Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 18. MARS 1996
Útlönd
Breska þjóðin minntist myrtu barnanna frá Dunblane í gær:
Drottning veitti fjöl-
skyldunum huggun
Elísabet Englandsdrottning heilsar upp á íbúa í Dunblane á Skotlandi skömmu eftir að hún heimsótti dómkirkju bæj-
arins þar sem minningarathöfn um myrtu börnin sextán og kennara þeirra var haldin í gær. Drottning og Anna
prinsessa voru í Dunblane til að veita bæjarbúum huggun. Símamynd Reute
Öll starfsemi lagðist niður um
stundarsakir á Bretlandi í gær-
morgun þegar þjóðin minntist sext-
án ungra barna og kennara þeirra
sem voru myrt með köldu blóði af
hefndarþyrstum utangarðsmanni í
bænum Dunblane á Skotlandi í síð-
ustu viku.
Elísabet Englandsdrottning og
Anna prinsessa, dóttir hennar,
komu til Dunblane í gær til að sýna
bæjarbúum samstöðu og til að
hugga fjölskyldurnar sem eiga um
sárt að binda og til að leggja
blómsveiga.
Útvarps- og sjónvarpsstöðvar
þögnuðu, viðskiptavinir stöldruðu
við í verslunum og umferð um
stærstu járnbrautarstöðvar lands-
ins stöðvaðist klukkan 9.30, ná-
kvæmlega fjórum dögum eftir að
Thomas Hamilton, 43 ára gamall
fyrrverandi skátaforingi, réðst inn í
leikfimisal barnaskólans í Dunbla-
ne vopnaður fjórum byssum og hóf
skothríðina.
í Dunblane teygðist úr þögninni í
fimm mínútur. Gangandi vegfarend-
ur námu staðar og foreldrar þrýstu
börnum sínum þétt upp að sér þeg-
ar klukkan í turni 13. aldar dóm-
kirkjunnar sló hálfa tímann.
Syrgjendur troðfylltu dómkirkj-
una þar sem minningarathöfn fyrir
fórnarlömb Hamiltons og fjölskyld-
ur þeirra var haldin.
„Eina huggun okkar felst í því að
vita að það var ekki guðs vilji að
börnin okkar skyldu deyja, að á
þessum hræðilegu augnablikum í
leikfimisal skólans var hjarta guðs
fyrst allra til að bresta," sagði séra
Colin Mclntosh við kirkjugesti sem
voru um eitt þúsund.
Þeir héldust í hendur og féllust í
faðma þegar nöfn fórnarlambanna
voru lesin upp.
Við hóp barna úr skólanum þar
sem morðin voru framin, sagði prest-
urinn: „Jafnvel fullorðna fólkið skil-
ur ekki hvers vegna þetta gerðist."
Drottningin og Anna prinsessa
komu síðar til dómkirkjunnar þar
sem þær hittu að máli ráðamenn
staðarins og harmi slegnar fjöl-
skyldurnar. Talsmaður Bucking-
hamhallar lýsti fundinum sem „per-
sónulegum og innilegum“ og sagði
að drottningin hefði rætt um „sam-
eiginlegan harm og mikinn samhug
í þeirra garð um land allt.“
„Hún sagðist biðja þess í bænum
sínum að fólkið fyndi kjark til þess
að bera angist sína með hugprýði og
horfast í augu við framtíðina með
ást og stuðningi fjölskyldunnar,
vina og allra íbúa Dunblane," sagði
talsmaður drottningar.
Hinar konunglegu mæðgur hittu
einnig að máli sjúkraflutninga-
mennina tvo sem fyrstir komu að
blóðbaðinu í leikfimisalnum. Les
Haire sagði drottningu að^þegar
hann hefði fengið boðin hefði hann
vonað að þetta væri plat.
Þessu næst fóru mæðgurnar til
nágrannabæjarins Stirling þar sem
nokkur særðu barnanna og tveir
særðir kennarar liggja á sjúkrahúsi.
Dagblöð á Bretlandi hafa verið
uppfull af alls kyns smáatriðum um
fortíð morðingjans og „afhjúpunum"
um hvernig lögreglan hefði átt að
vita af morðtilhneigingum manns-
ins. Háttsettur skoskur dómari hef-
ur verið skipaður til að rannsaka
bakgrunn harmleiksins. Reuter
Forsætisráöherra Kína um Taívandeilu:
Varar Bandaríkjamenn
við að sýna mátt sinn
Li Peng, forsætisráðherra Kína,
varaði bandarísk stjórnvöld við
því í gær að senda flota sinn inn á
Taívansund þar sem slíkt hefði að-
eins vandræði í för með sér.
„Ef einhver sýnir mátt sinn á
Taívansundi mun það ekki hjálpa
upp á sakirnar, heldur flækja stöð-
una til muna,“ sagði Li við frétta-
menn þegar hann var spurður
hvernig Kínverjar mundu bregð-
ast við ef bandarísk herskip færu
inn á mjótt sundið sem skilur að
Taívan 6g meginland Kína.
Bandaríkjamenn hafa sent tvö
flugvélamóðurskip og fylgdarskip
þeirra til að fylgjast með heræf-
ingum Kínverja undan Taívan-
ströndum. Æfingunum er ætlað
að hræða Taívanbúa frá því að
lýsa yfir sjálfstæði eyjarinnar en
Kínverjar líta á hana sem hérað í
Kína. Forsetakosningar verða
haldnar á eyjunni þann 23. mars.
Flugvélamóðurskipið
Independence og fylgdarskip hafa
verið við eftirlit um 200 mílur
undan austurströnd Taívans.
Annar hópur, með flugvélamóður-
skipið Nimitz í broddi fylkingar,
er væntanlegur á svæðið í þessari
viku.
Lee Teng-hui, forseti Taívans,
fordæmdi heræfingar Kínverja
harðlega í gær og kallaði þær
hryðjuverk. Æfingarnar verða
haldnar fram yflr forsetakosning-
amar. Reuter
Madonna laumaðist frá Argentínu
Bandaríska poppsöngkonan
Madonna laumaðist burt frá Argent-
ínu um helgina eftir sjö vikna dvöl
þar sem hún var að leika aðalhlut-
verkið í kvikmynd um Evu Peron,
fyrrum forsetafrú í Argentínu og
þjóðardýrling. Madonna fór til
Búdapest í Ungverjalandi þar sem
kvikmyndatökum verður fram hald-
ið.
Miklar deilur spunnust í kjölfar
þess að Madonna var valin til að
leika Evu Peron og sögðu peronist-
ar af gamla skólanum að valið væri
móðgun í þeirra garð. Madonna
hafði hægt um sig á meðan á kvik-
myndatökunum stóð og svo fór að
lokum að henni tókst að vinna einn
helsta fjandmann sinn, Carlos
Menem Argentlnuforseta, á sitt
band, þegar hann heimilaði kvik-
myndatökumönnum afnot af svöl-
um forsetahallarinnar til að taka
upp nokkur atriði.
Kvikmyndin, sem Alan Parker
leikstýrir, er byggð á Evitu, söng-
leik Andrews Lloyds Webbers.
Reuter
Göran Persson, væntanlegur forsætisráðherra Svíþjóðar:
Atvinnuleysi skorið
niður um helming
Göran Persson, væntanlegur for-
sætisráðherra Svíþjóðar, sló botn-
inn í aukaþing sænska jafnaðar-
mannaflokksins þar sem stefna
flokksins til aldamóta var mörkuð
með heitstrengingum um að
minnka atvinnuleysi úr átta pró-
sentum í fjögur.
„Við settum málið á stefnuskrána
og það mun hafa algjöran forgang,"
sagði Persson við fréttamenn að lo-
knu þriggja daga þinginu i gær.
Persson var kjörinn leiðtogi flokks-
ins í stað Ingvars Carlssonar.
Persson skýrði ekki í smáatriðum
hvernig hann ætlaði að minnka at-
vinnuleysi í landinu um helming en
sagði að umræður f Evrópu og Sví-
þjóð mundu fæða af sér fjölmargar
hugmyndir um hvernig það yrði
gert.
Á flokksþinginu kom berlega í
ljós ágreiningur milli hefðbundinna
vinstrimanna sem vilja standa vörð
um víðtækt velferöarkerfí Svíþjóðar
og umbótasinna sem segja að landið
hafi ekki efni á velferðarkerfinu
eins og það er nú.
Persson sagði þó í lokaræðu sinni
að tekist hefði að jafna allan ágrein-
ing innan flokksins.
„Við vildum vera sammála. Við
vildum binda enda á tímabil klofn-
ings og innanflokksdeilna sem við
höfum gert. Við munum nú stefna
Göran Persson segir sættir í
sænska jafnaðarmannaflokknum.
Símamynd Reuter
fram á veginn," sagði Persson.
Hann tekur ekki formlega viö
embætti forsætisráðherra fyrr en
síðar í vikunni, að aflokinni at-
kvæðagreiðslu í þinginu.
Jafnaðarmannaflokkurinn nýtur
nú stuðnings 38,5 prósenta kjós-
enda, samkvæmt könnun í blaðinu
Expressen í gær, en hafði aðeins
32,8 prósent með sér í síðasta mán-
uði.
Reuter
Stuttar fréttir dv
Endurnýjun Sovétsins
Gennadí Zjúganov, leiðtogi
rússneskra kommúnista, sem
býður sig fram til forseta í vor,
sagði að upprisa Sovétríkjanna
sálugu væri ofarlega á stefnu-
skránni.
Páfi þreytulegur
Jóhannes
Páll páfi var
heldur grár
og gugginn
þegar hann
kom fyrir al-
mennings
sjónir í Pét-
urskirkjunni
í gær í fyrsta
sinn í eina viku en hans heilag-
leiki hefur verið með hita að
undanförnu.
Fimm í rannsókn
ítalska lögreglan rannsakar
nú fimm manns í tengslum við
fangelsisflótta Palestínumanns
sem rændi farþegaskipinu
Achille Lauro árið 1985.
NATO tekur fanga
Gæsluliðar NATO í Bosníu
handtóku á annan tug manna
sem grunaðir eru um að hafa
kveikt í húsum og ruplað og
rænt í einu af serbnesku út-
hverfum Sarajevo.
Powell með Dole
Colin
Powell hers-
höfðingi
verður að öll-
um líkindum
beðinn um
að vera vara-
forsetaefni
Bobs Doles í
forsetakosn-
ingunum í haust og að sögn
Newts Gingrich þingforseta
mun hann þekkjast boðið.
Annar byssumaður?
Lögfræðingur mannsins sem
hefur játað á sig morðið á Itzhak
Rabin, forsætisráðherra ísraels,
sagði í gær að annar maður
hefði hugsanlega skotið Rabin.
Kjarnorku burt
Sænski jafnaðarmannaflokk-
urinn samþykkti í gær að hefja
lokun kjarnorkuvera fyrir kosn-
ingarnar 1998 en þing landsins
hefur ákveðið að búið verði að
loka öllum kjarnorkuverum í
síðasta lagi árið 2010.
israelar safna fé
ísraelsmenn sögðust ætla að
safna fé fyrir Palestínumenn
sem eru einangraðir á Gaza-
svæðinu til að koma í veg fyrir
hungur.
Mugabe sigrar
Robert Mugabe sigraði í for-
setakosningunum í Simbabve
um helgina þar sem hann var
eini frambjóðandinn.
Sá fjórði I haldi
Lögregla í Kaupmannahöfn
hefur handtekið fjóröa Vítis-
engilinn í tengslum við morðið
á liðsmanni mótorhjólagengis-
ins Bandidos um síðustu helgi.
Rosemary áfrýjar
Rosemary
West, sem
var dænid í
lífstíðarfang-
elsi í nóvem-
ber fyrir
morð á tíu
ungum kon-
um og stúlk-
um, þar á meðal eigin dóttur,
ætlar að biðja dómstól á Bret-
landi i dag um leyfi til að áfrýja
dóminum.
Vatnsskortur
Vatnsskortur í sumum heims-
hlutum kann að verða svo alvar-
legur árið 2010 að af leiði átök
og styrjaldir ef ekkert verður
gert til aö nýta þessa mikilvægu
auðlind betur.
Reuter