Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Síða 24
36
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
Ekki eru allir ánægðir með þá
sem eru í kjöri sem eftirmenn
Guðmundar J.
Treysti Mikka
mús betur
„Þeir menn sem eiga að taka
við af honum eru ekki fýsilegur
kostur, formannsefni á leið á eft-
irlaun og afgangurinn sauðtrygg-
ir meðreiðarsveinar...nei frekar
treysti ég Mikka mús til að leysa
vandann."
Friðrik Ragnarsson, i Morgunblaðinu.
Ummæli
Hlýtur að vera ofsa-
lega kúgaður
„Elsku Sverrir (Stormsker).
Mikið óskaplega finn ég til með
þér, þú hlýtur að hafa verið ofsa-
lega kúgaður af konum í gegnum
tíðina.
Sigrún Ólafsdóttir, í DV.
Skrímslið Baugur
„Ég er hræddur um að inn-
kauparisinn Baugur (innkaupa-
félag Bónuss og Hagkaups) sé
orðinn að þvílíku skrímsli að
hann gangi fyrr eða síðar af ís-
lenskum matvælaiðnaði dauð-
um.“
Heimir L. Fjeldsted, í DV.
Búinn eftir fimm ár
„Ég verð búinn eftir fimm ár.
Ég vil ekki halda áfram að leika
þegar enginn kann að meta mig,
heldur vil ég hætta þegar fólk
saknar mín.“
George Weah, besti knattspyrnumaður
heims, í viðtali
Frá Sognfirði þar sem mesta fjar-
lægð er á millj háspennulína.
Lengsta haf
milli mastra
Mesta fjarlægð milli mastra í
háspennulínu er 4888 m yfir
Sognfjörðinn í Noregi, milli
Rabnaberg og Fatlaberg, og er
Blessuð veröldin
þyngd víranna 12 tonn. Línan er
hluti af háspennulínu frá Refs-
dalsorkuverinu í Vík í Noregi.
Árið 1967 var bætt við tveimur
4878 m löngum línum úr stáli og
áli sem hafa mikið togþol og
vega 33,5 tonn.
Lengstu op sterk-
ustu stálvirarnir
Lengstu stálvírar í heimi eru
fjórir 24.000 m langir vírar, fram-
leiddir fyrir bresku rafmagns-
veituna, til notkunar við lagn-
ingu 2000 MW háspennulínu yfir
Ermarsund. Gildasti stálvír, sem
sögur fara af, er 28,2 cm gildur og
spunninn úr 2392 vírþáttum. Á
hann að geta borið allt að 3000
tonn. Þess má svo geta að burð-
arstrengirnir í Seto-brúnni í Jap-
an eru 104 cm í þvermál.
Léttskýjað víðast hvar
Yfir landinu er hæðarhryggur
sem hreyfist lítið. Langt suðsuðvest-
ur í hafi er víðáttumikil 960 millí-
bara lægðarsvæði sem þokast norð-
ur. í dag verður fremur hæg breyti-
leg átt og léttskýjað víðast hvar.
Frost verður á bilinu 0 til 18 stig,
Veðrið í dag
mildast við suðurströndina en kald-
ast í innsveitum norðaustanlands. Á
höfuðborgarsvæðinu er hæg aust-
læg átt og yflrleitt léttskýjað. Frost
4 til 9 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 15.38.
Sólarupprás á morgun: 11.21.
Síðdegisflóð í'Reykjavík: 00.58,
Árdegisflóð á morgun: 00.58.
Heimild: Almanak Háskóians.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri heiúskírt -7
Akurnes léttskýjaö -8
Bergsstaöir léttskýjað -11
Bolungarvik heiðskírt -9
Egilsstaöir heiðskírt -14
Keflavíkurflugv. léttskýjaö -7
Kirkjubœjarkl. léttskýjaö -4
Raufarhöfn alskýjað -8
Reykjavík léttskýjaö -8
Stórhöfði ■ léttskýjaö -2
Bergen slydda 3
Helsinki lágþokubl. -15
Kaupmannah. þokumóöa -6
Ósló þokumóða -13
Stokkhólmur skýjað -9
Þórshöfn skýjað 2
Amsterdam heiöskírt -9
Barcelona heiðskírt 6
Chicago léttskýjaö -8
Feneyjar alskýjaö 1
Frankfurt hálfskýjað -10
Glasgow þokuruðn. -20
Hamborg súld -5
London léttskýjaó -3
Los Angeles alskýjaö .14
Lúxemborg heiöskírt -8
Madríd alskýjað 8
Malaga. skýjaö 12
Mallorca léttskýjað 4
New York heióskírt -1
Nice súld 6
Nuuk alskýjað -3
Orlando alskýjaö 7
París léttskýjaö -7
Róm skýjaó 6
Valencia heiðskírt 11
Vín léttskýjaö -11
Winnipeg heiðskírt -17
Pétur Jóhannsson skipstjóri:
Eftir því sem við förum betur með fiskinn
því hærra verð fáum við
DV, Suðurnesjum:
„Það hefur verið mokfiskirí hjá
okkur og fiskurinn hefur verið
mjög góður. Kröfurnar eru orðnar
mikiar, enda erum við hættir að
setja lausan fisk í stíur. Hann er
allur settur í kör og fáum við
miklu meira verð fyrir hann svo-
leiðis," sagði Pétur Jóhannsson,
skipstjóri á Skarfi GK 666 í Grinda-
vík, sem hefur fengið glæsilegar
viðurkenningar frá Fiskmarkaði
Suðurnesja fyrir að koma með úr-
vals hráefni til löndunar. „Við
Maður dagsins
reynum ávallt að gera okkar besta.
Eftir því sem við förum betur með
fiskinn því hærra verð fáum við
fyrir hann. Þá höfum við stytt
túrana og erum núna í 3-5 daga en
vorum áður 8-10 daga í hverjum
túr.“
Pétur fór á sjóinn þegar hann
var 16 ára og var fyrst á fragtskip-
um og fór síðan á síðutogara. Hann
ætlaði samt ekki að vera sjómaður
Pétur Jóhannsson.
til framtíðar. „Ég ætlaði fyrst að
læra til málara og síðan var ég á
leiðinni í leiklistarskóla en hætti
við á síðustu stundu. Sjórinn tog-
aði alltaf mikið í mig og ég gaf eft-
ir og fór á sjóinn. Eftir að hafa ver-
iö lengi á sjónum kemur oft sú
hugsun upp þegar maður fer að
eldast að það er ýmislegt sem ég
hef misst af í lífinu, maður er eins
og gestur í öllu, bæði heima hjá sér
og í öllum félagsmálum."
Pétur verður 50 ára á næsta ári
og segist ætla að vera á sjó á með-
an heilsan leyfir. Skarfur fer út 2.
janúar. Áhugamál Péturs eru úti-
vera og ferðalög innanlands.
Einnig hefur hann farið stutta túra
til útlanda og segir sér líka það
mjög vel. Pétur hefur mikinn
áhuga á knattspyrnu og stundaði
hana sínum yngri árum en þurfti
að hætta þegar hann fór á sjóinn.
Pétur segist vera einlægur aðdá-
andi Keflavíkurliðsins og segir að
Grindavík sé númer tvö hjá sér í
uppáhaldi.
Pétur býr nú í Keflavík en hefur
átt heima víða. Hann er fæddur
Reykvíkingur en fluttist síðan til
Sandgerðis ásamt foreldrum sín-
um. Þaðan fluttist hann til Patreks-
fjarðar þaðan sem kona hans,
Harpa Hansen hárgreiðslumeist-
ari, er ættuð. Árið 1974 fluttu þau
til Grindavíkur og síðan fljótlega
til Keflavíkur og segir Pétur mjög
gott að búa þar. Pétur og Harpa
eiga fjögur börn, Ólaf Inga, 26 ára,
Halldóru Sigríði, 25 ára, Önnu
Katrínu, 21 árs, og Andrés, 18 ára.
-ÆMK
Myndgátan
Töluverð
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
Pressuleikur í
handbolta
í kvöld kl. 20.00 fer fram í
íþróttahúsinu . í Grafarvogi
pressuleikur í handbolta. Þor-
björn Jensson landsliðsþjálfari
og fulltrúar fjölmiðla hafa valið
íslenskt úrvalslið sem mætir liði
sem verður að mestu leyti skipað
þeim útlendingum sem leika hér
á landi en íslenskir leikmenn
verða valdir í þær stöður sem
íþróttir
vantar. Lið útlendinganna verð-
ur örugglega mjög sterkt, enda
góðir erlendir leikmenn í ís-
lenskum liðum. Liðsstjóri út-
lendingahersveitarinnar er Al-
freð Gíslason, þjálfari KA.
í kvöld fer einnig fram þriðja
viðureign íslendinga og Eistlend-
inga í körfubolta. Fara leikirnir
fram á Akranesi og hefst fyrri
leikurinn kl. 20.00.
Skák
Enski stórmeistarinn Tony Miles
hafði hvítt og átti leik í þessari
stöðu gegn Welling á opnu móti á
eyjunni Mön fyrir skömmu. Hvern-
ig tókst Miles að knýja fram sigur í
fáum leikjum?
1. HÍ5! Rxf5 2. exf5+ Kh6 Ef 2. -
Kxf5 3. Hfl+ Kg6 4. Hf7 og vinnur. 3.
f6! og nú gafst svartur upp. Ef 3. -
Dxf6 4. Hfl Dg6 5. Be4 Dg7 6. HÍ7!
Dxf7 7. Dxg5 mát. Jón L. Árnason
Bridge
Suður sýndi skemmtilega takta í úr-
spilinu í slæmri tromplegu. Samning-
urinn var 4 spaðar eftir þessar sagnir,
suður gjafari:
* D976
M Á43
* P
* AKDG3
* ÁK103
V G865
* 5
* 10865
4 G854
V K92
* Á10762
* 9 ■
Suður Vestur Norður Austur
pass pass 1* 1+
pass pass Dobl pass
pass 1* pass pass
14 pass 44 p/h .
Vestur ákvað aö segja frekar eitt
hjarta, heldur en redobl, sem hefði
verið flótti í aðra liti en tígul. Hann
taldi sig vera í góðum málum í fjórum
spöðum en varð fyrir vonbrigðum ipeð
uppskeruna. Útspilið var tígulfimma
og suður drap kóng vesturs á ás. Næst
kom lauf á ásinn og spaði á gosa sem
vestur drap á kóng. Vestur spilaði
hjarta sem suður drap heima og síðan
kom spaði á sjöuna. Nú kom þrír
hæstu í laufi, hjarta og tveimur tíglum
hent heima og síðan var hjarta tromp-
að heim. Staöan var þessi:
*
V D9
♦ Á
* —
* --
- -
♦ 10
* G98
♦ --
V 8
♦ --
* 1076
♦ 3
Á10
♦ G8
♦ --
Suður gat fengið 10 slagi með þvi
að spila spaða að drottningunni, en
valdi fallegri leið með því að trompa
tígul, trompa, hjartaásinn með
spaðaáttunni og spila tigli sem
tryggði slag á spaðadrottningu „en
passant".
ísak Örn Sigurðsson