Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 18. MARS 1996 Spurningin Hve oft borðar þú á dag? Eyjólfur Örn Jónsson nemi: Kvöldmat og morgunmat og stund- um hádegismat. Lovísa Björg Einarsdóttir nemi: Svona þrisvar. Ann Mikkelsen röntgentæknir: Þrisvar til fjórum sinnum, einu sinni heita máltíö. Jóhanna Gunnarsdóttir nemi: Svona Qórum sinnum. Ingibjörg Gunnarsdóttir nemi: Ég er alltaf borðandi. Sesselja Jónsdóttir nemi: Svona þrisvar á dag, eða þegar maður er svangur. Lesendur__________ Klerkar og kristindómur Guðrún Kristjánsd. skrifar: Áður fyrr tíðkaðist hér á landi að bannfæra fólk. Gilti þá einu hvort viðkomandi hafði eitthvað til saka unnið eða einungis haft sjálfstæðar skoðanir andstæðar hugmyndum hiskupa landsins. Látum hugann reika um spjöld íslandssögunnar og stöldrum við í byrjun 16. aldar: „Skálholtsbiskup lætur dæma Bjöm í Ögri dauðan. Stefán Jónsson biskup hyggur gott til bráðar á Vestfjörðum er Bjöm í Ögri er fall- inn frá. Biskup hefur látið presta sína kveða upp þunga dóma sem horfa til mikillar fjárupptöku yfir Birni dauðum á prestastefnu í Skál- holti. Gengu þessir dómar að ekkju Björns og bömum þeirra, að þeim fjarverandi og án málsvarnar af þeirra hálfu. Ragnhildur Bjarna- dóttir, ekkja Björns í Ögri, hefur ekki bolmagn til að etja kappi við biskupsvaldið.“ Það líða tæplega 500 ár. Aldamót- in 2000 nálgast. Biskupinn yfir ís- landi er borinn þeim sökum að hafa áreitt tilteknar konur kynferðislega. Biskupinn fær sér til aðstoðar lög- mann, sérfræðing í mannréttinda- málum. Lögmaðurinn tekur málið föstum tökum á þeim forsendum að hver maður sé saklaus uns sekt er sönnuð. Yfirlýsing kemur frá pari (sem á að hafa hitt biskup í Kaupmanna- höfn) um að þau hafi náð sáttum við þjóðkirkjuna en framburðurinn var ekki dreginn til baka. Prófastar lýsa yfir fullum stuðningi við biskup og dæma þar með konurnar án dóms og laga. Gangur mála og þær aðferð- ir sem lögmaður biskups notar eru orðnar óþægilega líkar aðferðunum sem tíðkuðust hér á miðöldum. Lögmaður biskups setur nú fram ásakanir á blaðamenn um að flytja vísvitandi rangar fréttir af málefn- um biskups. Blaðamenn bregðast skjótt við og benda lögmanninum, sérfróðum um mannréttindi á, að tjáningarfrelsi fylgi ábyrgð sem blaðamenn standi fyllilega undir og fara fram á afsökunarbeiðni frá lög- Getur biskup háð baráttu, er snýst um hans einkamál, úr biskupsstóli? spyr bréfritari m.a. maniiinum. Og núna gerast óvæntir atburðir: fiórir prestar kaþólsku kirkjunnar á Norðurlöndum vígja kaþólskan prest yfir íslandi. í sjónvarpsviðtali lýsa þeir því yfir að kaþólska kirkj- an leggi áherslu á réttindi og stöðu kvenna í samtímanum. Sýnist mér tímasetning og koma kaþólsku prestanna af Norðurlöndum ákaf- lega óheppileg fyrir þjóðkirkjuna. Ég vil beina því til presta hvort biskupsembættið sé þeim ekki heil- agra en svo að þeir sætti sig við að sitjandi biskup heyi þessa baráttu, sem snýst um hans einkamál, úr biskupsstóli. Formaður Prestafélagsins á heið- ur skilinn fyrir að taka málefnalega á þessu máli öllu. Hann beitir nú- tímalegum aðferðum; ræðir málin, leggur fram tillögur og ætlast til frjálsra skoðanaskipta. Það er tölu- vert meira en lögmaður biskups gerir. Sérlærður í mannréttinda- málum. - f hönd fer helgasta hátíð kristinna manna. Að sinni ætla ég að sitja heima og iðka mína trú með sjálfri mér. „Þrýstitímabir fíkniefnanna Fíkniefnavandinn er vandamál okkar allra. Þeir sem eiga krakka á táningsaldri vita hversu auðvelt er fyrir þá að nálgast þessi efni, eða réttara sagt, hversu erfitt getur ver- ið að halda sig frá þeim, þar sem fikniefnin virðast vera boðin á all- flestum stöðum sem krakkar koma saman á. Mín skoðun er sú að við, foreldr- ar eða forráðamenn, megum alls ekki láta hendingu ráða hvort yngra fólkið okkar sleppur í gegn- um þetta „þrýstitímabil“ fikniefn- anna eins og ég vil kalla það, án þess að vera þess fullviss að allt sé gert tO þess að verjast komu fikni- efna til landsins. Og sennilega eru fá lönd betur staðsett tO þess en ís land. Staðreynd málsins er nefni lega sú, að innflytjendur og sölu menn fíkniefna hlæja að þeim dóm um sem þeir fá og halda iðju sinni áfram án nokkurs samviskubits. Ef dómar væru hertir, þannig að fólk sem stundar þessa iðju gengi að því vísu að þurfa að sitja bak við rimla nokkur ár ævinnar, myndu kannski færri fást til að fjármagna, flytja inn eða selja flkniefni en raunin er í dag. Að lokum má ég til með að nefna hrópandi andstæðu í áherslum hjá ráðamönnum sem eiginlega tengist þessu. Við eigum einhver 3 tO 4 fangelsi sem halda varla vindi - og örugglega ekki föngum að neinu gagni - en okkar glæsOega rísandi dómhús lendir ekki í niðurskurðar- eða sparnaðarstefnu ráðamanna. Starfsmannafjöldi Ríkisútvarpsins Guðm. Ólafsson skrifar: Vegna umræðna og greina um rekstur Ríkisútvarpsins datt mér í hug að fróðlegt væri ef einhver fjöl- þjónusta allan sólarhringinn iHAðeins 39,90 mínútan - eða hringið í síma 550 5000 niilli kl. 14 og 16 Ekki óeðlilegt að Ríkisútvarpið gefi út ársskýrslu sem almenningur hafi aðgang að, segir hér m.a. miðillinn (líklega gerir RÚV það ekki) upplýsti landsmenn um starfs- mannamál Ríkisútvarpsins. Um það t.d. hve margir eru þar á launaskrá (útvarpi og sjónvarpi) bæði fast- launaðir og verktakar eða lausafólk. Hvaða fríðindi starfsfólkið hefur, t.d. hvort það fær afslátt eða er al- gjörlega undanþegið skylduáskrift að RÚV, hvort það nýtur hlunninda í fæðiskostnaði á vinnustað, hvaða reglur gilda um greiðslur fyrir hug- verk sem samin eru fyrir RÚV (leik- rit, sögur eða tónlist) og hvort oftar sé leitað sérstaklega til utanaðkom- andi aðila til flutnings á efni eða þeir sæki eftir flutningi á verkum hjá stofnuninni. Nú er hér um ríkisstofnun að ræða og því væri eðlilegt að Ríkisút- varpið gæfi út árlega skýrslu með þessum upplýsingum (og kannski gerir það svo) tO þess að fá megi óyggjandi upplýsingar um stöðu þess og rekstrarvenjur. I>V Biskupinn og konurnar Eygló skrifar: Nú hefur biskup okkar verið tekinn af lifi án dóms og laga. - Ef, ég segi EF hann er sekur og ef hann hefúr framið slíkt ódæði sem hann er vændur um, þá hefði átt að svipta hann kjóli og kaOi fyrir löngu. En orðið „ef ‘ er stórt orð sem teygja má fram og tO baka. Og það hefur svo sann- arlega verið gert. En konurnar sem ákæra biskupinn hafa hald- ið þessu leyndu áratugum saman - ef satt er! Halda þær virkilega að þær séu saklausar með öOu? Ekki að mínu mati. Eða halda þær að þær séu einar í heimin- um? Ef biskupinn hefur framið þetta ódæði þá er maðurinn sjúkur og þarf lækningar við. Ef hann er saklaus, þá eru konurn- ar ekki minna sekar með því að eyðileggja heilu fjölskyldurnar. Og hvaða hvatir liggja þá að baki? Það segir mér enginn að þessar þrjár konur hafi verið svo skelfingu lostnar í 17 eða 33 ár að það gefi þeim sjálfkrafa rétt á að hylma yfir þetta ÖU þessi ár. Fargjöld þurfa að lækka Ágúst Ágústsson skrifar: Margir taka áreiðanlega undir með bréfritara í DV sl. fimmtu- dag að fargjöld héðan frá íslandi eru óhemjuhá og raunar eru hér átthagafjötrar að því leyti að geta ekki farið af landi brott nema við óhóflegum gjöldum. Er ekki með einhverju móti hægt að þrýsta á gegnum EES-aðOdina eða jafnvel með ESB-aðild að fá einhverja samgönguaðila tO að halda uppi samgöngum við ís- land með fargjöldum sem allir ráða við? Einangrunin hér er of mikO tO að hægt sé að búa við svona takmarkanir líka. Leikrit hjá Stígamótum Kristján Sigurðsson skrifar: Það er sorglegt tO þess að vita að ágæt samtök eins og Stígamót séu misnotuð eins og nýlegt dæmi sannar, er þrjár konur vöknuðu úr 20 ára dvala og fóru að hittast hjá Stígamótum tO að styrkja hver aðra í raunum sín- um. Starfsmaður Stígamóta lét sem kynferðisafbrotamaður gengi laus, svo mikO var ákefðin að koma þessu á ffamfæri. Það versta við þetta er að nú getur hver sem er komið fram eftir áratugi með ákæru á hvem sem er. Sofa yfirmenn réttarkerfisins í landinu - eða hvað? Fleiri í forseta- framboð Dóra hringdi: Það er með ólíkindum að ekki skuli fleiri en tveir aðOar hafa tOkynnt um framboð til forseta íslands. Raunar aðeins ein kona - svo mark sé á takandi. Hún verður líklega sjálfkjörin meö sama áframhaldi. En það er með ólíkindum ef fleiri gefa ekki kost á sér. Þeir sem mest hafa verið orðaðir við framboð ættu ekki að draga það öflu lengur ef þeir á annað borð hafa hug á framboöi. Biskup í opin- bera heimsókn? Helgi Pálsson hringdi: Mér hlýtur að hafa misheyrst að biskupinn, sem nú þarf um- fram aflt að tvo hendur sínar af ásökunum um kynferðislega áreitni, hafi sagst vera að fara í opinbera heimsókn eða á ráð- stefnu erlendis. - Og ætli svo í frí í framhaldinu. Segi hann af sér tímabundið getur hann ekki sótt fundi erlendis sem æðsti embættismaður íslensku kirkj- unnar, en auðvitað getur hann frflystað sig erlendis, en ekki á kostnað hins opinbera, hvorki í formi farmiða né uppihalds.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.