Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996 Fréttir Togararall Hafrannsóknastofnunar sýnir mikla aflaaukningu: Þorskafli allt að tvöfalt meiri en á síðasta ári - öll rök mæla með kvótaaukningu, segir Guðjón A. Kristjánsson. „Ef það er ekki tilefni til að auka þorskkvótann núna þá er það aldrei. Það mæla öll rök með kvóta- aukningu," segir Guðjón A. Krist- jánsson, forseti Farmanna- og fiski- mannasambands íslands og einn þeirra sem útfærðu togararallið á sínum tíma. Hinu árlega togararalli er nú aö ljúka en þar kemur fram, sam- kvæmt heimildum DV, að aflinn er frá 30 og upp í 100 prósentum meiri en hann var á síðasta ári. Togarinn Múlaberg ÓF landaði 70 tonnum úr sinni veiðiferð sem spannaði Vest- fjarðamið. Það er helmingi meiri afli en skipið fékk í rallinu á síð- asta ári. Togarinn Rauðinúpur ÞH, sem dró fyrir Norðurlandi, var með um 12 tonn úr sinni veiöiferð í stað 7 tonna aíla á síðasta ári. Þar var orðin gjörbreyting á sjávarhita og heitt í stað ískulda sem ríkti á síðasta ári. Togarinn Brettingur kannaði veiðislóðina frá Snæfells- nesi og suður um að Lónsdýpi. Skipið kemur í land á Vopnafirði í kvöld með rúmlega 50 tonna afla. Loks skoðaði Ljósafell SU miðin út af Vesturlandi og fékk um 40 til 45 tonna afla. t öllum tilvikum er um að ræða mikla aflaaukningu á tog- tíma. Ólafur Karvel Pálsson fiskifræð- ingur og leiðangursstjóri um borð í Múlabergi vildi í samtali við DV ekki tjá sig um niðurstöður úr tog- ararallinu þar sem enn væri eftir að vinna úr þeim. „Það er ekkert hægt að segja á þessu stigi. Það var þó fyrirfram vitað um mikla þorskgengd á Vest- fjarðamiðum. Það er verið að vinna úr þessum niðurstöðum og við munum kynna þær eftir helgina. Guðjón A. Kristjánsson segist ekki í nokkrum vafa um að eina raunhæfa leiðin sé að auka þorsk- kvótann. Hann bendir á það ófremdarástand sem ríki vegna þess að verið sé að henda fiski í stórum stíl. „Það er mikil vöntun á þorsk- kvóta og aukning myndi strax laga ástandið á miðunum og möguleika til veiða á öðrum tegundum án þess að þurfa að flýja þorskinn eða henda honum. Staðan er sú að menn eru að lenda í þeirri ömur- legu aðstöðu að þurfa að fleygja flski. Það vita aflir um þetta ástand sem vilja af því vita og það bendir margt til að það sé meira um brott- kast en í fyrra. Það er þekkt að kvótavöntun er meiri en á síðasta ári og það er undir þeim kringum- stæðum að menn fleygja fiski. Það eru margir sjómenn í hræðilegum málum og líöur illa yfir þessu ástandi," segir Guðjón. Hann segir að vilji menn fara eft- ir markaðssjónarmiðum sé skyn- samlegt að auka við kvótann í áfongum sem fyrst. „Markaðsaðstæður eru þannig að það er engin trygging fyrir því að verð haldist ef menn ætla að henda inn allt að 100 þúsund tonn- um eftir eitt eða tvö ár. Það eru eft- ir 5 mánuðir eftir af þessu fisk- veiðiári og það veitir ekkert af 50 þúsund tonna aukningu. Ég sé eng- in hættumerki því samfara," segir Guðjón A. Kristjánsson. -rt Starfsmenn Rafmagnsveitu Reykjavíkur grófu í gær upp sprautusafn þar sem þeir voru við vinnu sína nærri Hlemmi. Sprauturnar voru einnota og fylgdu lyfjaglös og pakkningar. Hér eru með nokkur sýnishorn þeir Gunnar Guðmunds- son, Hafliði B. ísólfsson og Þórður Magnússon. DV-mynd GS Kom brúði sinni á óvart með hjónavígslu í Bláa lóninu: Þetta er dásamlegt - segir brúðurin sem er bandarísk Dodge Stealth, 222 hestafla fjór- hjóladrifinn sportbíli, verður til sýnis á Chrysler-sýningu um helgina hjá Jöfri í Kópavoginum. Jöfur hf.: Chrysler- sýning um helgina Jöfur hf., umboðsaðili Chrysler á íslandi, heldur um helgina sýningu á Chrysler-bíl- um að Nýbýiavegi 2 í Kópavogi. Meðal nýjunga sem sýndar verða er ný útfærsla af Grand Cherokee-jeppanum með öflugri en spameytinni dísilvél með for- þjöppu og millikæli, einnig nýi fjölnotabíllinn Chrysler Voyager og eins flaggskip Chrysler, New Yorker. Sérstakt tromp á sýningunni er Dodge Stealth R/T sem er 222 hestafla fjórhjóladrifinn sport- bíll, með V6, 3ja lítra 24 ventla vél og tvöfaldri forþjöppu. Einnig veröa sýndir Dodge Ram pallbílar og fólksbíflinn Chrysler Stratus. Sýningin er opin laugardag og sunnudag frá klukkan 12 til 17. 40 ökumenn sektaðir Fjörutíu ökumenn voru í gær stöðvaðir vegna hraðaksturs í Kópavogi og hljóta sektir fyrir. Einn reyndist á 123 kílómetra hraða og missti ökuréttindin á staðnum. Þá var einn tekinn mjög ölvaður á bíl sínum á Suð- urlandsvegi. -GK „Þetta er alveg dásamlegt og kom mér algerlega á óvart. Við ætluðum að gifta okkur hjá bæjarfógeta í Keflavík,“ sagði Arizonabúinn Suzanne Marten við DV eftir sögu- lega giftingu í Bláa lóninu í gær. Eiginmaður Suzanne, Marokkómað- urinn Jamal Etahiri, kom sinni heittelskuðu skemmtilega á óvart með því að skipuleggja brúðkaup þeirra í Bláa lóninu. Þau voru áður búin að ákveða að láta gefa sig sam- an í Keflavík en hann ákvað að gera brúðkaupið eftirminnilegt á þennan hátt. Brúðhjónin voru gefin saman á litlum báti og skáluðu þar í kampavíni. Jamal, sem búið hefur á íslandi í eitt og háift ár, sagði að Bláa lónið væri fegursti staður sem hann hefði komið á og þess vegna hefði það orðið fyrir valinu. Hjónin flytja eft- ir tvær vikur til Bandaríkjanna þar sem þau hyggjast búa. -em Stuttar fréttir Sameining Bankastjórn Landsbankans hefur ákveðið að sameina tvö verðbréfafyrirtæki bankans í eitt, þ.e. Samvinnubréf Lands- bankans og Landsbréf. Samein- ingin tekur gildi frá og með deginum í dag. Húsanes lægst Átta tflboð bárust Lands- virkjun í fyrsta áfanga bygging- arvinnu við endurnýjun Sogs- stöðva. Lægsta tilboð kom frá Húsanesi í Keflavík, 185 millj- ónir, sem er 78% af kostnaðará- ætlun. Afmæli á Þórshöfn í sumar eru 150 ár liðin frá því aö farið var að versla á Þórshöfn við Þistilfjörð. Af því tilefni verður efnt til hátíðar dagana 19.-21. júlí. VÍS eykur hagnað V átryggingafélag íslands, VÍS, hagnaðist um 207 mUljónir á síðasta ári samanborið við 154 mUljóna hagnað árið áður. 52 móðurmál Yfir 300 nemendur í grunn- skólum landsins eiga sér annað móðurmál én íslensku eða alls 52 tungumál. Mbl. greindi frá þessu. Efasemdir á Orku- stofnun Á ársfúndi Orkustofnunar í gær komu fram efasemdir starfsmanna um breytingar á rekstrarfyrirkomulagi og eign- arhaldi stofhunarinnar. Lán til forstjóra Forstjóri Húsnæðisstofnunar fékk á sínum tíma lán hjá Bygg- ingarsjóði sem ekki stóðu al- menningi þá til boða. Sam- kvæmt frétt Stöðvar 2 voru lán- in veitt á 15. og 18. veðrétti. Oddi kaupir af SH Prentsmiðjan Oddi hefur keypt 78% hlut Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH, í Um- búðamiðstöðinni. Reksturinn verður óbreyttur hjá Odda fyrst um sinn. Áhugi á stálvinnslu Bandarískur athafnamaður af íslenskum ættum hefúr sýnt áhuga á að hefja stálvinnslu í stálverksmiðjunni í Kapellu- hrauni. Samkvæmt Mbl. er mál- ið á frumstigi en íslandsvinur- inn kom hingað nýlega til að skoða aðstæður. -bjb Jamal og Suzanne gefin saman af Dagmar Sigurðardóttur, fulltrúa sýslu- manns í Keflavík. Hjónavígslan verður væntanlega mjög eftirminnileg. DV-mynd Ægir Már

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.