við
að fræðsluskrifstofan hefur haft tak-
markaða þurði til að sinna svæðinu
í heild. Við viljum sjá ákveðna þjón-
ustu við skólana við utanverðan
Eyjafjörð og horfum ekki á þetta
sömu augum og Eyþing," segir Hálf-
dán.
„Mér er kunnugt um óánægju Ól-
afsfirðinga og skil þeirra sjónar-
mið,“ segir Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á Húsavík og formaður Ey-
þings. „Mér finnst eðlilegt að eins
fljótt og hægt verður verði það skoð-
að að koma á fót útstöð við utan-
verðan Eyjafjörð," segir Einar
Njálsson.
-gk
Landspítalinn og röntgentæknar:
Svartsýnn á lausn
„Ég er svartsýnn á að lausn finn-
ist á þessari deilu. Spitalarnir hafa
boðist til að skila okkur þessum 15
yfirvinnutímum sem voru teknir
ííéghþví að tekið verði upp vakta-
fyrjrkomulag. Það myndi þýða um
15 prósent kjaraskerðingu. Við
erum ekki tilbúnir að skrifa undir
slíka óútfyllta víxla,“ segir Helgi
Hálfdanarson fulltrúi röntgen-
tækna.
Tæpur mánuður er nú liðinn frá
því 15 röntgentæknar hættu vinnu á
Landspítalanum. Einungis fjórir
röntgentæknar eru enn til vinnu en
þeir ráðgera að hætta störfum 1. fe-
brúar. Neyðarástand er að skapast
vegna fjarveru röntgentæknanna og
er búist við að ástandið versni enn-
frekar dragist deilan á langinn.
Að sögn Helga hittust fulltrúar
röntgentækna og ríkisins skömmu
fyrir jól en þar hefði ekkert nýtt
komið fram. Þá hefðu fulltrúar rík-
isins óskað eftir nýjum fundi í dag
'29. desember.
-kaa
BÆNDUR!
NOTAÐAR BÚVÉLAR OG TÆKI Á SÉRKJÖRUM
FRAM TIL ÁRAMÓTA
TRAKTORSGRÖFUR
MF 60 HX ÁRG. ‘93. EK. 1800 KLST. 4IN 1. FRAMS/SKOTBÓMA/SERVO
MF 60 HX ÁRG. ‘91. EK. S700 KLST. 4IN 1. FRAMS/SKOTBÓMA
MF 50 HX ÁRG. 90. EK. 3600 KLST. 4IN 1 FRAMS/SKOTBÓMA
MF 50 HX ÁRG. ‘89. EK. 4000 KLST. 4IN 1 FRAMS/SKOTBÓMA
MF 50 HX ÁRG. ‘90. EK. 3000 KLST. 4IN 1 FRAMS/SKOTBÓMA
MF 50 HX ÁRG. ‘89. EK. 4000 KLST. 4lN 1 FRAMS/SKOTBÓMA
ÍC 3 P ÁRG. ‘84, EK. 45000 KLST. 4IN 1 FRAMS/SKOTBÓMA
ATHUGIÐ! Tvöfóld flýtifyming
efkeypt er fyrir áramót
Ingvar
s s^- = Helgason hf.
~=/ Sævarhöfða 2
-- véladeild sími 525 8070
Misstu ekki
afþessu!
Besta tilboð
8500
Power Macintosh
8500/120
2 gigabceta harðdiskur
16 megabœta vinnsluminni
Fjórhraða geisladrif
Apple Vision 1710
(nýr 17' litaskjár með
Trintron-myndlampa)
Hnappaborð og mús
Listaverð 629.400
Tílboðsverð 476.000 stgr. eða
381526
STGR. Á N VSK
Power Macintosh
7500/100
1 gigabætis harðdiskur
16 megabœta vinnsluminni
Fjórhraða geisladrif
Apple Vision 1710
(nýr 17' litaskjár með
Trintron-myndlampá)
Hnappaborð og mús
7500
Listaverð 483.400
Tilboðsverð 346.750 stgr. eða
278.514
STGR. Á N VSK
_____ . -'yjy.-• *-
Skipbolti 21 • Sími 511 5111
Heimasíðan: bttp://uiww. apple. is
Mundu tvöfalda
afskrift af
flárfestingum
ársins 1995!
Opið
30. desemberfrá 10 til 18
Gamlársdag
frálOtill2