Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 30
30
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996
„Það er ekkert í þessu myndbandi sem ekki hefur sést áður í Sorbitsauglýsingu, Flugleiðaauglýsingunni nýju,
Baywatch-þáttunum eða hverju öðru gagnkynhneigðu sjónvarpsefni," segir Páll Óskar Hjálmtýsson.
Hver á að fara með þér til A,
í tilefni af afmæli MfiSÆSbjóða l og
í skemmtilegan leik með góðum verðlaunum.
Svaraðu þremur léttum spurningum og sendu til DV og þú ræður
hverjum þú býður með þér til Kaupmannahafnar.
Glæsileg verðlaun eru í boði; Tveir þátttakendur fá
flugferð fyrir tvo með SAS til Kaupmannahafnar.
Verðmæti hvors virmínfifs er 72*200
•ö* ^
MVerktu v/ð rétt syðt-
Hvar er Kaupmannahöfn höfuðborg:
QDanmörku Þýskalandi □svíþjóð
Merktu við þekktan skemmtigarð í Kaupmannahöfn
djEuro-Disney □seaworld Tívolí
Hvaða afmæli heldur SAS upp á í ár?
□ 50 ára [ j25 ára ÍTTl 75 ára
2.
Sendandi:
Heimilisfang:_
Sveitarfélag:_
Sími:
Sendu svörin til DV, Pverholti II, 105 Revkjavík, merkt FERÐAGETRAUN, fyrir föstudaginn 15. mars.
Tllkynnt verður um vinningsnafa í blaðauka um ferðir laugardaginn 23. mars
Þú getur sparað þér sporin og tekið þátt í leiknum með því að hringja
í síma 904 1750 og svara spurningunum hér að ofan. Þú hringir,
svarar spurningunum með tökkunum á símanum, lest inn nafn,
heimilisfang og síma og ert þar með komin(n) í vinningspottinn.
Einfalt og þægilegt. Verð 39 og 90 mínútan.
904 1750 m/StS
Páll Óskar hristir upp í landanum
með djörfu myndbandi:
- segir söngvari ársins
sem hár svarar fyrir sig fullum hálsi
„Það að myndbandi mínu er hafn-
að er ekkert annað en misréttismál
vegna kynhneigðar minnar. Ef þetta
myndband fær ekki sömu með-
höndlun og öll önnur myndbönd
sem berast inn á borð sjónvarps-
stöðvanna mun ég skilyrðislaust
fara í mál og ég mun vinna það mál,
það er alveg deginum ljósara," segir
Páll Óskar Hjálmtýsson sem er víg-
reifur þessa dagana.
Myndband Páls Óskars við lagið
„Making Love“ á síðustu plötunni
hans hefur valdið miklum taugatitr-
ingi vegna þess að þar sjást tveir
karlmenn í innilegum ástarsenum.
Allar sjónvarpsstöðvar landsins
hafa neitað að sýna myndbandið í
sinni upprunalegu útgáfu en þó er
útlit fyrir að „mýkri“ útgáfu þess
verði varpað inn í stofur almenn-
ings fljótlega.
Nuddar kremi á rassinn
Myndbandið sýnir Pál Óskar og
annan karlmann láta vel hvor að
öðrum. Þeir eru á gangi saman um
götur Parísarborgar, vaska upp
saman, liggja í kuðli uppi í rúmi að
horfa á sjónvarpið og kyssast djúpt
og innilega. Það sem hefur hins veg-
ar farið fyrir brjóstið á mörgum er
atriði þar sem Páil Óskar dregur
niður nærbuxur hins mannsins, set-
ur krem á rassinn á honum og
nuddar og strýkur.
„Eina tilfelliö sem ég veit um að
fyrsta útgáfa myndbandsins hafi
verið sýnt var á Sýn. Strax daginn
eftir hringdu forráðamenn Stöðvar
2 og Sýnar með miklu drama upp í
Japis sem er dreifíngaraðili plöt-
unnar minnar. Þar vissi fólk ekki
hvaðan á sig stóð veðriö því enginn
vissi einu sinni að ég var að gera
vídeó. Þá hafði fullt af fólki hringt
alveg brjálað á Stöð 2 og hótað að
segja upp áskrift ef myndbandið
yrði sýnt áfrarn," segir Páfl Óskar.
Hann segist hafa viljað forðast að
gera eitthvert hneykslismál úr
þessu og ákveðið að fara málamiðl-
unarleiðina í staðinn.
Skrapaði
þjóhnappasenurnar burt
„Ég fór því aftur inn í klippistúd-
íóið og skrapaði burt þessar
ákveðnu þjóhnappasenur sem sáust
í upprunalegu útgáfunni og lét
myndbandið aftur í dreifingu. Eftir
stendur myndband þar sem ekki
sést neitt sem ekki hefur sést áður í
Sorbitsauglýsingu, Flugleiðaauglýs-
ingunni nýju, Diet-kók auglýsingun-
um, Baywatch-þáttunum sem eru
sýndir klukkan 18.30 á hverjum
laugardegi fyrir börn og unglinga
eða hverju öðru gagnkynhneigðu
sjónvarpsefni sem flæðir yfir mig á
hverjum degi. Stöð 2 og Sýn eru
búnar að gefa jákvætt svar og ætla
að sýna nýju útgáfuna af mynd-
bandinu. Stöð 3 vill ekki sýna hana
fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjár vikur
vegna þess að hún er að fylgja ein-
hverju fjölskylduþema og RÚV er
ennþá að hugsa sinn gang,“ segir
Páfl Óskar sem er harðákveðinn í