Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 18. MARS 1996
Fréttir
Flugvélin er af gerðinni Britain Norman Islander BN-2, tveggja hreyfla, og var í eigu Bandaríkjamanna T Wisconsin þangað sem ferðinni var heitið. Flugið stóð þó stutt og þykir kraftaverki líkast að
flugstjóri vélarinnar, 67 ára kona, skuli hafa sloppið lífs þar sem vinstri hreyfillinn gekk inn í flugstjórnarklefann og vélin var hlaðin eldsneyti. DV-mynd ÆMK
67 ára kona bjargast er ferjuvél sem hún flaug brotlenti við Njarðvík:
Héldum að hún væri dáin
- sögðu þeir sem fyrstir komu að konunni meðvitundarlausri
„Fyrst þegar við komum að vél-
inni héldum við að hún væri dáin
því hún var blóðug í framan og
hreyfði sig ekkert. Þegar við kölluð-
um til hennar þá hreyfði hún höfuð-
ið. Hún var í losti og við reyndum
að róa hana. Viðbrögð okkar ein-
kenndust af því sem við höfum lært
í vinnu okkar. Maður á ekki til orð
yfir að hún skuli sleppa ómeidd.
Okkar hugsun var að bjarga manns-
lífi þó að við höfum sett okkur sjálfa
í hættu," sagði Ólafur Eggertsson,
slökkviliðsmaður á Keflavíkurflug-
velli, sem fyrstur kom á vettvang
þar sem Britain Norman Islander
flugvél með eina konu innanborðs
brotlenti skammt austur af byggð-
inni í Innri- Njarðvík laust eftir há-
degi í gær. Með Ólafi í för var Ró-
bert Tómasson.
Flugvélin var í ferjuflugi á leið
vestur um haf og var flugstjórinn,
67" ára kona, atvinnuflugmaður til
margra ára, ein um borð í vélinni.
Hún kom hingað frá London með
vélina fyrir um 10 dögum og beið
hagstæðra veðurskilyrða þar til í
gær að hún lagði upp frá Reykjavík-
urflugvelli um hádegi í gær. Að
sögn Skúla Jóns Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra flugslysarann-
sóknardeildar flugmálastjórnar,
mun flugstjórinn hafa verið með
GPS-staðarákvörðunartæki ofan á
mælaborðinu og það dottið í gólfið
og aftur í vél þannig að hann náði
ekki til þess úr sæti sínu. Hún mun
því hafa æskt leyfis að lenda á
Keflavíkurflugvelli og var á leið
þangað til að lenda á norður-suður-
braut úr norðri. Á leiðinni í aðflug
drapst á hægri hreyfli vélarinnar og
náði konan ekki að fjaðra skrúfu
hreyfilsins og tapaði vélin því hæð
með þeim afleiðingum að hún nauð-
lenti í staksteinóttum móa skammt
austur af hesthúsahverfinu í Innri-
Njarðvik.
Töldum engan lífs
„Við vorum að drekka kaffi þegar
við sáum úr eldhúsglugganum vél-
ina koma. Hún flaug óvenju lágt.
Það var auðséð að það voru ein-
hverjir erfiðleikar á ferðinni. Ég
veit ekki hvort hún ætlaði að ná inn
á veginn eða sveigja frá byggðinni
því hún beygði rétt áður en hún
skall niður. Það fór um okkur því
maður býst ekki við að nokkur
komist lífs af úr svona löguðu. Við
vorum alveg orðlaus fyrst,“ sögðu
hjónin Ómar Pálsson og Súsanna
Gunnarsdóttir, íbúar að Kópubraut
2 í Njarðvík, sem urðu vitni að því
þegar vélin brotlenti nokkrum tug-
um metra fyrir ofan hús þeirra.
„Það sem vildi henni til lífs er að
hún kastaðist fram við það að vélin
stoppaði. Hreyflarnir eru á væng-
brúnunum til hliðar við flugmann-
inn og við lendinguna skekktist
vinstri hreyfillinn þannig að hann
gekk inn í stjórnklefann og blöðin
skárust inn í sætið á milli hennar
og sætisbaksins," segir Skúli Jón.
Flugvélin var fulllestuð eldsneyti.
Hafði flugþol til 12 tíma en 7 tíma
flug er til Nassarsuaq þangað sem
ferðinni var heitið. Mikið eldsneyti
flaut því um slysstaðinn og vélina.
Ólafur og Róbert rufu hins vegar
strauminn af vélinni og huguðu að
konunni í fyrstu þar til sjúkraflutn-
ingamenn og slökkvliðsmenn á vakt
komu á vettvang.
Konan var flutt í sjúkrahús í
Keflavík til skoðunar en hleypt til
skýrslutöku á eftir en hún var þó
greinilega eftir sig eftir atburðinn
því hún var undir kvöld flutt á
Landspítala þar sem hún var rann-
sökuð frekar. Engar upplýsingar
fengust um líðan hennar þar.
Skúli Jón segir flugvélina hafa
verið flutta á Keflavíkurflugvöll þar
sem áfram verði unnið að rannsókn
þess hvað út af bar og olli því að
drapst á hreyflinum. Of snemmt sé
að segja hvað því olli en rannsókn
hófst nú í morgunsárið. -ÆMK/pp
Stuttar fréttir
Björgunaræfing Landsbjargar á miðhálendinu:
350 manns á
130 farartækjum
„Það er lítill snjór á hálendinu
miðað við árstíma og það urðu
minni erfiðleikar við að halda æf-
inguna en við áttum von á. Að vísu
festust nokkrir bílar í krapi en þetta
voru allt smávægileg vandamál og
þegar á allt er litið gekk æfingin
vel,“ segir Pétur Aðalsteinsson,
starfsmaður Landsbjargar, ' um
björgunaræfingu sem haldin var á
miðhálendinu um helgina.
Þangað var stefnt um 350 manns á
40 bílum, 12 snjóbílum og 80 vélsleð-
um. Landsbjörg hélt æfinguna í
samvinnu við fjórar björgunarsveit-
ir á Suðurlandi og var sveitum af
öllu landinu boðin þátttaka. Félagar
úr 28 sveitum mættu til leiks.
Æfðar voru allar tegundir fjalla-
björgunar víðs vegar á hálendinu og
að lokum komið saman í skálanum
í Nýjadal. -GK
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já _lj
Nel 2j
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
Finnst þér Spaugstofan
klámfengin?
Landsbjörg hélt æfinguna í samvinnu við fjórar björgunarsveitir á Suður-
landi og var sveitum af öllu landinu boðin þátttaka. DV-mynd Pétur
Ríkið selur
Fjármálaráðherra hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp til að
afla heimilda fyrir hann að
fækka embættisbústöðum í eigu
ríkisins og að miða húsaleigu
þeirra við markaðsverð. Um er
að ræða 120 til 130 íbúðir eða
hús sem á að selja og er söluand-
virðið um 900 milljónir króna.
Góð kirkjusókn
Mikil kirkjusókn var í Lang-
holtskirkju við messu hjá séra
Flóka Kristinssyni í gær. Þetta
þótti koma á óvart í ljósi þess að
um 40 prósent sóknarbarna
höfðu skrifað undir áskorun um
að séra Flóki verði settur af.
Vilja flytja
Þær miklu deilur sem uppi
eru um Borgarfjarðarbraut hafa
orðið til þess að nokkrir ibúar
hafa hugleitt að flytja á brott úr
sveitinni.
ísaQörður:
Brotist inn í
Sundhöllina
Brotist var inn í Sundhöllina á
Isafirði í gærmorgun og stolið það-
an skiptimynt. Litlar skemmdir
voru unnar á húsnæðinu utan þess
að rúða var brotin. Enginn hafði
verið handtekinn i gærdag vegna
málsins. -np