Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Side 11
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
11
Fréttir
Samvinna norðlensku mjólkursamlaganna:
Jákvæðari tónn fýrir
sameiningu en til þessa
- sameining hefur þó ekki verið rædd á „æðstu stöðum“ af neinni alvöru
DV, Akureyri:
„Það er alveg rétt að það er ekki
sami tónninn í mönnum og verið
hefur ef sameiningu eða frekari
samvinnu ber á góma. Það er að
mínu mati um tvennt að ræða sé lit-
ið til framtíðarinnar, annaðhvort
snúa menn bökum saman og reyna
að búa til eins öfluga heild og hægt
er eða menn halda áfram að spila
eins og nú er og falla neðar,“ segir
Þórarinn E. Sveinsson, mjólkursam-
lagsstjóri á Akureyri, um hugsan-
lega sameiningu mjólkursamlag-
anna fjögurra á Norðurlandi eða
frekari samvinnu þeirra.
Mjólkursamlögin tjögur á Norð-
urlandi eru á Akureyri, Blönduósi,
Sauðárkróki og Húsavík, og for-
svarsmenn Mjólkursamlags KEA á
Akureyri hafa áður hreyft samein-
ingarhugmyndinni en fengið fremur
dræmar undirtektir. Upp á síðkast-
ið hefur samstarf samlaganna auk-
ist nokkuð, talsvert hefur verið
unnið að vöruþróun og nýjasta af-
urð slíks samstarfs er „Sælumjólk“
sem kom á markað í gær. Vöruþró-
un sem leiddi þá afurð af sér er sam-
eiginleg vinna samlaganna, en
framleiðsla verður á öllum stöðun-
um fjórum. Áformað er að á
Blöndósi verði framleitt fyrir suð-
vesturhom landsins en síðan komi
samlagið á Sauðárkróki þar inn ef
Blönduósverksmiðjan annar ekki
eftirspurn. Að öðru leyti framleiða
samlögin hvert fyrir sitt sölusvæði.
Þórarinn segir að vissulega hafi
starfsmenn mjólkursamlaganna
rætt þessi mál, en segir jafnframt að
sér sé ekki kunnugt um að samein-
ing hafi verið rædd af neinni alvöru
á „æðstu stöðum". Snorri Everts-
son, mjólkursamlagsstjóri Kaupfé-
lags Skagfirðinga á Sauðárkróki,
segir að of snemmt sé að gera hugs-
anlega sameiningu að blaðamáli á
þessum tímapunkti. „Það er ekkert
fyrirhugað en allt opið i sjálfu sér
og við erum að vinna saman í vöra-
þróun,“ sagði Snorri en vildi ekki
tjá sig frekar um þetta mál.
-gk
Jólalandið:
Sýningar
allt árið
Hátt i 20 starfsmenn Jólalandsins
hf. í Hveragerði hafa ekki fengið
greitt fyrir’vinnu sína í desember.
Bjöm G. Björnsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, segir að verið
sé að skoða reksturinn og vinna að
þvi að greiða fólkinu laun. Það tak-
ist á næstu dögum.
DV hefur heimildir fyrir þvi að 10
milljóna króna tap hafl orðið á
rekstri Jólalandsins. Hvorki Bjöm
G. Bjömsson né Helgi Pétursson,
stjórnarformaður Jólalandsins,
vildu staðfesta þá tölu. Báðir sögðu
þeir að 12 þúsund manns hefðu
komið í Jólalandið fyrir jól. Aðsókn
hefði fallið niður eftir jól og því
hefði verið ákveöið að loka staðn-
um.
Hugmyndir eru uppi innan
stjómar Jólalandsins hf. um að hafa
sýningar 'í húsnæði Jólalandsins
allt árið. Helgi segir að til greina
komi að hafa bílasýningar, landbún-
aðarsýningar og starfsemi af ýmsu
tagi í húsinu.
„Maður kaupir ekki píanó til að
spila á það eina helgi heldur fer
maður af stað með hugmynd til að
láta hana ganga allt árið,“ segir
Bjöm.
Fjárhagsútkoma Jólalandsins
kemur í ljós á næstu vikum.
-GHS
Stéttarfélagsfargjöldin
seljast betur
Miklu meiri sala var á stéttarfé-
lagsfargjöldum á vegum Samvinnu-
ferða-Landsýnar á fyrsta degi en á
sama tíma í fyrra. Þannig seldust
598 sæti í gær til allra áfangastaða
Flugleiða sem i boði era en á fyrsta
degi sölu í fyrra, seldust 123 sæti.
Samið var um sölu á 5.000 sætum til
nokkurra áfangastaða Flugleiða á
vegum Orlofsnefndar launþega-
hreyfingarinanr á mun lægra verði
en almennt er í boði.
Gott gengi Karlakórsins Heimis í Skagafirði:
Söngferð til
Kanadaí júní
í sumar
„Við förum 10. júní til Kanada og
verðum hálfan mánuð i förinni. Til
stendur að heimsækja íslendinga-
byggðir og halda fimm eða sex tón-
leika, skipulagið á þeim er ekki end-
anlega ákveðið enn þá,“ sagði Þor-
valdur Óskarsson, formaður Karla-
kórsins Heimis í Skagafirði.
Kórinn fagnar góðu gengi um
þessar mundir. Hann gaf út geisla-
diskinn og snælduna Dísir vorsins í
lok nóvember á síðasta ári og að
sögn Þorvalds hefur salan gengið
frábærlega vel. Um er að ræða
blandað efni, létt lög, óperukóra og
íslensk alþýðulög. Titillagið, Dísir
vorsins, er eftir Bjarka Árnason á
Siglufirði, einnig ljóðið.
„Þetta er heilmikið starf hjá kórn-
um, við æfum tvisvar í viku frá
miðjum október þangað til í apríl.
Svo förum við í tónleikaferðir. Við
sungum til dæmis i Miðgarði 6. jan-
úar sl. fyrir troðfullu húsi, 600
manns komu, svo var dansleikur á
eftir. Helgina 13. og 14. janúar fór-
um við í Eyjafjörðinn og Þingeyjar-
sýslu, syngjum í Freyvangi og Ýdöl-
um,“ sagði Þorvaldur.
Karlakórinn Heimir hefur oft
áður farið utan í tónleikaferðir,
lengstu ferðina fór hann til ísraels
og Egyptalands fyrir sjö áram. Að
sögn Þorvalds eru 60 manns í kórn-
um sem verður 70 ára á næsta ári.
110 manns hafa þegar skráð sig í
Kanadaferðina en makar fara með.
Mikil ásókn er að komast í kór-
inn en ekki eru teknir fleiri inn eins
og er. Þorvaldur sagði að kórinn
hefði á að skipa mörgum einsöngv-
urum, til dæmis Álftagerðisbræðr-
um, þrír þeirra væru í kórnum.
Stjórnandi kórsins er Stefán R.
Karlakórinn Heimir í Skagafirði. Hann á mjög góðu gengi að fagna um þessar mundir. Geisladiskur með söng kórs-
ins, Dísir vorsins, kom út í nóvember síðastliðnum og hefur selst mjög vel. Mikil ásókn er í að komast í kórinn og
komast færri að en vilja.
Pálsson. Þetta er ellefta árið hans
með kórinn, en á því tímabili hefur
hánn tekið sér eitt ár frí. Undirleik-
arar með kórnum eru Thomas Hig-
gerson og Jón St. Gíslason. -ÞK
Einstakt tækifærí!
JEEP WRANGLER,
árg. 1994,
6 cyl., 190 hö., 5 gíra beinsk.
Verð 2.380.000
DODGE RAM VAN 2500,
árg. 1995, V8 5,2, 220 hö„
sjálfsk., blágrænn.
Verð 1.900.000 m7vsk.
Auk þess eigum við 2 stk. Jeep Wrangler 2,5, árg. 1994.
Verð 1.950.000 stk.
ALLIR BÍLAR ERU ÓKEYRÐIR OG MEÐ
1 ÁRS ÁBYRGÐ.
Bílarnir eru til sölu og sýnis að Nýbýlavegi 2 í Kópavogi.
Nánari upplýsingar veita sölumenn.
NOTAÐIR BÍLAR
NYBYLAVEGI2
S: 554-22600/554-2610
Flugfreyja í
Flugleiða-
búningi í
amerískum
sjónvarps-
þætti
„Framleiðendur þáttanna
höfðu samband við Flugleiðir í
Bandaríkjunum og sögðu þeim
frá hugmyndinni að hafa flug-
freyju i þættinum. Við lánuðum
þeim búning okkar þar sem
ákveðið var að þetta væri ágæt
hugmynd," segir Einar Sigurðs-
son, upplýsingafulltrúi Flug-
leiða, um tilurð flugfreyjunnar
Huldu sem klæddist einkennis-
búningi Flugleiða í ameríska
þættinum Bráðavaktinni sem
Sjónvarpið sýnir. Að sögn Ein-
ars er Hulda amerísk leikkona.
„Við litum svo á að þetta
myndi ekki gera okkur neitt
nema gott því merkið okkar
kemst með góðum hætti til skila
í þættinum. Ég sá ekki betur en
Hulda væri farin að renna hýra
auga tO læknisins þannig að við
vitum ekki hvað gerist næst. Ég
treysti því að Hulda standi sig
þarna á spítalanum." -em