Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996
51
ísland apf*"'
—= plötur og diskar —----
t 1. (- ) Grammy Nominees 1996
Ýmsir
I 2.(7) Jagged Little Pill
Alanis Morrisette
t 3. ( 4 ) Presidents of the United States...
Presidents of the United States...
I 4. (1 ) Life
Cardigans
f' 5. ( 3 ) Murder Ballads
Nick Cave and the Bad Seeds
( 6. ( 2 ) Croufie d'oú lá
Emilíana Torrini
t 7. ( 6 ) The Bends
Radiohead
( 8.(5) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
| 9. ( 9 ) Melon Collie and the Infinite ...
Smashing Pumpkins
f 10. ( 8 ) Boys for Pele
Tori Amos
111. (19) Gangsta's Paradise
Coolio
112. (14) The Memory of Trees
Enya
( 13. (10) Different Class
Pulp
#14. (11) The Boy with the X-Ray Eyes
Babylon Zoo
115. (15) Love Songs
Elton John
# 16. (12) Waiting to Exhale
Úr kvikmynd
117. (Al) Crazysexycool
TLC
118. (- ) Paranoid and Sunburned
Skunk Anansie
Ít 19. (- ) Second toughest
Underworld
120. (Al) Glinggló
Björk & Tríó Guðmundar Ingólfss.
London
t 1. (- ) How Deep Is Your Love
Take That
# 2. (1 ) Don't Look back In Anger
Oasis
# 3. ( 2 ) Children
Robert Miles
t 4. (- ) Coming Home now
Boyzone
t 5. (- ) Going out
Supergrass
t 6. (- ) Passion
Gat Decor
# 7. ( 3 ) Anything
3T
t 8. (- ) Good Thing
Eternal
# 9. ( 6 ) I Wanna Be a Hippy
Technohead
# 10. (7 ) I Got 5 on It
Luniz
New York
| 1.(1) One Sweet Day
Mariah Carey & Boyz II Men
t 2. ( 3 ) Sittin' up In My Room
Brandy
# 3. ( 2 ) Not Gon’ Cry
Mary J. Blige
| 4. ( 4 ) Nobody Knows
The Tony Rich Project
| 5. ( 5 ) Missing
Everything but the Girt
| 6. ( 6 ) Be My Lover
La Bouche
t 7. ( 9 ) One of Us
Joan Osbourne
t 8. (12) Wonderwall
Oasis
t 9. (10) Follow You down
Gin Blossoms
t 10. (22) Down Low (Nobody Has to Now)
R. Kelly Featuring Ronald Isley
t 1.(1) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
| 2. ( 2 ) Jagged Little Pill
Alanis Morrísette
t 3. ( 3 ) Bizarre Fruit/Bizarre Fruit II
M People
t 4. (- ) Roots
SepuHura
t 5. (- ) Relish
Joan Osboume
# 6. ( 4 ) Expecting to Ry
Bluetones
| 7. ( 7 ) Stanley Road
Paul Weller
# 8. ( 5 ) Different Class
Pulp
t 9. (11) Ufe
Simply Red
# 10. ( 9 ) Definitely Maybe
Oasis
Bandaríkin
I 1. (1 ) All Eyez on Me
2 Pac
| 2. ( 2 ) Jagged Little Pill
Alanis Morrisette
| 3. ( 3 ) Waiting to Exhale
Úr kvikmynd
| 4. ( 4 ) Daydream
Mariah Carey
| 5. ( 5 ) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
t 6. (11) The Presidents of the United...
The Presidents of the United...
t 7. (12) Score
Fugees
# 8. ( 6 ) The Woman in Me
Shania Twain
# 9. ( 8 ) Sixteen Stone
Bush
#10. ( 9 ) Revelations
Wynonna
- tónleikar í Laugardalshöllinni eftir viku
Nú eru liðnir tæpir átta mánuðir
síðan hljómsveitin The Prodigy spil-
aði á tónlistarhátíðinni Uxa hér á
íslandi og hún er að koma aftur.
Laugardaginn 16. mars nk. heldur
hljómsveitin tónleika í Laugardals-
höllinni og tveim dögum síðar kem-
ur fyrsta smáskifan af nýju plötunni
hennar út í Bretlandi (sem við hér á
íslandi fáum vonandi fyrr). Ef
hljómsveitir sem koma hingað einu
sinni eru nefhdar íslandsvinir, hvað
er þá hægt að segja um The
Prodigy?
Stórmerki; undur
Samkvæmt ensk-íslenskri orða-
bók þýðir orðið prodigy: 1. teikn,
stórmerki; undur, furða 2. furðu-
verk; undravert verk (á tilteknu
sviði) 3. e-r sem hefur frábærar gáf-
ur eða getu 4. viðundur. Svo getur
hver valið fyrir sig.
Hvað sem nafnið annars þýðir er
víst að The Prodigy er eitt alstærsta
nafnið í dansbransanum í dag. Vel-
gengni hennar hófst árið 1991 með
útgáfu 12” EP-plötunnar „What Evil
Lurks“. Platan er talin klassísk í
breska danstónlistargeiranum og
hefur orðið söfnurum eftirsótt í
seinni tíö. í kringum vinsældir
þessarar fyrstu plötu í dansklúbb-
um Bretlands myndaðist harður
kjarni aðdáenda The Prodigy sem
haldið hefur sveitinni upptekinni
allar götur síðan.
Önnur útgáfa sveitarinnar var
einnig smáskífa. Lagið hét Charly
og náði gífurlegum vinsældum, fór
meðal annars í fyrsta sætið á dans-
listanum og þriðja sætið á Gallup-
listanum. Á þeim tíma var þetta
langvinsælasta dans- eða raveplatan
sem komið hafði út og náði ekkert
lag af þessari tegund að feta í
fótsporin á næstu misserum.
Snjóbretti
„Allt sem ég (fúckin’) geri þessa
dagana er að semja tónlist, spila á
tónleikum, vera á snjóbretti og aka
bílunum mínum mjög hratt.“ Liam
Howlett, The .Prodigy, November
1995.
Maðurinn á bak við The Prodigy
heitir Liam Howlett. Hann sér um
og semur alla tónlistina. Þegar á
tónleika er komið hafa þrír aðrir
meðlimir bæst við, en þeir eru dans-
aramir Leon Thomhill og Keith
Flint og rapparinn Maxim Reality.
Allir eru þeir adrenalínfiklar og
líkja meðal annars fallhlífarstökki
og snjóbrettaiðkun viö tónleikahald
sitt. Því meira sem þeir leggja í tón-
leikana, þvi meira fá þeir út úr
þeim.
Liam var áður plötusnúður en
tónlistargrunnur hans liggur í
klassísku píanónámi. Sem plötu-
snúður vann hann meö röppumm.
En rappviðmótið þreytti hann
þannig að hann sagði skilið við
þann heim og sneri sér að danstón-
listinni sem á þessum tíma (um
1990) snerist um heim hippanna, ást
og frið, að viðbættri alsælunni.
Liam skapaði sér strax mjög per-
sónulegan stíl þar sem hann bland-
aði hip-hop bítum saman við house-
tónlistina.
Þriðja útgáfa The Prodigy á árinu
1991 var smáskífan „Everybody in
the Place“. Platan náði jafnvel enn
meiri vinsældum en „Charly". Þó
leið tæpt ár fram að næstu útgáfu
hljómsveitarinnar, laginu „Fire“
sem var fylgt eftir með breiðskíf-
unni „The Prodigy Experience"
nokkmm dögum síðar. Breiðskífan
náði ellefta sætinu 1 Bretlandi og
hékk á lista í sex mánuði.
Njrvana-áhrifin
í lok tónleikaferðar The Prodigy
árið 1992 var Nirvana-platan
„Nevermind" í miklu uppáhaldi hjá
Liam. Hann minnist þess að vakna
og segja viö sjálfan sig.ég verð
að gera meiri tilraunir".
Útkoman úr þessum hugrenning-
um var breiðskífan „Music For The
Jilted Generation" sem kom út 4.
júlí 1994. Platan var sambland af
breakbeat, gítar og techno og náði • -
gífurlegum vinsældum og má meðal
annars þakka velgengni laganna No
Good (start the dance), Voodoo
People og Poison fyrir.
Ef við miðum við sögu sveitarinn-
ar, sem ann íslandi mikið, er við
miklu aö búast nú í maí. Hverju
verður bryddað upp á? Kemur nýr
hljómur? Svör við þessum spurning-
um fást í maí þegar breiðskífan
kemur út. Forsmekkinn verður hins
vegar að frnna á tónleikunum í Höll-
inni um næstu helgi (en þess má
geta að forsalan hófst í byrjun vik-
unnar) og að sjálfsögðu hlakka allir
til að heyra nýjustu smáskífuna,
„Firestarter".
GBG
Cocker, forspi
idtekinn eftir aö hafa ruðst
kson á Brot-verðlaunahát
le, hljómborðsleikari Pulp,
sýna andúð sína á uppi
(i var í einhvers konar fi
aö hann hafi ekki staðist