Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 8
fréttir
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996
Forsetaframboð:
Folk er enn undir
feldi að hugsa málið
styttist í ákvarðanir hjá nokkrum
Þeir sem ákveðnast hafa verið
nefndir sem hugsanlegir fram-
bjóöendur tii embættis forseta ís-
lands í vor eru enn hikandi og
segjast vera að skoða málin.
„Ég hef verið erlendis um
nokkum tíma og ekki hugsað um
þetta mál. Ég ætla að ræða við
það fólk sem hefur hvatt mig mest
tU að gefa kost á mér áður éh ég
tek endanlega ákvörðun um hvað
ég geri,“ sagði Guðrún Agnars-
dóttir læknir í samtali viö DV.
Séra Pálmi Matthiasson sagði í
samtali við DV eftir skoðana-
könnunina um síðustu helgi að
hann væri ekki búinn aö taka
ákvörðun um hvort hann byði sig
fram. Sér þætti hins vegar gott að
vita af því mikla fylgi sem hann
hefði samkvæmt skoðanakönnun-
inni.
„Ég væri ekki einu sinni að
hugsa um þetta mál ef ég hefði
ekki lofað nokkrum vinum og
kunningjum að skoöa það vand-
lega að gefa kost á mér en það hef-
ur ekkert nýtt gerst í málinu hjá
mér,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, bankastjóri Seðla-
bankans.
PáU Skúlason prófessor sagði í
samtali við Tímann, þegar hann
hélt af landi brott tU fyrirlestra-
halds í Svíþjóð, að hann ætlaði að
nota næstu tvær vikur tU að gera
upp hug sinn í þessu máli.
„Það er aUt óbreytt hjá mér, ég
er bara undir feldi að hugsa mín
mál,“ sagði EUert B. Schram, for-
seti ÍSÍ, þegar DV ræddi við hann
i gær.
Verið er að safna undirskrift-
um um að skora á Njörð P. Njarð-
vík prófessor að gefa kost á sér.
Hann gefur lítið út á það en sagði
í samtali við DV að hann gæti
ekki bannað fólki að skora á sig.
Þá er einnig verið að safha und-
irskriftum um að skora á Pétur
Kr. Hafstein hæstaréttardómara
að gefa kost á sér en hann hefur
tU þessa lítið gefið út á þessi mál
en mun þó ekki hafa aftekiö að
skoða málið.
Samkvæmt heimUdum DV hef-
ur heldur dregið úr lUcum á því
að Davíð Oddsson forsætisráö-
herra fari í forsetaframboð.
Ekki náðist í Ólaf Ragnar
Grímsson vegna þessa máls í gær
en hann var þá á leiðinni tU
landsins. Samkvæmt heimUdum
er hann enn að velta þessum mái-
um fyrir sér. -S.dór
Floskuskeyti fra
Nýfundnalandi
— rak upp viö Grindavík
DV, Suðurnesjum:
„Ég sendi honum bréf og sagði
honum hvar ég hefði fundið flösku-
skeytið. Hann skrifaði mér strax og
sagðist mjög hissa á því hve flösku-
skeytið hefði rekið langa leið. Þetta
var eina flaskan sem hann kastaði í
sjóinn," sagði Sævar Ásgeirsson,
tvítugur sjómaður í Grindavík, í
samtali við DV.
Sævar fann flöskuskeytið í fjör-
unni austan við ísólfsskála í
Grindavík þegar hann var á göngu
þar nýlega. Hollenskur sjómaður á
stóru olíuflutningaskipi henti flösk-
unni í sjóinn 25. október í fyrra þeg-
ar skipið var 300 mílur austur af
Nýfundnalandi. Skeytið var í stórri
plastflösku og brætt fyrir opið. Hol-
lendingurinn teiknaði á skeytið ná-
kvæmlega hvar hann kastaði því í
sjóinn og lét nafn og heimilsfang
fýlgja. Bað hann finnanda að senda
sér bréf.
„Ég vissi fyrst ekki hvað þetta
var en það vakti áhuga minn að
búið var að bræða fyrir opið. Flask-
an hafði greinilega í nokkurn tíma
verið að kastast til í fjöruborðinu.
Ég sendi Hollendingnum bréf svona
fyrir forvitni sakir. Ég teiknaði
staðinn þar sem ég fann skeytið.
Hann svaraði og biður mig að skrifa
sér og ég reikna með að gera það,“
sagði Sævar. -ÆMK
Sævar með kortið úr flöskuskeytinu.
DV-mynd ÆMK
Fj ár málaráöuney tið:
Bæklingur til allra ríkisstarfsmanna
Fjármálaráðuneytið hefur gefið út
bækling sem dreift verður til allra
starfsmanna ríkisins þar sem frum-
varp fjármálaráðherra um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins er skýrt
frá sjónarhóli ráðuneytisins. Það er
einmitt þetta frumvarp sem opinberir
starfsmenn eru að berjast gegn um
þessar mundir.
í bæklingum er fúllyrt að þetta
frumvarþ „skerði ekki að neinu leyti
réttindi starfsmanna sem samið hefur
verið um í kjarasamningum," eins og
segir orörétt. Þá segir að í frumvarp-
inu séu ýmis nýmæli sem eigi að
stuðla að því að færa ríkisreksturinn í
nútímalegra horf.
Þá segir orðrétt um markmið frum-
varpsins. „Að jafna réttarstöðu ríkis-
starfsmanna og starfsmanna á al-
mennum markaði. Að auka sjálfstæði
en um leið ábyrgð forstöðumanna og
annarra starfsmanna ríkisstofnana.
Að gefa starfsfólki tækifæri til aö vera
launað til viðbótar grunnlaunum eftir
ábyrgð og hæfni í starfi. Að færa ýmis
ákvæði laganna frá 1954, eins og
vinnutíma, í nútimalegra horf.“
Síðan er kafli sem heitir Sagt er-
Rétt er. Þar er verið að svara því sem
forystumenn samtaka opinberra
starfsmanna hafa haldið fram í gagn-
rýni sinni á frumvarpið.
-S.dór
Hér er verið að bera bruggtækin út úr verksmiðjunni.
DV-mynd S
Kópavogur:
Bruggverksmiðju lokað
Bruggverksmiðju í stærra lagi var
lokað í iðnaðarhverfi í austurbæn-
um í Kópavogi um miðjan dag í gær.
Þar fundust um 300 lítrar af gambra
og hátt á annan tug lítra af landa.
Tveir menn voru á staðnum þegar
lögregla kom á staðinn, enda suða í
fullum gangi, og játuðu þeir að vera
eigendur að verksmiðjunni.
Að sögn Magnúsar Einarssonar,
yfirlögregluþjóns í Kópavogi, var
það í góðri samvinnu við fíkniefna-
deild lögreglu'nnar í Reykjavík að
lögreglan í Kópavogi fór á staðinn.
-ÞK
Þetta er leiftursókn
gegn samtökum okkar
- segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, um bækling sem fjármálaráðuneytið hefur gefið út
Samtök opinberra starfsmanna
hafa nú haldið á annað hundrað
vinnustaðafundi sem yfir 10 þúsund
manns hefur tekið þátt í. Fjármála-
ráðuneytið hefur brugðist við her-
ferð samtaka opinberra starfs-
manna með því að gefa út bækling
um málið sem sendur er til allra op-
inberra starfsmanna. Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, var innt-
ur álits á bæklingnum
„Fjármálaráðuneytið hefur hafið
leiftursókn gegn opinberum starfs-
mönnum með þessum bæklingi. Út-
gáfa hans væri góðra gjalda verð ef
um réttar og óhlutdrægar upplýs-
ingar væri að ræða en því fer fjarri.
Reyndar eru fullyrðingar fjármála-
ráðuneytisins á þann veg að samtök
launafólks fari með rangt mál. Það
verður að segjast eins og er að hér
byggir fjármálaráðuneytið á ótrú-
lega ósvífnum málatilbúnaði. En
sem betur fer er fólk farið að þekkja
raunverulega málavöxtu, það er ár-
angur okkar starfs að undanförnu
og þvi skiptir minna máli hvað
stendur á glanspappírnum úr fjár-
málaráðuneytinu," sagði Ögmund-
ur.
Hann segir að í lögum um rétt-
indi og skyldur opinberra starfs-
manna sé kveðið á um margvísleg
réttindi sem óumdeilt hefur verið
að sé grunnur kjarasamninga um
áratugaskeið.
„Breytingar á þessum réttindum
og kjörum eru þess vegna forsendur
kjarasamninga, hvað svo sem líður
fullyrðingum fjármálaráðuneytisins
í gagnstæða átt. Við höfum hvatt
okkar félagsmenn til þess að kynna
sér frumvörp ríkisstjórnarinnar,
lesa þau vel og bera saman við þau
lög og þær reglur sem nú eru í gildi.
Út á þetta hafa okkar vinnustaða-
fundir gengið en þeir eru nú orðnir
á annað hundrað og yfir 10 þúsund
manns sem hafa sótt þá,“ sagði Ög-
mundur.
Hann sagði að samtök opinberra
starfsmanna væru ekki hætt bar-
áttu sinni. Hún mundi halda áfram
og fleiri fundir yrðu haldnir. Síðan
er að koma út annað blað sem öll
samtök starfsmanna hjá ríkinu
standa að.
„Á okkur er engan bilbug að
finna nema síður sé. Það er að koma
í ljós á þeim vinnustaðafundum sem
við höfum haldið að eftir því sem
fólk kynnir sér málin betur vex
reiði þess í garð þessara frumvarpa
sem skerða munu kjör okkar verði
þau samþykkt," sagði Ögmundur
Jónasson. -S.dór