Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Side 10
10
MÁNUDAGUR 18. MARS 1996
Fréttir
Hliöstæður milli ofbeldis í um-
ferðinni og heimilisofbeldis
- sagði Gabríela Sigurðardóttir atferlisfræðingur á málþingi um umferðarmál
Gabríela Sigurðardóttir atferlis-
fræðingur segir hægt að finna hlið-
stæður milli sérstakrar umferðar-
hegðunar og hegðunar á heimilinu
sem kölluð er heimilisofbeldi. Þetta
kom fram í erindi hennar á mál-
þingi Ökukennarafélags íslands og
Sjóvár-Almennra um umferðarmál.
„Þegar við tölum um umferðarof-
beldi erum við að tala um ákveðna
hegðun sem hefur ákveðnar afleið-
ingar, eins og slys og árekstra, og
eru þess vegna ógnandi. Þess vegna
er tilhneiging til að kalla þessa
hegðun umferðarofbeldi. Hægt er að
finna hliðstæður milli sérstakrár
umferðarhegðunar og hegðunar á
heimilinu sem við köllum heimilis-
ofbeldi, til dæmis hliðstæðu eins og
þegar einstaklingur sem beitir of-
beldi nær fyrir fram settu mark-
miði. Hann kemst upp með það.
Hann vísar oft í ytri aðstæður til að
réttlæta hegðun sína. Flest brot eru
óskráð. Flest brot geta haft alvarleg-
ar afleiðingar. Þetta er hegðun sem
lærist. I umferðinni þjónar ofbeldi
ákveðnu hlutverki: að komast
áfram, komast fyrr og sýna sjálfum
sér og stundum öðrum að maður
ráði við aðstæður og stjórni þeim og
láti ekki stjórnast."
Gabríela tekur fram að misjafnt
sé hvað fólk tali um þegar það seg-
ist hafa verið beitt ofbeldi í umferð-
inni en allir hafi einhverja sögu að
Snæfellsbær:
Miklar fram-
kvæmdir
DV, Akranesi:
Fjárhagsáætiun Snæfellsbæj-
ar var nýlega samþykkt og að
sögn Guðjóns Petersens, nýráð-
ins bæjarstjóra, eru tekjur áætl-
aðar rúmar 225 milljónir króna.
I fræðslumál fara 48 milijónir
króna ásamt eignfærðri og
gjaldfærðri fjárfestingu. í rekst-
ur áhaldahúss og verklegar
framkvæmdir fara 18 milljónir.
í gatna- og holræsagerð eru
áætlaðar 22 milljónir, 20 milljón-
ir í æskulýðs- og iþróttamál. í
aðra félagsþjónustu eru áætlað-
ar 30 milljónir og rekstur sveit-
arfélagsin kostar 34 mUljónir.
Sveitarfélagið greiðir57 millj-
ónir í afborganir og vexti á
árinu og tekur lán upp á níu
milljónir. Skuldir Snæfelisbæjar
um síðustu áramót voru 330
milljónir króna. -DÓ
MEGA DRIVE
LEIKJATÖLVA
M/STÝRIPINNA
BRAUTARHOLTI 06 KRINGLUNNI
Til að draga úr umferðarofbeldi vill Gabríela Sigurðardóttir atferlisfræðingur veita viðurkenningu þeim sem fylgja
umferðarreglunum. DV-mynd GS
Skagafjörður:
Stefnt á sóknarfæri
í atvinnumálum
DV Fljótum:
í Skagafirði hefur verið stofnuð
samstarfsnefnd sem ætlað er að
koma með tiliögur um það hvernig
megi efla atvinnulíf í sýslunni.
Nefndina skipa Þórólfur Gíslason
frá Kaupfélagi Skagfirðinga, Snorri
Björn Sigurðsson frá Sauðárkróks-
bæ, Magnús Sigurðsson frá Héraðs-
nefnd Skagfírðinga og Jón Karlsson
frá Verkalýðsfélaginu Fram. Nefnd-
in var stofnuð að frumkvæði Kaup-
félags Skagfirðinga.
Fimm vinnuhópar hafa verið
skipaðir sem vinna eiga að tillögum
um uppbyggingu og sókn í mála-
flokkunum ferðamál, skólamál, iðn-
aðarmál, fiskeldi og opinberri þjón-
ustu. Áætlað er að tiliögunum verði
skilað um mánaðamótin mars-apríl.
Talið er að ýmir möguleikar til efl-
ingar atvinnulífs og framþróunar
séu fyrir hendi í sýslunni. Menn
vilja stuðla að því að gera Skaga-
Qörð að vænlegum stað fyrir fólk í
framtíðinni.
í þessu sambandi er þess vænst
að stjórnvöld muni á einhvern hátt
styðja atvinnuuppbyggingu á lands-
byggðinni á næstu árum meðan 2-3
stórframkvæmdir eru í gangi á suð-
vesturhorninu. En ijóst þykir að
það verður ekki gert nema með
frumkvæði heimamanna. ÖÞ
Litháar hrifnir af lýsi:
Fá umbúðir þýddar á móöurmáliö
TAUkM
Litháar eru hrifnir af lýsi og hafa nú fengið það í neytendaumbúðum á móð-
urmálinu.
Lýsi hf. hefur á undanförnum
mánuðum haslað sér völl í Eystra-
saltsríkjunum og selt þar lýsi í neyt-
endaumbúðum á finnsku en finnsk-
ur umboðsaðili fyrirtækisins dreifði
vörunni. Sérlega vel hefur gengið að
ná fótfestu í Litháen og var markaðs-
hlutdeild Lýsis hf. á síðasta ári um
50 prósent. Var því ákveðið að þýða
umbúðatexta yfir á móðurmál Lit-
háa og er fyrsti gámurinn með nýj-
um umbúöum farinn til Litháens.
Litháen verður fyrsti erlendi
markaðurinn þar sem selt verður
lýsi með sítrónubragði en slík vara
hefur verið fáanleg hérlendis um
nokkurt skeið. Litháen er einnig
fyrsti erlendi markaðurinn þar sem
Lýsi hf. selur Hákarlalýsisperlur
undir eigin vörumerkjum.
Nú selur Lýsjjif. neytendaumbúð-
ir í Póllandi, Finnlandi, Danmörku,
Eistlandi, Lettlandi og Litháen auk
þess sem tilraunasendingar hafa far-
ið til Hvíta Rússlands og Úkraínu.
segja. í flestum tilfellum sé það eitt-
hvað sem hafl ógnað fólki og hrætt
það. „Þetta fer saman við það sem
hefur verið fundið út í rannsóknum
að er hættuleg hegðun, eins og að
keyra of hratt, hafa ekki nægilegt
bil milli bOa og sikksakka milli
akreina."
Til að breyta þessari hegðun sem
kölluð er umferðarofbeldi telur
Gabríela ráðlegt að veita þeim sem
fylgja reglunum viðurkenningu.
„Það er hægt að fylgjast með fólki
sem fylgir reglunum eins og við
fylgjumst með fólki sem brýtur
reglurnar. Það væri hægt að leyfa
viðkomandi að vera þátttakendur í
happdrætti sem dregið væri í einu
sinni í mánuði, finna ökumann
mánaðarins og láta verðlaunin
tengjast umferðinni, eins og til
dæmis að fá að leggja frítt í ákveð-
inn fjölda skipta.“
Gabríela bendir á að eins og
ástandið sé núna læri fólk fljótt að
ekki þurfi að fylgja þeim reglum
sem lesnar voru fyrir bílpróf. „Við
lærum að þegar við brjótum regl-
urnar fáum við sjaldan sekt og við
erum sjaldan tekin. Hegðunin fer að
borga sig af því að við komumst
fljótar á ákvörðunarstaðinn af því
að við sýnum okkur.“
Að sögn Gabríelu er einnig nauð-
synlegt að beina athyglinni að
gatnakerfinu, það er áreitum sem
hugsanlega gætu aukið líkur á um-
ferðarofbeldi, eins og of mikið af
hindrunum. „Þetta þarf að kanna og
grípa til aðgerða og gera það þannig
að við höfum möguleika á að meta
útkomu úr aðgerðum." -IBS
Námsbraut
\ leikskóla-
kennslu
stofnuð
við
háskólann
á Akureyri
Menntamálaráðuneytið hefur
heimilað Háskólanum á Akur-
eyri að stofnsetja námsbraut í
leikskólakennslu við kennara-
deild háskólans. Námið í leik-
skólakennslu er þriggja ára
nám eða 90 einingar og iýkur
með B.Ed. prófgráðu. Er þetta í
fyrsta skipti sem nám fyrir leik-
skólakennara er formlega
skipulagt á háskólastigi og sam-
þætt, eftir því sem kostur er,
námi grunnskólakennara.
Kennslan mun hefjast strax í
haust. Þörfm er brýn enda mik-
01 hörgull á menntuðum leik-
skólakennurum, ekki hvað síst
víða á landsbyggðinni, að því er
segir 1 fréttatilkynningu frá Há-
skólanum á Akureyri.
Rektor Háskólans á Akureyri
hefur þegar skipað starfshóp til
að vinna að námslýsingum og
gera tOiögur að inntöku nem-
enda á leikskólabraut.
í starfshópnum sitja dr.
Ingólfur Á. Jóhannesson, lektor
í kennaradeild, Guðrún Alda
Harðardóttir, formaður Félags
íslenskra leikskólakennara, og
Trausti Þorsteinsson fræðslu-
stjóri.
Starfsmaður hópsins verður
Anna Þóra Baldursdóttir lektor.