Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Page 28
40 MÁNUDAGUR 18. MARS 1996 Menning Leyndardomar litbrigöanna - Beatriz Ezban í Hafnarborg Áhrif impressjónismans nafa verið langvinn í myndlistinni. Þau hafa kristallast í gegnum marga stíla og stefnur um meira en aldar- skeið. í dag, þegar síðmódernísk ívitnanastefna leitast við að gera sköpunarferlið sjálft fjarlægt og kalt, er þrátt fyrir allt að finna dæmi um tæra framsetningu skyn- hrifa í anda impressjónismans. Verk mexíkósku listakonunnar Beatriz Ezban, sem á láugardag opnaði sýningu í Hafnarborg, eru lifandi vitnisburður um að enn má líta á málverkið sem vettvang per- sónulegra skynhrifa. Beatriz hélt sýningu í Portinu i Hafnarfirði fyrir tæpum tveimur árum og sýndi þá verk undir áhrifum frá íslenskri náttúru þar sem greini- legat var að hraun og mosaþemb- ur landsins höfðu haft áhrif á listakonuna. Frummálverk Að þessu sinni eru verkin mexíkóskari í sér og ber eitt þeirra titUinn Mexíkó í hörundinu (9) og annað er nefnt eftir rústum fornrar Mayaborgar, Tikal. Þetta síðarnefnda verk hefur, ásamt verki nr. 7, Ágúst, til að bera sterkan samhljóm litatóna er miða að þvi að kveikja líf á myndfletin- um. Þar á sér stað „stanslaus end- urfæðing óstöðvandi hefðar“, eins og Jorge Juanes segir í sýningar- skrá. Þar kemur og fram það við- horf að listakonan sé „ekki að end- urtaka þá sértæku reynslu sem Myndlist Úlafur J. Engilbertsson skóp verk þeirra málara er veittu henni innblástur (s.s. Monet. Hún taki) þátt í málverkinu sjálfu, (fari ekki útúr þvi, geri) þar af leiðandi frummálverk." Sjálf kveðst Beat- riz „marka sér fjarlægð og taka upprunaleikann úr samhengi (og opna þannig) möguleika á. nýju verki“. Eintóna og margradda Verkin á sýningu Beatriz Ezban skiptast í tólf olíumálverk í stærri kantinum og þrettán verk gerð með blandaðri tækni á pappír. 01- íuverkin eru heit og grípandi og eru gulir og grænir litatónar mest áberandi. Verkunum er haganlega fyrir komið og stærri salurinn hef- ur sterkt og heildrænt yfirbragð þar sem rýmið vinnur vel með hinum stóru flötum. Verk nr. 12, Aðeins dvöl þín, stendur að mínu mati upp úr sem stakt verk, vegna margræðra forma og litatóna sem gefa í skyn dýpt, en flest önnur verk falla vel inn í heildina með eintóna yfirbragði úr fjarlægð sem breytist í margradda kór í nánd. Innri myrkviðir og ævintýraljómi Pappírsverkin njóta sín ekki sem skyldi í krómuðum álrömm- um með gleri sem þar fyrir utan eru of stórir í mörgum tilvikum. Hins vegar er þar víða að finna at- hyglisverða hluti, einkum þar sem blandað er saman akrýl og blýanti í blæbrigðum er vísa ýmist til innri myrkviða og hellamálverka (nr. 22) eða bernsks ævintýraljóma (nr. 13-17). Tvö pappírsverkanna skera sig nokkuð úr fyrir það að vera unnin á Amate, handgerðan Aztekapappír. Þar eru einfaldir og sterkir drættir í fyrirrúmi hjá listakonunni í anda Mayanna, er þróuðu sérstætt og leyndardóms- fullt myndletur. Víst er að lit- brigði búa ekki síður yfir mörgum leyndardómum og það sést vel á þessari eftirtektarverðu sýningu Beatriz Ezban í Hafnarborg sem stendur til 1. apríl. Fréttir Gremja í Búðardal: Veitingastað neitað um fullt vínveitingaleyfi - er í samkeppni við sveitarfélagið um vínveitingar Talsverður hiti er í íbúum í Búð- ardal vegna áfengismála. Opnað var gistihús í byggðarlaginu fyrir jól með veitingastað sem hefur opið öll Fermingar Höfum sali til leigu fyrir fermingar HÓTELÍ^nND 5687111 kvöld vikunnar. Þar er þó ekki hægt að kaupa sterka áfenga drykki heldur bara léttvín og bjór. Segjast íbúarnir þurfa að fara á bari i Borg- arnesi og Stykkishólmi vilji þeir bragða á einhverju sterkara því ekki sé opið í félagsheimilinu Dala- búð nema tvisvar tfl þrisvar í mán- uði. íbúum þykir einnig óréttlátt að veitingastaðurinn á gistiheimilinu skuli ekki fá leyfi til að selja sterka drykki eins og félagsheimilið. Sveitarfélagið rekur félagsheimilið Það er sveitarféíagið sem rekur félagsheimUið og það var hrepps- nefndin sem veitti umsögnina sem sýslumaðurinn, Ólafur Stefán Sig- urðsson, byggði á er hann veitti Aukavinningar í „Happ í Hendi" I Vinningshafar gefa vitjað vinninga sinna hjá Happdrætfi Háskóla islands. Tjarnargðtu 4,101 Reykjavík, og verða þeir sendir til viðkomandi. Aukavinningar sem dregnir voru út í sjónvarpsþættinum „Happ I Hendi" sfðastliðið föstudags- kvöld komu í hlut eftirtalinna aðila: Guðrún Ottósdóttir Mjallargötu 6, 400 ísafjörður Ásdís Kristjánsdóttir Austurgerði 1,108 Reykjavík Hannes Jóhannesson Tunguseli 10,109 Reykjavik Erla Jónsdóttir Víðigrund 2, 550 Sauðárkrókur Anna Sigurjónsdóttir Hulda Þorbjörnsdóttir Bleiksárhlíð 17, 735 Eskifjörður Brekkustígi 17, 260 Njarðvík Arnfinnur Jónsson Ingigerður Jónsdóttir Jörfabakka 4, 109 Reykjavík Mímisvegi 5, 620 Dalvík .. . —...' Margrét Jónasdóttir Ingunn Sigurðardóttir Vallargötu 6, 245 Sandgerði Safamýri 44,108 Reykjavík BiO m«A fyrirvar* um pmntvUlur. Vinningshafi - Lokaspurning Skaftáreldar Ingibjörg L. Kristinsdóttir Fífumóum 5 a, 260 Njarðvík Skafðu fyrst og horfðu svo! rekstraraðila gistihússins vínveit- ingaleyfið til reynslu tfl eins árs. Marteinn Valdimarsson sveitar- stjóri segir vínveitingaleyfið hafa verið veitt tO reynslu vegna efa- semda um að reksturinn gæti geng- ið vegna aðstæðna. „Þetta hús, þar sem reksturinn á sér stað, er á mOli tveggja íbúðarhúsa. Umsögn áfengi- svarnanefndar var ekki jákvæð en hún sagðist geta fellt sig við létt- vínsleyfi. Það hafa borist kvartanir frá íbúum en að visu ekki bréfleg- ar,“ segir sveitarstjórinn. Þeir sem vilja sölu sterkra drykkja á nýja veitingastaðnum hafa safnað undirskriftum 150 manns frá 18 ára aldri með áskorun til hreppsnefndar að veita veitinga- staðnum fullt vínveitingaleyfi. „Mönnum hér fmnst þetta mjög óréttlátt og til að sýna samstöðu sína flykktust tugir manna á nýja staðinn þegar skemmtikvöld var í félagsheimOinu. Þangað mættu bara 6 manns,“ segir Grettir Guðmunds- son, einn íbúa í Búðardal. -IBS Tilkynningar Handbók um laganám erlendis Úlfljótur, tímarit laganema, hefur gefið út handbók um laganám er- lendis, en þetta er í fyrsta skipti sem slíkt rit kemur út. í handbók- inni er fjahað um laganám í öOum löndum V-Evrópu, í Bandaríkj- unum, Kanada og Japan. Höfundur bókarinnar er Kristín Haraldsdóttir lögfræðingur en Kristín Heimisdótt- ir sá um útgáfuna f.h. Úlfljóts. Leikhús LEIKFÉLAG REYKIAVÍKUR SÍMI 568-8000 STÓRA SVlö KL. 20.00: HIÐ UÓSA MAN eftir íslandsklukku Halldórs Laxness í leikgerð Bríetar Héðinsdóttur 4. sýn. fid. 21/3, blá kort gilda, fáein sæti laus, 5. sýn. sud. 24/3, gul kort gllda, örfá sæti laus. ÍSLENSKA MAFÍAN eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson Föd. 23/3, föd. 29/3. Sýningum fer fækkandi. LÍNA LANGSOKKUR eftlr Astrid Lindgren Sud. 24/3. STÓRA SVIA KL. 20: VIÐ BORGUM EKKI, VIÐ BORGUM EKKI eftir Dario Fo Föst. 22/3, fáein sæti laus, sunnud. 31/3 Þú kaupir einn miða, færð tvo! Samstarfsverkefni við Leikfélag Reykjavíkur: Leikhópurinn Bandamenn sýna á litla sviði kl. 20.30: AMLÓÐA SAGA eftir Svein Einarsson og leikhópinn. Leikstjóri Sveinn Einarsson Tónlist Guðni Franzson Búningar Elín Edda Árnadóttir Lýsing David Walters Hreyfingar Nanna Ólafsdóttir Sýningarstj. Ólafur Örn Thoroddsen Leikarar: Borgar Garðarsson, Felix Bergsson, Jakob Þór Einarsson, Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Stefán Sturla Sigurjónsson og Þórunn Magnea Magnúsdóttir. 3. sýn. fid. 21/3. Alheimsleikhúsið sýnir á Litla sviði kl. 20.00: KONUR SKELFA toilet-drama eftir Hlín Agnarsdóttur. Mid. 20/3, uppselt, föd. 22/3, uppselt, laud. 23/3, uppselt., sunnud. 24/3, örfá sæti laus, miðv. 27/3, fáein sæti laus. föst. 29/3 uppselt. Barflugurnar sýna á Leynibarnum kl. 20.30: BAR PAR eftir Jim Cartwright Föd. 22/3, örfá sæti laus, laud. 23/3 kl. 23.00 fáein sæti laus, föst. 29/3 kl. 23.00 fáein sæti laus, sunnud. 31/3 fáein sæti laus. Tónleikaröð LR Á STÓRA SVIÐI KL. 20.30. Þrd. 19/3, Schumania flytur Að nóttu - sviðsettir dúettar Roberts Schumanns í flutningi Jóhönnu Þórhallsdóttur, Sigurðar Skagfjörð Steingrímssonar, Jóhannesar Andreasen og Guðna Franzsonar ásamt leikurunum Margréti Vilhjálmsdóttur og Hilmi Snæ Guðnasyni. Umsjón: Hlín Agnarsdóttir. Miðaverð kr. 1.200. Fyrir börnin: Línu-boiir og Lmupúsluspil. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20, nema mánudaga frá kl. 13-17, auk þess er tekið á móti miðapöntunum í síma 568-8000 alla virka daga frá kl. 10-12. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. Félagsvist í Þinghóli, Hamraborg 11, mánudag 18. mars kl. 20.30. Slysavarnakonur í Reykjavík, Hafnarfirði og á Sel- tjarnarnesi. Þátttaka í Parísarferð- ina tilkynnist fyrir miðvikudags- kvöld í síma 562-6601, Guðrún, og 567-9794, Hrafnhildur. ÞJÓÐLEIKHÚSID STÓRA SVIðlö KL. 20.00: TRÖLLAKIRKJA eftir Ólaf Gunnarsson í leikgerð Þórunnar Sigurðardóttur. 6. sýn. Id. 23/3, örfá sæti laus, 7. sýn. fid. 28/3, örfá sæti laus, 8. sýn. sud. 31/3, kl. 20.00. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Fid. 21/3, nokkur sæti laus, föd. 22/3 uppselt, föd. 29/3, uppselt, 50. sýn. Id. 30/3 uppselt. KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner Ld. 23/3 kl. 14.00, örfá sæti laus, sud. 24/3 kl. 14.00, uppselt, sud. 24/3 ki. 17.00, nokkur sæti laus, Id. 30/3, kl. 14.00, örfá sæti laus, sud. 31/3 kl. 14.00, örfá sæti laus. 50. sýning. LISTDANSSKÓLIÍSLANDS Nemendasýning þrd. 19/3 kl. 20.00. LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30. KIRKJUGARÐSKLÚBBURINN eftir ívan Menchell Ld. 23/3, örfá sæti laus, sud. 24/3, laus sæti, fid. 28/3, uppselt, sud. 31/3, uppselt. SMÍóAVERKSTÆðlö KL. 20.00: LEIGJANDINN eftir Simon Burke Ld. 23/3, fid. 28/3, sud. 31/3. Fáar sýningar eftir. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Listklúbbur Leikhúskjallarans mád. 18/3 kl. 20.30 Matthías Jochumsson sálmaskáldið, Ijóðskáldið og þýðandinn. Gjafakort í leikhús - sígila og skemmtileg gjöfi Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá ki. 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Fax: 561 1200 SÍMI MIAASÖLU: 551 1200 SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204 VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ! Rabb um rannsóknir í kvennafræðum Þriðjudaginn 19. mars verður Mar- grét Guðmundsdóttir sagnffæðing- ur gestur á rabbfundi Rannsóknar- stofu í kvennafræðum. Rabbið fer fram í stofu 202 í Odda kl. 12-13 og er öllum opið. Slysavarnadeild kvenna t Reykjavík verður með opið hús að Sigtúni 9 í kvöld kl. 20. Hafþór frá Almanna- vörnum ríkisins verður með fyrir- lestur um viðbrögð við jarðskjálfta. Allir velkomnir. Öskubökkum safnað í apótekunum! Reyklausi dagurinn verður 20. mars. Nú efnir Tóbaksvarnanefnd í samvinnu við apótekin í landinu og íslenska útvarpsfélagið til átaks. Öskubakkasöfnunin er fólgin í því að fólk er hvatt til þess að koma með öskubakka sína og láta þá af hendi en skrá sig jafnframt á sér- staka nafnalista sem liggja þar frammi. Verður síðan dregið til verðlauna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.