Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Síða 7
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
7
DV Sandkorn
Fréttir
Óvinsæl jólagjöf
Suðurnesjatíð-
indi segja frá
því að Islensk-
ir aðalverktak-
ar hafi gefið
starfsmönnum
sinum jólagjöf
sem mæltist
misjafhlega
fyrir hjá flest-
um. Hér var
um að ræða
bók eftir Hann-
es Hólmstein
Gissurararson. Fór svo að starfs-
mennirnir komu í hópum í bóka-
verslanir í Reykjanesbæ til að skila
bókinni og fá aðra í staöinn. Gekk
þetta svo langt að eigendur bóka-
búða stoppuðu móttöku á bókinni
eftir að hún fór að hrúgast upp hjá
þeim. Þá gripu þeir starfsmenn sem
orðið höfðu seinir fyrir til þess ráðs
að gefa andvirði bókarinnar til
mannúðarmála.
BS-prófið
Dagskráin á
Selfossi birti á
dögunum
skemmtisögur
úr safhi Sigurð-
arBogaSæv-
arssonar. Ein
er um það þeg-
ar flokkur frá
Sambandi is-
lenskra hita-
veitna heim-
sótti verksmiðj-
una Set hf. á
Selfossi. Vel var tekið á móti gest-
um og siðan var lagt af stað að
skoða verksmiðjuna sem framleiðir
plaströr og fleira í þeim dúr. Kona
úr hópi gesta vatt sér aö forstjóra
fyrirtækisins, Bergsteini Einars-
syni, og spurði hvaða gráðu hann
hefði sem verkfræðingur enda þótti
henni sjálfsagt að forstjórinn væri
verkfræðingur. Bergsteinn svaraði
konunni. „Ja, ég hef nú bara BS-
próf.“ Konan kinkaði kolli og
spurði í hvaða háskóla hann hefði
lært. „Hjá mér.stendur BS ekki fyr-
ir próftitilinn Bachelor of Science
heldur bara fyrir Barnaskóla Sel-
foss,“ svaraði Bergsteinn.
Röskur prestur
Enn skal leitað
fanga í þeirri
ágætu bók,
„Þeim varð á i
messunni", sem
eru gamansög-
ur áf prestum.
Þar eru margar
sögur af séra
Baldri Vil-
helmssyni í
Vatnsfirði, eins
og áður hefur
komið fram í
Sandkomi. Einu sinni var séra
Baldur að messa og var þá aragrúi
af flskiflugum í kirkjunni sem trufl-
uðu messuna. Þá var þessi limra
ort.
Söfhuður píndist sem prófaði
vellandi díki,
prófastur þrumaði: „Til komi þitt
riki"
meðan aö sveif
suöandi á dreif
meinfýsinn andi í maðkaflugu
liki.
Séra Baldur er sagður presta
röskastur við embættisverk, eink-
um þó giftingar. Segir sagan að ein-
hverju sinni hafi liðið 9 mínútur frá
því að brúðurinn mætti í kirkjuna
og þar til hún gekk aftur út úr
kirkjunni með sinn ektamaka sér
við hlið.
Fyrirheit
og efndir
Það gekk mikið
á á Alþingi
þegar Halldór
Blöndal vildi
að fyrirtækið
Spölur, sem
ætlar gera jarö-
göng undfr
Hvalfjörð, fengi
ríkisábyrgð á
lán upp á einn
milljarð króna.
Eins og menn
eflaust muna
hafa þeir Spalarmenn alltaf talað
um að framkvæma verkið án nokk-
urs stuðnings frá ríkingu. En þegar
rikisábyrgðin hafði verið ákveðin
orti Hreiðar Karlsson á Húsavík eft-
irfarandi visu.
Heyrast býsna háar tölur,
hærri en áður voru nefhdar.
Það er meira en meðal spölur,
milh fyrirheits og efhdar.
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Noröurland eystra:
Fyrirkomulag skola-
skrifstofu í uppnámi
DV, Akureyri:
Ekkert samkomulag hefur náðst
mifli sveitarstjómarmanna á Norð-
urlandi eystra um tilhögun og stað-
setningu skólaskrifstofu sem hefja á
starfsemi þegar sveitarfélögin taka
við rekstri grunnskólanna. Tillaga
Eyþings, sem em samtök sveitarfé-
laga á Norðurlandi eystra, gera ráð
fyrir að skólaskrifstofa verði á
Akureyri og útstöð á Húsavík.
Sveitarstjórnir við utanverðan
Eyjafjörð una því ekki og hafa lagt
fram tiflögu um breytingu á þjón-
ustunni en ýmislegt bendir til að
ekki verði fallist á það.
Einar Njálsson, bæjarstjóri á
Húsavík og formaður Eyþings, segir
að bmgðið geti til beggja vona með
framhald þessa máls eftfr fund hans
með forráðamönnum Ólafsfjarðar-
bæjar, Dalvíkur, Hríseyjar, Svarfað-
ardalshrepps og Árskógshrepps.
„Ég get ekki hugsað það til enda á
þessu stigi hvað gerist ef samkomu-
lag næst ekki, það verður mjög
óheppilegt og við verðum þá í upp-
námi með mjög þýðingarmikið
mál,“ segir Einar. Hann neitar því
ekki að þetta mál eitt og sér gefi
ekki góöar vonir um farsælt sam-
starf sveitarfélaganna að þessum
málaflokki í framtíðinni.
„Við lögðum fram tillögu sem
gæti leitt til þess að menn næðu
saman. í þeirri tillögu felst að í
gangi verði ákveðið vinnuferli og
starfskraftar nýtist betur á þeim
svæðum þar sem þeir eru tiltækir
og þjónustan verði í meiri nálægð
en ella,“ segir Hálfdán Kristjánsson,
bæjarstjóri á Ólafsfirði.
„Stjóm Eyþings hefur ekki lokið
umfjöllun um þessa tiflögu en við
munum svara þeim sem lögðu hana
fram. Mér sýnist fljótt á litið að
þessi tillaga fjalli um ýmis fram-
kvæmdaatriði og ég veigra mér við
því að stjórn Eyþings sé að taka
Tuttugu segulbandstæki í röð énda er hægt að taka upp á tuttugu hljóð-
snældur í einu í Langholtskirkju.
DV-myndir GS
Hér er svo hljóðblandarinn í kirkjunni.
Hljööverið í
Langhottskirlgu
Eins og skýrt var frá í DV nýlega
bönnuðu starfsmaður Langholts-
kirkju og formaður sóknamefndar
Langholtssóknar að hljóðverið í
kirkjunni yrði myndað. Þar sem
heyrst hefur að hljóðverið sé hið
fullkomnasta þótti forvitnilegt að fá
myndir af þvi. Séra Flóki Kristins-
son, sóknarprestur í Langholtssókn,
leyfði myndatökuna. -ÞK
Akureyri:
Opnað í Hlíðarfjalli
DV Akureyri:
„Það er frekar lítill snjór í fjall-
inu en þó nóg til þess að við ætlum
að opna um helgina,“ segir ívar Sig-
mundsson, forstöðumaður skíða-
svæðisins í Hlíðarfialli við Akur-
eyri.
Allar lyftur verða opnar, auk þess
sem troðnar verða göngubrautir fyr-
ir þá sem vilja frekar vera á göngu-
skíðum. Lyftur verða opnar kl.
10-17 báða dagana um helgina og
vildi ívar koma því á framfæri við
fólk að fara varlega vegna þess
hversu lítill snjórinn i fiallinu er.
-gk
ákvörðun um svona framkvæmdaat- En þetta er óafgreitt mál,“ segir Ein-
riði áður en skólaráðið er orðið til. ar Njálsson, formaður Eyþings. -gk
Húsbréf | Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
Innlausnardagur 15. janúar 1996.
1. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.550.521 kr.
100.000 kr. 155.052 kr.
10.000 kr. 15.505 kr.
3. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.379.664 kr.
500.000 kr. 689.832 kr.
100.000 kr. 137.966 kr.
10.000 kr. 13.797 kr.
1. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.794.307 kr.
1.000.000 kr. 1.358.861 kr.
100.000 kr. 135.886 kr.
10.000 kr. 13.589 kr.
2. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.687.680 kr.
1.000.000 kr. 1.337.536 kr.
100.000 kr. 133.754 kr.
10.000 kr. 13.375 kr.
á l.flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
§ 5.000.000 kr. 6.159.006 kr.
2 1.000.000 kr. 1.231.801 kr.
100.000 kr. 121.180 kr.
10.000 kr. 12.318 kr.
3. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.748.942 kr.
1.000.000 kr. 1.149.788 kr.
100.000 kr. 114.979 kr.
10.000 kr. 11.498 kr.
1. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.645.470 kr.
1.000.000 kr. 1.129.094 kr.
100.000 kr. 112.909 kr.
10.000 kr. 11.291 kr.
1. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.322.600 kr.
1.000.000 kr. 1.064.520 kr.
100.000 kr. 106.452 kr.
10.000 kr. 10.645 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
nkh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILO • SUDURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900