Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Page 29
MÁNUDAGUR 18. MARS 1966
41
Hringiðan
i aðalsal Hafnarborgar var
opnuft sýning á verkum Beatrizar
Ezban frá Mexíkó á laugardaginn.
Maria Del Carmen og Beatrlz
brostu blítt við opnun sýningar-
innar sem á eftir aö ferðast vítt
og breitt um Evrópu.
DV-myndir Teitur
Söngleikurinn Oklahoma var
frumsýndur í íslensku óperunni á
föstudagskvöldið. Það eru nemend-
ur óperudeildar Söngskólans i
Reykjavík sem standa að sýning-
unni. Elísabet F. Elríksdóttir, Þórlelf-
ur Jónsson og Signý Sæmundsdóttir
voru á frumsýningunni.
/Á laugardaginn hélt Stýrimannaskólinn í
/Reykjavík sinn árlega kynningardag á skól-
Vanum undir einkunnarorðunum „Sigling til
framtíðar“. Halldór Guðni Hjartarson þarf að
stækka aöeins áður en hann getur rólað sér í sig-
körfunni sem krökkunum var leyft að leika sér í.
A laugardagskvöldiö frumsýndi leikhópurinn
Bandamenn leikritlð Amlóða sögu í Borgarleikhús-
inu. Jón Víkingsson, Erna Valdís Sigurðardóttlr,
Vignir Traustason og Aldis Karlsdóttir voru á frum-
sýningunnl og skemmtu sér vel.
Það voru sannkallaöir
stórtónleikar í Laugardals-
höllinni á laugardagskvöldiö.
Fjöldi hljómsveita tróð upp
en hápunktur kvöldsins var
danssveitin Prodigy sem
steig síöust á svið. Áhorf-
endur stigu vllltan dans í
takt við tónlist sveltarinnar
og þessi dansdrottning var
engin undantekning.
A laugardaginn var opnuð
sýning í Norræna húsinu sem
ber yfirskriftina „Norrænn
heimilisiðnaður“. Systkinin
Steinvör, Ásrún og Finnbogi
Ágústsbörn tóku sig vel út í
þjóðbúningnum ásamt
Guðrúnu Einars-
dóttur.
Sólveig Baldurs-
dóttir opnaði fyrstu
einkasýningu stna á
íslandi á laugardag-
inn í Gerðarsafni í
Kópavogi. Þó ekki sé
hún há í loftinu,
skreið Guðný Hannes-
dóttir á milli verk-
anna og skoðaði þau
af miklum áhuga.
hljómtækjasamstæða MHC 801
Glæsileg samstæða með
geislaspilara, kassettutæki,
160W. surround magnara,
Karaoke, tónjafnara, útvarpi,
hátölurum og fjarstýringu.
Laugardalshöllin var troöln ungmennum á
laugardagskvöldið þegar danssveitin Prodlgy kom
fram á tónleikum. Þeir Arnþór, Filipp, Fissi og
Magni dönsuðu berir að ofan vlð tryllta tóna í
steikjandi hita og miklu fjöri í Hölllnni.
Þaö var mikil Jm
skemmtun fyrir al- JHj
þýöuflokksmenn i / I
Rúgbrauðsgerðinni jaljji
á föstudagskvöldiö /
í tilefnl af áttatiu
ára afmæli /
flokksins. /m
Hrafnhildur fcy
Hauksdóttir / \- •
og Bolli Val-
garð skemmtu sér
konunglega yfir Spaugstofu-
mönnum sem létu gamminn gelsa.