Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
Spurningin
Lesendur
Hvernig bækur lestu helst?
Guðrún Katrín Jóhannsdóttir
nemi: Skólabækur.
Þórdís Linda Þórarinsdóttir
nemi: Ég les skólabækur og alls
kyns afþreyingarbókmenntir.
Sólveig Gísladóttir nemi: Eg les
helst seríubækur.
Gissur Snorrason nemi: Spennu-
bækur og ævisögur.
Þórunn Jóhannsdóttir, í fæðingar-
orlofi: Skáldsögur.
Eyjólfur Gunnlaugsson bygginga-
meistari: Allt sem að kjafti kemur.
Flugumferðarstjórar
hverfandi nauðsyn
Við flugumferðarstjórn. „Það eru nefnilega ekki við íslendingar sem borgum
brúsann," segir m.a. í bréfinu.
Gunnar Gunnarsson skrifar:
111 tíðindi eru sífellt að berast
landsmönnum úr flugmálastarfsem-
inni. Undanfarið hafa það helst ver-
ið flugmenn, flugfreyjur og flug-
virkjar á jörðu niðri eða þá af-
greiðslufólk á flugvöllunum sem
hafa verið að boða til verkfalla, mis-
munandi langra og með mismun-
andi tíðni eftir starfsstéttum. Nú
eru það flugumferðarstjórar sem
eru í sviðsljósinu. Þeir láta sér ekki
nægja að boða til vinnustöðvunar
heldur segja einfaldlega upp störf-
um. Það hafa flugmenn og flugfreyj-
ur hins vegar ekki lagt í, líklega
vegna þeirra góðu kjara sem þessar
stéttir sannanlega hafa þrátt fyrir
allt.
Nú er það almælt að flugumferð-
arstjórar hafa líka verulega góð
laun miðað við það sem gengur og
gerist á íslenskum vinnumarkaði.
En þeir eins og aðrir vilja miða sig
og störf sín við hliðstæð störf, svo
sem flugmenn - eða jafnvel starfs-
bræður sína erlendis. Afar ósann-
gjarnt á meðan allur almenningur
hér hefur ekki stuðning forystu-
manna í sínum stéttarfélögum til
verulegra áhrifa í þá átt að setja
markið við hliðstæð laun erlendis.
Hvað sem um deilur flugumferð-
arstjóra má segja er óhætt að full-
yrða að störf flugumferðarstjóra
munu hverfa smám saman eftir því
sem tækninni fleygir fram og innan
svo sem tíu ára, jafnvel á skemmri
tíma, verður flugumferðarstjórn
ekki með þeim hætti sem nú gerist.
Eftirlitð mun færast aftur meira til
flugmannanna sjálfra. Svo lengi
sem þeir svo verða við lýði sem
sjálfstæð starfsstétt.
Samgönguráðherra og utanríkis-
ráðherra hafa nú sent lausnarbréf
til rúmlega 80 flugumferðarstjóra
sem sögðu upp störfum sínum. Það
stefnir því ekki í neitt annað en
óefni á næstu mánuðum á meðan
verið er að endurhæfa nýja menn til
starfa í flugumferðarstjórn. Og svo
er alveg eftir að sjá hvort aðrar
þjóðir sem hér hafa notið þjónustu
þessarra manna vilji yfirleitt taka
áhættuna á því að hér þurfi að setja
upp eitthvert neyðarkerfi sem á að
teljast fullgilt. Það eru nefnilega
ekki við íslendingar sem borgum
brúsann, það eru utanaðkomandi
ríki. Við erum því að leika okkur að
annarra þjóða fé. Það er bæði illt til
afspurnar og löðurmannlegt í hæsta
máta.
Afréttari fjárlagahalla
- eða sýndarmennska grátkóra
Hildur skrifar:
Vel samhæfður kór borgarfull-
trúa sjálfstæðismanna hóf upp raust
sína og hneyklaðist ofboðslega þeg-
ar meirihluti borgarstjórnar lagði á
borgarbúa holræsagjaldið margum-
talaða. Þeir grétu i fjölmiðlum yfir
örlögum aldraðra vegna þessa
skatts. Jafnvel forsætisráðherra,
þeirra maður, lét ljós sitt skína og
lýsti mikilli hneykslan á gjörð þess-
ari.
Hvað er sami forsætisráðherra að
gera öldruðum ,á gegnum frægan
bandorm ríkisstjómar? Hann legg-
ur á aldraða, eina sér, fjár-
magnstekjuskatt, aftengir þá við
launastéttir til lækkunar, hann tel-
ur ekkert sjálfsagt að þeir njóti sjálf-
virkt desemberuppbóta eða annarra
bóta sem launahópar gera samning
um og eykur kostnað þeirra í lyfja-
kaupum og ýmislegt annað til kjara-
rýrnunar. Hann skapar þeim það
ástand að geðþótti stjórnmála-
manna skammtar þeim úr hnefa.
Auglýst er nú eftir grátkór borg-
arfulltrúa sjálfstæðismanna vegna
árása þessara og þeirrar meðferðar
sem aldraðir fá hjá forsætisráð-
herra. íslandi allt og fólk í fyrir-
rúmi. Þetta hljómar fallega og fyrir
því féll fólk í kosningum en það eru
verkin sem tala og aldraðir, sem
hafa til margra ára verið eyrna-
merktir D- eða B- lista, láta ekki
endalaust draga sig á asnaeyrum á
flokksbásinn. Þetta láta þeir ekki
hljóðalaust yfir sig ganga því þeim
er orðið ljóst hvar „Davíð kaupir
ölið“. Afréttari fjárlagahallans er
kreystur upp úr léttum pyngjum
þeirra og öryrkja.
Eru bankar fyrir kaupmenn eina?
Fyrst og fremst fyrir kaupmenn?
Jón Ólafsson skrifar:
Nú loka bankar tvo heila daga
vikunnar og hvergi hægt að gera
bankaviðskipti nema í hraðbönk-
um. Útlendingar hafa hvergi aðgang
að banka til að skipta fé sínu frá
fostudagseftirmiðdegi til mánudags-
morguns. Látum það nú vera því að
útlendingar sem ferðamenn hér eru
hvort eð er réttlausir með öllu.
Þeim má úthýsa af matsölustöðum á
jólum og I þá má ljúga hverju sem
til fellur.
Það er hins vegar verra með okk-
ur, innfædda, aðalinn sjálfan, ef á
að fara að „sortéra" úr einhverja
vildarvini bankanna, eins og gerðist
á Þorláksmessu. En það var einmitt
það kvöld sem íslenskir bankar
ákváðu (í blóra við hið margrómaða
starfsfólk þeirra; þið vitið: þá sem
„vinna verkin“) að hafa opið frá kl.
20-24 að kvöldinu.
Gott og vel, hugsaði ég, nú fer ég
í bankann og tek út það sem mig
vantar fyrir síðustu jólagjöfunum.
En hér var sagt stopp. Þetta var
ekki alhliða þjónusta. Aðeins fyrir
kaupmenn; innlegg og peninga-
skipti, hvað sem það nú þýddi! Það
var í raun einungis opið fyrir kaup-
menn sem ekki áttu aðgang að
bankahólfi. Almenningur? Kom
honum ekki við. Hann á að nota
maskínurnar sem „hraðhreinsa"
inn og út með kortunum. - Já, þjón-
usta íslenskra opinberra og hálfop-
inberra stofnana er með ólíkindum.
DV
Ólík viðhorf í
skattamálum
Hjörtur skrifar:
Það er kannski ekki skrýtið
þótt íslendinga sem búa í Dan-
mörku setji hljóða þegar þeir
hugsa heim þar sem allt önnur
og ólík viðhorf eru í skattamál-
um. Hér heima eru allir að reyna
að plata ríkið til að greiða sem
minnst til sameiginlegra þarfa. í
Danmörku eru þeir menn ekki
litnir réttu auga sem taldir eru
reyna skattsvik í einhverju
formi. Fasteignaskattar og eigna-
skattar lifa báðir góðu lífi hér á
landi. Erlendis er annaðhvort
eignaskattur eða fasteignaskatt-
ur. Ekki báðir. Og hér er allt lát-
ið gott heita, líka af stjórnmála-
mönnum. í Danmörku eru t.d.
þingmenn á fullu við að leiðrétta
sem mest þeir mega hverja
skekkju sem talin er hindra
launamanninn í að eðlilegri
framfærslu.
Agnúi við
hlutabréfa-
kaupin
Lúðvíg hringdi:
Það er aðeins einn hængur á
hlutabréfasölunni, og hann um-
talsverður, að þurfa að eiga bréf-
in í þrjú ár og mega ekki kaupa
fleiri bréf árlega svo að skattaaf-
slátturinn fari ekki fyrir bí.
Þetta þarf að leiðrétta og jafn-
framt að framlengja sölu bréf-
anna fram í miðjan janúar.
Fer Ólafur
Ragnar fram?
Kristján Sigurðsson skrifar:
Maður les í Tímanum að Ólaf-
ur Ragnar Grímsson alþingis-
maður hyggi á forsetaframboð.
Búið sé að fá honum kosninga-
stjóra úr hópi sjálfstæðismanna.
Sé þetta rétt kann hér að vara
um smellið og slóttugt bragð að
ræða af hálfu forsætisráðherra.
Ekki þarf nema einn eða tvo
aðra þekkta menn á vinstri
vængnum til að þeir vinstri
menn reyti fylgi hver af öðrum
og eftir standi Davíð Oddsson
uppi sem sigurvegari. Ólafúr fái
svo sín laun í formi sendiherra-
embættis eða annarrar stöðu
sem samið hefur verið um áður.
Engar veitingar
á ölkrá
Elsa skrifar:
Ég brá mér með kunningjum á
ölkrá eina í borginni. Þar vild-
um við fá okkur smurt brauð eft-
ir að hafa kneyfað nokkrar koll-
ur af bjór sem allir voru þó ekki
jafn ásáttir með. En hvað með
það, við vildum panta smurt
brauð. Það var litið á okkur eins
og Marsbúa eða annað furðu-
legra. Ekkert smurt brauð að
hafa og ekki nóg með það; engar
aðrar veitingar en bjór. Gjörið
svo vel! - Er þetta hægt á einu
veitingahúsi, jafnvel þótt ölkrá
sé?
Fálkaorðan til
Smyril-Line
S.M.H. skrifar:
Mér finnst eðlilegt og sjálfsagt
að veita forstjóra Smyril-Line,
hinu færeyska skipafélagi, fálka-
oröuna eins og forsetinn gerði
nýlega fyrir störf að ferðaþjón-
ustu á íslandi. Ekki er hægt að
veita íslenskum skipaflutninga-
fyrirtækjum orðuna því við eig-
um ekkert farþegaskip lengur,
nema Herjólf sem Vegagerðin er
nú nýlega búin að taka yfir. Ég
hefði nú haldið að skynsamlegra
hefði verið að koma Herjólfí í
gagnið með siglingum í kringum
landið heldur en að láta ríkið
kosta Vestmannaeyjaferjuna og
þar með alla landsmenn. Sigling
kringum landið væri þó hægt að
réttlæta fyrir landsmönnum.