Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
Neytendur
Hvað er
innifalið?
Fyrir 625 kr.
Nýja kökuhúsið
125 snittur, 40 manna marsip-
an-sálmabók, 2 jarðarberja- og 2
bananatertur og ein súkkulaði-
terta. Miðað er við 50 manns. Ef
keypt er kransakaka með borð-
inu fæst 25% afsláttur af henni.
Fyrir 650 kr.
Nýja kökuhúsið
50 snittur, 16 manna sálma-
bók, jarðarberja-, banana- og
súkkulaðiterta. Miðast við 20
manns.
Fyrir 712 kr.
Gæðamatur
Marsipanterta, peruterta með
súkkulaðirjóma, súkkulaðikaka
með sérrikremi, sjónvarpskaka,
gratineraður skinkuréttur, flat-
kökur með hangikjöti, brauð-
tertur, kaffisnittur. Verðið mið-
ast við tilboð og 20% afslátt af
890 kr. og lágmark 20 manns.
Fyrir 790 kr.
Stúdíó-Brauð
KafTisnittur, 6 teg., brauðtert-
ur með rækjum, laxi og skinku,
rjómatertur, marsipan-, jarðar-
berja-, banana- og súkkulaðitert-
ur, flatbrauð með hangikjöti og
lagtertur, hvítar og brúnar.
Verðið miðast við 70 manns eða
fleiri. Athygli skal vakin á því
að yfirleitt tekur fólk meira af
brauði og færri tertur. Sama
veisla fyrir 70 manns eða færri
kostar 820 kr.
Fyrir 850 kr.
Gafl-lnn
Snittur, brauðtertur, rjóm-
atertur af ýmsu tagi og
súkkulaðitertur. Hægt er að fá
fermingartertur eða kransakök-
ur sérstaklega.
Árberg
Brauðtertur, súkkulaðitertur,
kaffisnittur, vatnsdeigsbollur,
fylltar með ávaxtamús, rúilu-
tertur, lagkökur, flatkökur og
fermingarterta, opin bók eða
marsipanterta.
Hraunholt
Marsipantertur, rjómamarens-
tertur, formkökur, brauðtertur,
heitir ofnréttir, súkkulaðitertur,
flatkökur með hangikjöti og sal-
ati. Miðast við 40 manns. Keyrsla
og uppsetning innifalin.
Panasonic
HiFi myndbandstæki HD600
Nicam HiFi stereo, 4 hausa Long Piay, Super Drive,
Clear view control, fjarstýringu, 2x Scart tengi ásamt
þvi að sýna allar aðgerðir á skjá. HD600 fékk 10 fyrir
myndgaeði, og var valið besta fjölskyldu- og
heimablómyndbandstækið
Tækið endurgreitt!
Einn hepplnn vlðsklptavlnur fær tæklð endurgreittl
10 leigumyndir frá
Vidoohöllinni fylgja Panasonic
myndbandstækjunumi
krónur
69.900,-
stgr.
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
Fermingarkaffihlaðborðið fyrir heimahús:
Kostar frá um 30
þúsund krónum
- nokkuð misjafnt hvað er innifalið
Fyrstu fermingarnar eru að fara í
hönd. Flestir eru eflaust komnir vel
á veg með undirbúning. Þeir sem
enn eru að íhuga hvort þeir eigi að
standa sjálfir í bakstrinum fyrir
kaffiveisluna eða hvort þeir eigi að
láta veitingahús úti í bæ gera það fá
hér upplýsingar um hvað hún
myndi kosta fyrir manninn og gróf-
lega hvað er innifalið.
DV hringdi á fjölmarga staði sem
sérhæfa sig í veisluþjónustu ýmiss
konar og spurði hvað fermingar-
kaffihlaðborð fyrir heimahús kost-
aði og hvað væri innifalið. Eins og
sjá má í grafinu hér með fréttinni
og í texta hér til beggja hliða er
verðið mjög mismunandi. Rétt er að
taka fram að í grafinu er borið sam-
an verð eftir fjölda veislugesta og
sumir eru með mismunandi verð
eftir því hvað þeir eru margir. Ekk-
ert mat er lagt á gæði eða hráefni.
Ódýrasta veislan er miðuð við 50
manns og kostar hún rúmlega 30
þúsund krónur. Dýrasta veislan
kostar um 70 þúsund en þar er ekki
miðað við ákveðinn fjölda.
í sumum tilvikum fer verðið eftir
því hvort kransakökur og ferming-
artertur fylgja og eins er mismun-
andi hvort heimkeyrsla og uppsetn-
ing er innifalin.
-sv
Kaffihlaðborðið fyrir fermingarveisluna kostar frá 30 þúsund krónum og upp
í um 70 þúsund krónur, allt eftir því hvar keypt er og hvað er innifalið. Hér er
unnið að skreytingu girnilegrar tertu sem myndi sóma sér vei á hvaða ferm-
ingarhlaðborði sem er.
Kaffihlaðborð í heimahús
Fólk hugi að
verðmerkingum
Neytendasíðunni hafa borist
ábendingar frá fólki sem segir
ósamræmi geta verið á verðmerk-
ingum og raunveruleika í stór-
mörkuðum. Dæmi er sem sagt
um það að verð sé auglýst á skilt-
um í versluninni en síðan sé ann-
að verð forritað í afgreiðslukass-
ann. Rétt er fyrir fólk að fylgjast
vel með að þessir hlutir séu í lagi
í þeim verslunum þar sem það
kaupir inn.
Frá Stjörnusnakki:
Nýjung á
markaðnum
Iðnmark ehf. er að setja nýtt
Stjörnusnakk á markað. Um er að
Kaupgarður í Mjódd:
Ódýrara
Tab X-tra
Á tilboðssíðunni í gær birtist
rangt verð á Tab X-tra hjá Kaup-
garði í Mjódd. Sagt var að 2 1
kostuðu 219 krónur en það
rétta er þeir kosta 119 kr. -sv
ræða tvær tegundir sem kallaðar
eru Veisluflögur, önnur krydduð
með dilli og sýrðum rjóma og hin
með chilepipar. Flögunum er pakk-
að í 150 g poka og þær eru fram-
leiddar úr þurrkuðum kartöflum,
snöggsteiktar í 10 sek. og hafa
þar af leiðandi 25% minna fitu-
innihald en venjulegar kart-
öfluflögur, að sögn framleið-
anda.
Fyrir 865 kr.
Skútan
Marsipanterta, súkkulaði-
rjómaterta, konfekt- og maren-
stertur, súkkulaðiskúffúkaka,
mazarínkökur, kafTisnittur,
brauðtertur með kjöti eða fiski
og flatkökur með hangikjöti og
grænmetissalati. Verðið miðast
við staðgreiðslu.
Fyrir 875 kr.
Nýja kökuhúsið
100 snittur, 2x12 manna
brauðtertur með skinku, 3
brauðrúllur með rækju, 16
manna marsipan- sálmabók, 16
manna rjómaterta, 2 jarðarberja,
2 banana-, 2 súkkulaði- og 2
sachertertur og 30 manna rúllu-
terta. Miðast við 50 manns.
Jyrir 890 kr.
íslandskostur
Brauðtertur, laxa-, rækju- og
skinku-, snittur, 2-3 á mann,
kringlóttar 12 manna tertur,
mokka-, peru-, jarðarberja-, ban-
ana- og sérrí-, og loks litlar
súkkulaðikökur. Fólk getur í
sumum tilfellum fengið lánað
leirtau og veislufóngunum er
komið á staðinn á höfuðborgar-
svæðinu. Hægt er að panta sér-
staklega marsipantertu eða
rjómatertu og Islandskostur er
með sérstaka útfærslu á kransa-
köku og konfekti.
Fyrir 900 kr.
Kátir kokkar
Snittur, flatkökur með hangi-
kjöti, brauðtertur, 2 teg. af rjóma-
tertum, rúllutertur, pönnukökur
með rjóma og pönnukökur með
sykri, kleinur og formkökur.
Nýja kökuhúsið
40 snittur, 12 manna
brauðterta með skinku, ein
brauðrúlla með rækjum, 12
manna marsipan sálmabók, jarð-
arberja-, súkkulaði-, banana- og
sacherterta. Miðað við 20 manns.
Veislan
Fermingar-marsipanterta,
jarðarberjatertur, rjómatertur,
súkkulaðitertur, 2 teg. brauðtert-
ur, 7 teg. kaffisnittur og heitur
brauðréttur með skinku og
spergli. Lágmark 25 manns og
akstur á stað í nágrenninu og
uppsetning er innifalið í verði.
Með kransaköku er verðið fyrir
manninn 1.050 kr.
Fyrir 950 kr.
Óðinsvé
Rjómatertur, brauðtertur,
snittur, flatkökur með hangi-
kjöti, heitir brauðréttir, djöfla-
tertur, 2 teg. af kaffitertum. Mið-
ast við 40-70 manns.
Fyrir 1.090 kr.
Lækjarbrekka
Fermingarterta, 4 aðrar teg. af
tertum, 2 teg. af snittum, 2 teg. af
brauðtertum, flatkökur með
hangikjöti og pönnukökur. Mið-
að er við minnst 20 manns. Ekk-
ert er borgað fyrir börn yngri en
6 ára en fyrir 7-12 ára er borgað
hálft gjald.
Fyrir 1.190 kr.
Múlakaffi
5 teg. af brauðsnittum, laxa- og
skinkubrauðterta, jarðarberja-,
peru- og sérríterta, flatbrauð með
hangikjöti, heitt eplapæ með
rjóma og heitt rúllutertubrauð.
Miðast við minnst 30 manns.
Kransakaka og fermingarterta
fást á heildsöluverði ef óskað er
og öllu er ekið á staðinn.
Óðinsvé
Rjómatertur, árituð marsipan-
terta, brauðtertur, snittur, flat-
kökur með hangikjöti, heitir
brauðréttir, djöflatertur, rjóma-
pönnukökur og 2 teg. af kaffitert-
um. Þeir sem taka kransaköku
með borga 1.390 fyrir manninn.