Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996 13 "V"
Mánudagurinn 4. mars hófst á
hefðbundinn hátt með því að út-
varpið hrökk í gang kl. 6.45 og þul-
urinn á rás 1 gaf Veðurstofunni
orðið. Að venju var ég of syfjuð til
að taka eftir því hverju veðurguð-
irnir höfðu úthlutað okkur fyrir
daginn en ýtti við eiginmanninum
til að vekja hann og naut þæginda-
tilfinningar af því að finna hann
við hlið mér.
Hárþurrkun og snyrting
Ekki dugði að lúra. Á fætur,
taka vítamín og drekka tvö glös af
vatni áður en haldið var í hina
daglegu sundlaugarferð. Þótt það
rigndi dálítið hafði hlýnað svo i
veðri að ég lét mig hafa það að fara
Dagur í lífi Lilju Ólafsdóttur, forstjóra SVR:
hafa sameiginlegt tölvupóstkerfi
svo skjölin eru send beint á milli.
Sextugsafmæli
Starfsemi SVR er skipt í þrjú
svið og kl. þrjú var vikulegur fund-
ur með forstöðumönnum svið-
anna. Á þessum fundum ræðum
við og tökum ákvarðanir um
stefnumarkandi og stærri mál sem
taka þarf afstöðu til í fyrirtækinu.
Fundurinn stóð til kl. fimm og ég
hafði því tíma til að skreppa heim
og skipta um fot áður en ég fór í
sextugsafmæli ágætrar samstarfs-
konu kl. sex. Þar var fjöldi gesta og
rausnarlegar veitingar. Timinn
leið hratt í góðra vina hópi og fyrr
en varði var kominn tími til að
Vítamín, vatn og sundlaugarferð
i útiklefann, en við það hef ég ver-
ið löt í vetur. Sundiö var hressandi
en í pottinum var fremur fátt af
fastagestum, aðeins Ásgerður og
Kristín auk okkar. Sundlaugar-
ferðin er ómissandi þáttur í dag-
lega lífinu. Það er ekki síst félags-
legi þátturinn sem skiptir máli í
því sambandi. Allt fer eftir vissum
reglum, jafnvel umræðuefnið í
pottinum er á ákveðnum nótum.
Inni hittast sömu konurnar við
hárþurrkun og snyrtingu á hverj-
um morgni og þar er ákveðinn
andblær samkenndar og vináttu.
Venjulega lít ég lauslega yfir
blöðin þegar ég kem í vinnuna. Á
mánudögum er DV blað morguns-
ins en það vantaði, hafði ekki ver-
ið borið út til okkar hjá SVR. Smá-
vegis morgunhressing og spjall við
samstarfsmenn um níuleytið er
eitt af því sem gefur lífinu gildi og
menn litu hressir inn frá vinnu
sinni á verkstæðinu þennan morg-
un sem endranær.
Pappírsflóð
Fram eftir morgni afgreiddi ég
nokkur símtöl við aðila sem ósk-
uðu að bjóða fram þjónustu sína á
ýmsum sviðum og viðskiptavinur
hringdi til að ræða þjónustu SVR.
Stjórnarfundur SVR er annan
hvem mánudag klukkan 11. í þetta
sinn var mikið af pappírum sem
þurfti að láta ljósrita og ganga frá
fyrir fundinn. Síðan í byrjun ní-
unda áratugarins hefur mikið ver-
ið rætt og ritað (á pappír) um hið
pappírslausa tölvuþjóðfélag en því
miður er það enn framtíðarsýn að
miklu leyti. Spurning hvenær það
stig næst í umhverfisvemd að við
hættum að eyða skógunum á þenn-
an hátt.
Meðal efnis á stjórnarfundinum
var umræða um leiðakerfisbreyt-
ingamar sem fram undan eru. Ný-
lokið er almennum kynningar-
fundum á hinum fyrirhuguðu
breytingum og hijóðið gott í stjórn-
armönnum eftir fundina og þau já-
kvæðu viðbrögð sem viðskiptavin-
ir sýndu þeim úrbótum sem stend-
ur tU að gera á þjónustunni um
mánaðamótin júlí-ágúst.
Stjórnarfundinum lauk um kl.
eitt. Þá lágu ýmis mál fyrir sem
þurfti að afgreiða. Verið er að und-
irbúa úrbætur á skiptistöð á Lækj-
artorgi og tU stendur að koma upp
nýrri skiptistöð í Ártúni sem á að
þjóna Grafarvogs- og Árbæjar-
hverfum. Ganga þurfti frá
nokkrum atriðum í sambandi við
þessar skiptistöðvar og senda
Borgarskipulagi, en þar er nú unn-
ið að hönnun þeirra. Það kemur
sér vel að stofnanir borgarinnar
halda heim á leið.
Ég rétt náði í lokin á sjónvarps-
fréttunum og við hjónin spjöUuð-
um saman dálitla stund áður en
farið var að ganga frá þvottinum
frá helginni. Kettirnir tveir höfðu
lítinn áhuga á félagsskap okkar
þetta kvöld, enda hálfgerður vor-
blær í lofti og meira gaman að
vera úti. Tengdadóttirin leit inn
smástund og svo voru nokkur sím-
töl við nána ættingja. Sem sagt,
sérlega rólegt og afslappað kvöld.
Það tókst að komast í rúmið á
skikkanlegum tíma og lesa dálítið
fyrir svefninn sem lét ekki á sér
standa þegar ljósið var slökkt.
Finnur þú fimm breytingar? 349
Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í Ijós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á mynd-
inni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegaranna.
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fertugustu og
sjöundu getraun reyndust vera:
1. Sigrún Bjarna
Hrauntún 73
900 Vestmannaeyjum
2. Stefán Ólafsson
Hrefnugötu 1
105 Reykjavík
Myndirnar tvær virðast
við fyrstu sýn eins en þeg-
ar betur er að gáð kemur í
ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriöi skaltu
merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilis-
fangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
ELTA útvarpsvekjari aö verðmæti kr.
4.275, frá Bræðrunum Ormsson, Lág-
múla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fxmm breytingar? 349
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík