Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
Utlönd
Stuttar fréttir i>v
Varnarmálaráðherra Frakklands gerir játningu:
Serbarnir börðu
flugmennina tvo
Villta vestrið snýr
aftur I Texas
Villta vestrið heldur aftur inn-
reið sína í Texas á nýársdag þeg-
ar ný lög, sem heimila íbúum
fylkisins að bera vopn innan-
klæða, ganga í gildi. Slíkur
vopnaburður hefur ekki verið
leyfður í 125 ár.
Andstæðingar óttast að lögin
muni leiða til aukins ofbeldis á
götum úti en stuðningsmenn
segja þau gera saklausum borg-
urum kleift að verja hendur sín-
ar ef á þá verður ráðist. Reuter
Charles Millon, varnarmálaráð-
herra Frakklands, viðurkenndi í
gær að tveir franskir flugmenn
hefðu sætt misþyrmingum og sál-
rænunm þrýstingi af hálfu Bosníu-
Serba, sem héldu þeim föngnum í
104 daga.
„Við vitum núna að þeir voru
barðir á meðan þeir voru í gíslingu.
Þeir máttu einnig þola umtalsvert
sálrænt harðræði og þrýsting,"
sagði Millon við fréttamenn í Alpa-
borginni Briancon í suðausturhluta
Frakklands.
Myndbandsupptaka af orðum
hans var sýnd í franska sjónvarp-
inu.
Flugmennirnir tveir, José Souvig-
net og Frédéric Chiffot, voru látnir
lausir 12. desember en lausn þeirra
greiddi fyrir því að friðarsamning-
arnir um Bosníu voru undirritaðir í
París tveimur dögum síðar.
Háðsblaðið Le Canard Enchainé,
eða Hlekkjaða öndin, skýrði frá því
á þriðjudag að franskur hershöfð-
ingi hefði fyrirskipað flugmönnun-
um að segja að fram hefði verið
komið við þá í samræmi við Genfar-
Lögreglumaður í Moskvu, sem
vann að rannsókn fjárglæpa, hefur
verið handtekinn vegna fjárkúgun-
ar og gruns um rán. Handtakan hef-
ur vakið mikla athygli í rússnesk-
um fjölmiðlum þar sem lögreglu-
maðurinn, sem er 23 ára, er sonur
eins af æðstu lögreglustjórum
Moskvu.
Sonurinn var staðinn að verki
þegar hann reyndi ásamt starfsfé-
lögum sínum að kúga fé út úr at-
vinnurekanda. Sonurinn er einnig
grunaður um rán.
„Ef sonur minn verður dæmdur
sáttmálann um meðferð stríðsfanga,
þó svo að þeir hefðu sætt barsmíð-
um, fengið ónógan mat og þeim
hefði verið stillt upp fyrir sýndaraf-
töku.
Bandarískir hermenn, sém gættu
þyrlu yfirmanns gæsluliðs NATO
sem þurfti að nauðlenda á jóladag,
hafa aðra sögu að segja af Serbum í
Bosníu. Hermennirnir sáu fram á
illa vist í hríðarbyl uppi á fjalli þeg-
ar serbneskir bændur komu þeim
til aðstoðar.
„Þessi náungi er hetja,“ sagði Bill
Burleson kapteinn og benti á bónd-
ann Vladimír Usorac sem stóð þar
hjá. „Við vorum búnir undir kalda
vist en hann bauð okkur í hlöðuna
sína.“
Sveitir NATO hafa nú séð um
friðargæslu í Bosníu í eina viku og
hefur allt gengið að óskum. Bill
Clinton Bandaríkjaforseti aflétti í
gær viðskiptabanni á Serbíu í þakk-
lætisskyni fyrir samstarfsvilja
stjórnvalda í Belgrad. Reuter
er það ekki bara hneisa fyrir fjöl-
skylduna heldur einnig lögregluna,“
sagði Alexander Kulikov lögreglu-
stjóri skömmustulegur á fundi með
fréttamönnum í gær. Hann vísaði á
bug öllum vangaveltum um að hann
hefði reynt að hlífa syni sínum. „Ef
hann er sekur lofa ég að afhenda
strax innanríkisráðuneytinu upp-
sagnarbréf mitt.“
Sonurinn neitar sakargiftum.
Spilling er algeng innan rússnesku
lögreglunnar en það kemur sjaldan
fyrir að lögreglumenn séu leiddir
fyrir rétt. TT
Valdabarátta ógnar
Valdabarátta stjórnmála-
manna í Tyrklandi virðist ógna
áætlunum um að koma í veg fyr-
ir að múslímar komist til valda.
Ánægjulegar viðræður
Utanríkisráðherrar átta
arabalanda eru ánægðir með
andrúmsloftið i friðarviðræðum
ísraela og Sýrlendinga í Mary
land í Bandaríkjunum.
Samkomulag í augsýn
Newt
Gingrich,
forseti full-
trúadeildar
Bandaríkja-
þings, er
vongóður
um að
repúblikan-
ar og Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti komist að samkomulagi um
fjárlögin innan nokkurra daga.
írakar Kerða eftirlit
írakar hafa hert eftirlit með
samgöngum við Jórdaníu í kjöl-
far aðgerða jórdanskra yfirvalda
gegn stjórn Saddams Husseins.
Eldflaugaárásir á Kabúl
Að minnsta kosti fjórir létu
lífið og átta særðust í eldflauga-
árásum Talaban skæruliða á
Kabúl í Afganistan í nótt og í
morgun.
Spáir efnahagsbata
Viktor
Tjernomyr-
din, forsæt-
isráðherra
Rússlands,
lofaði í gær
áframhald-
andi umbót-
um þrátt fyr-
ir stórsigur kommúnista í kosn-
ingunum. Spáir forsætisráð-
herrann efnahagsbata en varaði
jafnframt við að forsetakosning-
arnar á næsta ári yrðu afger-
andi fyrir örlög Rússlands.
50 þúsund á flótta
Yfir 50 þúsund manns flýðu
heimili sín í suðurhluta Filipps-
eyja eftir að hitabeltislægð gekk
yfir.
Öngþveiti í Noregi
Öngþveiti ríkir í Kristi-
ansund og Álesund í Noregi eft-
ir vikulanga snjókomu. Ákveðið
hefur verið að leigja tæki frá
öðrum sveitarfélögum til þess
að ryðja götur.
Átök á landamærum
Heryfirvöld í Perú hafa sakaö
hermenn í Ekvador um
skotárásir á landamærum land-
anna og fyrir að rjúfa lofthelgi.
Dini segir af sér
Forsætis-
ráðherra
Ítalíu,
Lamberto
Dini, mun
afhenda
Scalfaro for-
seta afsögn
sína á morg-
un, að því er einn leiðtoga þing-
flokkanna hefur greint frétta-
mönnum frá.
Sjómenn taldir af
Llk eins af skipverjunum níu
sem leitað hefur verið við Norð-
ur-Noreg fannst í gær skammt
frá landi. Skipverjarnir átta,
sem enn er saknað, eru taldir af.
Drepa flóttamenn
Eþíópía sakar Súdan um að
misþyrma og drepa eþíópíska
flóttamenn og biður Sameinuðu
þjóðimar um að vernda þá.
Jeltsín til vinnu
Jeltsín Rússlandsforseti snýr
aftur til vinnu sinnar í Kreml í
dag, aö því er Itar-Tass frétta-
stofan greindi frá í morgun.
Jeltsín er sagður ætia að flytja
nýársávarp í sjónvarpi til þjóö-
arinnar. Reuter, NTB
K I N G A
Hfl
Imwíw
Vinningstölur
27.12.1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
0 6 af 6 2 19.190.000
m 5 af 6 +bónus 0 794.478
a 5 af 6 3 66.490
a 4 af 6 179 1.770
a 3 af 6 +bónus 657 200
BÓNUSTÖLUR
(23) (27) (28)
Heildarupphaeð þessa viku
39.822.178
Á ísl.: 1.442.178
[Jjwnningur fór til Noregs og Svíþjóöar
UPPLYSINGAR, SlMSVARl S1- 68 1S 11
LUKKUUNA 89 10 «0 - TEXTAVARP 451
eiRT MEO FVBIRVABA UM PRCNTVIUUB
Vinningar í Happdrætti Sjálfsbjargar
Útdráttur 24. desember 1995
Bifreið VW Golf 1800 station kr. 1.720.000
29375 51699
Ferð með Úrval/Útsýn kr. 120.000
360 19411 27724 36525
5754 20519 27747 39651
7680 21002 29418 41510
12900 23316 32227 43987
52275 56653 63419
52876 57097 69438
53979 59484 72029
56114 62149 74526
Vöruúttekt í Kringlunni fyrir kr. 30.000
569 6321 12620 21378 25365 32719 39643 45683 53782 64071
707 6506 13046 21654 25697 34037 39756 46991 54223 64495
U40 6955 13280 22159 25855 34486 39997 47432 55807 66093
I244 7088 17122 23226 26740 34902 40475 49493 56007 67501
2090 7614 17216 23409 26763 35516 41073 49814 56153 69568
2152 7762 17926 23454 26834 35829 41631 50187 56396 70942
2273 7965 19590 23922 28000 37872 41792 51117 56516 72181
2666 9100 19634 24196 28874 38410 43528 51577 58727 72359
3272 9734 20120 24235 29302 38540 43750 52302 61403 72808
4313 10284 20283 24242 30052 39175 44946 52641 62029 73139
6075 11376 20828 24693 31300 39411 4513$ 53202 62434 74315 75426
Auglýsendur, athugið!
Smáauglýsingadeild
////////////////////////////
Opið:
Föstudaginn 29. desember kl. 9-22
ATH. Smáauglýsing í helgarblað verður að ber-
ast fyrir kl. 17 á föstudag.
Mánudaginn 1. janúar 1996,
nýársdag, kl. 16-22
Lokað:
Laugardaginn 30. desember og
sunnudaginn 31. desember, gamlársdag
Síðasta blað fyrir áramót kemur út
laugardaginn 30. desember.
Fyrsta blað eftir áramót kemur út eldsnemma
að morgni þriðjudagsins 2. janúar 1996
Gleðilegt nýár!
f
Litlir bátar ferja fólk yfir Sava-ána á landamærum Króatíu og Bosníu. í bak-
sýn má sjá pramma með farartæki á vegum bandaríska herliðsins sem kom-
ið er til gæslustarfa í Bosníu. Umferð um ána hefur gengið illa síðustu daga
vegna mikilla flóða í Króatíu. Símamynd Reuter
Mafíulögga gripin
vegna fjárkúgunar