Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Page 25
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
37
Þór Elís Pálsson sýnir í Galleríi
Sævars Karls.
Straumar
Um þessar mundir er Þór Elís
Pálsson með sýningu í Galleríi
Sævars Karls. Sýningin er „inn-
setning" (video-instalation) sem
nefnist Straumar, unnin með
blandaðri tækni þar sem skjálist
er meginuppistaða verksins.
Verkið er hugleiðing um um-
hverfi okkar, tímann og fram-
vindu hans. Hvernig við upplif-
um tilveruna og umhverfi okkar
sem sjáifsagöa staðreynd sem
jafnframt reynist afstæð og óá-
reiðanleg við minnstu breyting-
ar.
Þór Elís lauk námi við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1978 og var við framhaldsnám í
Hollandi. Hann starfar nú við
Sýningar
sjónvarps- og kvikmyndagerð.
Helstu viðfangsefni hans eru
heimildarmyndir og efni menn-
ingarlegs eðlis, aðallega tengt
myndlist. Hann starfaði hjá
Sjónvarpinu til 1992 en þá fór
hann út í eigin kvikmyndafram-
leiðslu og gerði stuttmyndina
Nifl. Þór Elís starfar nú hjá
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands með- yfirumsjón yfir
mynd- og tölvuveri.
Misskilningur á misskilning
ofan er þemað í verki Darios
Fos.
Við borgum
ekki, við borg-
um ekki
Leikfélag Reykjavíkur hefur
tekið upp því að vera með sama
fyrirkomulag og kvikmyndahús-
in en það er að borga fyrir einn
miða og fá tvo. Þetta á eingöngu
við um farsann Við borgum
ekki, við borgum ekki eftir
Dario Fo en hann er íslenskum
leikhúsgestum aö góðu kunnur
en farsar hans og ærslaleikir
hafa notið ómældra vinsælda
meðal íslenskra leikhúsgesta
siðan Leikfélag Reykjavíkur
Leikhús
kynnti verk hans fyrst á ís-
lensku í Iðnó 1963 en þá var sýnt
við miklar vinsældir leikritið
Þjófar, lík og falar konur.
Leikstjóri verksins er Þröstur
Leó Gunnarsson en með hlut-
verk fer valinkunnið lið þekktra
gamanleikara með Magnús
Ólafsson og Eggert Þorleifsson í
broddi fylkingar.
-leikur að lara!
Vinningstölur 28. desember 1995
4*10 11*18*23 27 28
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
Næturgalinn:
Fánar og Rúnar Júlíusson
Skemmtistaðurinn Næturgalinn,
sem er til húsa á Smiðjuvegi 14 í
Kópavogi, býður ávallt um helgar
upp á dansleik og er ekki brugðið
út af venjunni þessa helgi. í kvöld
og annað kvöld mun hljómsveitin
Fánar leika fyrir gesti staðarins en
hljómsveit þessi hefur einbeitt sér
að léttri og fjörugri danssveiflu og
leikur oft á Næturgalanum. í henni
eru þrautreyndir spilarar.
Skemmtanir
Á gamlárskvöld er það svo stór-
stjarnan Rúnar Júlíusson sem tek-
ur við á Næturgalanum og hefur
leik ásamt hljómsveit sinni á ára-
mótadansleik sem hefst þegar þjóð-
in hefur lokið við að skjóta upp
fiugeldum eða kl. 00.30. Það er ekki
að efa að Rúnar sýnir á sér betri
hliðina og heldur fólki við efnið
langt fram eftir nýársnótt.
Rúnar Júlíusson heldur uppi fjörinu á Næturgalanum á nýársnótt.
Víða er nokk-
ur hálka
Allir helstu þjóðvegir landsins
eru færir. Víða er þó hálka. Á veg-
um sem liggja hátt er yfirleitt snjór.
Á leiðinni Akureyri-Reykjavík er
snjór á Holtavörðuheiði, Brú-
Færð á vegum
Hvammstangi, Hvammstangi-
Blönduós og Öxnadalsheiði. Á leið-
inni Reykjavík-Höfn er snjór á veg-
um alveg frá Þjórsá-Hvolsvelli og
austur. Á Austfiörðum og Vestfiörð-
um er sama ástand, vegir eru vel
færir, en varast ber snjó og hálku.
Vert er að brýna fyrir vegfarendum,
sem eru á ferð á þjóðvegum lands-
ins, að hafa bílana vel útbúna.
O Hálka og snjór @ Vegavinna-aögót @ Öxulþungatakmarkanir
Fært fjallabílum
Ástand vega
Dóttir Sólrúnar
og Jóns
Litla stúlkan á myndinni, sem
lætur vita af sér, fæddist á fæðing-
ardeild Landspítalans 18. desember
Barn dagsins
kl. 15.10. Hún var við fæðingu 4.430
grömm og 55 sentímetra löng. For-
eldrar hennar eru Sólrún Bryndís
Aradóttir og Jón Gísli Jónsson.
Hún á eina systur, Hafdísi Björk,
sem er níu ára.
Ron Perlman og Judith Vittet í
hlutverkum sínum.
Borg týndu
barnanna
I Borg týndu barnanna, sem
Regnboginn frumsýndi á annan
dag jóla, eru Frakkarnir Jeunet
og Caro jafnfrumlegir og í hinni
rómuðu mynd þeirra, Delicates-
sen, umgjörðin er sérstök og sag-
an óvenjuleg. Sá sem hannar
búninga í myndinni er hinn
frægi tískuhönnuður Jean Paul
Gaultier.
Borg týndu barnanna gerist að
stórum hluta á hafi úti þar sem
Krank býr í sérbyggðri flotborg
ásamt móður sinni, Miss Bis-
muth, Irvin, sem er heili sem
flýtur um i grænleitum vökva,
talar í gegnum grammófónhorn
og sér í gegnum gamla ljós-
myndalinsu og hópi einstaklinga
sem komnir eru af einu foreldri
Kvikmyndir
við kynlausa æxlun og hafa allir
sömu arfgerð. Krank eldist hrað-
ar en aðrir og kennir hann því
um að njóta ekki drauma í
svefni. Hann tekur því til sinna
ráða og rænir litlum börnum í
næstu hafnarborg og hyggst
dreyma í gegnum þau.
Nýjar myndir
Háskólabíó: GoldenEye
Háskólabíó: Carrington
Laugarásbíó: Agnes
Saga-bíó: Algjör jólasveinn
Bíóhöllin: Pocahontas
Bíóborgin: Assassins
Regnboginn: Borg týndu barn-
anna
Stjörnubíó: Indíáninn í skápnum
Gengið
Almenn gengisskráning Ll nr. 305.
29. desember 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 65,130 65,470 65,260
Pund 100.870 101.390 101,280
Kan. dollar 47,810 48,110 48,220
Donsk kr 11,7160 11,7780 11,7440
Norsk kr 10,2660 10,3220 10,3220
Sænsk kr. 9,7640 9,8180 9,9670
Fi. mark 14,9130 15,0010 15,2950
Fra. franki 13.2720 13,3470 13,2300
Belg. franki 2,2062 2,2194 2,2115
Sviss. franki 56,5300 56,8400 56,4100
Holl. gyllini 40,4800 40,7200 40,5800
Þýskt mark 45,3200 45,5500 45,4200
It líra 0,04105 0,04131 0,0408:
Aust. sch. 6,4380 6,4780 6,4570
Port. escudo 0,4340 0,4366 0,4357
Spá. peseti 0,5351 0,5385 0,5338
Jap. yen 0,63270 0,63650 0,6426i
írskt pund 104,070 104,720 104,620
SDR 96,68000 97.26000 97,18001
ECU 83,2900 83.7900
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270.
Krossgátan
Lárétt: 1 nýjan, 7 aur, 8 rödd, 10 fargi,
11 seinkunar, 13 kyrrð, 14 reið, 16 titfil,
18 aðsjálli, 20 umdæmisstafir, 21 ofsa-
kæti.
' Lóðrétt: 1 himinhvel, 2 styrkja, 3 fitla, 4 "
kölski, 5 karlfuglar, 6 fæðir, 9 hemji, 12
svif, 15 draup, 17 hismi, 19 skóli.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 regla, 6 óm, 8 einatt, 9 kró, 10
gats, 12 fati, 13 bak, 14 rotna, 16 gá, 17
kengur, 19 markaöi.
Lóðrétt: 1 rek, 2 eira, 3 gnótt, 4 laginn,
5 ata, 6 ótta, 7 má, 11 skári, 12 fróm, 13
baga, 15 oka, 16 guð, 18 er.