Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 18. MARS 1996 11 Fréttir Bændur í Strandasýslu: Fá hátt í 1500 krónur fyrir ull af hverri kind DV, Hólmavik: í hinum mikla samdrætti síðustu ára hefur það komið sauð- fjárbænd- um hér í sýslu vel að í áratugi hafa þeir lagt ríkari áherslu á að gera sér verðmæti úr ullinni sem er eftirsótt hráefni til iðnaðar og er utan við framleiðslukvóta bænda. Upphaf þess að rúningur hófst hér að vetrarlagi má rekja til Karls Aðalsteinssonar á Smáhömrum í Kirkjubólshreppi. Hann var mikill áhugamaður um sauðfjárrækt og baráttumaður fyrir framforum í landbúnaði og kom þvi til leiðar að tveir ungir menn, Bragi Guðbrands- son á Heydalsá og Brynjólfur Sæ- mundsson ráðunautur, sóttu nám- skeið i rúningi á Hvanneyri sumar- ið 1962. „Það var farið hægt af stað í fyrstu. Margir voru mjög vantrúað- ir á þetta og er þá vægt tU orða tek- ið. Bændur byrjuðu á því að klippa lömb og létu sumir þar við sitja fyrstu árin. Þeir færðu sig síðan hægt upp í eldri árganga eftir því sem reynslan gaf þeim kjark. Þá var ekki farið að klippa fyrr en komið var fram á vetur,“ segir Guðbrand- ur Sverrisson, bóndi og uUarmats- maður á Bassastöðum. Á þessum árum var enn mikið stunduö útibeit á vetrum. Bændur voru tregir til að leggja hana af enda ræktun ekki orðin það mikil að heyfengur væri nægjanlegur tU innigjafar aEan veturinn sem vetr- arrúningur krafðist. Þá var og ótti við vorkulda fyrir rúið fé. „Ég veit þess dæmi að þegar mik- ið kólnaði í veðri eftir að nýbúið var að klippa á þessum fyrstu árum, þá áttu sumir það tU að fara niður í garðana og koma hreyfíngu á féð og láta það hlaupa fram og aftur um garðana sér til hita. Mjög fljótt átt- uðu menn sig á því að með góðri fóðrun og í góðum húsakynnum varð eitthvað þessu líkt óþarft. Nú í áratug eða svo hafa flestir tekið upp þann sið að klippa að hausti og síð- an aftur síðari hluta vetrar. Það heyrir nánast sögunni tU að ekki sé rúið að haustinu hér um slóðir. Margir hafa með þessu fengið bæði mikla og verðmæta uU, sem hefur verið búbót mörgum í samdrættin- um undanfarið," segir Guðbrandur. Hann segir að bændur leggi mik- ið upp úr því að klippa féð um leið og það kemur inn í vetrarbyrjun tU þess að ekki berist heymor í uUina eða hún spillist vegna húsvistar. Það sé auðvitað ekki aUtaf hægt að koma í veg fyrir þetta. Síðasta haust var afar slæmt að þessu leyti vegna mikiUar ótíðar sem kom snögglega í lok október þegar bændur neyddust tU að taka aUt fé inn í nokkra daga en voru ekki tUbúnir tU að byrja á rúningunni. Þetta oUi því að minna var um úrvalsuU og öll var uUin lakari að gæðum en stundum áður. Guðbrandur segir að margir bændur séu komnir með uUargott fé sem þeir hafa verið að rækta upp á síðustu árum og fái sumir nokkuð á annað þúsund krónur fyrir ullina af hverri kind. Það sé gott á móti öll- um samdrættinum sem verið hafl. Aðspurður hvort tU sé að bændur haldi að uUarmatsmönnum pokun- um fyrir úrvalið og verðmætari uU- ina, svarar uUarmatsmaðurinn Guðbrandur: „Þetta er góö spurn- ing, þetta hefur komið fyrir en ég tel að flestir geri það nú í gríni." Haraldur Böðvarsson hf.: Afkoman 20% betri en 1994 - hagnaður 123,4 milljónir DV, Akranesi: Hagnaður Útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækisins Haraldur Böðvarsson hf. á Akranesi var 123,4 miUjónir króna á síðasta ári sem er 20% betri afkoma en á síðasta ári. Hagnaður af reglulegri starfsemi ársins var 140 miUj. króna saman- borið við 87 mUlj. króna árið 1994. HeUdarvelta fyrirtækisins var 2.748 millj. króna 1995 og hafði auk- ist úr 2.667 mUljónum frá árinu áður eða um 3%. i árslok var eigið fé Haraldar Böðvarssonar hf. 993 milljónir samanborið við 700 mUlj- ónir í árslok 1994. Þar af voru seld hlutabréf í útboði í desember fyrir 120 miUjónir. Eiginfjárhlutfall var 32% í árslok og hafði aukist úr 26% frá árinu áður. Rekstrartekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru rúmlega 2.186 miUj- ónir en rekstrargjöld tæplega 1.776 miUjónir. Eignir námu aUs 2.923 miUjónum en skammtíma- og lang- tímaskuldir voru 2.550 milljónir króna. 1995 unnu að meðaltali 300 manns hjá fyrirtækinu og námu launa- greiðslur tU þeirra 772 miUjónum. Aðalfundur HB hf. verður hald- inn 28. mars og á fundinum verður borin upp tillaga frá stjórn fyrirtæk- isins um greiðslu 8% arðs og útgáfu 10% jöfnunarhlutabréfa. Haraldur Böðvarsson hf. rekur frystitogara, tvo ísfiskstogara, tvö loðnuskip, frystihús, fiskimjölsverksmiðju og fiskverkun auk stoðdeilda. -DÓ Ullarmatsmennirnir Sigurður Jónsson, Stóra-Fjarðarhorni, og Guðbrandur Sverrisson, til hægri. DV-mynd GF Farmanna- og fiskimannasambandið: 50 þús. tonna aukakvóta .„Farmanna- og fiskimannasam- bandið telur ástand þorskstofnsins betra en hefur verið hingað til og kemur fram hjá opinberum aðil- um,“ segir Benedikt Valsson hjá Farmanna- og fiskimannasam- bandinu. Sl. haust var samþykkt ályktun á þingi FFSÍ þar sem stjórnvöld eru hvött til þess að auka þorskkvótann um 50 þúsund tonn hið minnsta á fiskveiðiárinu. „Við teljum að ástand stofnsins leyfi það fyllilega auk þess sem þetta er heimilt samkvæmt heim- ildarákvæði í lögum um stjóm fiskveiða sé ákvæðinu beitt fyrir miðjan april nk.,“ segir Benedikt. Hann segir að ekki verði gengið fram hjá fjölmörgum vísbending- um um aukna fiskgengd. -SÁ .. .pessicm Jylgir ríflegur afsláttur... ..og pú fceref hann í JBónus Rad, ío ATOT 3245 or sami síminn og Siemens S3 pius. 18 tfma uiðstaAa Á 1 Llst. Kleðslutfmi 100 mfnútna stöðugt tal EnJurval á 5 síðustu númer SímasLrá með 60 númera minni (naín og sfmanúmer) 2 w. ioftnet sem |>arf ekki að Jraga út Skýr og góður kristalskjár Tfma og gjaldskrá Lasing á lyklakorði Stillanlegar Kríngingar Sfminn vegur 280 gr. mcð standard rafKlöðu - borgar slg Grensésvegur 11» Sími 5 880 888 Fermui a Narvik 3 kommóða (antikbæsuð)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.